Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995
23
Bridge
f slandsbankamótið í bridge:
Sveit Landsbréfa varði titilinn
Sveit Landsbréfa sigraði með yfir-
burðum í úrslitakeppni íslandsmóts-
ins í bridge sem haldin var um bæna-
dagana. Sveitin hlaut 191,5 stig af 225
mögulegum, eða rúmlega 20 stig að
meðaltah í leik.
Tíu sveitir öðluðust þátttökurétt í
úrslitakeppninni, en fljótlega kom í
ljós að sveit Landsbréfa myndi verja
titilinn frá því í fyrra. Eftir þrjár
fyrstu umferðirnar hafði sveitin 74
stig af 75 mögulegum og eftir átta
umferðir var titilinn i höfn.
Sveit Ólafs Lárussonar skaust upp
í annað sætið mörgum að óvörum,
eftir slakt gengi í fyrstu umferðun-
um. Náði hún þar með að brjóta upp
heföbundna röð A-sveitanna. í þriðja
sæti varð sveit VÍB og fjórða sveit
S. Ármanns Magnússonar.
íslandsmeistarar 1995 eru Jón
Baldursson, Sævar Þorbjömsson,
Guðmundur Páll Amarson, Þorlák-
ur Jónsson og Sverrir Ármannsson.
Þeir fjórir fyrstnefndu skipa lands-
hðið ásamt Jakobi Kristinssyni og
Matthíasi Þorvaldssyni, sem spiluðu
í sveit S. Ármanns Magnússonar.
Lokastaðan í mótinu var þessi:
1. Sveit Landsbréfa 191,5
2. " Ólafs Lárassonar 159
3. " VÍB 153,5
4. " S. Ármanns Magn. 147
5. " Samvinnuferða 144,5
6. " Hjólbarðahahar 133
7. " Roche 121,5
8. " Metró 102
9. " Bridgef. Kópavogs %
10." Borgeyjar 83
Eins og mörgum er kunnugt spila
Jón og Sævar sagnkerfi, þróað úr
Precision, nefnt ICE/Relay, sem
byggist á sterku laufi, síðan spum-
ingum um skiptingu og kontról. Ná
Með Sævar og Jón n-s og Hauk
Ingason og Jón Þorvarðarson í sveit
Roche a-v gengu sagnir á þessa leið:
(4) 5 tíglar og 4 lauf
(5) 5 kontról
Slemman er mjög góð, með tígul-
kóng réttum og trompunum 3-2, þá
vinnast líklega sjö. Svo var ekki í
þetta sinn, slemman tapaðist og 11
impar út, því á hinu borðinu létu
Gylfi og Sigurður B. sér nægja þrjú
grönd og unnu fjögur.
Suður
tlauf
2 tíglar(2) pass
2 grönd(3) pass
3hjörtu(4) pass
4 lauf(5) pass
pass
Vestur Norður Austur
pass 1 hjarta(l) pass
2 hjörtu pass
31auf pass
3spaðar pass
61auf pass
Laufið var sterkt og eitt hjarta neit-
aði einspih og fimmht. Venjan er að
sterka höndin spyiji þá veiku, en Jón
sneri því við með tveggja tígla sögn-
inni:
(1) Neitar einspili og fimmht
(2) 0-1 hjarta, 2-4 spaðar
(3) 3 spaðar og 1 hjarta
Umsóknir um sumardvöl í
orlofshúsum og tjaldvögnum V.R.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Sveit Landsbréfa hafði óvenjulega yfirburði á íslandsbankamótinu í sveitakeppni, skoraði 21,3 stig að meðaltali í
leik. Spilarar í sveitinni eru, frá vinstri talið: Jón Baldursson, Guðmundur Páll Arnarson, Þorlákur Jónsson, Sverr-
ir Ármannsson og Sævar Þorbjörnsson. DV-mynd EJ
þeir oft fleiri slemmum en aðrir, sem
skapar sveiflur inn og út.
