Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Page 22
22 LAUGARDAGUR 20. MAI 1995 Sérstæð sakamál Morðið í bíl- geymsluhúsinu Lyftudyrnar höföu vart opnast þegar aö eyrum fólksins sem í henni var bárust skerandi neyð- aróp. „Hættu! Þú ert aö drepa mig...!“ Það var aö eyrum fjögurra mann- eskja, Schofield- og Wheeler-hjón- anna, sem ópin bárust. Þau voru aö koma á áttundu hæö í bíl- geymsluhúsi í Redditch á Englandi til þess aö sækja bíl sem þau höfðu skilið eftir þar. Bílgeymsluhúsið var ekki sér- staklega vel lýst og í fyrstu var erf- itt að gera sér grein fyrir hvaðan ópin bárust. Þarna voru langar raðir bíla. Aftur heyrðust óp, en síðan varð dauðaþögn. Alex Schofield leit á konu sína, Möru, og Wheeler-hjónin sem voru með þeim í innkaupaferð þetta síð- degi í febrúar 1986. „Það er verið að myrða einhvern!" hrópaði hann, lagði frá sér innkaupapokana í lyftudyrunum og hljóp í áttina til þess staðar sem hljóðið kom frá. Kona hans og Wheeler-hjónin fylgdu á eftir honum. Ljótsjón í dimmu homi komu þau að ljós- hærðri konu í fanginu á ungum manni. Henni blæddi mikið, og það leyndi sér ekki að hún fann mikið til. Hún hreyfði höfuðið í sífellu til beggja hliða. Ungi maðurinn beygði sig yfir hana, og andlit hans lýsti mikilli hræðslu. „Hjálpið mér, hjálpið mér,“ hróp- aði hann. „Það reyndi einhver að myrða hana.“ En konunni varö ekki bjargaö. Hún opnaði munninn, eins og hún vildi segja eitthvað, og reyndi síðan að rísa upp. Enn hreyfði hún höfuð- ið til beggja hliða, en nú var ljóst að mjög var af henni dregið. Skyndilega fóru kippir um líkam- ann. Svo varö hún máttlaus í örm- um unga mannsins. Hún var látin. Lögreglunni var þegar í stað gert aðvart, og það liðu ekki nema nokkrar mínútur þar til hún kom á staðinn. Þá sat ungi maðurinn, sem reyndist heita Stuart Hopkins, enn á gólfmu með líkiö í fanginu og starði út í loftið. Hann virtist vera í losti. Schofields- og Wheelers-hjónin voru einnig sem lömuð yfir þessu grimmilega morði, því ljóst var aö konan hafði með stungin mörgum sinnum með hnífi. Erfið byrjun Rannsóknarlögreglufulltrúinn sem fékk málið til meðferðar hét Derek Light. Hann gat fljótlega upplýst að konan hét Carol Martin og átti tvö ung börn. Rætt var við vini hennar og ættingja, ef vera kynni að hún hefði átt einhverja óvini. Þótti það í upphafi líklegasta skýringin á morðinu, því Carol hafði ekki verið misboðið kynferð- islega og engu hafði verið stolið frá henni í bílageymslunni. Taska hennar hafði fundist við hlið henn- ar og í henni voru þeir peningar sem hún hafði farið út með. Morðið hafði hins vegar verið óvenjulega grimmilegt, eins og áð- ur sagði. Morðinginn hafði stungið hana um fimmtíu sinnum meö hnífi í bakið. Rannsóknarlögreglan lýsti sam- dægurs eftir vitnum, en enginn gaf sig fram. Ungi maðurinn, Stuart Hopkins, sagðist aöeins hafa greint ógreinilegan skugga rétt eftir að hann heyrði neyðarópin, en síðan komið að Carol Martin deyjandi. Carol Martin. Schofield-hjónin. Stuart Hopkins meö móöur sinni. „Hún reyndi að segja mér eitt- hvað,“ sagði hann, „en gat engu orðið komið upp. Svo varð hún máttlaus og dó.“ Eftir fyrsta átakið til að upplýsa morðið varð Light fulltrúi að viður- kenna að hann væri í raun engu nær. Frekari rannsókn Hjónin tvennu gátu staðfest þann hluta frásagnar Hopkins aö Carol Martin virtist hafa reynt að segja eitthvað en engu orðið komið upp. En hvernig gat morðingi beinlínis gufað upp á áttundu hæð í bíl- geymsluhúsi? Varðmaðurinn við hliðið niðri gat staðfest að enginn bíll hefði farið úr húsinu frá því morðið var framiö og þangað til lögreglan lét loka þvi. Þá var ljóst að enginn hafði getað farið með lyftunni af áttundu hæð- inni, því Alex Schofield hafði lagt innkaupapokana, sem hann og kona hans voru með, í lyftudyrnar, þannig að þær lokuðst ekki og lyft- an stóð því kyrr. Eftir íhugun ákvað Light fulltrúi að taka Stuart Hopkins til yfir- heyrslu á ný. Blóðblettir höfðu fundist á fotum hans, og það var ekki undarlegt því hann hafði tekið konuna deyjandi í fang sér. En skoðun á höndum hans leiddi nú í ljós sár á fingri, og virtist það ný- legt. Hnífurinn Þótt leitað heföi verið á áttundu hæðinni strax eftir að lögreglan kom á vettvang var nú gerð þar nákvæm leit, enda