Þjóðviljinn - 19.12.1972, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 19. desember 1972
íminningu ágæts þýöanda
Jón Sigurósson frá Kaldaðarnesi:
Kitsafn i bundnu og óbundnu
máli. Ilelgafell, Keykjavik,
MCMLXXII. Kristján Albertsson
sá um útgáfuna.
Jón Sigurðsson frá Kaldaöar-
nesi lézt áriö 1957 og var þá löngu
kunnur öllum bókmenntaunnend-
um fyrir ágætar þýðingar er-
lendra skáldverka. Snilldarþýö-
ingar hans á sögum Hamsuns,
Viktoriu, Fan, Sulti og Aö haust-
nóttum eru nægilegt bókmennta-
starl' til aö varöveita nafn hans i
sögu hókmennta á lslandi. Þvi
miöur höfum viö átt allt of fáa
slika menn sem kynnt hafa ls-
iendingum erlendar öndvegisbók-
menntir og veriö hæfir til þess.
Nú hefur Helgafell gefið út bók
meö frumsömdu efni i bundnu
máli og óbundnu eflir Jón kalda
ásamt nokkrum þýddum smásög-
um.
Kornungur yrkir hann Ijóö sem
vissulega gátu gefið fyrirheit um
frama á skáldskaparbrautinni, en
aö þvi er virðist hættir hann meö
öllu aö yrkja i alvöru aöeins 28
ára gamall áriö 1914. Þetta er
jafnvel eiginkonu hans og vinum
(sem skrifa um hann i Ritsafn-
inu) ráögáta, svo aö ekki hefur
hann sjálfur veriö margorður um
þaö. En slikt sem þetta er raunar
ekkert einsdæmi. Þroskaður
listasmekkur og viðtæk þekking á
bókmenntum hefur gert sum
skáld svo gagnrýnin og kröfuhörö
i garö sjálfra sin að þau hafa
numið staöar eöa lagt út á nýjar
brautir. Nægir þar að benda á
dæmi Magnúsar Ásgeirssonar.
Ljóöin i Kitsafninu, 22 aö tölu,
eru flest i anda og formi ný-
rómantiskra ijóða upp úr alda-
mótunum, mörg þeirra hagan-
AF SKÁLDUM
HALLDOR
LAXNESS
flytur 20 ritgerðir og greinar um
nafnkennd íslenzk skáld á síðari
tímum, samdar á árabilinu 1927—
63. Elztur höfundanna er séra Hall-
grímur Pétursson, en yngstur
Steinn Steinarr. Hannes Pétursson
valdi og sá um útgáfuna. Bókin er
prentuð á mjög vandaðan pappír,
prýdd teikningum eftir Gerði Ragn- n
arsdóttur, en um alla ytri gerð bók- |
arinnar annaðist Guðjón Eggerts- §
son hjá Auglýsingastofunni hf. — f
209 bls. 1
BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
lega geröen á engan hátt sérstæð.
Fimm kvæði, ort undir drótt-
kvæðum hætti, eru aftast i ljóða-
safninu og án ársetninga. Einna
snjallast af kvæðunum i heild
sýnist mér „Voðin” sem vel má
vera aö sé dulbúinn ritdómur um
einhvern skáldbróður. Sé svo, er
hin tvisæja mynd býsna hagan-
lega gerð og dómurinn hárbeitt-
ur:
Jón Sigurösson
l'rá Kaldaöarnesi
Kctthverfan minnir á rósaflos,
ranga borðið er annað en gaman,
þráðarspottar, lykkjur og los,
litirnir flæktir og vöölaðir saman
— en uppistaðan það erkihroð,
að endarnir stingast fram um rofin.
Það þarf ekki að snúa þessari voð,
menn þckkja að hún er ekki gegnumofin.
Vel hefði þessi æskuljóð getað
oröið upphaf góðs gengis á skáld-
vegi, margur góður hefur byrjað
verr. En úr þvi fæst aldrei skorið.
1 bragsmiðum sneri Jón sér að
hagmælskunni einni og orti
smellnar tækifærisvisur, sem
einnig má sjá dæmi um i siðasta
Ijóðinu i bókinni.
