Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 íþróttir Heimsmeistarakeppnin 1 handknattleik hefst á mogun: Hvaða þjóðir verða í 8 efstu sætunum á HM? Atfreð Gíslason: 1 ..........Svíbjóð. 2 .........Rússland. 4 ........Fraffiand. 5 ...........Island. 6 ...Hvita-Rússland. 7 ..........Króatía. 8 ........Þýskaland. Gunnar Gunnarsson: 1 ..............Snánn. 2 ............Rúsðand. 3 ............Króatía. 4 ............Syibjóð. 3......................Island. 6 ............Danmörk. 7 ..........Þýskaland. 8 ..............Sviss. Guðm. Guðmundsson: 1 .........Rússland. 2 ..........Svíþjóð. 3 ............Spann. 4 ........Fraklðand. 5 ...Hvíta-Rússland. 6 ..........Króatía. 7 ...........Island. 8 ........Þýskaland. íslendingarnir þrír í örebro eru hér heldur niðurlútir eftir jafnteflisleikinn gegn Frölunda á mánudaginn þar sem örebro missti niður fjögurra marka forskot. Frá vinstri: Hlynur Birgisson, Hlynur Stefánsson og Arnór Guðjohnsen. DV-mynd Eyjólfur Harðarson Þrír íslendingar hjá sænska liðinu Örebro: Guðmundur Hilmarsson skrifar: Fimm íslenskir knattspymumenn leika í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessari leiktíð. Arnór Guðjohnsen, Hlynur Stefánsson og Hlynur Birgisson leika meö Örebro, Rúnar Kristinsson með Örgryte og Kristófer Sigurgeirsson með liði Vástra Frölunda. DV fylgdist með leik íslendingaliðanna Örebro og Frölunda á mánudaginn. Arnór Guðjohnsen, Hlynur Stefánsson og Hlynur Birgisson komu allir við sögu í leiknum en Kristófer lék ekki. Með frammistöðu Amórs og Hlyns Stefánssonar með Örebro í fyrra, þegar bðið varð í 2. sætí, hafa íslensk- ir knattspyrnumenn verið eftirsóttír í Svíþjóð og fyrir þetta tímabil voru Rúnar, Hlynur Birgisson og Kristó- fer keyptir til sænskra liða. Þeir vom ekkert hressir, leikmenn Örebro þegar þeir gengu af leikvelli eftir leikinn gegn Frölunda á mánudag- inn. Þeir höíðu þá misst niður fjögurra marka forskot sem þeir náöu i síðari hálfleik og leikúrinn, sem fram fór á heimavelli Örebro að viðstöddum 7.000 áhorfendum, endaði 4-4. Hlynur Stefánsson er að hefja sitt 4. keppnistímabil með Örebro og hann leikur stórt hlutverk í leik liös- ins. Hlynur segir að árangur Örebro í fyrra hafi auðvitað komið öllum á óvart en fyrstu tvö árin sem hann lék með liðinu gekk félaginu illa en náði bæði árin að halda sæti sínu í úrvals- deildinni eftir aukakeppni. En hefur vistin í Svíþjóð breytt Hlyni sem knattspymumanni? „Ég held að fyrst og fremst hafi hún gert mig að betri spilara. Ég er orðinn sterkari líkamlega og jafnari knatt- spyrnumaður og ég náði aö vinna mér landsliðssæti. Það er mikill hugur í stjómar- mönnum félagsins og stefnan hefur verið tekin á að vinna gullið og þá helst í ár. Ég tel að lið okkar eigi góðan möguleika á að vera í toppbar- áttunni en eftir gott tímabil í fyrra verður harðar tekið á okkur.“ Er mikill munur á sænskri og ís- lenskri knattspyrnu? „Tæknilega séð er munurinn lítíll sem enginn en Svíarnir eru betur þjálfaðir og líkamlega sterkari. Þá er liðsheildin yfirleitt betri en heima á íslandi." Hlynur hefur ekkert ákveðið um framhaldið. Hann er með samning út þetta keppnistímabil og segist ekk- ert vera búinn að spá í framhaldið. Hann er 31 árs gamall og eins og hann sagði við DV þá væri gaman að enda ferilinn í Eyjum og vinna titil með liðinu. Amór Guðjohnsen, sem hefur ver- ið atvinnumaður í knattspymu frá árinu 1978, er að hefja sitt þriðja keppnistímabil í Svíþjóð. Fyrsta árið lék hann með Hacken en í fyrra fór hann til Örebrö þar sem hann sló svo sannarlega í gegn og var í mótslok útnefndur besti leikmaður úrvals- deiidarinnar. Arnór sem lengst af sínum ferli hefur leikið á meginlandinu lætur vel af dvöhnni í Svíþjóð. Hann segir að sænskir knattspymumenn séu vel þjálfaðir, séu líkamlega sterkir og hafi