Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Síða 36
44
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
Sviðsljós
Mia Farrow hefur hafið nýtt líf:
Býr á sveitabæ
með tólf bömum
Tvö og hálft ár eru liðin síðan Mia
Farrow fann nektarmyndir af fóstur-
dóttur sinni, Soon-Yi, sem fyrrum
eiginmaður hennar, Woody Allen,
tók. „Ég er orðin sterkari en ég var,“
segir leikkonan. „Ég er ekki eins
hrædd og ég var en veit hins vegar
ekki hvort ég þori að elska nokkurn
karlmann aftur."
„Böm að leik“ stendur á skilti við
veginn að húsi Miu Farrow í
Connecticut í Bandaríkjunum. Þang-
að flutti hún eftir skilnaðinn við
Woody Allen. Skilnaðurinn varð til
þess að ættleidd dóttir hennar, Soon-
Yi, og Woody tóku saman og eru nú
par.
„Það var hrikalegt áfall þegar ég
fann þessar myndir og ekki síst fyrir
þá sök að þær voru teknar af mann-
inum sem ég elskaði og treysti. Getur
maður nokkurn tíma treyst nokkurri
manneskju eftir að hafa búið með
manni í tólf ár og komast síðan aö
því að maöur þekkir hann ekki?“
segir hún.
Mia heldur á yngsta ættleidda
barni sínu sem er ársgamalt. Hún á
nú tólf börn og þar af em fjögur
hennar eigin. Mörg barnanna koma
frá fátækum löndum. Mia segist vera
að reyna að ná sér eftir þessa erfiðu
tíma. Hún stóð í hatrammri deilu við
Woody um hvort hann fengi að um-
gangast son þeirra, Satchel. Woody
fær aö sjá hann sex tíma einn dag í
viku undir eftirliti. Mia vill helst taka
fyrir það þar sem hún telur soninn
ekki hafa gott af að vera meö fóður
sínum.
Bjartari tímar
„Nú finnast mér vera bjartari
tímar fram undan. Mig hefur alltaf-
langað að búa úti á landi þannig að
gamall draumur er að rætast. Nú get
ég ræktað mitt eigið grænmeti og við
ætlum okkur að koma upp útihúsum
þannig að við getum fengiö okkur
hesta, hænur og fleiri dýr.
Mia Farrow og Woody Allen kynnt-
ust í nýársveislu árið 1980. Þau unnu
tíu kvikmyndir saman en giftu sig
aldrei. Þrátt fyrir að þau væru kær-
ustupar bjuggu þau ekki í sömu íbúð
en í sömu blokk við Central Park í
New York. Rætt var um þau sem
fyrirmyndarpar.
Mia Farrow er með írska barnapíu
enda veitir ekki af hjálpinni á þessu
stóra heimili. Ein dóttirin, hin viet-
namska Tam, er nær blind en syndir
þó engu að síður í nærliggjandi vatni
eins og fiskur.
Mia Farrow er kaþólsk og segist
hafa styrkst í trúnni á undanfornum
árum. Hún hefur einstakt dálæti á
börnum og alls staðar eru börn sem
þrá að eignast heimili, segir hún.
„Ég vel ekki bömin eftir neinu
kerfl. Fólk hringir oft til mín og bend-
ir mér á börn sem þurfa aðstoð. Mér
var nýlega sagt frá litlum indíána-
strák og væntanlega verður hann
einn af okkur. Ég vil reyna að gera
veröldina betri og kenna börnum
mínum heiðarleika.“
Mia Farrow er af írskum ættum
og í framtiðinni sér hún ekki sjálfa
sig sem kvikmyndastjörnu heldur
ömmu á írlandi. „Ég ætla að verða
skrítin amma sem hangir á börunum
og drekkur Guinness," segir hún.
Mia Farrow er að ná sér eftir erfiða
tima, skilnaðinn við Woody Allen.
