Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Stuttar fréttir
Barist um hvert atkvæð!
Samkvæmt
óopinberum
skoðanakönn-
unum fyrir for-
setakosning-
arnar í Frakk-
landi hefur
.Jacques Chirac
52 prósenta
fylgi á móti 48 prósenta fylgi sós-
íalistans Lionels Jospins. Mikil
óvissa ríkir um úrslitin á sunnu-
dag og er hart barist um hvert
atkvæði.
Króatar sýknaðir
Sendimenn Evrópusambands-
ins hreinsuðu króatíska herinn
af ásökunum um að hafa fariö
illa með serbneska stríðsfanga.
Hörð átök brutust á sama tima
út í noröurhluta Bosníu þar sem
Bosníu-Serbar svöruðu árásum á
Króatíu-Serba.
Blöð Silf urbiblíu fundin
Sænska lögreglan fann stolnar
blaðsíður og kápu ómetanlegrar
silfurbiblíu í skáp á lestarstöö-
inni i Stokkhólmi. Blaðsíðunum
og kápunni var rænt af háskóla-
bókasafninu i Uppsölum í síðasta
mánuöi.
Fimm verkamenn myrtir
Múslímskir öfgamenn í Alsír
drápu fimm erlenda verkamenn
í árás á olíuleiðslufyritæki.
Striðshetja minnst
Elisabet Eng-
landsdrottning
minntist þeírra
sem létust í
seinni heims-
styrjöldinni og
hvatti Evr-
ópubúa til að
halda uppi
minningunni um þá sem fómuðu
lifi sinu til aö sigur ynnist.
Hunguriírak
Matarskortur og alþjóðiegur
ágreiningur ógnar lifí. meira en
einnar milljóna manna i írak.
Banvæn fjölskyldudeila
Hatrömm deila tveggja íjöl-
skyldna í þorpi í suöurhluta
Egyptalands endaði í vopnaskaki
sem varð 24 að bana og særði 18.
Grófuvitlaustlík
Pólverjar grófu vitlaust lík þeg-
ar þeir töldu sig vera að grafa lík-
amlsleifar rithöfundarins Witki-
ewicz. Tóku þeir á móti likams-
leifunum af Rússum í góðri trú.
Tyrkirhættirstríði
Tyrkir hafa hætt stríðsrekstri
sínum gegn Kúrdum í norður-
hluta íraks og kallað hersveitir
sínar heim. Aögeröir Tyrkja
stefndu samskiptum þeirra við
Evrópusambandið i voða. Reutcr
Bensínverð á heimsmarkaði:
Ekki hærra
í 8 mánuði
Bensínverð á heimsmarkaði hækk-
aði nokkuð í vikunni og hefur ekki
verið hærra í 8 mánuði. Ástæðan er
fyrst og fremst stóraukin eftirspum.
Þannig er 98 okt. bensín komið yflr
200 dollara markið fyrir hvert tonn.
Reiknað er með enn hærra verði á
næstunni þannig að hækkun inn-
lendu olíufélaganna í gær ætti ekki
að koma svo mikiö á óvart.
Uppgangurinn á Wall Street hélt
áfram í vikunni. Dow Jones hluta-
bréfavísitalan fór í fyrsta sinn í sög-
unni yfir 4.400 stig á fimmtudag en
hafði lækkaö um nokkur stig þegar
viðskipti hófust á ný í gærmorgun.
Hlutabréfaverð í öðmm helstu kaup-
höllum heims hefur hækkað lítillega
í vikunni en lokað hefur verið í
Tokyovegnahátíðarhalda. -Reuter
Útlönd r>v
Breskir íhaldsmenn sleikja sárin eftir kosningatap:
Major heldur
ótrauður áfram
„Ég hef aldrei á ævinni hlaupið
frá erfiðum verkefnum og ætla ekki
að gera það núna. Viö höfum tekið
margar erfiðar ákvarðanir. Ég er
reiöubúinn aö verja stefnu okkar og
ég mun gera það fram að næstu þing-
kosningum, sem ég trúi að við mun-
um vinna," sagði John Major, forsæt-
isráðherra Bretlands og formaður
íhaldsfiokksins, eftir að stórtap
íhaldsmanna í sveitarstjómarkosn-
ingunum í Englandi og Wales var
staðreynd. Með orðum sínum batt
Major enda ávangaveltur um aö tap
íhaldsmanna væri upphafið að enda-
lokum hans sem formanns íhalds-
flokksins.
