Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995
Fréttir
Niðurstöður aldursgreiningar úr fomleifauppgrefti 1 Viðey:
Rústir f rá því um 1000
Niðurstöður úr aldursgreiningu sýna m.a. að rúst skála með langeldi, sem fannst í fyrra, er frá árabilinu 1000-
1100, eða fyrir tíma klaustursins í Viðey. DV-mynd ÞÖK
Tveir nýir bílstjórar
ráðnir í ráðuneytin
Fornleifafræðingar á vegum Ar-
bæjarsafns hafa að undanförnu verið
að rannsaka nánar þá hluti sem
fundust í uppgrefti í Viðey 1 fyrra.
Því starfi er nú að ljúka og niðurstöð-
ur úr aldursgreiningu hafa verið aö
berast.
Aldursgreining staðfestir að skór
sem fannst í fyrrasumar er frá 14.
öld. Skórinn fannst við rúst sem talin
er frá miðöldum og gæti hafa tengst
klaustri sem vitað er með nokkurri
vissu að var í Viðey. Aldursgreining-
in staðfestir að jarðlög í kringum
rústirnar eru frá miðöldum og eykur
það líkurnar á að rústirnar tengist
klaustrinu. í sumar verður haldið
áfram að leita leifa klaustursins.
Niðurstöður úr aldursgreiningu
sýna einnig að rúst skála meö lang-
Síldveiðin
yfir 45 þús-
und tonn
Gylfi KristjánEson, DV, Akujeyri;
Afli íslensku skipanna úr
norsk-íslenska síldarstofninum
var í gær kominn yfir 45 þúsund
tonn eða alls 45.050 tonn á þeim
stutta tíma sem veiðamar hafa
staðið yfir.
Þá haföi sild úr þessum stofni,
sem veiðst hefur bæði í Síldar-
smugunni svokölluðu og í land-
helgi Færeyja, verið landað í 10
höfnum hér á landi. Mest hafði
borist til Neskaupstaðar, eða
10.162 tonn, til Seyðisfjarðar 7800
tonn, til Eskiíjarðar höfðu borist
5350 tonn, til Reyðaríjarðar 5208
tonn og til Þórshafnar og Raufar-
hafnar rúmlega 3400 tonn.
Heildarkvótinn sem gefinn var
út sameiginlega fyrir ísland og
Færeyjar var upp á 250 þúsund
tonn og eru því eftir af kvótanum
ríflega 200 þúsund tonn.
Nokkrar breytingar hafa orðið á
bílstjóramálum í ráðuneytunum eftir
kosningar. Finnur Ingólfsson, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, hefur ráðið
nýjan bílstjóra, Einar Kristján Jóns-
son, og sinnir hann akstri fyrir bæði
ráðuneytin. Þegar hefur koihið fram
að Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur ráðið Björn Kjartans-
son, kosningastjóra Framsóknar-
flokksins á Vesturlandi, í starf bíl-
stjóra í heilbrigðisráöuneytinu.
Leifur Bjarnason, sem var bílstjóri
iönaðar- og viðskiptaráðherra, hefur
tekið við starfi bílstjóra í landbúnað-
arráðuneytinu og Bjarni Guðjóns-
son, sem var bílstjóri landbúnaðar-
og samgönguráöherra á síðasta kjör-
tímabili, hefur flust alfarið yfir í sam-
- gönguráðuneytið. Þá heldur Páll Vil-
hjálmsson áfram að aka fjármálaráð-
herra og Jón Árnason ekur forsætis-
ráðherra.
Á þessari stundu er ekki vitað ann-
að en að Garðar Örn Kjartansson,
bílstjóri menntamálaráðherra, Guð-
mundur Erlendsson, bílstjóri sjávar-
útvegsráðherra, og Kristján Ragn-
arsson, bílstjóri utanríkisráðherra,
haldi áfram störfum en óvíst er hvort
ráðinn verði.bílstjóri í félagsmála-
ráðuneytið. Kristján Jóhannsson,
bílstjóri úr utanríkisríðuneytinu,
hefur sinnt akstri fyrir félagsmála-
ráðherra að undanfornu.
Enginn bílstjóri er við störf í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu.
-GHS
eldi sem fannst í fyrra er frá árabil-
inu 1000-1100, eða fyrir tíma klaust-
ursins.
Unnið verður við fornleifauppgröft
í Viðey í 2 til 3 mánuði í sumar og
er stefnt að því að hefjast handa í lok
mai að sögn Steinunnar Kristjáns-
dóttur fornleifafræðings sem umsjón
hefur með uppgreftinum.
Haldið verður áfram að grafa á
Hofsstöðum í Garðabæ í sumar en
þar var byrjað í fyrra. Einnig verður
hcddið áfram á Bessastöðum og upp-
gröftur við Mývatn hefst að líkindum
um miðjan júlí. Þar telja menn sig
geta fundið húsarústir frá fyrstu dög-
um íslandsbyggðar. Þessar rann-
sóknir eru þó ekki á vegum Árbæjar-
safns.
inni að Ijúka
„Þetta er besta steinbitsvertíð
hjá okkur frá upphafl. Við erum
búnir að taka á móti yfir þús-
und tonnum í vor á móti 800
tonnum á sama tíma i fyrra,“
segir Siguröur Viggósson,
framkvæmdastjóri Odda hf. á
Patreksfirði, um steinbítsvert-
íðina fyrir vestan.
Línubátar hafa verið að fá frá
250 kftóurn á bala og upp í 400
kfló. Dæmi eru um að bátur
undir þrjátíu tonnum hafi verið
með 70 tonn eftir vikuna. Sig-
urður segir að þessari miklu
veíði hafi fylgt mikil vinna, sér-
staklega síðustu þrjár vikur.
