Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995 Sérstæð sakamál x>v Skuggi örlaganna Móðir Philips, Maud, með manni sínum, Robert (fyrir miðju), á brúðkaupsdegi þeirra. Rosalind og Philip á brúðkaupsdaginn. Maud Tinsley Millar var ekki hrifm þegar Philip, sautján ára sonur hennar, ákvað að ganga í flotann. Hún gat ekki með nokkru móti gleymt því þegar tveir menn frá útgerðarfélaginu sem maður hennar var hjá höfðu barið að dyr- um hjá henni dag einn þrettán árum áður þess aö segja henni að hún væri orðin ekkja. Þá var hún aðeins tuttugu og sjö ára. Maud Tinsley bjó i Plymouth á Englandi. Maður hennar, Robert Millar, hafði farið á kaupskip þegar hann var sextán ára, og þegar hún missti hann hafði hann verið þriðji stýrimaður í langri sjóferð. Þá höfðu þau verið gift í sex ár og son- ur þeirra, Philip, var íjögurra ára. Á spánskri krá Maud var raunsæ kona. Þótt Ro- bert hefði heitið því að vera trúr henni vissi hún að hann átti.„vin- konur“ í höfnum erlendis. Oft leið langt milli þess sem skipin sem hann var á komu í höfn, og stund- um mánuðir án þess að hún sæi hann. Maud lét sér þetta lynda, en engu að síður brá henni mikið þeg- ar mennirnir tveir frá útgerðarfé- laginu tilkynntu henni að Robert hefði verið stunginn til bana í spænskri krá eftir deilu um stúlku. Maud varð lítil huggun í að heyra aö Spánverjinn, sem ráðið hafði mann hennar af dögum, hafði verið handtekinn og átti langa fangavist fyrir höndum. Eftir þetta helgaði Maud sig syn- inum, Philip. Hún gat ekki hugsaö sér að giftast aftur, og var viss um að hún myndi geta séð fyrir hon- um. Aðvörun Maud Philip, sem var fæddur í hafnar- borginni Plymouth, fékk snemma áhuga á sjómennsku, og hann var ekki orðinn hár í loftinu þegar hann fór að hafa orö á því við móð- ur sína að hann langaði til að ganga í flotann. Það gerði hann svo sautj- án ára gamall. Þremur árum síðar hitti Philip Rosalind Tappenden, nítján ára stúlku. Þau trúlofuðu sig eftir þriggja ára kynni, og ári eftir það gengu þau í hjónaband. Þá var Philip nýkominn í land eftir langa sjóferð til Kingston á Jamaíka. Allt frá þeim degi þegar Philip kom fyrst heim í matrósafótum breska flotans hafði móðir hans varaö hann við þeim hættum sem leyndust í erlendum höfnum. Hún var að sjálfsögðu að hvetja hann til að fara varlega í allri umgengni við stúlkur, og nefndi í því sambandi það sem hún kallaði „ófrávíkjan- legt náttúrulögmál". Erlendir karl- menn væru oft skapofsamenn, og því gæti það verið beinlínis lífs- hættulegt fyrir breska sjóliða að sýna áhuga á stúlkum í hafnar- borgum úti um heim. ÁArkRoyal Áhyggjur Maud minnkuðu nokk- uð þegar Philip kvæntist Rosalind. Philip hafði alltaf reynst traustur, og ef til vill var hættan á að hann sýndi erlendum stúlkum áhuga ekki eins mikil og hún hafði stund- um óttast að orðið gæti. Vonandi biði sonar hennar langur og árang- ursríkur starfsferill í flotanum. Ungu hjónin keyptu sér lítið hús í einni útborga Plymouth, Buck- land, skammt þar frá sem Maud bjó. Rosalind virtist glöð og ánægð yfir að vera gift manni í hinum konunglega breska flota, þótt það hefði í for með sér að hann væri langtímum saman að heiman. Fað- ir hennar hafði verið í flotanum, og því vissi hún vel hvað hennar beið þegar hún gekk í hjónabandið. Philip var á Ark Royal, og meðal vina hans um borð voru nokkrir sem þekktu Rosalind. Eitt sinn, er skipið var í höfn, létu þeir þau orð falla við hana að Philip hefði ekki alltaf verið henni trúr erlendis. Hann hefði nokkrum sinnum sýnt erlendum stúlkum áhuga, og að minnsta kosti tvívegis hefði hann sofið hjá þeim. Óróleiki Rosalind var að sjálfsögðu ekki ánægð með að fá þessar fréttir. Hún hafði lengst af verið einmana eftir að maður hennar fór á sjóinn, og vitneskjan um að hún gæti ekki treyst honum létti henni ekki ein- veruna á heimilinu. Þar var hún oftast því henni hafði ekki tekist að fá vinnu. Ein af fáum dægra- dvölum hennar var því sú að heim- sækja foreldra sína og tengdamóð- ur til skiptis. Um hríð hugsaði Rosalind ráð sitt, en sá svo að hún yrði að gera átak til að fá sér vinnu. Það eitt yröi til þess að hún sæti ekki ein heima með hugsanir sínar. Hún hafði beppnina með sér og fékk hlutastarf í krá. Þar