Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1995, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1995, Page 20
20 MÁNUDAGUR 20. MARS 1995 ÁRSHÁTÍÐ - TILBOÐ Félagasamtök óska eftir tilboði í árshátíð félagsins. innifalið í tilboðinu þarf að vera: Matur fyrir allt að 220 manns. Hljómsveit og annaö tilheyrandi. Æskileg staðsetning allt að 50 km radíus frá Reykja- vík. Tími: laugardagskvöld frá 23. sept. - 21. okt. ’95. Tilboð leggist inn á augld. DV fyrir 1. apríl, merkt Árshátíð - 1918. VIT-A-GEL meöA vítamíni Meö VIT-A-GELi hefur M.D. Form- ulations stigið framfaraskref í notk- un A vítamíns við húðmeðferð. Vís- indalegar tilraunir í meira en 60 ár hafa sýnt að A-vítamín gegnir þýð- ingarmiklu hlutverki í sambandi við endurnýjunareiginleika húðarinnar. Umbreytt (estruð) A vítamín-sýra er einmitt eitt virku efnanna í M.D. Formulations VIT-A-GELi. Því er ætlað að endurnýja áferð og yfir- bragð húðarinnar án hinna óþægi- legu aukaverkana sem oft vilja fylgja slíkum efnum. VIT-A-GEL er fram- leitt til að nota með og undirstrika áhrif glýkólsýruefnanna frá M.D. Formulations. Umbúðir: 30 ml flaska fæst á bestu snyrtistofunum. Aðalfundur íslandsbanka h.f. Aðalfundur íslandsbanka hf. 1995 verður haldinn í Borgarleikhúsinu mánudaginn 27. mars 1995 og hefst kl. 1630. Dagskrá 1. Aöalfundarstörf í samræmi viö 19. grein samþykkta bankans. 2. Tillögur til breytinga á sam- þykktum bankans. a) Vegna breytinga á lögum. b) Um innlausnarrétt hluthafa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Framboösfrestur til bankaráös rennur út miðvikudaginn 22. mars n.k. kl. 1000 fyrir hádegi. Framboðum skal skila til bankastjórnar. , Atkvæöaseðlar og aögöngumiðar aö fundinum veröa afhentir hluthöfum eða umboösmönnum þeirra í íslandsbanka hf., Ármúla 7, Reykjavík, 3. hæö, 22. mars frá kl. 1015- 1600og 23. og 24. mars n.k. frá kl. 915- 1600 og á fundardegi frá kl. 915 - 1200. Ársreikningur félagsins fyrir áriö 1994 sem og tillögur þær sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til sýnis á sama staö frá og meö mánudeginum 20. mars 1995. Hluthafar eru vinsamlegast beönir um aö vitja aögöngumiða og atkvæöaseðla sinna fyrir kl. 1200 á hádegi á fundardegi. 14. mars 1995 Bankaráð íslandsbanka hf. ÍSLANDSBANKI Merming Villibarnið Nell Út er komin í flokki svokallaðra Úrvalsbóka sagan af Nell. Hér segir frá villibarninu Nell og snertingu þess við heim siðmenningarinnar og tilraunir misvit- urra en velviljaöra fulltrúa menntunar og manngæsku til þess að hrífa hana á brott úr sínu náttúrulega umhverfi. Nell er alin upp í frumstæðum bjálkakofa fjarri mannabyggðum. Eina mannvera sem hún þekkir vel er móöir hennar sem er blest á máli eftir að hafa feng- ið heilablóöfall. Þegar móðirin feflur frá þarf Nefl að standa á eigin fótum. Fyrstur kemur til sögunnár Jerry Lovell, læknir í sveitaþorpi í nágrenninu. Hann heill- ast af Nell en gerir sér ljóst að erfitt er að byggja upp traust og ná einhverju sambandi við hana. Hann leitar til stórborgarirmar og yfirvöld þar fela Paulu Olsen sérfræðingi aö rannsaka málið. Þau takast á um lögleg yfirráð yfir Nell en Lovell leggst alfarið gegn því að hún verði flutt til borgarinnar og rannsökuð á spít- ölum þar. Paula og Jerry setjast bæöi aö í skóginum um stundarsakir við að fylgjast með Nell og reyna að komast til botns í framferöi hennar og tungumáli. Um þessar mundir er kvikmynd um sama efni sýnd í kvikmyndahúsum og leikur Jodie Foster hlutverk Nell með miklum ágætum, Liam Neeson fer með hlut- verk Lovells en Natasha Richardson leikur Paulu Ols- en. Foster hefur fengið tilnefningu til óskarsverðlauna fyrir leik sinn en alls fær myndin fjórar tilnefningar. Þessi bók er eftir Mary Ann Evans og er skrifuö upp úr handriti þeirra Wflflam Nicholson og Mark Hand- ley að kvikmyndinni. Það hefur stundum verið sagt að ef nefnd hefði verið fengin tfl þess að hanna hestinn þegar Guð skapaði heiminn þá liti hesturinn sennilega út eins og úlfaldi. Það sama má segja um þessa bók. Það liggja ólík lögmál til grundvallar kvikmyndahand- riti og bók, uppbygging er ólík og atburðarás sem þyk- ir góð í bíói virkar ekki alltaf sannfærandi þegar hún er komin á blað í miðri sögu. Það sem einkum skortir hér á er sannfærandi per- sónusköpun. Fólkið, að Nefl þó undanskilinni, verður einfalt og grunnt og tekst ekki vel að gæða það lífi. Bókmenntir Pált Ásgeir Ásgeirsson Bókin heldur þó vel athygli manns en farið er býsna hratt yfir sögu, stundum án þess að viðhlítandi skýr- ingar eða undirbygging fylgi. Almennt séð sýnist málfarið á sögunni vera ágætt og engar forsendur til þess að gagnrýna það miðað við frummálið. Einkennilegt finnst mér þó að þýðandi lætur hvergi nafns síns getið. Bókin er 190 bls. og verðinu stillt í hóf eins og endra- nær á Úrvalsbókum. Bókin er handhæg og Frjáls íjölmiðlun nær stööugt betri tökum á því að gera papp- írskiljur úr garði eins og þær eiga að vera. Vasa- brotsbækur þurfa nefnilega aö þola meðferð eins og nafn þeirra gefur til kynna, að einhver stingi þeim í vasann og setjist jafnvel á þær. Ég held að þessi þoli það án þess að hrynja í blöð. Nell - Mary Ann Evans skrifaði eftir handriti William Nichol- son og Mark Handley Útgefandi: Frjáls fjölmiðlun 190 bls. Þýðandi: óþekktur á lista L Áhrifamesta dauðareynslan fyrr og síðar VIKU eftir VIKU, MÁHUD eftir MÁHUD GARDAGUK 25. FEBRÚAR ____________DV Métsölukílj Bandarjkin Rít almonns öðtis: 't. B.J. Efldle, & C. T.ylor: Embracsd by lhu Light, 2. Jerry Selnfold: . Sr-inlp.nguarj«. 3. Nowt Gingrich. O. Anr.„ «■ 1 Contract vritn Americá. K Delany, Dnlany & H«»rth Having Our Say. S. Ih.-.ma* Moara Cara of the Soul. « M Srett Cnct- - ■ ■ The Road Lns T | 7. Thames Moore. SoulMatet. 8. Maya Angelour Wfliildr-'í r~ METS0LUBÆKUR almenns eðlis í USA. Fæst EHN í bókabúðum á íslandi FRJÁLS r FJÖLMIÐLUN HF. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.