hafði morð- vopnið ekki fundist. Meðan hún stóð yfir varð Light fulltrúa litið út um gluggann, og þar sá hann opið klóaksrör. Hann skipaði nú mönnum sínum að leita í því þar sem honum kom til hugar að morð- inginn kynni að hafa kastað hnífn- um út um gluggann og hefði hann getað lent í rörinu. Klukkutíma síðar birtist einn rannsóknarlögreglumannanna sigrihrósandi með blóðugan eld- húshníf í hendi. Hann var þegar í stað sendur á rannsóknarstofu. Meðan þar var kannað hvort blóðið á hnífnum svaraði til blóðsýnis úr hinni myrtu var Hopkins tekinn til fmgrafararannsóknar. Brátt lágu niðurstöður beggja rannsóknanna fyrir. Blóðið á hnífnum kom heim og saman við blóðsýnin úr Carol Martin og fingraforin á hnífsskaftinu voru eftir Stuart Hopkins. Light fulltrúi fékk nú heimild til húsleitar hjá Hopkins og hélt þang- að með nokkra af mönnum sínum. Óvæntur fundur Light og menn hans höfðu ekki verið lengi heima hjá Hopkins þeg- ar þeim varð ljóst að eitthvað mjög óvenjulegt var að. Á rúmi unga mannsins lá stór bangsi, og á veggj- unum héngu myndir sem höfðu verið klipptar út úr barnabókum. í einu horni herbergisins lá stafli af teiknimyndasögublöðum, sams konar og fundist höfðu í aftursæti bíls Carol Martin í bílgeymsluhús- inu. Þau höfðu reynst vera í eigu barna hennar. Light tók nú móður Hopkins tali, og hann hafði ekki rætt lengi við hana þegar honum varö ljóst að ungi maðurinn var haldinn Ödip- usarduld. Hann var meö öðrum orðum með óvenjulega sterkar til- finningar til móður sinnar. Stuart Hopkins átti ekki kærustu og hafði aldrei átt neinar vinkonur. Hann hafði engan áhuga á íþrótt- um, og uppáhaldsdægradvöl hans, þegar hann var ekki að lesa teikni- myndasögur, var að sitja í stól og láta móöur sína lagfæra á sér hárið. Ástæðan Tæknimenn gátu nú greint frá því, eftir frekari rannsókn á blóð- inu sem fundist hafði í fötum Hopk- ins, að hluti þess væri úr honum sjálfum. Þótti það staðfesting á því að hann hefði skorið sig í fingur þegar hann myrti Carol Martin. Hann var nú tekinn til strangrar yfirheyrslu og játaði á sig morðiö. Hann sagðist hafa verið á gangi á áttundu hæð bílgeymsluhússins þetta síödegi til að vita hvort hann kæmi ekki auga á fólk elskast í ein- hveijum bílanna, en það kvaðst hann stundum hafa séð í húsinu. í þetta sinn hefði hann ekkert par séð, en þess í stað hefði hann séð stafla af teiknimyndasögublöðum í afursæti eins bílsins. Hann sagðist hafa verið að reyna að brjótast inn í bílinn til að stela blöðunum þegar Carol Martin hefði komið að honum. Hún hefði spurt hann reiðilega hvað hann væri að gera. „Reyndu að haga þér eins og full- orðirin maður,“ hafði hún sagt, þegar hann sagði henni að hann hefði verið að reyna að komast yfir teiknimyndasögublöðin. Jafnframt hafði hún sagt honum aö hún myndi tilkynna verðinum niðri hvað hann hefði verið að gera. Genginn í gildru Á þessu augnabliki missti Hopk- ins alla stjórn á sér. Hvað segöi móðir hans ef hún kæmist að því að hann færi í bílgeymsluhús til þess að fylgjast í laumi með elsk- endum og reyndi að brjótast inn í bíla? Hann snerist gegn Carol, sem reyndi að berjast á móti af öllum kröftum. Hún var sterk, en hann var með hnífmn og stakk hana hvað eftir annað. Þegar hún hné niður var það hugmynd hans að skilja hana eftir milli bílanna, en þegar hann heyrði í lyftunni varð honum skyndilega ljóst að hann var genginn í gildru. Hann kastaði hnífnum út um glugga og var svo heppinn að hann lenti beint ofan í klóaksrörinu. í nokkur augnablik stóð Hopkins og íhugaði hvað hann ætti að gera. Þegar hann heyrði fótatak nálgast ákvað hann að láta líta út sem hann hefði heyrt ópin í Carol Martin og væri að huga að henni. Svörvið síðustu spurningunum Nú rann upp fyrir Light fulltrúa hvers vegna Carol Martin hafði í sífellu hreyft höfuðið til beggja hliða þegar hjónin tvennu, fjór- meningarnir, komu að henni. Hún var búin að missa málið, en var að reyna að segja „nei“, það er að lýsa yfir því aö Hopkins væri ekki aö reyna að hjálpa henni. Hún hafði verið að reyna að segja að maður- inn sem hélt henni í fangi sér og þóttist vera mismunsami Samverj- inn væri í raun sjálfur morðinginn. Stuart Hopkins var dæindur í ævilangt fangelsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.