Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 25 50 ár frá lokum seinni heimsstyrjaldar: Hátíðahöld og óspektir í Reykjavík Þann 8. maí eru 50 ár liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Dagur- inn var haldinn hátíðlegur viös vegar um heim. í Reykjavík var friði einnig fagnað og var efnt til mikilla hátíða- halda, að því að greint er frá í Öld- inni okkar. Hér á eftir fer útdráttur úr bókinni. „Veður var ágætt, og allir virtust í sólskinsskapi. Kl. 1 endurvarpaði útvarpsstöðin í Reykjavík ræðu Churchills forsætisráðh. Breta, þar sem hann tilkynnti, að Þjóðverjar hefðu gefizt upp skilyrðislaust og Evrópustyrjöldinni væri þar með lokið. Að lokinni ræðu Churchills tóku eimpípur skipa, er á höfninni lágu, að blása, og fór því fram langa stund. Ríkisstjórn íslands og borgar- stjórnin í Reykjavík gengust fyrir hátíðahöldum, sem hófust kl. 2 með ræðu, er forseti íslands flutti af svöl- um Alþingishússins. Aðra ræðu flutti forsætisráðherra. Að ræðunum loknum komu sendiherrar samein- uðu þjóðanna hér á landi fram á Al- þingishússsvalimar og voru ákaft hylltir af miklum mannijölda, sem þakti Austurvöll. Að þeirri athöfn lokinni flutti biskupinn yfir íslandi messu í dómkirkjunni, og voru þar viðstaddir æðstu menn þjóðarinnar og sendiherrar erlendra ríkja. AUt fór þetta fram með mikilli prýði.“ í Öldinni okkar segir jafnframt að eftir að hátíðahöldunum lauk hafi mikill mannfjöldi safnast saman í miðbænum, þar á meðal stórir hópar breskra sjóliða en fjöldi skipa var á höfninni. „Voru margir sjóliðanna undir áhrifum víns, og gengu um bæinn með söng og háreysti. Brátt söfnuðust að þeim flokkar manna, er slógust í för með þeim, aðallega unglingar. Um kl. 16 fóru fylkingar þessar upp á Amarhólstún. Klifruðu nokkrir brezkir sjóliðar upp á styttu Þannig var umhorfs við verslun á Laugavegi eftir óspektirnar á friðardag- inn ocj daainn eftir. Að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni á friðardaginn. Ingólfs Arnarsonar, í þeim tilgangi að hengja þar upp enska fánann. Var því afstýrt eftir áflog og hrindingar, enda komu brezkir lögreglumenn á vettvang og vörðu „Ingólf'. Hélt hópurinn því næst niður í Miðbæ, og varð þar þröng mikil og hávaði. Er á kvöldið leið, bar allmik- ið á óspektum íslenzkra unglings- pilta, sem sumir voru orðnir drukkn- ir, og leituðust við að koma af stað óspektum með hrindingum, ópum og qhljóðum. Óðu hinir íslenzku ungl- ingar nú fram gegn brezku sjóliðun- um. Mættust hóparnir við Varðar- húsið og hófust þar ryskingar milli hermanna og íslendinga, og skömmu síðar gijótkast. íslenzkir og brezkir lögreglumenn reyndu að skilja hóp- ana, en fengu í fyrstu lítt við ráöið. Urðu þeir að beita kylfum í viðureign þessari, sem stóð á aðra klukku- stund, áður en tækist að sundra flokkunum. Óspektir blossuðu brátt upp aftur, og áttust við sem fyrr ís- lendingar og Bretar. Hafði lögreglan í mörgu að snúast, og fékk naumast rönd við reist. Þegar óspektir þessar höfðu breiözt svo út, að ryskingar og grjótkast átti sér stað á mörgum stöðum í Miðbæn- um samtímis, og sjóliðar voru jafnvel teknir að beita skotvopnum, tók lög- reglan þá ákvörðun að nota táragas til þess að dreifa mannfjöldanum. Þessar aðgerðir báru þann árangur, að óspektum linnti með öllu á tiltölu- lega skömmum tíma.“ Frá því er greint að breskir sjóliðar hafi einnig haft í frammi miklar óeirðir að kvöldi 9. maí. Þeir hafi brotið rúður í fjölda húsa, varnað fólki og bílum umferð um vissar göt- ur og hvolft tveimur fólksbílum. Sjól- iðar þessir voru vopnaðir rifflum. Um fimmtíu manna hópur sjóliða, sem vopnaðir voru hnífum og kylf- um, réðst á nokkra íslenska lögreglu- menn. Tókst lögreglumönnunum að hrekja sjóliðana á flótta. Félag frímerkjasafnara Sýning ársins cd eu Æ cd o cr <v ~r <u o> exx iV ar ™ £= c _ _ ■ár ™ ^jí’ tF & cjö o -OJS~= Jc- V? o> £ O ™ FRÍMSVN 95 Safnaðarheimili Háteigskirkju föstudag 5. maí kl. 17-20, laugardag 6. maí kl. 11-20, sunnudag 7. maí kl. 11-20, mánudag 8. maí kl. 11-13 ac oex> Oöl <Cu/ O'O Vortilboð á sturtuklefum og sturtubúnaði frá Tilboðið gildir frá 8.-20 Heill sturtuklefi, st. 80x80 cm, m/botni. Blöndunartæki, sturtu- búnaður og vatnslás. Dropamynstur. Hornopnun Verð frá 24.800 stgr. Sturtuhorn, st. 70-90 cm. Öryggis- gler, segullæsing. Mynstur: Granit/rend- ur Verðfrá 12.800 stgr. mai (eða meðan birgðir endast) Sturtuhorn, st. 70-90 cm. Styrol plast, seg- ullæsing, dropa- mynstur Verð frá 6.900 stgr. Opnum 8. maí í Síðumúia 34 (Fellsmúlamegin) TAB Ítalíu Sturtuhlífará baðkör, st. frá 120-164 á lengd, hæð 140cm. Styrol plast, dropa- mynstur, heil hlíf eða har- móníka. Verð frá 7.200 stgr. Sturtuhlíf á baðkör st. 160-180 cm milli veggja, hæð 140cm. Öryggis- gler. Mynstur: granit/rendur Verðfrá 17.600 stgr. Sturtuhorn, rúnað, st. 80-90 cm. Sveigtöryggisgler Mynstur: rendur. Verðfrá 36.700 stgr. Styrol plast. Mynstur: dropar Verð frá 20.900 stgr. Sturtuhurðir, st. 70-90 cm. Heilareða þrí- skiptar. Örygg- isgler. Mynst- ur: granit/rend- ur Verðfrá 10.900 stgr. Síðumúla 34 (Fellsmúlamegin) Sími 887332
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.