Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1995, Síða 26
34
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
AfrnæH
Jón Kristjánsson
Jón Kristjánsson, bóndi og starfs-
maður Kísiliðjunnar hf„ Amar-
vatni I, Skútustaðahreppi, er sjötíu
ogfimmáraídag.
Starfsferill
Jón fæddist að Skútustöðum.
Hann var fjóra vetur í farskóla og
tvo vetur í unglingaskóla hjá Her-
manni Hjartarsyni, presti á Skútu-
stöðum.
Jón vann á búi föður síns og var
í vegavinnu fram yfir tvítugt. Hann
starfaði hjá Hitaveitu Reykjavíkur
veturinn 1945 og við Blikksmiðju
Kristins og Bjama veturinn 1946 en
hefur verið bóndi á Arnarvatni frá
1946. Þá var hann, jafnframt bú-
skapnum, starfsmaður Kísiliðjunn-
arhf. 1967-90.
Jón söng í Karlakór Mývetninga
frá sautján ára aldri og þar til kór-
inn hætti starfsemi sinni eftir 1970
og hefur sungið í karlakómum
Hreimi sl. fjögur ár, jafnframt því
sem hann hefur sungið í kirkjukór
Skútustaðakirkju.
Jón starfaði í ungmennafélaginu
Mývetningi og Héraðssambandi
Suður-Þingeyinga, keppti í fijálsum
íþróttum, glímu og sýndi fimleika.
Jón keppti í skíðagöngu í mörg ár,
var íslandsmeistari í fimmtán og
átján kílómetra skíðagöngu 1950-52
og 1955-58 eða alls sjö sinnum. Hann
varð íslandsmeistari í þrjátíu kíló-
metra göngu 1956 og 1958 og var í
boðgöngusveit Þingeyinga sem varð
íslandsmeistari í fjórum sinnum tíu
kílómetra boðgöngu 1952,1953,1955,
1956 og 1957. Þá keppti hann fyrir
hönd Islands í átján og þijátíu kíló-
metra göngu á ólympíiúeikunum í
Cortina d’Ampezzo á Ítalíu 1956. Jón
hefur starfaði í Kiwanisklúbbnum
Herðubreið frá 1972.
Fjölskylda
Jón kvæntist 24.12.1945 Þóru Sig-
urðardóttur húsfreyju. Hún er dótt-
ir Sigurðar Jónssonar, skálds og
bónda á Amarvatni, og Sólveigar
Hólmfríðar Pétursdóttur húsfreyju.
Börn Jóns og Þóru eru Þórhildur,
f. 14.8.1947, búsett á Amarvatni;
Sigurður, f. 30.4.1949, deildarstjóri
Útgáfudeildar Alþingis, kvæntur
Bryndísi Gunnarsdóttur, kennara
og brúðuleikhúskonu; Sólveig
Hólmfríður, f. 24.11.1951, kennari,
búsett á Arnarvatni og er dóttir
hennar Sólveig Hólmfríðardóttir;
Guðrún, f. 8.9.1953, húsmóðir og
nemi á Akureyri, gift Sveini Hjálm-
arssyni skipstjóra og eru böm
þeirra Auður Úa, Þóra Ýr og Hildur
Ey; Sólveig, f. 23.11.1956, kennari
og námsráðgjafi í Reykjavík; Áshild-
ur, f. 10.9.1962, framkvæmdastjóri í
Reykjavík, gift Benedikt Ingvasyni,
heúdsala og pípulagningarmanni.
Systkini Jóns: Ágústa, f. 12.9.1912,
d. 19.6.1970, húsfreyja á Húsavík;
Finna, f. 6.5.1916, til heimilis að elli-
heimihnu Hvammi á Húsavík;
Steingrímur, f. 27.11.1917, d. 30.6.
1993, bóndi á Litluströnd; Matthías,
f. 14.6.1924, starfsmaður Kísihðj-
unnarhf.
Foreldrar Jóns vom Kristján
Jón Kristjánsson.
Jónsson, f. 16.3.1886, d. 30.6.1967,
bóndi á Sveinsströnd, og k.h., Guð-
rún Friðfinnsdóttir, f. 28.10.1882, d.
25.9.1969, húsfreyja.
María Gunnarsdóttir
María Gunnarsdóttir íþróttakenn-
ari, Árskógum 8, Reykjavík, er sjö-
tíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
María fæddist á ísafirði og ólst þar
upp. Hún lauk gagnfræðaprófi á
ísafirði 1936 og íþróttakennaraprófi
frá Laugarvatni 1941.
María var kennari við barnaskól-
ann og síðar gmnnskólann á ísafirði
1941-85, auk þess sem hún kenndi
við gagnfræðaskólann þar og hús-
mæðraskólann. Þá kenndi hún við
íþróttafélög á ísafirði og stundaði
sundkennslu við Barnaskólann á
ísafirði, í Tálknafirði, í Reykjanesi
við Djúp og í Bolungarvík.
Frá tólf ára aldri starfaði María
mikið með skátahreyfingunni og
var m.a. félagsforingi kvenskátafé-
lagsins Valkyijur í mörg ár. Hún sat
í stjórn Æskulýðsfélags ísafiarðar,
sat í varastjóm Sjálfsbjargar á
Isafirði og síðan í aðalstjórn til 1985.
Þá var hún ritari Norrænu deildar-
innar á ísafirði og sat í stjórn Nor-
ræna félagsins, auk þess sem hún
var formaður kvenfélags Alþýðu-
flokksins á ísafirði og gegndi ýms-
um öðrum trúnaðar- og félagsstörf-
um.
María hefur mikinn áhuga á
íþróttum fyrir aldraöa en eftir að
þau hjónin fluttu suður hefur hún
starfað hjá ýmsum félagastofnunum
íþágualdraðra.
Fjölskylda
María giftist 13.6.1947 Finni
Finnssyni, f. 29.1.1923, kennara.
Hann er sonur Finns Jónssonar, f.
28.9.1894, d. 30.12.1951, ráðherra,
og k.h., Áuðar Sigurgeirsdóttur, f.
2.4.1888, d. 30.6.1935, húsmóður.
María og Finnur eiga fiögur börn.
Þau em Auðunn, f. 19.12.1947,
rekstrarsfióri í Ósló, kvæntur Ritu
Evensen félagsráðgjafa og eiga þau
þrjú börn; Finnur Magni, f. 10.6.
1952, stýrimaður hjá Eimskip,
kvæntur Ingibjörgu Baldursdóttur
húsmóður og eiga þau tvö börn;
Valdís, f. 27.8.1960, líffræðingur í
Reykjavík, í sambýli með Ólafi Sig-
urðssyni vélaverkfræðingi og eiga
þau einn son; Viðar, f. 27.8.1960, sjó-
maður á ísafirði, en sambýliskona
hans er Svala Jónsdóttir húsmóðir
og á hann son frá því áður með
Guðlaugu Jónsdóttur skrifstofu-
manni.
María á fiögur systkini. Þau eru
Kristín Baarregaard, fyrrv. banka-
maður, búsett í Reykjavík; Kristinn,
hagfræöingur í Reykjavík; Andrés,
rafvélavirki í Hafnarfirði; Aðal-
steinn, loftskeytamaður í Hafnar-
firði.
Foreldrar Maríu voru Gunnar
Kristinsson, f. 8.8.1891, d. 25.2.1977,
vélamaður á ísafirði, og k.h., Ehsa-
María Gunnarsdóttir.
bet Andrésdóttir, f. 31.5.1888, d. 29.5.
1966, húsmóðir.
Þau María og Finnur taka á móti
gestum í samkomusalnum í Árskóg-
um í dag, miðvikudaginn 17.5., milli
kl. 16.00 og 19.00.
Andlát
Ari Gíslason
Ari Gíslason, ættfræðingur og
kennari, Vesturgötu 138, Akranesi,
lést í Sjúkrahúsi Akraness aðfara-
nótt miðvikudagsins 10.5. sl. Hann
verður jarðsunginn frá Akranes-
kirkjuídagkl. 14.
Starfsferill
Ari fæddist að Syðstu-Fossum í
Andakílshreppi 1.12.1907 og ólst þar
upp en flutti með foreldmm sínum
til Reykjavikur er þeir bmgöu búi
1921. Hann lauk kennaraprófi frá
KÍ1928 og var við nám í Kaup-
mannahöfn 1928-29.
Ari var kennari við Miðbæjarskól-
ann 1929-30, við Gufudalsskólahér-
að 1933-35, við skóla á vegum bama-
vemdamefndar Reykjavíkur
1935- 36, við Miðbæjarskólann
1936- 45, stundaði smábamakennslu
1945-46, kennari við Bamaskóla
Patreksfiarðar 1946-48, að Jaðri
1948-49, við Bamaskóla Eyrarbakka
1952-53, skólasfióri Bamaskóla
Tálknafiarðar 1954-56, kennari við
Bamaskólann í Fljótshlíð 1956-58,
skólastjóri Bamaskólans á Strönd
1958-59 og kennari við Bamaskóla
Akraness 1961-66. Þá var hann leið-
sögumaður ferðamanna í rúm tutt-
uguár.
Ari vann að örnefnasöfnun á
sumrin frá 1940-65, vann við skjala-
söfnun fyrir Héraðsskjalasafn Borg-
arfiarðar og var framkvæmdastjóri
Sögufélags Borgarfiarðar 1967-74.
Hann var einn afkastamesti ætt-
fræðingur hér á landi en hann
samdi eða átti þátt í að semja um
þrjátíu rit um persónufræði og
sögulegan fróðleik. Má þar helst
nefna Vestfirskar ættir I-IV1959-
1968; Ættarskrá Bjama Hermanns-
sonar, 1965; Bæjarættina, 1972;
Deildartunguættina I—II1978; Borg-
firskaræviskrárl-VniI; 1969-1994,
Æviskrár Akurnesinga, 1982-1987;
Prentaratal frá 1530-1950; Bóka-
gerðarmenn, 1530-1973; Niðjatal
Páls Breckmanns, 1982; Þijú niðja-
töl af Snæfehsnesi, 1986, og Niðjatal
Hahgríms Péturssonar, 1989.
Ari starfaði mikið í Góðtemplara-
reglunni og var m.a. æðstitemplar
stúkunnar Akurblómsins á Akra-
nesi.
Starfsmenn ættfræðidehdar DV
þakka Ara margvíslega höveislu á
undangengnum ámm.
Fjölskylda
Eftirlifandi kona Ara er Helga
Hólm, f. 4.6.1928, kennari. Hún er
dóttir Helga Einarssonar, b. að
Geitagili í Örlygshöfn, og k.h., Guð-
mundu Guðmundsdóttur húsfreyju.
Dætur Ara og Helgu eru Salvör,
f. 8.5.1953, starfsmaður Norrænu
ráðherranefndarinnar í Kaup-
mannhöfn; Inga Guðmunda, f. 31.12.
1955, bókasafnsfræðingur og starfs-
maður Náttúrufræðistofnunar.
Foreldrar Ara voru Gísh Arn-
bjamarson, f. 24.4.1853, d. 10.8.1936,
b. og kennari á Syðstu-Fossum í
Andakíl, og s.k.h., Salvör Aradóttir,
f. 24.2.1873, d. 2.7.1940, húsfreyja.
Ætt
Faðir Gísla var Ambjöm, b. á
Höfðabrekku í Mýrdal, Eyjólfsson,
b. í Múlakoti í Fljótshhð, Arnbjam-
arsonar, b. á Kvoslæk í Fljótshhð,
Eyjólfssonar, b. á Háamúla í Fljóts-
hlíð, Jónssonar. Móðir Gísla var
Guðlaug Gísladóttir, b. á Stóra-
Moshvoh í Hvolhreppi, Sigurðsson-
ar.
Faðir Salvarar var Ari, b. á
Ari Gíslason.
Syöstu-Fossum í Andakíl, Jónsson,
b. á Syðstu-Fossum, Gíslasonar.
Móðir Salvarar var Kristín Runólfs-
dóttir, hreppsfióra á Skeljabrekku í
Andakíl, Jónssonar, b. í Efri-Hrepp
í Skorradal, Oddssonar, b. í Vatns-
dal í Fljótshlíð, Brandssonar. Móðir
Runólfs var Oddný Runólfsdóttir,
b. á Geitabergi í Skorradal, Þor-
geirssonar, úr Skaftafellssýslu.
Móðir Kristínar var Ástríður Jóns-
dóttir, b. í Vatnsdal í Fljótshlíð, Þor-
kelssonar.
Til hamingju
með
afmælið
Sigrún Lilja Hjartardóttir,
Hæðargarði 6, Reykjavík.
Sigfús Ragnar Danielsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Sigríður Salvarsdóttir,
Vigur í ísafiarðardjúpi.
Sigríður er að heiman.
Jón Kristinsson, fyrrv. skóla-
stjóri,
Krummahólum 10, Reykjavík.
Jón tekur á móti gestum í Kiwan-
ishúsinu, Smiðjuvegi 13A, Kópa-
vogi, sunnudaginn21.5. kl. 17.00-
19.00.
60 ára
Sjöfú Guömundsdóttir,
Sækambi vestri, Selfiarnamesi.
Þuríður Sigurðardóttir,
Kistuholti 11, Biskupstungna-
hreppi.
50 ára
Sævar Kjartansson,
Krossholti 9, Keflavík.
Óiafur Matthíasson,
Hafiiargötu 28, Siglufirði.
Hörður Guðmundsson,
Sólbakka2, Breiðdalsvík.
Stefán Ároason,
Sogavegi 103, Reykjavík.
Kristín Norðmann,
Búagmnd 3, Kjalarneshreppi.
Nevihe Young,
Suðurgðtu 35, Keflavík.
Elín Birna Harðardóttir,
Hryggjaseli 9, Reykjavík.
Grétar Daníel Pálsson,
Víkurflöt 10, Stykkishólmsbæ.
Rögnvaldur Gottskálksson,
Hlíðarvegi5, Siglufh-ði.
Hulda Ragnarsdóttir,
Leimbakka 16, Reykjavik.
Bjargey Sigrún Jónsdóttir,
Faxabraut 38C, Keflavík.