góðan hraða. Amór segir aö munurinn á að leika í Svíþjóö og á meginlandinu felist fyrst og fremst í þvi að undirbúningstímabilið í Sví- þjöö sé lengra og erfiðara en hann hafi kynnst áður. ,Þetta er breyting fyrir mig og ég er til dæmis alltaf með síðustu mönnum í hlaupunum." Arnór, sem er 34 ára gamall, samdi við Örebro til tveggja ára í fyrra og hann segist ekkert vera farinn að hugsa hvað tekur við þegar keppnis- tímabilinu lýkur. „Maður stefnir að því að standa sig sem best með liðinu og vonandi náum við að berjast um meistaratitilinn. Mér sýnist að eftir þessar þrjár umferðir geti keppnin orðið mjög spennandi," sagði Amór viðDV. Þeir félagar segjast vera famir að hlakka til að mæta Svíum í EM sem fram fer 1. júni. „Það er okkur íslendingunum hér úti mikiö kappsmál að vinna leikinn. Svíar eru í þeirri stöðu að þeir verða að vinna leikinn til að eiga möguleika í úrslitakeppnina og við gerum okk- ur alveg grein fyrir því að þetta verð- ur erfitt. Viö lékum vel í fyrri leikn- um og vorum óheppnir að tapa. Það yrði ekkert skemmtilegra en að vinna Svíana og mæta svo á æfingu daginn eftir í búningi Svíanna," sagði Hlynur Stefánsson. Guðjón Guðmundsson: 1 .........Svíþjóð. 2 ...........Spann. 3 ........Rússland. 4........Frakkland. 5 .........Kroatia. 6 .........Danmörk. 7 ..........Island. 8 .......Þýskaland. DV HM\ 1 dagur til stefnu Breyting hjá Brössum Breyting hefur oröið á ferðatil- lögun Brasilíumanna. Upphaf- lega áttu þeir að koma til landsins í dag og fljúga norður til Akur- eyrar á morgun. Nú munu Brass- arnir hins vegar ekki koma fyrr en á sunnudaginn ogfljúga norð- ur á mánudaginn. Engin slökun Brassarnir fá ekki mikinn tíma til að slaka á þvi strax á mánu- dagskvöldið eiga þeir fyrsta leik sinn í keppninni þegar þeir mæta Egyptum. Dömarcu'funda Dómararnir á HM setjast niður á fund í dag og fara yfir þau áhersluatriði sem fylgja munu keppninni og leggja línumar hvemig hátta á dómgæslunni á mótinu. 600 manns í opnuninni Um 600 manns taka þátt í opn- unarhátíðinni sem hefst klukkan 18.45 á sunnudagskvöldið. Hátíð- in stendur yfir í 20-25 mínútur og að sögn þeirra sem séð hafa æftngar á opnuninni er hún öll hin glæsilegasta. Erwin setur keppnina Austurríkismaðurinn Erwin Lanc, forseti Alþjóöa handknatt- leikssambandsins, kemur til ís- lands eftir hádegið i dag frá Kaup- mannahöfn. Við setningu móts- ins munu þeir Geir H. Haarde, formaður HM '95, og Ólafur B. Schram, formaður HSÍ, flytja stutt ávörp áöur en Lanc setur keppnina formlega. Fyrrverandi ráðherra Erwin Lanc er fyrrverandi ráð- herra og þvi vel þekktur maður í heimalandi sínu. Harrn hefur haft afskipti af stjómmálum og gegndí um tíma stöðu fjármála- ráðherra landsins. Uppselt áfyrsta leik Uppselt er á íyrsta leik íslend- inga gegn Bandaríkjamönnum annað kvöld. Rifandi sala er á aðra leiki íslendinga og ljóst aö húsfyllir verður á öðrum leikjum liðsins á HM. 16 pör og eitt íslenskt 16 dómarapör dæma á HM, þar af eitt íslenskt, skipað þeim Rögn- vald Erlingssyni og Stefáni Arn- aldssyni. Þeir félagar eru komnir í fremstu röð dómara í heirainum nú. Guöjón L. Sigurðson og Há- kon Siguijónsson eru eitt af vara- dómarapörum keppninnar. Bogdan kemur á HM Bogdan Kowalcyzk, fyrrver- andi landshðsþjálfari íslendinga, kemur til íslands á mánudaginn og ætlar að fylgjast með keppn- inni allt til loka. Bogdan hefur þjálfað 1. deildar liðið Slask í vet- ur. 20 Nissan bifreiðar Umboðsaöíli Nissan bifreiða hér á landi, Ingvar Helgason hf„ sýndi HM ’95 nefhdinni mikinn rausnarskap. Fyrirtækið lánaði HM '95 um 20 bifreiðar af ýmsum gerðum meðan á keppninni stendur og hafa þessír bílar vakið óskipta athygli á götum borgar- innar enda fagurlega skreyttir. Svíamir eru vel þjálfaöir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.