Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Side 35
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
43
íslensk hross könnuð í
Þýskalandi vegna HM
Brynja frá Hafsteinsstöðum stóð efst sex vetra hryssn- Náttar frá Miðfelli.
Annað hvert ár hafa íslenskir kyn-
bótahrossadómarar farið til Þýska-
lands að dæma kynbótahross vegna
heimsmeistarakeppni í hestaíþrótt-
um (HM). Á HM eru jafnframt dæmd
kynbótahross. Fulltrúar íslands á HM
hafa í mörgum tilvikum komið frá
Þýskalandi. Stutt er að fara þaðan til
annarra landa í Evrópu og eigendumir
ákafir í að auglýsa hrossin sín. íslensk-
ir kynbótahrossaeigendur eru ekki
eins æstir að senda hrossin sín út.
Kristinn Hugason kynbótahrossa-
dómari og Guðmundur Sigurðsson,
ráðunautur í Borgamesi, dæmdu
hrossin, en þeim til aðstoðar var
Rafn Jónsson, ritstjóri Eiðfaxa.
„Við dæmdum um það bil 30 hross á
búgarðinum Vindhólum þar býr Einar
Hennannss.,“ segir Kristinn Hugason.
Öll hrossin era fædd á íslandi nema
eitt. Þetta vora mjög góð hross, góðir
knapar og ánægjulegt að vinna
þarna, enda framkvæmd mótsins
með miklum ágætum.
Dómum var komið í ferðatölvu
jafnóðum og niöurstöður keyrðar út
strax. Yfirlitssýningar voru á báðum
stöðum: Noregi og Þýskalandi.
Mörg hross hátt
dæmd í Þýskalandi
Öll hrossin í Þýskalandi utan eitt
fæddust á íslandi. Flestir stóðhest-
anna hafa verið dæmdir áður á ís-
landi og fengið. ágætar einkunnir.
Fullnaðardóm fengu níu hestar, fjór-
ir þeirra 8,00 eða meir og sjö 7,75 eða
anna á kynbótasýningu f Þýskalandi
björn Bárðarson.
meir. Engin fjögurra vetra hross
voru dæmd.
Sjö hestar í elsta flokki fengu fulln-
aöardóm og fimm þeirra 7,75 eða
meir. Náttar frá Miðfelli stóð efstur
með 8,14 í aðaleinkunn. Hann er und-
an Náttfara frá Ytra-Dalsgerði og
Viku frá Vatnsleysu. Náttar fékk 7,78
fyrir byggingu og 8,51 fyrir hæfileika.
Ásaþór frá Stóra-Hofi kom næstur
með 8,08 í aðaleinkunn. Hann er und-
an Hrafni frá Holtsmúla og Rimmu
frá Stóra-Hofi og fékk 7,90 fyrir bygg-
ingu og 8,26 fyrir hæfileika.
Knapi er Sigur-
Funi frá Stóra-Hofi, undan Kjarval
frá Sauðárkróki og Nótt frá Krögg-
ólfsstöðum, var þriðji með 7,96 í aðal-
einkunn. Hann fékk 8,08 fyrir bygg-
ingu og 7,84 fyrir hæfileika. Næstur
kom Aldur frá Votmúla með 7,94 og
Vorboði frá Lundi 7,85.
Fimm vetra hestarnir
meö háar einkunnir
Tveir fimm vetra stóðhestar fengu
fullnaðardóm og háar einkunnir.
Knapi er Þorvaldur Kristinsson.
DV-myndir E.J.
Gandur frá Skjálg, undan Náttfara
frá Ytra-Dalsgerði og Skör frá Skjálg,
fékk 8,28 í aðaleinkunn sem var jafn-
framt hæsta aðaleinkunn mótsins.
Gandur fékk 8,18 fyrir byggingu og
8,39 fyrir hæfileika.
Breki frá Eyrarbakka, undan
Brenni frá Kirkjubæ og Perlu frá
Haga, fékk 8,14 í aðaleinkunn. Hann
fékk 7,90 fyrir byggingu og 8,37 fyrir
hæfileika.
Hryssur
með betra móti
Tuttugu og ein hryssa fékk fullnað-
ardóm í elsta flokki hryssna og allar
nema ein þeirra 7,50 í aðaleinkunn
eða meir. Sex þessara hryssna fengu
8,00 eöa meir í aðaleinkunn. Hryssu-
sýningin heppnaðist vel og eru ein-
kunnir þeirra með betra móti.
Brynja frá Hafsteinsstöðum, undan
Þætti frá Kirkjubæ og Vöku frá Haf-
steinsstöðum, stóð efst hryssna í
flokki sex vetra og eldri. Hún fékk
8,25 fyrir byggingu, 8,19 fyrir hæfi-
leika og 8,22 í aðaleinkunn.
Kvika frá Traöarholti, undan
Dreyra frá Álfsnesi og Brúnku frá
Traðarholti, fékk 7,98 fyrir byggingu,
8,30 fyrir hæfileika og 8,14 í aðalein-
kunn.
Frökk frá Skammbeinsstöðum,
undan Ljóra frá Kirkjubæ og Hrefnu
frá Stóra-Hofi, fékk 7,78 fyrir bygg-
ingu, 8,49 fyrir hæfileika og 8,13 í
aðaleinkunn.
Næstar komu: Rán frá Efri-Rauðá-
læk með 8,04 í aöaleinkunn, Skutl-
blesa frá Neubronn meö 8,03 í aðal-
einkunn og Mandla frá Stóra-Hofi
með 8,02 í aðaleinkunn.
Sýn frá Ingólfshvoli, undan Ófeigi
frá Flugumýri og Sneglu úr Kópa-
vogi, fékk ein fimm vetra hryssna
fullnaðardóm. Sýn fékk 7,78 fyrir
byggingu, 7,90 fyrir hæfileika og 7,84
í aðaleinkunn.
ClubCar
Kynnum einnig
Vatnagorðum B4
Sími 568-9900