Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjóri: PALL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstqfur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK, SlMI: (91) 563 2700 FAX: Auglýsingar: (91) 563 2727 - Aðrar deildir: (91) 563 2999 GRÆN númer: Auglýsingar: 99-6272. Áskrift: 99-6270 Stafræn útgáfa: Heimasiða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritstj@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, simi: (96)25013, blaðam.: (96)26613, fax: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF, Askriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk„ helgarblað 200 kr. m. vsk. Þeir skila sér síðar Viðræðumar um veiðistjóm í Síldarsmugunni fóm ekki út um þúfur, heldur var samið við Færeyinga. Reynslan hefur líka sýnt, að það tekur norsk stjómvöld langan tíma að átta sig á, að íslenzk stjómvöld taka hóf- legt mark á frekju. Þannig var það í Jan Mayen deilunni. í meira en áratug hafa ráðherrar og aðrir fulltrúar íslands á þessu sviði reynt að segja Norðmönnum, að semja þyrfti um veiðar úr norsk-íslenzka síldarstofninum á opna svæðinu milli Noregs og íslands. Norðmenn hafa hins vegar ekki fengist til að ræða málin fyrr en núna. Norskir samningamenn vilja gleyma, að þessi síldar- stofn gekk milh Noregs og íslands, þangað til Norðmenn gengu svo nærri honum, að hann hætti hringferð sinni um hafið. íslendingar telja sig eiga rétt í þessum stofni frá þeim tíma, er hann veiddist hér við land. Norsk stjómvöld og samningamenn þeirra ganga út frá því, að Norðmenn eigi þennan stofn og geti skammt- að öðrum úr honum, jafnvel veiði á hafsvæðum, sem eru fjær Noregi en íslandi og Færeyjum. Meðan þeir halda fast við þetta, ná þeir ekki samkomulagi við aðra. Þetta minnir á tregðu norskra stjórnvalda til að viðim- kenna, að efnahagslögsaga fullvalda ríkis á borð við ís- land ætti að gilda óskert í átt til eyjar á borð við Jan Mayen, sem hefur ekki efnaliagslíf. Þeir reyndu þá að hafa annað fram með frekju, en tókst það ekki. íslenzk stjómvöld og sammningamenn þeirra munu halda ró sinni í máh Síldarsmugunnar. Fyrsta skrefið var að semja við Færeyinga um veiðikvóta og síðan væntanlega um ábyrga shdveiðistjóm á svæðinu. Það samkomulag kemur Norðmönnum í opna skjöldu. íslenzk stjómvöld munu ekki senda frá sér nein th- mæh th íslenzkra útgerðarmanna og skipstjóra um að takmarka veiðar í Shdarsmugunni. Þær veiðar hefjast nú vonandi af fuhum krafti. Það verður tregðulögmáh norskra stjómvalda th verðugrar háðungar. Ef samkomulag næst svo mihi Færeyinga og íslend- inga um ábyrga veiðistjóm á svæðinu, munu íslenzk stjómvöld takmarka veiðar íslenzkra skipa í samræmi við þá veiðistjóm. Verður þá hafréttarlegt frumkvæði málsins komið í hendur Færeyinga og íslendinga. Með því að sýna annars vegar festu gegn yfirgangi Norðmanna og að hafa hins vegar frumkvæði að ábyrgri veiðistjórn á svæðinu, koma íslenzk stjómvöld fram sem ábyrgur hagsmunaaðhi. Þannig næst mestur og traust- astur árangur af hálfu íslands í þessu hagsmunamáli. íslenzk stjómvöld og samningamenn þeirra hafa hald- ið rétt á málum Shdarsmugunnar í viðræðum við norska gagnaðha. Úthokað var að ná samkomulagi á fyrsta fundi. Norðmenn verða að fá tíma th að horfa á veiðar