Þjóðviljinn - 29.06.1974, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júnl 1974.
Kosninga-
starfið er i
fullum gangi
en herða
Starfsfólk kosningaskrifstofu G-lstans I Kópavogi að störfum. Talið frá vinstri: Sveinn Jóhannsson,
Steinar Lúðviksson, Þorkell Guðmundsson, form. kosningastjórnar AB I Heykjaneskjördæmi, Ólöf
Hraunfjörð, Pétur Sumarliðason, Lovlsa Hannesdóttir, Guðbjörg Björgvinsdóttir og Elisabet Sveins-
dóttir.
Jóna hefur oft áður lagt Al-
þýðubandalaginu lið i kosn-
ingastarfi, svo við spurðum
hana hvaða starf hún hefði
með höndum i baráttunni og
hvernig henni likaði að vinna
fyrir G-listann.
Dauðu atkvæðin
hjálpa ihaidinu
— Ég er nú aðallega I þvi að
svara i sima og greiða úr
fyrirspurnum eða visa þeim á
rétta staði. Auk þess vinn ég
hér við venjuleg skrifstofu-
störf, vélrita, fjölrita o.þ.h.
Það starf sem hér fer fram
felst aðallega i þvi að skipu-
leggja dreifingu á kosninga-
blöðum og dreifiritum, að-
stoða fólk sem fallið hefur út
af kjörskrá, taka við utankjör-
staðaatkvæðum o.fl.
Mér finnst ægilega gaman
að vinna i kosningum, ekki sist
fyrir það að hérna er svo mik-
ið af ungu og fórnfúsu fólki,
sem leggur okkur lið i baratt-
unni.
Um kosningahorfurnar
sagði Jóna: — Ég hlýt að vera
bjartsýn fyrir hönd Alþýðu-
bandalagsins, það er svo stutt
siðan fólk sá hvaða afleiðingar
það getur haft að greiða at-
kvæði sin hinum ýmsu flokks-
brotum, sem leitast við að
hafa uppi vinstri stefnu. Fólk
hlýtur að fylkja sér um Al-
þýðubandalagiö, þegar það
hefur séð hvað dauðu atkvæð-
in koma íhaldinu að miklu
gagni.
Óvíst um nýja
vinstri stjórn
Uppi á lofti á Grettisgöt-
unni hittum við fyrir þau Sól-
veigu Einarsdóttur, Ástriði
Karlsdóttur og Erling Viggós-
son. Aðspurðar um kosninga-
horfur vildu stúlkurnar litið
láta uppi, en kváðust þó vera
bjartsýnar fyrir hönd AB. Er-
lingur sagði: — Maður er nú
ekki nógu bjartsýnn á áfram-
haldandi vinstri stjórn. Fram-
sókn hefur verið að fikra sig
yfir á hægri kantinn að undan-
förnu, og hefur það sést vel i
þeirra áróðri. Þetta sést best á
sambræðingi þeirra með i-
haldinu i hinum ýmsu bæjar-
stjórnum úti um allt land.
Bandalagið þarf að koma
sterkt út úr þessum kosning-
um. Það væri staðfesting frá
fólkinu i landinu um að það
vildi áframhaldandi vinstri
stjórn. Ég efast heldur ekki
um það, að AB bætir við sig
núna. Það er full þörf á þvi, að
á Islandi ráði vinstri menn, en
ekki einhverjir ofstækismenn
á borð við þá vl-menn. Þessar
aðfarir þeirra núna minna á
fasistarikin sem maður þekkir
til. Þeir væru burðugir þessir
dekurdrengir ef þeir kæmust á
togara. Ætli þeir stæðu i þvi
upp á hvern dag þar að stefna
hinum hásetunum fyrir að
kalla þá ýmsum kjarnbetri
orðum en „mömmudrengi”? í
gegnum aðgerðir þessara
manna er ihaldið rétt að sýna i
klærnar. Það þarf enginn að
fara i grafgötur með þá hættu
sem stafar af endurnýjun I-
haldsstjórnar I landinu eða
hvernig dómsvaldinu yrði
háttað i höndum þess, að mað-
ur tali ekki um þá hluti sem
við blasa i atvinnu- og kaup-
gjaldsmálum, ef þeir kæmust
að.
