Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 32
40
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Trimm____________________________pv
Hilmar Bjömsson í Mætti:
Fimm ára reynsla
með hlaupahópa
- kennum breyttan lífsstíl
Hilmar Björnsson, framkvæmdastjóri Máttar. DV-myndir Sveinn
„Þetta er fimmta áriö sem við bjóðum
fólki að koma og taka þátt í hlaupa-
hópum hjá okkur. Fyrsta árið var
metþátttaka en þá komu 200 manns.
Ég giska á að á þessum fimm árum
hafi 600-700 manns tekið þátt í þess-
um hluta af starfi Máttar."
Þetta segir Hilmar Björnsson,
framkvæmdastjóri Máttar, en nú er
Máttur að fara af stað með sína ár-
legu hlaupahópa. Starfinu er skipt í
hóp A sem eru byrjendur og þeir sem
ætla styttri vegalengdir í Reykjavík-
urmaraþoni, nefnilega 10 kilómetra
eða skemmtiskokk. Hópur B er síðan
fyrir vana skokkara sem stefna á
heilt eöa hálft maraþon. Það er Ragn-
heiður Sæmundsdóttir íþróttakenn-
ari sem stýrir byrjendunum en
Heimir Bergsson íþróttafræðingur
sér um þá sem eru lengra komnir.
Nýmæli í þessari starfsemi Máttar
er sérstakur gönguhópur sem verður
starfræktur í Skipholti 50 þar sem
Máttur er með bækistöðvar auk
þeirra sem allir þekkja í Faxafeni.
Gönguhópurinn er einkum ætlaður
miðaldra fólki sem kýs minni átök
en samt heilbrigða hreyfingu og það
er Jóhanna Guðlaugsdóttir, íþrótta-
kennari og sjúkraþjálfari, sem stýrir
þeim hópi.
Verðið lækkar?
Verðið fyrir 15 vikna námskeiö þar
sem hópurinn hittist þrisvar í viku
er 12.540 krónur. Innifalið í verðinu
er opið kort í líkamsræktarstöð Mátt-
ar og eru meðlimir hvattir til þess
að nota sér það. Verðiö hefur iækkað
um 4.000 krónur frá í fyrra. Hvað
veldur?
„Við höfum breytt dálítið uppbygg-
ingunni á kennslunni. Kennarar eru
færri en oft hafa verið áður og það
ásamt aukinni samkeppni hefur leitt
til verðlækkunar," segir Hilmar. En
hefur orðið mikil þróun í starfi
hlaupahópanna gegnum árin?
„Það má segja að þetta skiptist í
tvennt. Annars vegar erum við með
fastan hlaupanóp sem hefur verið að
hlaupa hér allt árið með reglulegum
hætti og hins vegar eru þessi sum-
arnámskeið sem standa í 14-15 vikur
og lýkur oft með þátttöku í Reykja-
víkurmaraþoni í endaðan ágúst. Við
höfum einnig boðið upp á þessi nám-
skeið í þremur einingum fyrir þá sem
ekki vilja skuldbinda sig allt sumar-
ið.“
Þó fastur kjarni hafi skokkað með
Mætti árum saman hafa margir náð
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
mjög góðum árangi og þá leitað á
önnur mið eftir þjálfun. Hilmar segir
að aðstandendur Máttar hafi
snemma gert sér ljóst að rétt væri
að einbeita sér að byrjendum og
meðalsterkum hlaupurum og láta
íþróttafélögin um sérhæfðari þjálfun
hlaupara sem lengra eru komnir.
„Við höfum séð margt af „okkar“
fólki fara á toppinn í þessu og stofna
sína eigin hlaupahópa og margir
virðast hafa tekið mikið mið af okkar
undirbúningi. Þannig sjáum við að
námskeið sem aðrir auglýsa eru ná-
kvæm stæling af okkar námskeið-
um.“
Kennum nýjan lífsstíl
Hvernig er tekið á móti byrjendum
sem mæta til þátttöku í hlaupahóp-
um Máttar?
„Við höfum reynt að flétta saman
ýmsa þætti þjálfunar og fræðslu. Við
leggjum áherslu á að hlaupið er að-
eins einn þáttur í þeim lífsstíl sem
viö kennum fólki. Það þarf að huga
að mataræði, réttum teygjuæfingum,
vökavtapi, styrktaræfingum, sál-
rænu hliðinni og búnaði. Mjög marg-
ir hlauparar gleyma þessum heildar-
þætti. Þeir láta nægja að hlaupa og
styrkja líkamann ekki nóg að ööru
leyti og lenda fyrir vikið í ótímabær-
um álagsmeiðslum.