Það fylgir þessu mikið líf og
fjör. Það hefur verið langur
vinnudagur hér og unniö allar
helgar en nú er þessu væntan-
lega að Ijúka. Það var metafli
sem stóð i þrjár vikur en nú er
aflinn dottinn niður," segir Sig-
urður. -rt
í dag mælir Dagfari
Rússarnir koma - og f ara
íslendingar áttu slæma helgi. Is-
lenska lagið í Júrovision lenti í
fimmtánda sæti, enda þótt sjálfum
Bjögga Halldórs hefði verið teflt
fram og íslenska handboltaliðið
hefur ekki riðiö feitum hesti úr
undankeppninni. Tapaði á föstu-
dag og laugardag fyrir Kóreu-
mönnum og Svisslendingum.
Úrslitin í söngvakeppninni eru
þó viðunandi. Við bættum okkur
um eitt sæti frá því aö vera í sext-
ánda sæti, svo þar erum viö á upp-
leið, hvað sem hver segir. Það var
heldur ekki Bjögga að kenna ef lag-
ið var ekki nógu gott og það er
ekki við hann að sakast ef dómend-
ur vítt og breitt um Evrópu hafa
ekki smekk fyrir íslenskri tónlist.
Það er þeirra vandamál en ekki
okkar.
Það sama má segja um handbolt-
ann. Það er ekki okkur að kenna
né heldur isíenska liðinu ef önnur
lið, sem við keppum á móti, eru
betri en okkar. Strákarnir okkar
eru ekkert verri fyrir það. Það er
ekki þeim að kenna þótt önnur lið
sem við keppum á móti geri fleiri
mörk heldur okkar lið. Okkar lið
gerir mörg mörk og það er gífurleg
stemning í höllinni þegar við skor-
um og eina vandamáliö er í raun-
inni að hin liðin skora fleiri mörk.
En það er lítið við því að gera.
Ekki getum við skorað mörk með-
an andstæðingamir hafa boltann
og gera sjálfir mörk og ef þeir skora
þá er það vegna þess að þeir skjóta
á markið og það er ekki við mark-
manninn okkar að sakast ef þeir
skjóta þannig að það er ekki hægt
að verja skotin. Það getur enginn
ætlast til að íslensku markmenn-
irnir verji óveijandi skot!
Nú erum við búnir að tapa tveim
leikjum í röð, en áður vorum við
búnir að sigra í þrem leikjum í röð,
þannig að við höfum staðið okkur
betur heldur andstæðingarnir ef
allt er lagt saman og í kvöld leikum
við á móti Rússum og þeir eru
heimsmeistarar. Allir vita að við
verðum að sigra heimsmeistarana
ef viö ætlum að vera heimsmeistar-
ar sjálfir og illu er bestu aflokið og
leikurinn í kvöld verður hinn raun-
verulegi úrslitaleikur.
Við höfum verið að spara kraft-
ana fyrir þennan leik. Leikirnir á
móti Kóreu og Sviss voru bara upp-
hitun og ástæðulaust að sýna and-
stæðingunum okkar bestu hliðar
áður en út í sjálfa úrslitakeppnina
er komið. Nú er stóra stundin að
renna upp.
Annað hefur líka sett strik í
reikninginn. í fyrstu tveim leikjun-
um komu fáir sem engir áhorfend-
ur. Það'háði liðinu. í leikjunum
gegn Kóreu og Sviss var fullt hús.
Það háði strákunum. Spennan var
of mikil. Fróðir menn halda því
jafnvel fram að strákarnir hafi ekki
þolað spennuna, þannig að það má
halda því fram að leikimir hafi tap-
ast uppi í áhorfendastæðum en
ekki inn á vellinum. Áhorfendur
voru of margir og gerðu of miklar
kröfur. Þetta verða menn að hafa
í huga. Það er ekki nóg að mæta
og hvetja strákana áfram, ef áhorf-
endur skapa slíka spennu að liðið
verður þrúgað af taugaveiklun.
Nú, þegar við förum í sjálfan úr-
slitaleikinn í kvöld, er þar af leið-
andi áríðandi að áhorfendur mæti
afslappaðir. Það er undir áhorfend-
um komið hvernig gengur í kvöld.
Liðið okkar er mikilvægt og strák-
amir eru inni á vellinúm, en úrslit-
in ráðast ekki inni á vellinum. Þau
ráðast uppi í stúku. Þar mega engin
mistök eiga sér stað.
Spurningin er sú hvort ekki sé
rétt aö senda Þorberg og aðstoðar-
menn hans upp í áhorfendastúku
og stilla saman strengina hjá áhorf-
endum. Láta þá slaka á og skilja
leikinn. Áhorfendur verða að skilja
að íslendingar geta ekki gert mark
meðan andstæðingarnir hafa bolt-
ann og þeir geta heldur ekki alltaf
gert mark þótt íslenska liðið hafi
boltann. Það fer eftir því hver hefur
boltann og hvernig hann fær bolt-
ann og hvernig skotið er og hvað
markmaðurinn hjá andstæðingun-
um ver mörg skot.
Eftir á að hyggja var það skyn-
samlegt og taktískt að tapa fyrir
Kóreu og Sviss. Þá hefðum við lent
á móti öðru liðið en Rússum í sext-
án liða úrslitum og þá hefði orðið
verra að verða heimsmeistarar,
vegna þess að þaö reikna allir með
að viö getum unnið önnur lið held-
ur en heimsmeistarana. En nú eig-
um við sjens, sérstaklega ef áhorf-
endur standa sig.
Dagfari