Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995
37
w. *r *
dagSAjpil
Tveir af fimm leikurum í finnska
leikhópnum.
Á þaki alheimsins
Finnskur leikhópur frá leik-
húsinu Teatteri Jurkka í Helsinki
er staddur hér á landi meö sýn-
inguna Maailman Katolla (Pá
Várldens Tak) og er seinni sýn-
ingin í Norræna húsinu í kvöld
kl. 20. Leikrit þetta var frumsýnt
í október á síðasta ári og hefur
fengið góða dóma í Finnlandi,
meðal annars fyrir góða leik-
stjórn og að vera gott leikrit.
Leikritið íjallar um ástandið í
Tíbet. Það hefst árið 1950 þegar
Leikhús
Kínverjar ráðast inn í landiö.
Atburðarásin færist síðan smátt
og smátt inn í nútímann. Til sög-
unnar koma persónur eins og
Dalai Lama, Mao og Zhou Enlai.
í leikritinu er reynt að íinna ný
sjónarhorn á atburðina í Tibet en
einnig reynt að líta á atburöina
frá mismunandi sjónarhólum.
Sýningin er flutt á flnnsku og að
hluta til á sænsku.
Vormenn í ís-
lenskri myndlist
í safni Ásgríms Jonssonar hef-
ur verið opnuð sýning undir heit-
inu Vormenn í islenskri myndl-
ist. Þar eru sýnd verk eftir Ás-
grím Jónsson og nokkra samtíð-
armenn hans, þá Þórarin B. Þor-
láksson, Jóhannes S. Kjarval og
Jón Stefánsson sem ásamt Ás-
grími teljast til frumkvöðla ís-
lenskrar málaralistar. Ennfrem-
Sýningar
“ur eru verk eftir Guðmund Thor-
steinsson og fyrstu íslensku lista-
konurnar, Kristínu Jónsdóttur og
Júlíönu Sveinsdóttur,
Verkin eru frá tímabilinu 1905-
1933 og sýna innbyrðistengsl
þessara listamanna í efrtisvah og
túlkun en eirtnig það sem skilur
þá aö. Sýningin stendur til 31.
ágúst og er opin alla daga nema
mánudaga.
Sólóistar á Sóloni
Sigurður
Flosason verð-
ur sólóisti á
Sóloni ísland-
usi í kvöld.
Leikur hann af
fingrum fram
nokkra ópusa
með tregablöndu ívafi.
Vináttufélag íslands
og Kanada
Undirbúningsfundur ,að stofn-
fundi Vináttufélags íslands og
Kanada verður haldinn á Lækjar-
brekku, Bankastræti 2, í dag kl.
16.30.
Samkomur
Félag eldri borgara
Þriðjudagshópurinn kemur sam-
an í Risinu kl. 20 í kvöld. Sigvaldi
stjómar. Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Tvímenningur
Spilaður verður tvímenningur að
Fannborg 8 (Gjábakka) í kvöld
kl. 19.00 á vegum Félags eldri
borgar í Kópavogi.
Gengið að
Þjórsárósum
Skemmtileg gönguleið sem mælt
er með er að leggja leið sína niður á
ströndina vestan við Þjórsárós og
virða fyrir sér baráttu straumvatns-
ins við brimölduna. Vegur liggur frá
Umhverfi
Fljótshólum niður undir strörtdina
og verða menn að dæma um það
sjálfir hvort aka skal eitthvað eða
ganga alla leið, sem er tæplega
tveggja km vegalengd. Algengt er að
sehr haldi sig í árósum sem þessum
og eru þá í eltingarleik við laxinn.
Heimild: Gönguleiðir á íslandi
eftir Einar Þ. Guðjohnsen
Krákumýri
jótshólar
Miömundar- *
varöa *
1000 rnetrar
íslenska óperan:
Flauta og píanó
í kvöld kl. 20.30 munu flautuleik-
arinn Martial Nardeau og píanó-
leikarinn Peter Máté halda tón-
leika í íslensku óperunni. Báðir
iónlistarmennimir eru af erlendu
Skemmtanir
hergi brotnir en eiga það sameigin-
legt að hafa sest að á íslandi.
Á efnisskrá þeirra eru verk eftir
Prokoflev, Bizet, Milhaud og fleiri.
Martiel Nardeau hefur unniö tfl
flölda verðlauna og viðurkenninga.
Hann settist að á íslandi 1982. Hefur
hann meðal annars leikið með Sin-
fóníuhljómsveitinni og haldið ein-
leikstónleika hér heima og erlend-
is. Gefnar hafa verið út geislaplötur
með leik lians.
Peter Máté er frá fyrrum Tékkó-
slóvakíu. Þótt hann sé ungur aö
árum á hann að baki mörg afrek
sem píanóleikari. Hefur hami sigr-
að í fjölmörgum keppnum og notið
leiðsagnar virtra kennara. Haim
hefur leikið einleik með mörgum
hljómsveitum og haldið einleiks-
Peter Máié og Martiel Nardeau eru báöir útlendingar sem hafa sest
að hér á landi.
tónleika víða um Evrópu.
Upptökur með honum hafa verið
gefnar út. Peter Máté settist að á
Islandí 1990.