Meðal frumsamins efnis i Rit-
salninu er ein smásaga (frá 1909),
tvær ritgerðir og tvær ræður. Það
er mjög vafasamt að minningú
Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðar-
ncsi sé greiði gerður með prentun
þessa lausmálsefnis. Ritgerðin
um Jónas Hallgrimsson er enn
eitt ævisöguágripið þar sem
menn fara i kringum hin raun-
verulegu lifsvandamál Jónasar
eins og kettir i kringum heitan
graut, og bóþmenntalega er ekk-
ert á þessu að græða. Skyldu
menn annars aldrei ætla aö hætta
að klifa á hinni klóku skröksögu
Konráðs Gislasonar úr 9. árgangi
Fjölnis um dauða Jónasar? Það
þarf enginn að halda að Jónas
minnki sem maður, skáld eða
pólitikus þótl þessari mærðardulu
verði svipt Irá dauðastriði hans.
Grein Halldórs Laxnessum Jónas
i Alþýðubókinni var opinberun i
islenzkri bókrýni, en siðan hefur
allt hlaupið i baklás varðandi
skrif um Jónas Hallgrimsson.
1 ritsafni Jóns frá Kaldaðarnesi
eru þýðingar á tiu sögum og
greinum eftir þekkta höfunda.
Hann byrjaði ungur að fást við
þýðingar. Fyrsta útgáfa Viktoriu
kom út árið 1914, sama árið og
hann hætti að yrkja, ef miða má
við ársetningar kvæðanna i bók-
inni. Árið áður hafði hann ásamt
Jóni Ólafssyni annazt snotra og
nýstárlega útgáfu af ljóðum
Jónasar Hallgrimssonar. Jón átti
einnig mikilvægan þátt i smá-
sagnasafninu Sögur frá ýmsum
löndum, sem hann gaf út ásamt
Kristjáni Albertssyni fyrir 40 ár-
um. Það var merk bókmennta-
starfsemi sem enginn hefur lagt i
að haida áfram.
Þýðingar Jóns eru á smekklegu
og vönduðu máli, samtöl og til-
svör eðlileg og allt unnið af alúð
og smekkvisi. Þýddu sögurnar i
ritsafninu eru órækt vitni um það.
Þær eru veigamesti hluti rit-
safnsins. Sá sem les þýðingar
Jóns frá Kaldaðarnesi, hvort
heldur hinar stóru skáldsögur
Knut Hamsuns eða smásögur
hans og annarra öndvegishöf-
unda, fyrirgefur honum að hafa
lagt ljóðagerðina á hilluna. Hann
hefði ef til vill getað bætt hlut is-
lenzkrar ljóölistar, en það sem
máli skiptir nú er það, að hann
auðgaði bókmenntir á lslandi
með þýðingum sinum.
E.Þ.
HÞ DREGIÐ Á ÞORLÁKSMESSU
MUNIÐ AÐ
GERA SKIL í '
HAPPDRÆTTI
ÞJÓÐVILJANS
Jólamerki landhelgis-
sjóðs komin ámarkað
Jólamerki Landssöfnunar i
Landhelgissjóð eru nú komin á
markaðinn. Þau verða seld i örk-
um, tuttugu og fjögur merki i
hverri örk, og ein sér. Hver örk
myndar heildarmynd, auk þess
sem hvert einstakt merki er sjálf-
stæð eining. Hvert merki kostar
kr. 10/- og hver örk kr. 240/-. Auk
þess hafa verið gerðar 1000 ótakk-
aðar arkir, og kostar hver þeirra
1000.00 krónur. — Arkirnar og
merkin verða til sölu á pósthús-
um, hjá Frimerkjamiðstöðinni,
Skólavörðustig 21 og i Frimerkja-
húsinu Lækjargötu 6a. — Einnig
tekur skrifstofa Landssöfnunar,
Laugavegi 13, R., við pöntunum i
sima 2 67 23.
Merkin eru prentuð i s.iö litum
og á hverju merki stendur Jól
1972, lsland 50 milur. Þau eru
teiknuð á Auglýsingastofunni h.f.
Nemendur Menntaskólanna i
Reykjavik, Verzlunarskólans og
Kennaraskólans hafa tekið að sér
aðselja merkin, og arkirnar, þeg-
ar þeir eru búnir i prófum, sem nú
standa yfir. Þeir munu sækja
heim fólk á höfuðborgarsvæðinu,
og bjóða merkin við húsdyrnar,
fimmtudaginn 21. desember. Eru
nemendur skólanna hvattir til
þess að koma, hver i sinn skóla á
íimmtudaginn klukkan 17,30, en
þá verða merkin afhent. — Með
þessu framtaki vilja nemendur
áðurgreindra skóla sýna i verki,
að þeir eru fúsir til að leggja mál-
efni þessu lið, og hvers þeir eru
megnugir, með sameiginlegu
átaki.
Kópavogsapótek
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2; sunnudaga milli
kl. 1 og 3.
Simi 40102.
Skuggabaldur kemur
í bæinn á morgun