Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Page 16
1'6 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 Skák Ólympíumeistarar! íslenska skáksveitin á ólympíu- móti 15 ára og yngri í Las Palmas á Kanaríeyjum tryggði sér eftirminni- legan sigur með glæsilegum enda- spretti. Sveitin hlaut 19 vinninga úr 28 skákum og varð hálfum öðrum vinningi fyrir ofan sveit Ungverja, með Peter Leko - yngsta stórmeist- ara hgims - á fyrsta borði. Alls tefldu 22 sveitir á mótinu, frá 18 þjóðlönd- um. Haraldur Baldursson var liðs- og fararstjóri piltanna en sveitina skip- uðu Jón Viktor Gunnarsson, Berg- steinn Einarsson og bræðumir Bragi og Bjöm Þorfinnssynir, auk Einars Hjalta Jenssonar, sem var til taks ef á þyrfti að halda. Leikar fóru raunar svo að piltarnir íjórir í aðalhðinu tefldu svo vel að liðsstjórinn leyfði þeim ekki að hvíla sig! í lokaumferðunum gekk allt upp hjá íslensku piltunum. Eftir yfir- burðasigur gegn Norðmönnum, 3,5- 0,5, í þriðju síðustu umferð var ís- lenska sveitin komin í 2.-4. sæti. Taflið við Júgóslava í næstsíðustu umferð var því afar mikilvægt en fyrir umferðina höfðu Júgóslavar hálfs annars vinnings forystu. Að sögn Haraldar, var þetta einhver ótrúlegasta umferð á skákmóti sem hann man eftir. Um tíma leit út fyrir að íslenska sveitin mundi tapa viður- eigninni en piltunum tókst að snúa stöðum sínum við og unnu Júgóslava að lokum stórt, meö 3,5 gegn 0,5 vinn- ingum. Fyrir síðustu umferð höfðu íslend- ingarnir vinningsforskot á Georgíu en allt gat gerst. Þeir sýndu hins vegar mikinn styrk, unnu Englend- inga með 2,5 v. gegn 1,5 og voru þar með orðnir ólympíumeistarar! Sigurinn getum við þakkað jafn- góðum árangri allra sveitarmanna. Islendingarnir náðu ekki verðlaun- um fyrir bestan árangur á einstöku borði en átakið var þeim mun sam- stilltara. Jón Viktor Gunnarsson fékk 4,5 v. af 7 á 1. borði; Bragi Þor- fmnsson 5 v. af 7 á 2. borði; Berg- steinn Einarsson 4 v. af 7 á 3. borði og Bjöm Þorfmnsson 5,5 v. af 7 á 4. borði. Piltarnir töpuðu aðeins fyrir Georgiu, gerðu jafnt viö Argentínu en unnu sveitir Kanaríeyja, Noregs, Júgóslavíu og Englands að ógleymd- um Rússum. Þetta er í þriðja sinn sem ólympíu- mót yngri en 16 ára er haldið en Rússar sigruðu í tvö fyrri skiptin. Anatoly Karpov er forseti ólympíu- nefndarinnar og hefur sjálfur séð um skipulagningu mótsins frá upphafi. Hann afhenti verðlaun við mótsslit og hafði uppi fogur orð uín okkar fámennu þjóð en ríkulegu skákheíð. Forseti spænska skáksambandsins minntist einnig taflmennsku Frið- riks í Las Palmas fyrir tuttugu árum þegar hann vann m.a. sjálfan Tal með glæsilegri leikfléttu. Talsvert var íjallaö um mótið í fjölmiðlum ytra og vakti framganga íslending- anna að vonum mikla athygli. íslensku ólympíumeistararnir búa yfir miklum hæfileikum en á hæfi- leikunum einum saman komast menn ekki langt. Piltarnir hafa alhr fengið góðan stuðning fjölskyldna sinna og skákhreyfingin hefur stutt við bakið á þeim eftir föngum. Trú- lega er stofnun Skákskóla íslands fyrir