Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Dagur í lífi Hermanns Ragnars Stefánssonar danskennara:
Dekrað við
bamabömin
Ég vaknaði rétt upp úr klukkan sjö eins og
venjulega. Maður var bara hress eftir langa og
stranga helgi en við vorum með nemendasýn-
ingu og innanskólakeppni 1. maí á Hótel ís-
landi. Ég byrjaði því daginn á að ganga frá
nokkrum málum gærdagsins. Börnin á heimil-
inu, Unnur Berglind, 17 ára, og Árni Henrý, 12
ára, vöknuðu um svipað leyti enda áttu þau að
mæta í skólann klukkan átta. Við Unnur eldri
fengum okkur morgunverð og daglegan
skammt af vítamínum. Ég fæ mér alltaf sér-
stakan gulrótarsafa á morgnana og síðan sér-
stakan drykk, sem unninn er úr svepp og ég
held að sé ættaður frá Gunnari Eyjólfssyni.
Unnur er nýfarin að drekka þennan drykk líka.
Síðan fengum við okkur kaffi og ristað brauð
og skipulögðum daginn.
Ég átti að vera mættur í skólakennslu klukk-
an tíu og síðan aftur klukkan eitt en hún á fund
seinni part dagsins. Vegna kennaraverkfallsins
erum við sein með danskennslu grunnskóla-
barna í flóröa bekk, svokallað dansátak, sem
er tímabundið verkefni á vetri hverjum.
Um hádegi þurfti ég að mæta á áríðandi fund
hjá Dansráði íslands en þar er ég í stjórn. Yfir-
leitt fer ég heim í hádeginu og fæ mér skyr eða
graut en í þetta skiptið varð ég að láta mér
nægja kaffi og kökusneið á fundinum.
Starfsmannafundur
í dansskólanum
Eftir danskennsluna í skólanum fór ég niður
í Faxafen í dansskólann okkar því þar átti að
vera starfsmannafundur og æfingar að hefjast
hjá þeim sem taka þátt í íslandsmeistarakeppn-
inni um næstu helgi.
Klukkan var að verða sex þegar ég fór út úr
dansskólanum til að skutla Unni á Oddfellow-
fund. Þegar ég kom síðan heim var yngsta
barnabarnið okkar, Jóhann ívar, sex mánaða,
Hermann Ragnar Stefánsson danskennari fær mikinn fjölda bréfa í hverri viku vegna óskalaga-
þáttar síns, Ég man þá tíð. DV-mynd Brynjar Gauti
kominn í pössun. Tengdadóttir mín var að út-
rétta fyrir son minn en þau eru að innrétta
nýja íbúð í Garðabænum. Drengurinn tók hug
minn allan enda eru sjö ár síðan við Unnur
eignuðumst síðast barnabam og því er sá litli
svolítið dekraður.
Ég gat síðan litið í dagblöðin og fengið mér
hænublund fyrir kvöldmatinn. Þetta kvöld hit-
aði ég upp afganginn af lambahryggnum sem
við höfum haft um helgina og það var mjög
gott. Stóru barnabörnin komu síðan heim með
kennaraeinkunnir úr menntaskólanum og það
var mikið skrafað.
Loks settist ég fyrir framan sjónvarpið og
horfði á fréttimar með öðru auganu. Ég.þurfú
að byija að undirbúa þáttinn minn sem ég er
með í Ríkisútvarpinu og heitir Ég man þá tíð.
Þar leik ég óskalög hlustenda frá hðnu árunum.
Ég fæ mikinn íjölda bréfa í hverri viku og ótal
símhringingar frá-fólki á öllum aldri vegna
þess. Ég hef tekið eftir því upp á síðkastið að
svo virðist sem böm séu mikið í pössun hjá
ömmu og afa á morgnana og hlusta þá á þáttinn
minn. Nú eru þessi böm farin aö hringja í mig
og biðja um gömul þekkt lög.
Óskalagaþátturinn
undirbúinn
Ég skrifaði hjá mér lögin sem ég ætla aö leika
í þættinum og langan biðlista af lögum sem
komast ekki aö strax. Einnig þurfti ég aö vél-
rita tónlistarskýrsluna fyrir fóstudaginn. Það
var rólegt i kringum mig og mér gekk vel við
verkið. Um ellefuleytið fékk ég mér tesopa og
kökusneið. Síðan settist ég fyrir framan sjón-
varpið og horfði á spennumynd sem var ein-
mitt aö ljúka þegar Unnur kom heim af fundin-
um. Við spjölluðum saman um stund um vik-
una framundan og fórum alltof seint í háttinn,
klukkan langt gengin í eitt.
Finnur þú fimm breytingar? 308
Þú hefur alveg rétt fyrir þér en sundlaugin er aftur á móti 5
metra djúp.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruöustu og sjöttu get-
raun reyndust vera:
1. Ágúst Jóhannsson 2. Páll Ólafsson
Hvammstangabraut 20 Álfheimum 44
530 Hvammstanga 104 Reykjavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími, aö verðmæti kr.
4.950, frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækumar, sem era í verð-
laun, heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur
úr bókaflokknum Bróöir Cadfaei að verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar era gefnar út
af Frjálsri fjölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkiö umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 305
■ c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík