Þjóðviljinn - 24.12.1960, Síða 14
[ 14) JÓLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS
1 i 1
.Þyrillinn, höfuðlaus sfings, liggjandi fram á lappir sér.
Blettur þessi er svo magnaður að
engum hefur gagnazt af því að heyja
hann. Það brást aldrei að þeir sem
það gerðu, misstu á því ári uppá-
haldsgrip úr búinu, venjulega reið-
hest sinn eða konunnar, stundum
snemmbæru. Og þetta gerðist með
svo undarlegum hætti að ekki varð
heimfært undir neitt venjulegt sem
skepnur hendir, né talið til eðiilegra
slysfara. Algengast var að skepnan
stirðnaði upp á básnum einhverja nótt-
ina skömmu eítir að tekið var á gjöf,
og varð að afl'fa hana væri hún ekki
dauð þegar að var komið. Stundum
kom það fyrir að gripurinn hljóp
hreinlega framaf brekkubrúnir.ni og
hálsbraut sig. Og alltaf skyldi þetta
vera úrvalsgripur.
Margt fólk er enn til sem þekkir
þetta af eigin raun, hefur átt þar
heima eða í nágrenninu og dettur ekki
í hug að bera brigður á það orð sem
af brekkunri fór. þótt undarlegt sé.
Öilum sem kunnugir eru þarna, ber
saman um það að enginn hafi í
mannaminr.um hirt heytuggu af þess-
um bletti, án þess að missa á því
sama ári vænan stórgrip með voveif-
iegum hætti.
En það var ekki við neinn að sakast
fyrir þá sem urðu fyrir slíku, nema
sjálfan sig. Þeir höfðu brotið af sér
gagnvart jörðinni og jörðin refsaði
þeim. Og það gerði víst enginn nema
einusinni að slá Álagabrekkuna. En
falleg var hún og freistandi, og í
bejnu áíramhaldi af túninu, svo það
mátti svei mér hafa gát á ljánum.
Hún átfi það líka til skömmin sú
arna að vera dálítið loðnari en Snopp-
an vesturaf sem var slegin á hverju
sumri, en þessi blettur var ekki sleg-
inn nema á margra ára fresti, þegar
óhöppin hentu. En það var nóg til
þess að halda honum í rækt og gera
har.n girnilegan fyPir slægn a-lítinn
bónda sem varð að skafa hvern blett.
Þessi inngangur er þó aðeins útúr-
dúr og smámunir. Það hvíldu einnig
önnur álög á Litlasandinum miklu al-
varlegri. og segir nú af þeim.
III.
Munnmælasagan: Einu sinni
bjó fátæk ekkja á Litlasandi
á Hvalfjarðarströnd. Hún fór
þaðan nauðug og lagði það á
jörðina að enginn mætti búa
þar lengur en tíu ár. Er það
• talið hafa farið eftir síðan.
I
Svo langt sem elzta fólk man hefur
það gengið staflaust að einnig væru
áiög á Litlasandi af mannavöidum.
Það mátti enginn búa þar lengur en
tíu ár. Öllum búnaðist heldur vel þar
fyrstu tíu árin, en sæti einhver jörð-
ina lengur brást það ekki að verstu
óhöpp dundu yfir, aliskonar eigna-
tjón, búféð hrundi niður, jafnvel gerð-
ist óáran í fólki.
Þetta hafði margsannazt. Fólkið
vissi ýms dæmi þess að álögin heíðu
hrinið á þeim sem útaf þessu brugðu,
og enn er til margt fólk sem hefur
búið þarna og orðið fyrir allskonar
ósköpum.
Nú munu víst flestir hugsa sem
þetta lesa: Ja, sér er nú hver vitleys-
an. þarna heíur verið ljóta hjátrúar-
bæiið. En það var öðru nær. Ég er
vel kunnug mörgu af því fólki sem
þama hefur átt heima og hef engu
fólki kynnzt sem er jafn laust við
hjátrú. Það var glaðvært írjálslynt
og hleypidómalaust og tók þessum at-
burðum eins og sjálfsögðum hlut.
Þarna var þéttbýlt og góður félags-
andi.
En það væri ekki nema von þótt
einhver spyrði: Hversvegna er verið
að rifja þetta upp? Er ekki jörðin bú-
in að vera í eyði tvo áratugi og allt
þetta gamla slúður fallið i gleymsku?
Jú, vissulega er jörðin búin að vera
í eyði tvo áratugi og flest gleymt sem
hana varðar. En svo undarlega sem
það hljómar voru það einmitt atburð-
ir sem gerðust alveg nýskeð í sam-
bandi við þessa jörð, eða öllu heldur
eru að gerast í dag, sem ollu því að
farið var að rilja þessa hluti upp
aftur, Það virðist alls ekki kominn
tími til að þeir íalli í gleymsku. Og
svo kröftugt er þetta orð ennþá að
svo virðist sem harðsvíruðusu fjár-
plógsmenn striðsgróðaáranna og út-
smognustu diplómatar og bragðarefir
séu jafnberskjaldaðir fyrir því og ör-
snauðir bændur frá einum mestu
harðindatímum íslandsbyggðar.
Það detta öngvum lýs úr höfði þótt
eignalitlir bændur verði öðruhvoru
íyrir skakkaföllum, en að þe.ssi dé-
skotans ónáttúra skyldí einnig hitna
Útgerðarmenn!
Sjómenn!
