Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Blaðsíða 11
ZOODl VJS/ NDiUQ » SOÖHV
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
11
I
I
Menning
Ballett
Aðalsteinn Ingólfsson
Leikkerfi dansanna
íslenski dansflokkurinn á þaö sammerkt með ís-
lenska handknattleiksliöinu aö hann á erfitt meö að
halda dampi; mest fyrir þaö aö hann fær ekki næg
tækifæri til aö „spila“, auk þess sem of mörg „leik-
kerfi" eru einatt í gangi á sviöinu. Þetta sannaðist á
síðustu sýningu flokksins á þessu starfsári, sem fram
fór í Þjóðleikhúsinu fyrir stuttu. Aö mörgu leyti var
þetta þó ánægjulegur endir á starfsárinu, sem aðallega
má þakka framlagi útlendu „spilaranna", dansahöf-
undanna og dansaranna sem fram komu. Lambros
Lambrou er frá Kýpur, en er nú listdansstjóri Ballet
Austin í Texas. Fyrir ári sendi hann íslenska dans-
flokknum Adieu, gullfallegt verk aö vinna úr, sem
hann gerði meö prýði. í þetta sinn hljóðaði sendingin
upp á Sólardansa, verk frá 1979, sem bar af öörum
verkum sýningarinnar eins og gull af eiri. Lambrou
er afstrakt stílisti í anda Balanchine, en hefur einnig
til að bera ríkulega ljóðrænu, en hvort tveggja virðist
eiga vel við íslenska dansflokkinn. Allt um það voru
þessir dansar hans um sólarbirtu og lífsnautn augna-
yndi og fallega útfærðir, þótt stundum skorti á sam-
stillingu dansaranna. Þau ágætu Valiev-hjón fá ekki
oft tækifæri til að dansa saman tvidans, en það gerðu
þau hér af öryggi, þokka og hlýju - eitt af faUegri atrið-
um kvöldsins. Beint í mark.
Síðan kom vondur leikkafli, svo áfram sé notað hand-
boltamál. Til Láru eftir Per Jonsson þótti mér klént
verk þegar það var frumsýnt, og ekki finnst mér það
hafa batnað þótt ljósastýringin hafi gert það. Ég sé
einfaldlega ekki í því nema uppskrúfaðan og ómark-
vissan expressjónisma. Það sem Jonsson tókst ekki
að gera fyrir dansarann, Láru Stefánsdóttur, með lang-
vinnum hamagangi, tókst hins vegar öðrum dansahöf-
undi, Charles Czarny, að gera fyrir hana á einu augna-
bhki, með einu spori og fínlegri hreyfingu handanna,
í næsta dansverki, Adagietto, við tónlist eftir Mahler.
Þetta hægferðuga, stílhreina verk um lífsþroska og
eftirsjá var eins og klæðskerasaumað fyrir dansarana
Hany Hadaya og Birgittu Heide. Birgitta, sem var að
koma fram í síðasta sinn með íslenska dansflokknum,
fékk hér í kveðjuskyni verk sem áréttaði ýmsa helstu
kosti hennar sem dansara, einkum stílfestu og þokka-
fulla yfirvegun. Það er vont fyrir íslenska dansflokk-
inn að missa slíkan dansara „út af ‘ einmitt nú. Hins
vegar var Láru Stefánsdóttur klárlega ofaukið í þessu
verki, sem er í eðh sínu tvídans. í framhaldi af því er
nauðsynlegt að spyrja hvort „þjálfarinn" hafi ekki
hreinlega ofnotað Láru þetta kvöld, en þrátt fyrir ótví-
ræða „sóknarhæfileika" sína á hún ekki erindi inn í
öll „leikkerfi" dansahöfundanna.
Spánskar klisjur
Þaö sótti að mér beygur þegar ég sá fyrstu ljósmynd-
Hany Hadaya og Julie Janus í hlutverkum sínum í
Carmen.
ir af æfingum á lokaverki sýningarinnar, Carmen, í
stjórn Sveinbjargar Alexanders. Nú þegar menn hafa
séð flamenkó-útsetningar á Carmen, Carmen með
klæðaskiptingum, Carmen á stultum, svo ég tali nú
ekki um óborganlega túlkun fmnskra dansara á Carm-
en-goðsögninni hér í vetur, hvarflaði að mér hvort
ekki væri ekki orðið dáldið, ja, púkó, að gera alfariö
út á gamlar spánskar „klisjur", það er, nautabanakáp-
ur, stapp, klapp og kastanéttur, við útleggingu á þess-
ari frægustu ástarsögu óperu- og dansbókmenntanna.
Samt er það sú leið sem Sveinbjörg kýs að fara. Og
þrátt fyrir vandaða vinnu hennar, prýðilega úrlausnir
helstu dansara, með Hany Hadaya sem aðal„marka-
skorara", náði þetta verk ekki að hrífa þann sem þetta
skrifar. Búningar voru hins vegar glæsilegir.
islenski dansflokkurinn:
Heitir dansar.
Verk eftir Lambros Lambrou, Per Jonsson, Charles Szarny
og Sveinbjörgu Alexanders.
Þjoðleikhusið, 17.5. 1995.
Lífsþroski
barnastaraf
MANNÚÐ
OG
MENNING
SUMARNÁMSKEIÐ
fyrir hressa krakka
8 til 10 ára
3námskeið verða haldin í sumar þar
sem blandað er saman leikjum og
fræðslu. Þátttakendur fræðast um
Rauða krossinn, líf barna í öðrum
löndum, veröldina sem við búum í og
hvað þarf til að öllum líði vel. Farið
verður í styttri ferðir út í náttúruna,
fjöruferð og fl.
*o
| 1. námskeið 12. júní - 23. júní
g 2. jiámskeið 26. júní - 7. júlí
jg 3. námskeið 10. júlí - 21. júlí
z ■
Námskeiðsgjald er 6.500 kr.
Þátttakendur eiga að mæta með nesti en
síðasta daginn er grillveisla í boði URKÍ fyrir
foreldra og börn.
Upplýsingar og skráning
virka daga kl. 13.00-17.00.
Sími 552-2230
Ungmennadeild
Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands
>
;
FUOTLEGRI FJARMOGNUN
24 klukkutímar
Lánareglur okkar eru einfaldar og
óþarfa bið vegna umsókna þekkist ekki.
Ef öll gögn liggja fyrir af þinni
hálfu, er umsóknin því
afgreidd innan sólarhrings.
Fáðu ítarlegan upplýsingabækling í næsta
útibúi Landsbanka Islands, Búnaðarbanka
Islands eða hringdu beint í okkur.
Kynntu þér þá margvíslegu möguleika
sem fjármögnunarleiga hefur umfram
aðra kosti á lánamarkaðinum.
-
m
✓ v
- ■ s .
r J/
J -
SUÐURLANDSBRAUT 22, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 568 9050, FAX 581 2929