Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Blaðsíða 30
38
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
íþróttir
HMíhandbolta:
Frakkar tryggðu sér sæti í úr-
slitaleiknum um heimsmeistara-
titilinn í handknattleik þegar þeir
lögðu Þjóðverja, 22-20, í undanúr-
slitunum í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Árangur Frakka er
athyglisverður því þetta er önnur
heimsmeistarakeppnin í röð sem
þeir leika til úrslita.
-JKS
Róbertí
fótboltann
Róbert Sighvatsson, landsliös-
maður í handknattleik, sem datt
síöastur út úr HM-hópnum, er
búinn að skipta um íþrótt í bili.
Hann hóf knattspyrnuvertiöina
sem markvörður 4. deildar liðs
Reynis úr Sandgerði í gærkvöldi.
Sigurður
í Reyni
Reynismenn hafa ennfremur
fengið góðan liðsstyrk frá Vest-
mannaeyjum. Siguröur Gylfason
(Ægissonar) leikur meö þeim í
sumar en hann var annar marka-
hæsti leikmaður ÍBV í 1. deildinni
í fyrra með 4 mörk í 8 leikjum.
• Talant Dujshebaev er af mörgum talinn einn besti handknattleiksmaður heims í dag. Hann hefur, eins og raunar allt lið Spánverja, komið mönnum á
óvart á HM og leikið undir getu á mótinu. í gær skoraði Ðujshebaev 9 mörk en það nægði ekki gegn Hvít-Rússum. DV-mynd Brynjar Gauti
99-1750 *
HM-POTTUR DV er skemmtilegur leikur
þar sem þú getur átt von á að vinna fjölda
glæsilegra vinninga. Það eina sem þú þarft
að gera er að hringja í síma 99-1750 og svai
þremur laufléttum spurningum um HM '95,
Svörin finnur þú í HM '95 sem fylgir
DV í dag.
GLÆSILEGIR VINNINGAR TIL
HEPPINNA ÞÁTTTAKENDA!!
Þriðjudaginn 23. maí verða heppnir þátttakendur
dregnir úr pottinum og hljóta HM-vinninga
sem hér segir:
5 HM-geisladiska, 5 HM-ur,
5 HM-handklæði, 5 HM-nælur,
10 HM-bakpoka, 10 HM-töskur
10 HM-áritunarbækur.
99-1750
o
cn
Q
„Mjög ánægður“
- Hvíta-Rússland og Rúmenía leika um 9. sætið
Hvít-Rússar og Rúmenar mætast í
leik um 9.-10. sæti í dag eftir sigra í
Kaplakrika í gær.
Hvít-Rússar léku vel og sigruðu
Spánverja, 35-34, eftir framlengdan
leik. Spánverjar höfðu undirtökin
framan af en Hvít-Rússar jöfnuðu og
eftir það var jafnt á nánast öllum
tölum. í leikslok var jafnt, 30-30, og
þurfti því að framlengja og þá reynd-
ust Hvít-Rússar sterkari.
Mikhail Iakomovich var bestur i
liði Hvít-Rússa en fyrrum félagi hans
úr fyrrum landsliði Sovétríkjanna,
Talant Dujshebaev, var yfirburða-
maður hjá Spánverjum. „Eg er mjög
ánægður með að sigra jafnsterka
andstæðinga og Spánverja en við
höfðum heppnina með okkur,“ sagði
Spartak Mironovic, þjálfari Hvít-
Rússa, eftir leikinn.
• Rúmenar unnu síðan Suður-
Kóreumenn, 34-29, í frekar slökum
leik. Kóreumenn höfðu yfir lengi vel
en Rúmenar náðu undirtökunum
rétt fyrir leikhlé. Jafnræði var með
liðunum þar til um miðjan síðari
hálfleik að Rúmenar skutust fram
úr og tryggðu sér sigurinn.
Ion Prisacaru var bestur í jöfnu liði
Rúmena en hjá Suður-Kóreumönn-
um var stórskyttan snjafia, Kyung-
shin Yoon, allt í öllu og skoraði 12
mörk.
H.-Rússland - Spánn (13-15) 30-30 35-34
1-3,4-5,5-8,8-12,11-13 (13-15), 15-17,17-19,20-22,24-24,26-26,28-28. (30-30),
32-32, 35-34.
• Mörk Hvíta-Rússlands: Mikhail Iakimovich 10/4, Gennadi Khalepo 7,
Andrei Barbashinski 4, Andrei Klimovets 4, Anton Lakizo 3, Andrei Para-
schenko 3, Konstantin Sharovarov 3, louri Gordinok 1.
Varin skot: Alexander Minevski 6/1, Igor Paprouga 2.
• Mörk Spánar: Talant Diþshebaev 9, Aitor Castro 7, Ricardo Marin 6,
Mateo Larumhe S, Alberto Marquez 4/2, Enric Borras 3.
Varin skot: David Bofill 16, Jaume Fort Mauri 7.
Dómarar: Lubker og Bulow, frá Þýskalandi, ágætir.
Áhorfendur: Um 150.
Rúmenía - S-Kóvea (15-14) 34-29
2-4,6-6,10-8,13-13(15-14), 17-16,19-19,22-21,24-23,28-24,31-26,32-28,34-29.
• Mörk Rúmeníu: Ion Prisacaru 7, Eliodo Voica 6, Gheorghe Raduta 4,
lon Mocanu 4, Crístian Zaliaria 3/2, Daníel Coman 3, Ciprian Besta 2, Adi
Popovici 1.
Varin skot: Daniel Apostu 11, Sorin Toacsen 6.
• Mörk Suður-Kóreu: Kyung-shin Yoon 12/1, Sung-rip Park 6, Bum-yon
Cho 6, Kyung-nam Kim 3, Jun-hyung Chang 2.
Varin skot: Suk-byung Lee 20, Jae Bean 1.
Utan vallan Rúroenía 8 mín„ Suöur-Kórea 4 mín.
Dómarar. Di Piero og Masi frá Ítalíu, þeirra besti leikur.
Áhorfendur: Um 80.