fimm árum nú að skila ár- angri. Ólympíumeistaramir hafa þar aUir notið ókeypis kennslu og leið- sagnar stórmeistaranna. Dagana fyr- Umsjón Jón L. Árnason ir mótið gaf Margeir Pétursson þeim góð ráð og meðan á keppni stóð var hann sveitinni til aðstoðar úr fjar- lægð. Ef pUtamir lentu í vandræðum við undirbúning skáka sinna sendu þeir Margeiri símbréf, sem svaraði um hæl! Þetta hefur eflaust ekki síð- ur veitt strákunum andlegan en fræðilegan styrk. Þá höfðu þeir með- ferðis öfluga ferðatölvu sem Einar J. Skúlason lét þeim í té og Rökver hf. í Kópavogi lagði þeim tU „chess assistant" gagnagmnninn hrað- virka. Óhætt er því að segja að strák- amir hafi tekið nútímalega tækni i þjónustu sína og vinnubrögð sem atvinnumenn í faginu gætu verið fuUsæmdir af. Að sögn Haraidar fór vel um pflt- ana á Las Palmas. Þeir bjuggu á góðu hóteU með sundlaug og stutt var tU strandar. Baðferðir urðu þó stopuUi eftir því sem á mótið leiö og spennan magnaðist. Nú eigum við heimsmeistara ungl- inga, ólympíumeistara og fleiri ung- menni sem eru með þeim sterkustu í sínum aldursflokki. Hér hefur myndast öflugur kjarni ungra skák- manna sem gætu náð enn lengra en tíl þess þarf mikla ástundun og fóm- fýsi. Óhætt er að óska piltunum og íslenskum skákunnendum tU ham- ingju með einstætt afrek. Lítum á sigurskákir íslendinganna úr síðustu umferð, sem skUuðu ólympíumeistaratitlinum í höfn. í fyrri skákinni byggir Jón Viktor upp sterka sóknarstöðu og þegar hann lætur loks til skarar skríða verður svörtum fljótt fótaskortur. Eftir það var sigurinn aldrei í hættu, þótt Jón væri naumur á tíma. Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson Svart: S. Williams (Englandi) Frönsk vörn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5. Be3 Db6 6. Dd2 Bd7 7. f4 Rh6 8. Rf3 Hc8 9. Be2 cxd4 10. cxd4 Ra5 11. Rc3 Rc4 12. Bxc4 Hxc4 13. h3 Rf5 14. Bf2 Bb4 15. g4 Re7 16. 0-0 Da5 17. Hfcl 0-0 18. De3 Bxc3 19. bxc3 Ha4 20. Hc2 Bb5 21. Bh4 Rg6 22. Bel Da6 23. Hd2 Bd7 24. Hg2 Dc4 25. h4 Re7 26. h5 Ha3 H* A A áA A A A A 'Hf A A A 2® A ®a A s s & # ABCDEFGH 27. f5! exf5 28. Dg5! fxg4 29. Dxe7 Bb5 Ef 29. - gxf3 30. Hxg7 + ! Kxg7 31. Df6+ Kg8 32. h6 og óveijandi mát. 30. Dxa3 Dfl+ 31. Kh2 gxf3 32. Hf2 Dd3 33. De7 f6 34. De6+ Kh8 35. Dd6 He8 36. exf6 DÍ5 37. f7 Dxf7 38. h6 Dh5+ 39. Kgl Dg4+ 40. Khl Dh4+ 41. Dh2 Df6 42. Dh5 He4 43. Hxf3 -Og svartur gafst upp. Bragi lenti í erfiðri stöðu gegn Ruth Sheidom, sem hafði biskupaparið í opnu tafli upp úr krafsinu, eftir flækjur miðtaflsins. Vörnina tefldi Bragi hins vegar vel og nýtti tæki- færið sem gafst tU gagnsóknar. Hann náði ógnandi frelsingja á b-línunni og ruddi brautina upp í borð á lagleg- an hátt. Hvítt: R. Sheldom (Englandi) Svart: Bragi Þorfinnsson Nimzo-indversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Bg5 c5 5. d5 exd5 6. cxd5 d6 7. e3 Rbd7 8. Bd3 Da5 9. Re2 Rxd5 10. 