Svo má ekki gleyma því hvað hóp-
kenndin og félagsskapurinn er mik-
ils virði og sést best á því hvað
hlaupahópar eru vinsælt fyrirbæri.
Viö höfum ýtt undir þetta með því
að hafa ýmsar aðrar uppákomur fyr-
ir utan hlaup, skokk og leikfimi. Við
höfum farið með okkar fólk í göngu-
feröir á fjöll hér í nágrenninu og svo
er fastur liður á hverju sumri að fara
eina hálendisgönguferð eins og t.d.
Laugaveginn. Þetta er hluti af þeirri
stefnu okkar að kenna fólki nýjan
lífsstíl."
Rómantískir
svitadropar
En sögur segja að menn styrki ekki
bara þrek og þol í hlaupahópum
heldur blómstri rómantíkin einnig í
svitadropunum. Er þetta rétt, Hilm-
ar?
„Auövitað kynnist fólk hér við
skemmtilegar og heilbrigðar kring-
umstæður og við vitum um ástar-
sambönd og jafnvel hjónabönd sem
verða hér til. Við héldum hér árshá-
tíð á dögunum fyrir okkar fólk og
þá fréttum við af pari sem var að
gifta sig sama daginn en þau höfðu
einmitt kynnst á árshátíð Máttar fyr-
ir ári. Þannig getur fólk tengst varan-
lega gegnum heilbrigð áhugamál."
Ragnheiður Sæmundsdóttir, þjálfari hlaupahóps Máttar, með sittfólk í þrek-
prófi í vikunni. Allir gengust undir svokallaða mjólkursýrumælingu.
Hvar á að hlaupa?
Viltu spretta úr spori í dag? Þú á skrifstofu Umf. Aftureldingar í
vilt það áreiöanlega og ef þú ert síma 566 7089.
ekki búin að skrá þig þá skulum 6. maí. Vímuvamahlaup Lions í
viö snöggvast fletta upp í hlaupa- Hafnarfirði hefst kl. 14.00 á Víði-
skránni og sjá hvaö er á dag- staöatúninu. Mest 4,5 km. Allir
skránni í dag og næstu daga. hlaupa allsgáðir og fá pening fýrir.
6. maí. Viðavangshlaup íslands Upplýsingar veítir Bryndís Svav-
hefst kl. 14.00 í Mosfellsbæ. Þetta arsdóttir ofurskokkari í síma 555
erhlaúpiðsemverðuraðfarafram 3880.
á grasi lögum samkvæmt. Minnst 11. maí Fjölskylduhlaup Vals
1,5 km en mest 8 km. Upplýsingar hefst kl. 19.00 við Hlíðarenda.
Enn um „Laugavegsmet"
Á Trimmsíðu 29. apríl var htil
grein um met á „Laugaveginum"
milli Landmannalauga og Þórsmerk-
ur. Enn bætist í sjóð þekkingar um
afrek manna á þessari leið þvi Ingvar
Baldursson skrifaði Trimmsíðu
nokkrar línur og lýsti þar gömlu
meti á hendur sér. Hér skal áréttuð
tímaröö þeirra sem hafa sett met og
hvenær þau voru slegin.
5. september 1991 Þorsteinn og
Guðmundur Hannessynir 8:03
28. ágúst 1993 Ingvar Baldursson
7:56
2. september 1993 Benedikt Hálf-
dánarson 7:21
12. september 1993 Sveinn Ernsts-
son 6:36
Met Sveins stendur semsagt enn
og sjálfsagt á einhver eftir að reyna
að slá það. Best er að fara leiðina að
hausti þegar stillt er í veðri og snjóa-
lög í Kaldaklofsfjöllum í lágmarki.
Sé mikill snjór borgar sig að vera á
ferð snemma morguns áöur en snjó-
bráðar fer að gæta. Grashagakvísl,
Bratthálskvísl, Bláfjallakvisl, Innri-
Emstruá og Þröngá getur allar þurft
að vaða en sé heppnin með er hægt
aö stikla flestar þeirra. Hefðbundin
aðferð er að halda sig við stikuðu
leiðina og víkja hvergi frá henni og
kvitta í gestabækur á leiðinni til stað-
festingar komu sinni. Upphaf er skáh
FÍ í Landmannalaugum og enda-
mark Skagfjörðsskáli í Langadal í
Þórsmörk sem einnig er í eigu FÍ.
: --W'.. *. t* .* *».* * . . * jHS ..',
: ;
ICELAND
1995
PU FÆRÐ UPPLYSINGAR UM HM'95
k VERALDARVEFNUM h..P://»»,v.ha„dbaius
□RACL6' W o r I d W i d e W e b I n t e r f a c e K i t
TEYMI
ORACIE HUGBUNAÐUR A I S L A N D l