íhaldsflokkurinn fékk einungis 25
prósent atkvæða í kosningunum,
sem eru verstu kosningaúrslit
flokksins frá upphafi. Verkamanna-
flokkurinn hrósaði hins vegar bestu
kosningaúrshtum í 30 ár, með 48 pró-
sentum atkvæða. íhaldsmenn eru
með meirihluta í aðeins 8 af346 sveit-
arfélögum en Verkamannaflokkur-
inn í 143.
Ef úrslit kosninganna eru yfirfærð
til þingkosninganna eftir tvö ár
þýddi það að Verkamannaflokkurinn
fengi 444 þingsæti, íhaldsflokkurinn
104 og Frjálslyndir demókratar 77.
Margir hinna rúmlega tvö þúsund
íhaldsmanna, sem töpuðu sæti sínu
í kosningunum í gær, létu í ljós þá
skoðun að Major ætti að víkja fyrir
nýjum formanni. Formannskosning-
ar geta hins vegar fyrst orðið í nóv-
ember og létu leiðandi íhaldsmenn
þá skoðun í ljós að enginn væri betri
til starfans en Major.
Tony Blair, formaður Verka-
mannaflokksins, sagði að íhalds-
menn græddu ekkert á formanns-
skiptum. John Major væri ekki
vandamál íhaldsflokksins heldur
væri íhaldsflokkurinn vandamál
Johns Majors. Sú skoðun virðist
einnig sterk innan íhaldsflokksins
þar sem raddir eru uppi um að fá
nýtt blóð í ríkisstjórnina og standa
mun betur að kynningu óvinsælla
stefnumála. Talið er að íhaldsflokk-
urin hafi liðiö fyrir skattahækkanir,
sundrungu þingmanna í Evrópumál-
um, viðskipta- og einkalífshneyksli
þingmanna og þá útbreiddu skoðun
að flokkurinn sé þurrausinn hug-
myndum eftir 16 ár í meirihluta.
„íhaldsmenn hafa ekkert nýtt til
málanna að leggja. Þeir eru reikandi
og stefnulausir," sagði Tony Blair.
Þýskaland:
Viijagóma
„sextúrista“
Þýsk yfirvöld vilja auka aögerð-
ir til að hafa uppi á feröamönnum
sem sækja Austurlönd heim í
þeim tilgangi að kaupa kynmök
við börn og unglinga. Samkvæmt
lögum, sem samþykkt voru í
Þýskalandi fyrir tveimur árum,
er hægt að lögsækja Þjóðverja
sem notfæra sér barnavændi í
öðrum löndum. Beina yfirvöld
sjónum sínum aðallega að Taí-
landi, Filippseyjum, Malasíu og
Singapúr.
Vandinn felst aðallega í öflun
sönnunargagna því yfirvöld í
nefndum löndum loka gjarnan
augunum fyrir barnavændi og
viðskiptavinum þess. Sérfræö-
ingar fullyrða aö um 200 þúsund
þýskir karlmenn fari árlega utan
til að stunda kynlíf meö börnum
og unglingum. Hægt væri, með
góðu samstarfi við erlend yfir-
völd, að lögsækja um 5 þúsund
karlmenn á ári.
Svalbarði:
Vopnaðirferða-
menn hættulegri
enísbirnir
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
Þeir koma með öfluga riffla
reidda um öxl, leggja vopn sín á
borðið fyrir framan sig á kaffi-
stofum Langaásbæjar og eftir
nokkra bjóra eru þeir hættulegri
en ísbirnirnir sem ráfa fyrir utan.