0-0 Rxc3 11. bxc3 Bxc3 12. Rxc3 Dxc3 13. Bc2 0-0 14. Hcl De5 15. Bf4 Df6 16. Bxd6 He8 17. Dd5 Rb6 18. Dxc5 Bd719. Bg3 Hac8 20. Da5 a6 21. Bd3 Hc6 22. h3 De6 23. Hxc6 Dxc6 24. Hbl Rd5 25. Da3 Hc8 26. Be4 Be6 27. Dd3 g6 28. Hdl Hd8 29. Bf3 Hd7 30. Da3 Db5 31. Hcl Rb6 32. Kh2 Rc4 33. Dc3 Dg5 34. h4 De7 35. Be2 b5 36. Bf3 f5 37. Bc6 Hd2 38. Hbl Hxa2 39. Hal Hxal 40. Dxal b4 41. Dxa6 b3 42. Db5 b2 43. Db8+ Kg7 44. Ba4 44. - f4! 45. Bxf4 Bf5 46. Bg5 De5+ - Og hvítur gaf. Velkomin á vorhátíð í Gamla Vesturbænum dagana 20.-28. maí Hátíðin er haldin af Reykjavíkurborg. Víðsvegar um Vesturbaeinn eru sýningar, skemmtanir og aðrar uppákomur. Auk listviðburða af ýmsu tagi gefst kostur á að skoða nokkur fyrirtæki í Vesturbænum og starfsemi þeirra. Fræðist, gleðjist, skemmtið ykkur og kynnist Vesturbæ fyrri tíma og Vesturbænum eins og hann er nú. Dagskráin er mjög fjölbreytt og þátttakendur á öllum aldri. Laugardagur 20. maí | 10:00 Öldukot við Öldugötu Stýrimannaskólinn Opnun sýningar Stýrimannaskólinn Stýrimannaskólin n ólinnj «1. óljnn | Opnun þemasýningar um fugla Fjölskylduganga Ljósmyndasýning opnar Sögufélagið Vesturbæjarskólinn Ljósmyndamaraþon Opið hús Vesturgata 7 Otibú borgarstofnana opna Geysishús Framtíðarskipulag - stefnumót íbúa og borgaryfirvalda Miðvikudagur 24. maí Stýrimannaskólinn Stýrimannaskólinn Gönguferð, „Framtiðin í hverfinu" Kaffi Reykjavík Gönguferð - Vesturgatan Opnun og skrúðganga IBM Vorhátíð Fischersund Vesturbæjarskólinn | Vesturbænum Opnun sýningar „Húsin í gamla Kynslóðirnar mætast Vesturgata 7 Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi atriðum Sunnudagur 21. maí Hátiðin hefst. 20. mai kl. 14:30 Opnun hátíðarinnar og skrúðganga frá Stýrimannaskólanum. Frumflutningur á íslandi. 25. maí kl. 21:00 Prestsvígsla © Dómkirkja UMHVI Hitt húsið í GeysishúsiJ K^opi fyrir hjólatúr Borgarstjori hefur opið hus fyrir ______________ Stýrimannaskólinn unglinga í Vesturbæ Stýrimannaskólinn Stýrimannaskólinn Hjólatúr um Grandann Fyrir unglinga. 22. maí kl. 17-19:00 Kaffileikhúsið Vesturgötu 7 frumflytur sumarhrollvekju sína „Herbergi Veróniku" eftir Ira Levin. 13-17:00 Vesturgata 7 Gönguferð, „Framtíðin í hverfinu“ Opið hús Þriðjudagur 23. maí Kóramót Hafnarhúsportið Hitt húsið í Geysishúsi. Borgarstjóri hefur opið hús fyrir unglinga í Vesturbæ. 0 0 | Fógetagarðurinn við Aðalstræti Hafnarhúsið Gönguferð um kirkjuslóðir. Leiðsögn: GönguferðTHólat07í Séra Þórir Stephensen. Stýrimannaskóli Opnun sýningarinnar „Island og hafið“ Hlaðvarpinn Konur og karlar, börn og aldraðir 24. maí kl. 17:30 Kóramót í Hafnarhúsportinu. Fjórir kórar syngja. Karlakór Reykjavíkur, Kvennakór Reykjavíkur, Kór félagsstarfs aldraðra n og Kór Vesturbæjarskóla. Dagskrá hátíðarinnar liggur frammi í Ráðhúsi Reykjavíkur, BYKO við Hringbraut og annars staðar þar sem sýningar eru. Upplýsingamiðstöð um skipulagsmál opnar í BYKO við Hringbraut kl. 15:00, mánudaginn 22. mai. Mánudagur 22. mai Sögur, Ijóð og jazz 0 Gönguferð um Grjótaþorp Sögufélagið 10-15:00 Opið hús hjá Búseta Hamragarðar BYKO @BÚNAÐARBANKINN - Traustur banki Við byggjum á Breiddinni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.