Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1995, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
11
Fréttir
Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambandsins:
Þaðer von á meðan við-
ræðum er haldið áf ram
- kjaraskerðingarkröfum útgerðarmanna vísað á bug
„Ég fæ ekki merkt aö nokkuð hafi
mjakast í þeim viðræðum sem átt
hafa sér stað. Það er hins vegar alltaf
von um að eitthvað gerist á meðan
menn tala saman og á morgun (í
dag) hefur verið boðaður nýr samn-
ingafundur í deilunni," sagði Hólm-
geir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjó-
mannasambands íslands, í samtah
við DV í gær um stöðuna í kjaradeilu
sjómanna og útvegsmanna. Náist
ekki samkomulag í deilunni skellur
á sjómannaverkfall 25. maí næst-
komandi.
Fulltrúar Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna lögðu fram
kröfur um umtalsverða kjaraskerð-
ingu á kjörum sjómanna.
„Þessum kröfum þeirra var að
sjálfsögðu hafnaö samstundis. Við
vorum enda búnir að leggja fram
okkar kröfur og það erum við sem
erum gerendur í máhnu. Við kröfð-
umst umræðna um okkar mál, okkar
kröfur og umræðan hefur snúist um
þær th þessa,“ sagði Hólmgeir.
Meðal krafna útvegsmanna, sem
hafnað var, er að ef fækkar í áhöfn
lækki skiptaprósentan um 0,5 pró-
sent, einnig að 1. maí verði ekki leng-
ur frídagur hjá sjómönnum. Þá vilja
þeir að ákvæðum um rétt manna th
launa í veikindum verði breytt þann-
ig að sjómenn fái lágmarkslaun eða
engin laun í skammtímaveikindum.
Hins vegar þegar um alvarlegri veik-
indi er að ræða verði í staðinn greidd
laun í lengri tíma en nú er. Þá vilja
útgerðarmenn breytta skilgreiningu
á skiptaverði og að það verði ekki
miðað við hæsta gangverð. Einnig
var krafa um breytingar á heígarfr-
íum og jólafríi svo hægt sé að róa
milli hátíða og að hafnarfríum verði
breytt. Þá vilja útvegsmenn að ef
brot á kjarasamningi sannast renni
samningsbundnar sektargreiðslur
einnig til útgerðarmanna. Sam-
kvæmt samningi renna þær til sjó-
mannafélaganna.
Vélsmiöja Húnvetninga, Blönduósi:
Smíðar fisk-
karaþvottavél
ÞórhaBur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
í Vélsmiðju Húnvetninga á Blöndu-
ósi hefur í vetur verið á ferðinni
nýjung í starfsemi fyrirtækisins.
Þessa dagana er verið að ljúka við
smiði þriðja eintaksins af fiskkara-
þvottavél. Tvær fyrstu vélamar eru
þegar seldar. Vélamar hafa reynst
vel og þykja lofa góðu. Þetta er fyrsta
burstaþvottavélin á markaðnum og
körin koma gljáfægð úr henni. Illa
útleikin kör virðast lagast við hvem
þvott sem samkvæmt útreikningi
framleiðandans kostar 243 krónur.
Að sögn Helga Árnasonar hjá Vél-
smiðju Húnvetninga er ekki aðeins
að véhn þvoi körin mjög vel, heldur
verndar hýn þau í þvotti. Engar yfir-
borðsskemmdir verða á körunum
eins og þegar þau eru þvegin undir
háþrýstingi sem verður til þess að
gerlar og aðrir óæskhegir hlutir setj-
ast þar að.
„Menn hafa sýnt þessu mikinn
áhuga og það er greinhega mikh þörf
fyrir þetta tæki. Viö bíðum hins veg-
ar eftir að markaðurinn taki við sér.
Við ætlum ekki að framleiða vélarn-
ar á lager,“ segir Helgi og bætir við:
„Á undanfómum árum hafa menn
verið að auka hreinlætið inni í mat-
vælavinnslunni og það hefur kostað
tugi mihjóna. Hins vegar verið meira
í vindinum með það sem er utan
vinnslusalarins. Sumir hafa þvegið
vel kassa og kör undir fisk, aðrir þvo
þetta hla og enn aðrir ekki neitt.“
Karaþvottavéhn þvær 20 kör á
klukkutíma og er tahn skha fimm-
íöldum afköstum verkamanns, auk
þess sem hún þvær körin betur þrátt
fyrir að vera spameytnari á sápu.
Hönnuður þessarar vélar heitir
Alexander Sigurðsson, uppfinninga-
maöur í Garðabæ.
í Danmörku og Þýskalandi eru
framleiddar vélar með spíssum og
þvo þær undir háþrýstingi. Vélin frá
VH kostar um 2,5 mihjónir.
Líkamsárás rannsökuð á Selfossi:
Bankaðiupp á
ogbarði
húsráðanda
- meintur árásarmaöur áður komið við sögu lögreglu
Lögreglan á Selfossi hefur th
rannsóknar líkamsárás á tvítugan
mann fyrir utan heimih hans á
Selfossi aðfaranótt laugardags.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu hafði umræddur maður lent
í stympingum ásamt félaga sínum
við nokkra unglinga fyrir utan
veitingastað í bænum um kvöldið.
Ekki kom th alvarlegra átaka í það
skiptið og hélt sá tvítugi ásamt fé-
laga sínum th síns heima. Um
klukkustundu síðar var bankað
upp á heima hjá honum. Þar voru
saman komnir fjórir unghngar,
þeir hinir sömu og verið höfðu fyr-
ir utan skemmtistaðinn. Kom th
orðaskipta á milh húsráðanda og
phtanna. Enduðu þau með því að
einn þeirra réðst á húsráðandann.
Málið var kært til lögreglu í gær
en húsráðandinn er með glóðar-
auga og skrámaöur eftir átökin.
Félagi fómarlambsins og félagar
meints árásarmanns héldu sig th
hlés þegar átökin áttu sér stað.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
mun ekki vera um húsbrot að ræða
þar sem átökin áttu sér stað fyrir
utan íbúðina sem er í fjölbýlishúsi.
Að sögn lögreglu ötuðust phtarn-
ir í fleirum en húsráðandanum og
félaga hans fyrir utan veitingahús-
ið fyrr um kvöldið. Að minnsta
kosti einn þeirra hefur áður komið
við sögu í líkamsárásarmálum.
-PP
Helgi Árnason hjá Vélsmiðju Húnvetninga viö fiskkaraþvottavélina.
DV-mynd Sigurður Kr. Jónsson
urAtvinnu-
málastofu
loksinsráðinn
Borgarráð hefur samþykkt að
ráða Róbert Jónsson tækni-
fræðing í starf forstöðumanns
Atvinnumálastofu Reykjavík-
ur. 28 umsóknir bárust um stöð-
una en talsvert langt er síðan
staðan var auglýst laus th um-
sóknar. -GHS
Afmœlisveisla
25% afsláttur
af stökum jökkum og buxum í eina viku