Sýslumaðurinn á Svalbaröa ætl-
ar að grípa í taumana og breyta
„villta norðrinu11 aftur í þá friö-
sælu paradís sem eyjaklasinn var
áður en ferðamönnum var ráð-
lagt að fara þar ekki um óvopnað-
ir. Eftir að ísbjörn drap unga
stúlku á gönguferð nálægt Langa-
ásbænum í vetur voru ferðalang-
ar hvattir til að hafa með sér
vopn. Þeir tóku hvatningar þær
svo alvarlega um þverbak þykir
keyra.
England:
Hitiogmengun
verðurtveimur
aðbana
Tveir astmasjúklingar dóu í
Englandi í gær vegna mikils hita
og þeirrar mengunar sem fylgdi
hitanum og logninu. Hitinn
komst i 27 gráður á Celsíus annan
daginn í röð í gær. Um allt Eng-
land var fólk að kafna úr hita.
Sjúkrahús vöruðu astmasjúkl-
inga og aldraða við því að vera
mikiö úti við vegna mengunar-
innar. Varnaðarorö sjúkrahús-
anna virðast ekki haf'a náö til 49
ára verkamanns sem puðaöí úti
í brakandi sóbnni í Plymouth og
hné niður eða 17 ára astmaveiks
unglings í Liverpool.
Kynlíf nokkrum
dögumeftirfæð-
inguvarðkonu
aðbana
Tuttugu og níu ára bresk kona
fékk banvænt lijartaáfall eftir að
hún iðkaöi kynlíf meö manni sín-
um aöeins fimm dögum eftir að
hafa fætt fjóröa barn þeirra
hjóna. Hjartaáfalliö orsakaöist af
loftbólu frá ógrónum sárum sem
konan fékk við fæðinguna. Eigin-
maðurinn sagði þennan sorglega
atburð eiga eftir að hafa áhrif á
allt sitt líf. Þetta er annað áfallið
sem hann verður fyrir en tveggja
ára sonur þeirra hjóna dó í bíl-
slysi fyrir þremur árum. Reuier
Reuter
Imelda Marcos, fyrrum forsetafrú Filippseyja, heilsar stuðningsmönnum sínum en hún sækist eftir kjöri í þingkosn-
ingum á mánudag. Á sama tima eru yfir 100 ákærur fyrir fjármálamisíerli af hennar hálfu og spillingu til meðferð-
ar hjá dómstólum í Manila. Símamynd Reuter
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegsráðherra Noregs:
Fordæmir kvótaák vörðun
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, fordæmir harðlega
þá ákvörðun Islendinga og Færey-
inga að ákvarða einhliða kvóta úr
norsk-íslenska síldarstofninum. „Að
ákveöa þennan kvóta þegar ekki
finnst nein síld á íslenskri veiðislóð
er óskiljanlegt og óverjandi frá líf-
fræðilegu sjónarmiði. Þjóðimar taka
ekki ábyrgð heldur hugsa eingöngu
um skammvinnan gróða,“ sagði sjáv-
arútvegsráðherrann í gær.
Norsk stjórnvöld gagnrýna einnig
vilja íslendinga og Færeyinga til
samninga um veiðar úr norsk-
íslenska síldarstofninum. Ráðherr-
ann óttast að ákvörðun þjóðanna
þýði að útlokað sé aö ná samkomu-
lagi um síldveiðar á þessu og næsta
ári. „Norsk stjórnvöld verða að íhuga
vandlega hvernig taka skuli á málinu
og munu hafa náið samráö við Rússa
í þeim efnum. Viö höfum sömu sjón-
armiö í málinu," sagði Olsen en hann
og rússneski sjávarútvegsráðherr-
ann ræddu síldveiöar í gær.
NTB
Kauphallir og vöruverð erlendis |
' >' f
4500 ^ow Jones
4400
'4300
4200
4100
4000
3900
3800
M
4359,66
A M
370 - 360^r 350 NA
340
330 320 310
V
328,4
M A M
I MQB 1 nT-JIHTHSEflflíl 1 ■ebmb
3200 /\ 3000 H 2800 200 ✓ •250; 25
2700 3109 195,00 150 203,00 t, 19,00
F M A M Vt F M A M Vt F M A M tunna F M A M