kynntist hún að sjálfsögðu mörgum mönnum, og fór hún heim með einum eða tveim- ur þeirra. Einn þeirra sem hún kynntist þannig var Vernon Watters, tutt- ugu og átta ára vélaviðgerðarmað- ur. Ekki leið á löngu þar til sam- band þeirra var orðið fast. Það má segja Rosalind til varnar aö hún var ekki ánægð með fram- hjáhaldið, en hún reyndi aö vísa samviskubitinu frá með þeirri til- hugsun að í raun væri hún aðeins að gera þaö sem maður hennar Vernon Watters. gerði. En þegar Philip var í höfn reyndi hún allt sem hún gat til að reyna að fá hann til að hætta í flot- anum og fá sér starf í landi. Aðdragandinn í fyrsta sinn sem Philip kom heim eftir að Rosalind fór að vinna á kránni hafði hann verið í óvenju- langri sjóferö. Hún var heima þeg- ar hann kom í land og hún nefndi það ekki við hann þá að hún væri komin í vinnu. Eftir nokkra stund heima fór hann út með félögum sínum til að fá sér öl, en þegar hann kom heim aftur var Rosalind ekki þar. Þá komst hann að því að kona hans væri farin aö afgreiöa á krá. Hann varð reiður, fór á krána og krafðist þess að hún kæmi heim með sér. Tvær stúlkur voru við afgreiðslu þegar hann kom á krána og gat Rosalind því farið að kröfu manns síns. En þegar þau komu heim kom til mikils rifrildis milli þeirra. Krafðist hann þess að hún segði upp starfinu, en hún neitaði því. Um það sem svo gerðist er Rosa- lind ein til frásagnar. Vörnin „Við gengum fram í eldhús," sagði Rosalind. „Philip var enn með háreysti og sagðist ekki þola aö kona hans ynni á krá. Mér væri ekki treystandi því þangaö kæmu margir menn.“ Rosalind sagðist þá hafa sagt hon- um hvað félagar hans hefðu sagt sér. „Og hvað með það?“ spurði Philip þá. Hún svaraði því þá til að þætti honum eðlilegt að hann gæti átt vinkonur í erlendum höfnm gæti hann lítið við því sagt þótt hún ætti kunningja. Og áður en hún hafði áttað sig hafði hún látið sér um munn fara að í raun ætti hún fastan vin. „Hann sneri sér eldsnöggt við þegar ég sagði þetta,“ sagði Rosa- lind. Svo fór hann að berja mig og ég varð hrædd um að hann ætlaði að ganga af mér dauðri. Mér tókst að ná í stóran hníf sem lá á eldhús- borðinu og í tilraun til að verja mig rak ég hnífinn út i loftið." Philip sleppti konu sinni, ram- baði nokkur skref aftur á bak og datt á eldhúsgólfið. „Ég sá að ég hafði sært hann alvarlega," sagði Rosalind, „og hringdi á sjúkrabíl." En það var um seinan. Philip var látinn þegar kotpið var með hann á sjúkrahús. Þáð sem móðir hans hafði óttast mest var orðið að veru- leika. Hann hafði dáið á sama hátt og faðir hans, að öðru leyti en því að það haföi ekki gerst í erlendum hafnarbæ og á hnífnum hafði ekki haldið blóðheitur útlendingur. Ákærö Rosalind var handtekin, og nokkru síðar var hún ákærð fyrir manndráp, en hún var látin laus gegn tryggingu. Hún kom svo fyrir landsréttinn í Exeter. Þar sagði dómarinn, Frederick Lawton, með- al annars eftir að hún lýsti sig seka um manndráp: „Ég hef ertga löngun til þess að setja þessa ungu konu í fangelsi. Þetta er sorgarsaga af lífsglaðri ungri stúlku sem þoldi illa að vera ein langtímum saman. í huga mín- um er enginn vafi á því að hana langaði ekki til að vinna manni sín- um tjón, hvað þá að ráða hann af dögum.“ Rosalind var að sjálfsögðu fundin sek um afbrotið sem hún játaði á sig, og þegar að dómsuppkvaðning- unni kom sagði Lawton dómari: „Ég dæmi þig til fangelsisvistar í eitt ár, en dómurinn verður skil- orðsbundinn í tvö ár.“ Rosalind gat því gengiö úr réttarsalnum í þeirri vissu að kæmist hún ekki í kast við lögin næstu tvö árin færi hún ekki í fangelsi. Hún var því ánægö þegar hún gekk frá dómhúsinu með foreld- rum sínum. Við það tækifæri sagði faðir hennar, Benjamin Tappender, við blaðamenn: „Nú óskum við bara eftir að fá frið, svo að Rosalind geti jafnað sig og byrjað nýtt líf.“ Maud Tinslay Millar bar sorg sína í þögn. Hún lét hugann reika tuttugu ár aftur í tímann þegar tveir menn börðu að dyrum hjá henni til að tjá henni að maður hennar væri allur. Þá hafði ótti gripið hana um örlög sonar síns, þótt hann væri aöeins fjögurra ára, og sá ótti varð að veruleika, hversu ótrúlegt sem flestum hefði fundist það á þeim tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.