annarra og læra að þekkja takmörk áhrifa sinna. Sem betur fer er hrygningarstofn shdarinnar mjög sterkur um þessar mundir, ein eða tvær milljónir tonna. Hann mun því þola óheftar veiðar á þessari vertíð. Hugs- anlegt er, að fyrir næstu vertíð verði norsk stjórnvöld orðin thbúin tU raunhæfra samninga um veiðistjóm. Á þessu kjörtímabhi þarf ríkisstjóm íslands að gæta afar mikhvægra hagsmuna á hafsvæðum, sem hggja að efnahagslögsögu landsins, bæði í Shdarsmugunni og á Reykjaneshrygg. Þessi hagsmunagæzla hefur farið vel af stað. Hún er í senn hörð og rökrétt eins og vera ber. Þess vegna þarf ekki að valda vonbrigðum, að norskir samningamenn stökkva frá samningaborði í fyrstu um- ferð. Þeir munu skha sér síðar, reynslunni ríkari. Jónas Kristjánsson Athygli beinist að vígbúnaði hægri hreyfmga Enn eru líkamsleifar fórnarlamba að koma upp úr rústum skrifstofu- byggingar Bandaríkjastjórnar í Oklahomaborg, hálfum mánuði eftir að bílsprengja tætti framhliö- ina úr húsinu, og staðfest manntjón nálgast annað hundraðið. Ungur maður með herþjónustu að baki, Timothy McVeigh, er sakaður um að hafa komið sprengjunni á stað- inn og tveir bræður í Michigan- fylki, James og Terry Nichols, eru grunaðir um að hafa tekið þátt í sprengjugerð með honum. Enn er leitað ákaft manns sem sást á til- ræðisstaðnum ásamt McVeigh. Hann og Nichols-bræðumir eiga það sameiginlegt að vera viðriönir vígvædd samtök hægri öfgamanna. McVeigh var í lífverði herskás út- varpsæsingamanns frá Michigan, Marks Koernke, á stefnu svokall- aðra landvarnarliðssveita í Flórída. Bræðurnir hafa sótt sam- komur Michigan-landvamarliðs- ins. Það mun telja um 12.000 manns, æfir vopnaburö og sankar að sér vopnum. Svipaðar sveitir undir ýmsum heitum starfa í 20 banda- rískum fylkjum og áhangendur eru áætlaðir milli 50.000 og 100.000. Sameiginlegt einkenni þessara hreyfinga er að leiðtogarnir boða að alríkisstjórnin í Washington sé höfuðóvinur og sannir Bandaríkja- menn veröi að búa sig undir að verjast útsendurum hennar. Hugmyndaheimur þessa fólks verður rakinn aftur til Ku Klux Klan og svipaöra fyrirbæra en leið- togarnir laga hann að nútíma. Al- gengasta kenningin nú er að stjórn Clintons forseta áformi aö kveðja til liö á vegum Sameinuðu þjóð- anna til að brjóta niður alla and- stöðu innanlands. Þar verði að verki kínverskar sveitir búnar aflóga sovéskum vopnum auk svartra og rómanskra byssumanna úr bandarískum stórborgum. Svertingjahatur og gyðingahatur fara saman hjá hópum sem líta á sig sem krossfara sannkristinna viöhorfa. Algengt er að þeir kalli stjórnina í Washington ZOG (Zion- ist Occupation Government) eða Hernámsstjórn síonista. Hreyfing- in í Idaho nefnist Arísku þjóðirnar. Leiðtogi Arísku þjóöanna í Idaho, Richard Butler, og Michigan-land- varnarliðsins, Norman Olson, taka sér prestatitla og kenna að aðvíf- andi öfl eins og Sameinuðu þjóðirn- ar, svertingjar og gyðingar séu út- sendarar hins illa, áfjáð í að tortíma kristnum, bandarískum gildum. Öfgamennirnir njóta þess að þeir eru að vissu marki samstiga for- ingja fjöldahreyfingar í bandarísku þjóðlífi, sjónvarpsprédikaranum Pat Robertson. Hann er orðinn mikið áhrifaafl í Repúblikana- flokknum vegna Kristnu sam- Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson steypunnar sem sögð er hafa á aðra milljón áhangenda. í metsölubók sinni, The New World Order (Nýja heimsskipa unin), rekur Robertson afdrifaríkustu heimsviðburði síð- ustu alda til vélabragða sérstakrar leynireglu af stofni Frímúrara og alþjóðlegrar bankastarfsemi nafn- greindra gyðinga. Annar áhrifavaldur um fram- vindu bandarískra þjóðmála, sem öfgahóparnir sækja til styrk og réttlætingu, er samtök byssueig- enda. Þau hafa með miklum ár- angri barist gegn öllum hömlum á byssueign og vopnaburði og beitt óspart til þess fjárframlögum til stjómmálamanna. Á síðasta þingi í Washington náði þó fram að ganga bann við sölu á allmörgum gerðum öflugra skot- vopna sem eingöngu eru gerð til manndrápa. Byssueigendafélögin brugðust ókvæða við, fullyrtu að stjórnarskráin væri brotin og fengu forustu repúbhkana til að heita því að afnema bannið. Bannið við hríðskotabyssum á almennum markaði er svo megin- röksemd öfgahópanna fyrir að al- ríkisstjórnin búi sig undir herferð til að gera upptæk öh skotvopn í landinu og ofurselja þjóðina gæslu- Uði framandi kynþátta á vegum Sameinuðu þjóðanna. Ekkert bendir enn til að bíl- sprengjan í Oklahomaborg sé ávöxtur víðtæks samsæris en ekki er furða að ofsóknarbrjálæði, eins og hér hefur verið lýst lauslega, setji reikula persónuleika úr skorð- um. Málflutningur á opinberum vett- vangi í Bandaríkjunum, sér í lagi í spjallþáttum útvarpsstöðva, hefur orðið æ svæsnari síðustu ár og hafa þar orðið til hægri stjörnur eins og Rush Limbaugh. Hann tók það líka til sín og brást reiður viö þegar CUnton forseti bað menn eft- ir tilræðið í Oklahomaborg að minnast þess að orð gætu haft af- leiðingar. Timothy McVeigh leiddur úr réttarsal ettir varðhaldsúrskurð daginn sem hann var handtekinn. Símamynd Reuter Skoðaiúr amarra Stríðið við mafíuna „Stríð ítalskra stjómvalda gegn mafíunni er nú á tímamótum. Niðurstöður réttarhaldanna yfir Andre- otti (fyrrum forsætisráðherra) og væntanlegra kosn- inga gætu haft afgerandi áhrif á samskipti stjórn- málamanna, saksóknara og skipulagðra glæpasam- taka um langa hríð. Mafían skeytir engu um hug- myndafræði. Hún hefur öldum saman reynt að kaupa vemd af hverjum þeim sem fer með völdin. Hin nýja póUtíska stétt á Ítalíu verður að varast að falla fyrir freistingunum sem urðu forverum þeirra og landinu öUu svo dýrkeyptar." Úr forustugrein New York Times 2. maí. Ekki taka byssuna mína „Það er hugsanlegt, þótt Ukurnar séu litlar, að óhæfuverkiö í Oklahomaborg marki þáttaskil í ein- hverri djúpstæðustu deilu bandarísks samfélags, deilunni um eftirlit með byssueign. Svo virðist sem sumir Bandaríkjamenn reiðist ekki meira yfir neinu en hugmyndum um að taka frá þeim byssurnar." Úr forustugrein Sydney Morning Herald 2. maí. Góður flskveiðisamningur „Fiskveiðisamningurinn milh Kanada og Evrópu- sambandsins er sigur heilbrigðrar skynsemi. Hann felur í sér strangar takmarkanir, sem hægt er aö framfylgja, á veiði á alþjóðlegum hafsvæðum þar sem miskunnarlausustu og ógætnustu sjómennirnir hafa hagnast mest hingað til. Samkvæmt þessum reglum getur grálúðustofninn, sem er í hættu, farið að stækka aftur.“ Úr forustugrein Washington Post 2. maí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.