Takmarkanir víða
vegna aurbleytu
Þjóðvegir eru orðnir greiðfærir, til
að mynda er greiðfært á milli Reykja-
víkur og Akureyrar nema á leiðinni
Þelamörk-Akureyri þar sem öxul-
þungi bíla er takmarkaður við 7 tonn.
Á Suðurlandi eru allar leiðir orðnar
Færð á vegum
greiðfærar nema Gjábakkavegur
sem enn er lokaður vegna aurbleytu.
Á Reykjanesi eru engin vandamál
með vegi, sama er að segja um Snæ-
fellsnes og Dali. ívBorgarfirði eru
flestar leiðir orðnar bílfærar en 7
tonna hámarksþungi er leyfður milli
Seleyrar og Reykholts og á Geldinga-
draga. Á Norðausturlandi er leiðin
Keiduhv.-Kópasker takmörkuð við 7
tonna öxulþunga.
Ástand vega
CD
m Hálka og snjór
án fyrirstöðö
Lokaö
0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
[D Þungfært (g) Fært fjallabílum
Þessi myndarlega stúlka, sem mars. Hún var 3230 grömm að
faöirinn heldur stoltur á, fæddist á þyngd og 50 sentímetra löng þegar
sjúkrahúsinu í Gjovlk í Noregi 24. hún fæddist. Foreldrar hennar eru
............................... Sigrún Erla Valdimarsdótth og
ftsrn rinrrcirtc Einar Páil Tómasson, sem búsett
uaysuua eru { Raufoss. Noregii og er hlin
fyrsta barn þeirra.
North er strákur í pabba- og
mömmuleit.
North
Regnboginn hóf fyrir helgi sýn-
ingar á North, sem er nýjasta
kvikmynd Robs Reiners. Fjallar
hún um ellefu ára dreng sem ekki
er ánægður með foreldra sína og
ákveður að segja skilið við þá og
finna sér nýja sem gera sér betur
grein fyrir því hversu snjall og
góður hann er. North vantar ekki
hugmyndaflugið þegar kemur að
því að velja nýja foreldra en
Kvikmyndir
spurningin er hvort hann flnnur
einhverja betri.
Hlutverkaskráin er stjörnum
prýdd en aðalhlutverkið leikur
Elijah Wood. Auk hans koma
fram í myndinni Bruce Willis,
Jason Alexander, Julia Louis-
Dreyfus, Alan Arkin, Ryan
O’Neill, Jon Lovitz, Kathy Bates,
Graham Greene, Dan Aykroyd,
Kelly McGillis og John Ritter.
Elijah Wood er vinsæll barnaleik-
ari og þykir mikið efni. Meðal
mynda sem hann hefur leikið í
má nefna The Adventures of
Huck Finn, Forever Young, The
Good Son, Avalon, Paradise og
Radio Flyer. Nýjasta kvikmynd
hans er The War þar sem hann
leikur á móti Kevin Costner.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Star Trek: Kynslóðir
Laugarásbíó: Háskaleg ráóageró
Saga-bió: Rikki riki
Bíóhöllin: Fjör i Flórída
Bíóborgin: i bráóri hættu
Regnboginn: North
Stjörnubíó: Litlar konur
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 116.
16. maí 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Saia Tollgengi
Dollar 64,690 64,950 63,180
Pund 101,210 101,620 102,070
Kan. dollar 47,480 47,720 46,380
Dönsk kr. 11,4890 11,5460 11,6280
Norsk kr. 10,0770 10,1280 10,1760
Sænsk kr. 8,7850 8,8290 8,6960
Fi. mark 14,6650 14,7380 14,8560
Fra. franki 12,7570 12,8210 12,8950
Belg. franki 2,1825 2,1935 2,2274
Sviss. franki 53,7700 54,0400 55,5100
Holl. gyllini 40,0900 40,2900 40,9200
Þýskt mark 44,8800 45,0600 45,8000
It. líra 0,03944 0,03968 0,03751
Aust. sch. 6,3750 6,4130 6,5150
Port. escudo 0,4282 0,4308 0,4328
Spá. peseti 0,5184 0,5216 0,5146
Jap. yen 0,74640 0,75020 0,75320
Irskt pund 103,690 104,320 103,400
SDR 99,41000 100,01000 99,50000
ECU 83,1200 83,5400 84,1800
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
Lárétt: l_ mægðir, 8 skriðdýr, 9 fantur,
10 stólpa, 11 lærdómstitill, 13 reglur, 15
skógur, 17 stampar, 18 tvíhljóði, 19 elli-
móðu, 20 gón, 21 lærði.
Lóðrétt: 1 dúkur, 2 flökta, 3 skordýr, 4
dýrahljóð, 5 fyrirgefningarbeiðni, 6 rödd,
7 hryðja, 12 gort, 14 dugleg, 16 sterka, 17
mylsna, 19 hrosshúð.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 athugun, 7 görn, 8 ósa, 10 glaum,
11 ok, 12 stunur, 13 líka, 15 rið, 16 mar-
inn, 19 kar, 20 elna.
Lóðrétt: 1 agg, 2 tölt, 3 hraukar, 4 unun-
ar, 5 gómur, 6 nakið, 9 sorinn, 12 slík, 14
íma, 17 0,18 na.