Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 20. MAI 1995
23
Virkið kraftana í próflestrinum
Flestir eru í kapp við tímann í próf-
lestri. Álagið á sál og líkama getur
því orðið mikið. Danska blaðið Jyl-
lands-Posten birtí eftirfarandi ráð-
leggingar dansks læknis handa þeim
sem nú sitja sveittir yfir bókunum:
Ef maður er upplagðastur að
morgni til er maður A-manneskja.
Þá er gott að stilla vekjaraklukkuna
á 7 og gefa sér góðan tíma í morgun-
sturtuna og morgunmatinn þannig
að lestur heíjist ekki fyrr en klukkan
8. Ef maður er B-manneskja gengur
manni best á kvöldin. En maður á
samt ekki að lesa lengur en til mið-
nættis og alls ekki lengur en til
klukkan 1 að nóttu. Það er heldur
ekki gott að sofa lengur en tíl klukk-
an 11 á morgnana. Prófm fara nefni-
lega fram aö degi til og snúi menn
sólarhringnum við í upplestrarfríinu
getur það haft vandamál í för með
sér á sjálfan prófdaginn.
Það er ekki hægt að lesa með ein-
beitingu 12 tíma á sólarhring. Það er
skynsamlegra að gera ráð fyrir 6 til
8 klukkustunda lestri. Nauðsynlegt
er að taka sér stutt hlé á hverri
klukkustund. Verja þarf minnst 1
klukkustund í hádegisverðar- og
kvöldmatarhlé. Gott er að fá sér hálf-
tíma lúr í sófanum eftír matinn en
alls ekki meira. Sofi maður í 2
klukkustundir fær maður þyngsli
yfir höfuðið.
Það er einnig nauðsynlegt að
skreppa í stuttan hjólatúr á hveijum
degi, skokka eða synda. Mataræðið
þarf að vera skynsamlegt. Það er
ekki hægt að ganga fyrir kaftí og vín-
arbrauði.
Málið'snýst sem sé um að fara vel
með líkamann. Það er hægt að pína
hann í 1 dag eða svo en sé það gert
lengur dvína kraftamir.
Mikilvægt er að finna sér stað til
að lesa á þar sem næði er. Sími sem
stöðugt hringir truflar við lesturinn.
Hafi maður ekki nægan sálarstyrk
til þess að láta hann glymja ætti
maður að fá sér símsvara.
Drykkirnir kaffi og te innihalda
koffin og eru þess vegna hressandi.
Það getur hins vegar verið erfitt að
sofna á kvöldin ef maður tekur koffin
inn seint. Menn eru hins vegar
komnir í slæm mál ætli þeir sér að
taka svefntöflu tíl að geta sofnað eft-
ir að hafa neytt of mikils koffíns þvi
svo þarf að taka inn enn meira koffin
Ef spurningarnar eru margar í skriflegum prófum er skynsamlegast að
byrja á þvi að svara þeim léttustu. DV-mynd GVA
tílaðhressasigviðeftírsvefnpilluna. ur sem ekki eru hættar að virka
Það eru nefnilega margar svefnpill- morguninn eftir og þá gengur lestur-
inn svolítíð hægt. Það getur verið
ráðlegt að taka inn svefntöflu kvöldið
fyrir prófdag ef menn eru mjög
strekktir, annars er það óskynsam-
legt. Þá þurfa menn jafnframt fyrst
að prófa svefnpillu eitthvert annað
kvöld fyrst tíl að sjá hvemig afleið-
ingar verða næsta morgun. Það er
ekki sniðugt aö mæta hálfsofandi í
próf.
í skriflegum prófum er nauðsyn-
legt að lesa spurningarnar vel. Ef
spurningarnar eru margar er skyn-
samlegast að byrja að svara þeim
léttustu. í munnlegu prófi er best að
byrja á því sem maður kann best ef
maður hefur vald á efninu. Ef efnið
er eitthvað sem maður ræður ekki
alveg nógu vel viö er best að fara í
varnarstöðu og svara bara þvi sem
spurt er um.
Læknirinn bendir einnig á að það
séu ekki bara nemendur sem gangist
undir próf. í rauninni gemm viö það
öll við og við, til dæmis þegar við
eigum samtal við forstjórann eða
þegar viö ætlum að halda ræðu. Það
heimskulegasta sem menn gera þá
er að fá sér bjór eða vínslurk. Hug-
rekkið vex kannski en gæðin dala.
Forvarnir eru
lykillinn að því að
halda unglingum
frá áfengi.
_
Samtok áhugafólks
um áfengis- og
vímuefnavandann