Sannleikurinn um ABBA í nýútkominni bók:
Agneta og Fríða slógust
i nýútkominni bók um hljómsveitina
ABBA kemur í ljós að á bak við glitr-
andi ímynd ríkti ágreiningur og
óvinátta. Samtímis því sem tugir
milljóna streymdu í kassann leystist
hljómsveitin smátt og smátt upp
vegna deilna Fríðu og Agnetu, að því
að fullyrt er í bókinni sem ber heitið
ABBA, The Name of the Game. Bók-
in er skrifuð af Englendingunum
Andrew Oldham og Tony Calder sem
sagðir eru þekkja vel til í poppheim-
inum.
Það hversu Fríða og Agneta voru
ólíkar var styrkur hljómsveitarinnar
í sviðsljósinu en hafði jafnframt ör-
lagarík áhrif. Þegar ABBA var stofn-
uð voru Björn Ulvaeus og Benny
Andersson góðir vinir. Fjórmenning-
amir eyddu miklum tíma saman. í
kjölfar sigursins í Evrópusöngva-
keppninni 1974 tóku við fjölmargar
tónleikaferðir. Fríðu leið vel á þess-
um ferðum. Hún hafði stefnt að því
að verða stjarna og hún sólaði sig í
frægðinni. Agnetu dreymdi um
kyrrlátt fjölskyldulíf. Henni leið illa
í tónleikaferðunum og saknaði bam-
anna sinna heima í Svíþjóð. Hún átti
erfitt með að aðlaga sig lífi þotufólks-
henni. Agnetu fannst Fríða snobbuö
en fékk einnig minnimáttarkennd
þegar hún bar sig saman við hana. í
bókinni segir að ástandið hafi versn-
aö smátt og smátt og í lokin hafi
stúlkurnar ekki þolað hvor aðra. í
einni tónleikaferðinni slógust þær og
þurfti umboðsmaðurinn að greiða
fyrir skemmdir á hótelherbergi.
Þegar ABBA var í sinni síðustu
hljómleikaferð i Bandaríkjunum
1979 vissu allir að það var í síðasta
sinn sem Svíarnir íjórir, er lögðu
heiminn að fótum sér, stæðu á sviði
ABBA, Svíarnir fjórir sem lögðu heiminn að fótum sér.
Fríðu leið vel innan um þotuliðið
sviðsljósinu.
Agnetu létti þegar ABBA var leyst
upp. Nú lifir hún eins konar Gretu
Garbo-lifi og kemur sjaldan fram
opinberlega.
... að leikkonan Olivia Newton-
John værl nú með eigln sjón-
varpsmyndatlokk þar sem hún
heirnsæklr náttúruunnendur víða
um heim. í Bandaríkjunum
dvaldi hún nokkra daga hjá
Patrick Swayze sem ræktar
arabahesta.
... að fyrirsætan Rachel Hunter,
eiginkona söngvarans Rods
Stewarts, hefði gaman af iþrótta-
grein sem er blanda af hnefaleik-
um og karate þar sem allt mögu-
legt er leyfilegt. Rachel segir að
í fyrstu hafl sér }>ótt þetta gróf
grein en nú sé hún alveg freisuð.
... að Tom Cruise og kona hans
Nicole væru búin að ættleiða lit-
inn dreng sem fengið hefur nafn-
ið Connor. Áður höfðu þau æft-
leitt lltla stúlku, ísabellu, sem er
tveggja ára. Ekki er langt sfðan
leikkonumar isabella Rossellini
og Michelle Pfeíffer ættleiddu lít-
il böm.
... að ástin blómstraði enn hjá
David Bowíe og Iman konu hans
eftir nokkurra ára hjónaband.
Þau eiga von á erfingja i sumar
og hlakka mikið til. Nýlega
keyptu þau sér „sumarbústað" i
Karíbahafinu fyrir 200 milljónir
króna.
... að sænska stúlkan Ulrika
Jonsson, sem eitt sinn var í ást-
arsambandi við Játvarð Breta-
priris, væri ein af 50 hæst laun-
uöu sjónvarpskonum Bretlands
meö um $0 milljónir króna i árs-
tekjur. Ulrlka er gift kvikmynda-
tökumanninum John Turnbuli og
eiga þau einn son.