Jóni var þessi minnisstæð:
S/0
♦ K2
V Á1052
♦ 975
+ ÁD72
* G9753
V 9876
* K102
* 8
* 1064
V KDG3
♦ G4
+ 10953
* ÁD8
V 4
♦ ÁD863
+ KG64
____________________Merming
Páska-
barokk
Kópavogskaupstaður stóð að tónleikum í Gerðarsafni sl. laugardag. Þar
komu fram þau Marta Guðrún Halldórsdóttir, sópran, Martial Nardeau
og Guðrún Birgisdóttir sem léku á barokkflautur, Örnólfur Kristjánsson,
sem lék á barokkselló, og Christine Lecoin sembaheikari. Á efnisskránni
voru tvær aríur eftir Hándel auk verka eftir Bach.
Aríurnar tvær eftir Hándel, Flammende Rose og Susse stihe em úr
Neun deutsche Arien fyrir sópran, fiðlu (eða flautu) og fylgirödd. Aríum-
ar vom báðar ákaflega fahega fluttar. Ákveðinn léttleiki, mikh ná-
kvæmni og tilfmning einkenndu flutninginn og má raunar segja það um
flutning ahrar efnisskrárinnar þessu sinni.
Christine Lecoin lék Svítu fyrir sembal í e-moh BWV 996. Verkið er í
sex þáttum og lék hún það með sérlega skemmtilegri hryn. Hið vel þekkta
Tórúist
Áskell Másson
Bourée var mjög vel leikið og lokaþátturinn, Gígan, var glæshegur í flutn-
ingi Christine.
Þau Guðrún og Martial fluttu ásamt Ömólfi og Christine, Tríósónötu
BWV 1028 í D-dúr eftir Bach. Hér var um frábæran flutning að ræða.
Samleikur þeirra Guðrúnar og Martials var einkar vel útfærður og ástæða
er einnig að geta góös leiks Ömólfs á sehóið. Verkið er í fjórum þáttum
og var hið snúna Ahegro í lokin leikið af leiftrandi gleði og jafnframt
miklu öryggi.
Marta söng flögur lög úr Söngbók Schemelhs eftir Bach og gerði það
mjög vel, en hápunktur söngs hennar að þessu sinni var er hún söng
aríuna Blute nur úr Mattheusarpassíunni og Ich folge dir úr Jóhannesarp-
assíunni. Rödd hennar og sviðsframkoma er gædd miklum þokka. Öndun-
in er átakalaus og fókus og tærleiki tóns góður. Artikúlasjón er skýr og
textaframburður einnig. Síðastnefnda arían var hápunktur þessara tón-
leika er ahir flytjendurnir lögðust á eitt og skiluðu af miklu hstfengi þess-
ari að mörgu leyti óvenjulegu aríu Bachs.
Kópavogskaupstaður má vel við ima að búa yfir slíkum listamönnum
sem hér fóm.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumariö
1995,Umsóknir á þar til gerðum eyðublööum sem fást á skrifstofu félagsins þurfa
að berast skrifstofunni, Húsi verslunarinnar, 8. hæð, í síðasta lagi föstudaginn
28. apríl 1995.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
Einarsstöðum á Völlum S-Múl
Flúðum Hrunamannahreppi
Akureyri
Húsafelli í Borgarfirði
Ölfusborgum við Hveragerði
Auk húsanna eru 10 tjaldvagnar leigðir til félagsmanna.
Húsin og vagnarnir eru laus til umsóknar tímabilið 26. maí til 15. september.
Úthlutunarreglur:
Við þessa úthlutun byggist réttur til úthlutunar á félagsaldri í V.R. að frádregnum
fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur fást á
skrifstofu V.R. og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu.
Leigugjald: kr. 9.000,00 - 10.500,00 á viku í orlofshúsi
kr. 7.000,00 - í tjaldvagni í 6 daga
kr. 14.000,00 - í tjaldvagni í 13 daga
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir þurfa að berast skrifstofu V.R. í
síðasta lagi 28. apríl n.k.
Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi/tjaldvagni munu liggja
fyrir 8. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi
verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda
má útfyllt umsóknareyðublöð í myndrita nr: 588 8356.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
V________________________________________________________________________/
lllugastöðum í Fnjóskadal
Miðhúsaskógi í Biskupstungum
Stykkishólmi
Kirkjubæjarklaustri