Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 46
54 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 Hvernig á að svara auglýsingu í svarþjónustu >7 Þú hringir í síma 99-5670 og eftir kynninguna velur þú 1 til þess að svara smáauglýsingu. Þú slærð inn tilvísunarnúmer auglýsingar, alls 5 stafi. Þá heyrir þú skilaboö auglýsandans ef þau eru fýrir hendi. Þú leggur inn skilaboö að loknu hljóðmerki og ýtir á ferhyrninginn að upptöku lokinni. ^ Þá færð þú aö heyra skilaboöin sem þú last inn. Ef þú ert ánægð/ur með skilaboðin geymir þú þau, ef ekki getur þú talaö þau inn aftur. Hvernig á að svara atvinnu- auglýsingu í svarþjónustu Þú hringir í síma 99-5670 og eftir kynninguna velur þú 1 til þess aö svara atvinnuauglýsingu. yf Þú slærð inn tilvísunarnúmer auglýsingar, alls 5 stafi. ^ Nú færö þú aö heyra skilaboö auglýsandans. ^ Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á 1 og heyrir þá spurningar auglýsandans. ^ Þú leggur inn skilaboð aö loknu hljóðmerki og ýtir á ferhyrninginn aö upptöku lokinni. Þá færð þú aö heyra skilaboðin sem þú last inn. Ef þú ert ánægö/ur með skilaboöin geymir þú þau, ef ekki getur þú talað þau inn aftur. yf Þegar skilaboðin hafa verið geymd færð þú uppgefið leyninúmer sem þú notar til þess að hlusta á svar auglýsandans. Mikilvægt er að skrifa númerið hjá sér því þú ein(n) veist leyninúmerið. ^ Auglýsandinn hefur ákveðinn tíma til þess aö hlusta á og flokka svörin. Þú getur hringt aftur í síma 99-5670 og valiö 2 til þess að hlusta á svar auglýsandans. Þú slærö inn leyninúmer þitt og færö þá svar auglýsandans ef þaö er fyrir hendi. Allir í stafræna kerfinu með tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu. SVAR MÖNUSm ov 99 *56* 70 Aöeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrlr alla landsmenn. Smáauglýsingar Toyota Landcrusier, árg. '90, 38" dekk, loftlæsingar framan og aftan, rafmagn í öjluo.fl. o.fl., ekinn aðeins 65 þús. km. Mjög fallegur bíll. Fæst á mjög góðum kjörum. Uppl. í síma 551 4499, 551 4493 og hs. 588 2882. Einn góður í sumarfríið. Chevy 20, árg. '83, bensín, 4 kafteinstólar, svefnbekk- ur og borð. Uppl. í síma 644649. Cherokee Laredo, árg. '88, 4 1, sjálfskiptur, ekinn 86 þús. km, vín- rauður, sóllúga, góð dekk, skoðaður. Upplýsingar í síma 555 0053. Pallbílar Vertu frjáls og hagsýnn. Það tekur hálf- tíma að setja ferðahúsið frá Skamper á (eða taka af). Húsin eru lækkuð á keyrslu, þau eru búin öllum þægind- um, svefnpláss fyrir 4, borð, bekkir, eldhús m/ísskáp og nægur hiti. Skemmtilegt hf., Bíldshöfða 8, sími 587 6777. Sendibílar Pessi glæsilegi Ford Econoline, árg. '93, til sölu, ekinn 23 þús. mílur, verð 2,8 millj., áhv. 1,5 millj. Öll skipti athugandi. Upplýsingar í sfma 91-670324. Volvo FL.10, árg. '88, með kojuhúsi til sölu og sýnis hjá dekkjaverkstæði Brimborgar, Bíldshöfða. Ekinn 180 þús. km, nýupptekin vél, aðeins ekin 7.500 km, hliðarsturtur, ný skjólborð, nýklædd innan, sjálfvirk gaflloka, nýtt pústkerfi, original dráttarkrókur, loft- tengi, góð dekk, 104 km drif. Mjög spar- neytinn á olíu. Upplýsingar í síma 91- 671639 og sími/fax 91-677939. 1/örubílar Fréttir________________r> Samningur íslendinga og Færeyinga: Sóknarstýring - eðlilegt að við gefum út kvóta í stofn sem við eigum, segir utanríkisráðherra „Eg er ekki sáttur viö þessa niður- stöðu að því leytinu til að ég hefði kosið að ganga frá samningi milli þessara fjögurra þjóða. Það var ekki kostur að gera það með þeim hætti sem við töldum viðunandi. Þess vegna töldum við nauðsynlegt að ná samkomuiagi milli íslands og Fær- eyja og ég tel að þar hafl tekist vel tR,“ segir Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra vegna síldarsamnings- ins við Færeyinga. Samningurinn byggist á sóknar- stýringu og gerir ráð fyrir að þjóðirn- ar tvær fari ekki upp fyrir 250 þús- und tonna afla. Ekki eru bein ákvæði í honum um hlutdeild hvorrar þjóðar en reiknað er með endurskoðun verði annar hvor samningsaðila óánægður með sinn skerf. Gengið er út frá því að flotastærð þjóðanna ráði aflanum og skiptingin verði út frá því 25 prósenta hlutur fyrir Fær- eyjar og 75 prósent fyrir íslendinga eða um 190 þúsund tonn. „Það er eðlilegt að við gefum út einhliða kvóta í þennan stofn sem við eigum sem strandríki, með sama hætti og Norðmenn segjast eiga þann stofn