Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 48
562*2525 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700 ------^----------------- BLAÐAAFGREIÐSLA 0G ÁSKRIFT ER 0PIN: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 563 2777 Kl. 6-8 LAUGARDAGS- OG MANUDAGSMORGNA LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995. Málefnasamningur sá sem Sjálf- stæðisflokiatrinn og Pramsóknar- flokkurinn hafa gert með sér og samþykktur var á þingflokksfund- um í gær hefur enn ekki verið birt- ur. Svo mikil leynd hvíldi yfir hon- um í gær að þingmenn nýju stjóm- arflokkanna fengu ekki að taka pappírana með sér af þingflokks- fundum. Að sögn þeirra þing- manna flokkanna sem DV ræddi við í gær ríkti ánægja með samn- ingsdrögin sem lögð voru fram í gær og aðeins þarf að gera lítils háttar lægfæringar á málefna- samningnum tfi þess að allir veröi ánægðir. Samkvæmt heimildum DV verð- ur tekið á vanda þess fólks sem er að missa íbúðarhúsnæðí sitt með því að lengja lánstima húsnæðis- lána. í því sambandi tala menn um að lengja hann í 40 ár úr 25. Þá er einnig í stjómarsáttmálanum ákveðið að taka á þeim vanda sem ofurháir jaðarskattar eru fyrir fólk með um og innan við 200 þúsund króna heimilistekjur. - Varðandi landbúnaðarmálin er ákveðiö að endurskoða búvöru- samninginn á grundvelli þess að leysa vanda sauðfjárbænda, sem er sagður hrikalegur. Þá er eimiig talað um að styrkja markaðsað- gerðir við útflutning á landbúnað- arvörum. Þaö veröur gert á grund- velli laga um hreinleika og hollustu íslenskra landbúnaðarvara. Gert er ráð fyrir að breyta skött- um á fyrirtæki með þeim hætti að þeir verði eins og best gerist í sam- keppnislöndunum. Þetta mun vera hugsað þannig aö skattar á fyrir- tæki hér á landi verði ekki til þess að erlend fyrirtæki vílji ekki fjár- festa hér á landi. Til þess að þetta sé hægt verður aö koma til laga- breyting. Rætt er um að breyta reglum um Lánasjóð íslenskra námsmaima, meðal annars á þann veg að hætt verði að veita lánin eftir á eins og verið hefur síðustu 4 árin. Einnig er minnst á að eínkavæöa ríkisbankana, auka fiármagn til menntamála, stefna á jafnvægi í ríkisbúskapnum og að ná fiárlaga- hallanum niður. Gerðar verða breytingar á kvóta- kerfinu á þann veg að tekið verður á vanda þeirra vertíðarbáta sem orðið hafa fyrir mestri skerðingu með því að auka kvóta þeirra. Banndögum smábáta veröur fækk- að og menn hafi ffelsi til að færa sóknardagana til. - Sjá einnig á bls. 2 Vélsleðaslys Skipting ráðu- neyta frágengin Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug síðdegis í gær eftir manni sem slas- ast hafði á vélsleða í Jökuldölum á Fjallabaksleið syðri. Ekki er vitað nákvæmlega um tildrög slyssins né um meiðsl mannsins en þau munu þó ekki vera lífshættuleg. -pp Davíö Oddsson kemur úr fundarherbergi þingflokks framsóknarmanna í Alþingishúsinu um hádegisbilið í gær. Erindi hans þangað var að greina frá litils háttar athugasemdum sjálfstæðisþingmanna við stjórnarsáttmálann nýja. DV-mynd Brynjar Gauti Gengið var frá skiptingu ráðu- neyta í væntanlegri ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks síðdegis í gær. Sjáifstæðisflokkurinn fær forsætisráðuneyti, fjármála- ráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, menntamála- ráðuneyti, samgönguráðuneyti og Hagstofu íslands. Framsóknarflokk- urinn fær utanríkisráðuneytið, land- búnaðarráðuneytið, heilbrigðisráðu- neytið, viöskipta- og iðnaðarráðu- neytið, félagsmálaráðuneytiö og um- hverfisráðuneytið. Þá fær flokkur- inn embætti samstarfsráðherra Norðurlanda í sinn hlut. Embætti forseta Alþingis verður á hinn bóg- inn skipað sjálfstæðismanni. í dag munu þingflokkar stjórnar- ílokkanna síðan taka ákvörðun um það hvaða þingmenn verða ráðherr- ar. Munu formenn flokkanna gera um það tillögu á þingflokksfundum sem væntanlega verða um kvöldmat- arleytið í dag. Tilvísanakerf inu frestað PT-7000 Merkivél i ' m/íslensku letri^^^^r Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 Gildistöku hins mjög svo umdeilda tilvísanakerfi frá heimilislæknum til sérfræðinga, sem Sighvatur Björg- vinsson heilbrigðis- og tryggingaráð- herra ákvaö að koma á í andstöðu við sérfræðingana, verður frestað meðan ný úttekt á því fer fram. Þetta kom fram á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins í gær. Þar kom einnig fram að menn vilja ekki taka ákvörðun um hvort það lifir eða deyr fyrr en ítarleg úttekt á kostum þess og göllum hefur farið fram. ÞREFALDUR 1. MNNINGUR Mánudagur Sunnudagur Veöriö á sunnudag og mánudag: LOKI Þarfauktilvísanakerfið! Víða léttskýjað Á sunnudag verður hæg breytileg eða norðlæg átt á landinu, þurrt um land allt og mjög víða léttskýjað. Hiti verður 2-7 stig að deginum en næturfrost. Á mánudag verður breytileg eða norðaustlæg átt, áfram fremur hæg, smáél á annesjum norðan- og norðaustanlands en annars bjartviðri. Áfram verður svalt og allmikill hitamunur dags og nætur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.