Uppbygginjr og viðhald fiskibátaflotans innanlands
er þjóðarnauðsyn. Spornið við óþarfri gjaldeyrissóun,
með því að láta innlendar bátasmíðastöðvar byggja
fiskibáta yðar. Reynslan hefur sýnt að bátar byggðir
innanlands eru fyllilega sambærilegir við erlenda báta
hvað sjóhæfni, styrkleika og endingu snertir, og verð
sambærilegt.
falið við okkur, ef þér þurfið að láta byggja báta.
Vér getum byggt allar stærðir og gerðir af bátum
úr eik og furu, frá litlum opnum bátum, upp í 150
lesa þilfarsbáta, :nni í húsi.
Innan skamms tíma væntum vér þess að geta einnig
boðið yður þjónustu okkar við byggingu stálbáta.
Hafnarfirði, s‘imi 50520
á hjátrúarlausum skólagengnum nú-
tímamönnum, og það mönnum sem
eiga í meira lagi undir sér, það varð
einmitt.til þess að ég fór að spyrjast
fyrir um það hjá kunnugu íólki hvað
það vissi um þessi álög og hvernig þau
væru.
Svör þeirra sem ég spurði voru flest
á einn veg: Ósköp þessi voru kennd
ekkju sem átti að hafa búið þarna í
tíu ár, en einhverra hluta vegna orð-
ið að hrekjast þaðan nauðug að þeim
tíma liðnum. Þá hefði hún lagt það
á jörðina í reiði sinni að engum skyldi
blessast að búa þar lengur en henni.
Það var gamla sagan um hinn rænda
eyri ekkjunnar, eftirsóttan vandræða-
pening sem mörgum hefur orðið dýr.
ÖHu meiri vitr.eskju var ekki að
fá um konu þessa h.iá nútímafóiki,
utan hvað einhver hélt hún heíði
heitið Sigríður, hafði það eftir Ólafi
Illugasyni sem lengi bjó á Miðsandi
og var ungur maður í húsmennsku á
LitJasandi. Einnig mátti ráða í það af
ýmsu að ekki mundi ýkjalangt síðan
hún var uppi, því elzta fólk kunni
nokkur skil á því hvenær þetta fór
að gera um sig og gat nefnt alla
bændurna sem fyrir því urðu. nema
þann fyrsta. Og þá mátti geta sér
til að hann væri heldur ekki rajög
langt undan.
Ekki kom ég þó öðru í verk að
sinni en að skyggnast lítillega í gaml-
ar kirkjubækur og hafa árangurinn
að gamanmálum í kunningjahópi. Svo
var það nokkru seinna að ég átti tal
við unga menntakonu og rithöfund,
sem spurði hvort ég þekkti ekki til
einhversstaðar á sveitabæ þar sem
gömul álög væru og hvernig fólk
hefði brugðizt við þeim. Kom okkur
ásamt um bæði í gamni og alvöru að
íslenzk menning mætti ekki við því
að missa þennan rauða þráð úr vefn-
um. Og til þess að verða góðu tnál-
efni að sem mestu liði, þá skiptum
við þannig með okkur verkum að
önnur skyldi rannsaka þetta mál sagn-
fræðilega. eftir því sem hægt er að
henda reiður á slíku, en hin uota
efnið að ívafi í skáldverk. Hér fer
á eftir hvers sú varð visari, sem tók
að sér sagnfræðina.
IV.
Litlisandur á enga skráða sögu. Þar
hafa aldrei gerzt þeir atburðir að
neinum þætti taka að festa þá á blað.
Hvergi getið í annálum, aðeins minnzt
á bátskaða. er varð þarna skammt
frá árið 1875, og drukknun Björns
Blöndal undir Klifinu.
Það er þvi ekkert að stvðjast við
þegar þrýtur minni elzta íólks sem
nú liíir, annað en slitróttar kirk.iu-
bækur og er raun að sjá hve prest-
ar hafa oft lagt litla áherzlu á að færa
þær reglulega. Þegar manni ríður mest
á nákvæmum upplýsingum hafa þeir
kannski ekki húsvitjað nema á margra
ára fresti, og bókfærslan ekki alltaf
örugg.
En þangað verður þó að leita eftír
grundvallaratriðum í máli sem þessu.
Lítil verður saga eins bæjar án fólks-
ins er þar býr.
Fyrst er þá að hefja leit að ekkj-
unni sem átti svona kröftugt tungu-
tak, og helzt að hún héti Sigríður. Er
þar skemmst af að segja að Sigríður
fyrirfinnst engin, svo langt aftur í
tímann sem séð verður af bókum hef-
ur engin Sigríður búið á Litlasandi né
átt þar heima, nema Sigriður Davíðs-
dóttir frá Miðsandi kona Símonar
Jónssonar frá Efstabæ. En ekki kemur
hún til greina, þvi hún er þarna ný-
gift og allt í lukkunnar velstandi, þau
hjón búa þar aðeins nokkur ór.
Þarna er heldur ekki um auðugan
garð að gresja. Síðustu tvær aldii'
hefur aðeins ein ekkja búið á Litla-
sandi. Hún hét ekki Sigríður.
Og er þá ekki sjálfgert að leggja
árar í bát, hætta að leita að sönnun-
um íyrir munnmælasögunni fyrst hútv
brást í svona veigamiklu atriði?
Við sem höíum verið í sveit að vor-
lagi, þekkjum hverníg hreiðurfuglar
fara að því að viþa um fyrir þeim sem
ætla að gerast nærgöngulir, ,Gætí
ekki .eitthvað syipað haf.at ig’erzf. Ííérf
Sé einhver íótur fyrir munnmæla-