sem strandríki. Það er nauð- synlegt að koma þeim skilaboðum skýrt til skila og ég tel að þetta hafi verið eina lendingin og hún sýni að viö viljum stjórna þessum veiðum með ábyrgum hætti," segir Halldór. Davíð Oddsson forsætisráðherra var harðorður á aðalfundi SH og sagði að Norðmenn geti sjálfum sér um kennt að ekki skyldu takast samningar. „Mér er fyrirmunað að skilja framgöngu þeirra í samræðum okkar um síldina," sagði Davíð. Guömundur Bjamason staöfestir úreldingu í Borgarnesi: Segir áhuga Sólar vera sér óviðkomandi - veldur okkur vonbrigðum, segir forstjóri Sólar „ Ég ákvað að staðfesta úreldingu mjólkursamlagsins í Borgarnesi, enda fái ég tryggingu frá kaupfélag- inu fyrir hlut að upphæðinni vegna álitamála um eignarhald. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi og þar kynnti ég ákvörðun mína samkvæmt hefðbundnum vinnureglum. Þar voru engar athugasemdir gerðar og forsætisráðherra þakkaði mér fyrir að hafa greint frá ákvörðun minni," sagði Guðmundur Bjamason land- búnaðarráðherra við DV í gær- kvöldi. „Þaö veldur vonbrigðum okkar og væntanlega Borgnesinga og Borg- firðinga ef ráðherra ætlar að stað- festa úreldingu mjólkursamlagsins. Ég var búinn að ræða við stjórnar- menn í nýkjörinni stjórn og það var vilji meirihlutans aö óska eftir að ráðherra skoðaði þann valkost að við kæmum með tilgreinda starfsemi á staðinn og áfram yrði haldið með mjólkurframleiðslu. Staðfesti hann úreldinguna hefur hann að engu áhuga og vilja heimamanna," sagöi Páll Kr. Pálsson, forstjóri Sólar. Guðmundur sagðist hafa vitað um áhuga Sólar en það væri honum óvið- komandi. „Það er mál Kaupfélags Borgfirðinga. Ef kaupfélagið vill semja viö Sól þá tilkynnir þaö mér það aftur. Kaupfélagið óskaði eftir úreldingunni og málið hefur verið unnið í eðhlegum farvegi,“ sagði Guðmundur. Meiming___________________ Af krafti og elju Sinfóníuhljómsveit íslands hélt sjöttu áskriftatón- leika sína í gulu röðinni sl. fimmtudag. Einleikari með hljómsveitinni var Izumi Tateno og stjórnandi Jerzy Maksymiuk. Tónleikarnir hófust á verki fyrir strengjasveit, Prelúdíu og fúgu, eftir Benjamin Britten. Hann mun hafa samið verkið þegar hann stóð á þrítugu í tilefni 10 ára afmælis Boyd Neel-strengjasveitarinnar, sem hafði sex árum áður frumflutt hið þekkta verk hans. Tilbrigði yfir stef eftir Frank Bridge. Verkið Prelúdía og fúga er opus 29 og heyrist nú fremur sjaldan. Það er skrifað fyrir 18 strengjaleikara og fær hver þeirra sínar einleiksstrófur að glíma við. Verkið er nettilega skrifað, en fremur litlaust og vantar ákveðnari sér- kenni. Hljómsveitin lék verkið mjög ákveðið og af vissri hörku undir stjórn hins þekkta pólska hljóm- sveitarstjóra, Jerzy Maksymiuk, sem um árabil hefur verið aðalhljómsveitarstjóri BBC Scottish Symphony Orchestra. Píanókonsert Arams Katsjaturians var næstu á efn- isskránni og lék einleikinn Izumi Tateno frá Japan, sem reyndar hefur verið búsettur í Finlandi í tugi ára Tónlist Áskell Másson nú. Þetta verk er um margt dæmigerður „bravura“- konsert og lék Tateno hann af hreinni snilld. Kraftur og fimi voru hér í fyrirrúmi, þótt einnig væru hin fáu ljóðrænu augnablik verksins mjög fallega leikin. Fjórða sinfónía Beethovens var síðasta verk þessara tónleika. Hér hreif Makymiuk hljómsveitina svo með sér, að útkoman varð einhver innblásnasti flutningur sem undirritaður hefur heyrt. Þótt þessi sinfónía búi vissulega ekki yfir þeim dramatísku víddum sem sú þriðja og fimmta eftir sama höfund, var hér þó nóg af þrótti, en einnig nákvæmni og snerpu. Þótt sjálfsagt megi déila um framsetningu þessa verks eins og hún var á þessum tónleikum var hún allavega bæði athygl- isverð og skemmtileg í túlkun hins líflega Jerzy Maksymiuk. Áskrifendur DV fá 10% aukaafslátt af smáauglýsingum vwwvv Z7" AUGLYSINGAR Þverholti 11 -105 Reykjavík Sími 563 2700 - Bréfasími 563 2727 Græni siminn: 99-6272 (fyrir landsbyggðina) OPIÐ: Virka daga kl. 9-22 Laugardaga kl. 9-14 Sunnudaga kl. 16-22 Athugið! Smáauglýsingar í helgarblað DV verða að berast fyrir kl. 17 á fostudögum. Vorkvöld Félags einstæðra foreldra verður haldið í kvöld, 6. maí, kl. 20.30 í Skeljahelli, (Skeljanesi 6). Aðgangur ókeypis. Takið með ykkur nesti. Allir velkomnir! Skemmtinefnd 563 2700 - skila árangrí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.