Síðustu forvöð
að koma utan-
kjörstaðaatkvæðum
í bakhúsi við Grettisgötu 3
er skrifstofa fyrir utankjör-
staðaatkvæði til húsa. Þar
hittum við fyrir þrjá menn að
störfum og tókum einn þeirra,
Halldór Pétursson, tali: —
Kosning utankjörstaðar hefur
gengið vel, hún fór hægt af
stað, en það hefur verið ös upp
á síðkastið. Við erum langt
komnir með að sinna öllum
þeim beiðnum, sem okkur
hafa borist um að koma at-
kvæðum i hendur réttra aðila,
en ég vil minna fólk á, að nú
eru siðustu forvöð að koma at-
kvæöum heim i hérað. Við
gerum okkar besta til að koma
þeim i tima á rétta staði, en
það er um að gera að drifa sig
I að kjósa. Þá vil ég i lokin
vekja á þvi athygli, að ef þeir
sem hafa kosið utankjörstaðar
eru komnir heim i sitt um-
dæmi á kjördag, þá ber þeim
að láta kjörstjórn þar vita,
annars má ógilda atkvæði
þeirra.
Fjörugt starf i
Þinghóli í Kópavogi
Næst litum við inn i Þinghól
i Kópavogi, en þar er kosn-
ingaskrifstofa G-listans I
Kópavogi til húsa. Þar var
unnið af kappi og enginn ugg-
ur i mönnum vegn'a væntan-
legra kosninga.
Gróa Jónatansdóttir, starfs-
maður kosningaskrifstofu
G-listans i Kópavogi.
— Við erum almennt bjart-
sýn á kosningaúrslitin i
Reykjaneskjördæmi, sagði
Gróa Jónatansdóttir. Ég vil þó
engu spá, en vona það besta
fyrir hönd Alþýðubandalags-
ins. Það er aðeins eitt ráð fyrir
fólk, ef það vill áframhaldandi
vinstri stjórn i landinu, og það
er að tryggja sigur Alþýðu-
bandalagsins á sunnudaginn
kemur. En árangurinn byggist
að sjálfsögðu á þvi að fólk
mæti til starfa á kosninga-
skrifstofunum, og ég vil skora
á alla þá sem vilja Ieggja okk-
ur lið þessa siðusta daga að
gefa sig fram, bæði þá sem
geta lagt til bfla og aðra.
Aðspurður sagði Sveinn Jó-
hannsson, að utankjörstaðaat-
kvæðagreiðslan i Kópavogi
hefði gengið vel. — Við höfum
unnið I samvinnu við skrifstof-
una I Reykjavik og það hefur
létt mikið undir með okkur.
En aðalatriðið er að fólk hafi
hraðann á með að koma til
okkar atkvæðum sinum, til að
hægt sé aö koma þeim á rétta
staði i tæka tið.
ráa
lokasóknina
Sjálfboðaliðar eru hvattir
til að gefa sig fram
við kosningaskrifstofur
ÁB strax
wmnrMiiriiiiB'iiinii ........
Starfsfólk G-listans IReykjavik aftstörfum á kosningaskrifstofunni,
frá vinstri: Sólveig Einarsdóttir, Ástriftur Karlsdóttir og Erlingur
Viggósson.
Jóna Sigurjónsdóttir, starfs-
maftur á kosningaskrifstofu
G-listans i Reykjavik.
Þjóðviljinn leit inn á kosn-
ingaskrifstofur Alþýftubanda-
lagsins I Reykjavik og Kópa-
vogi I fyrradag og innti frétta
af þvi hvernig starfift gengi. A
skrifstofu G-listans I Reykja-
vik hittum vift fyrst fyrir Jónu
Sigurjónsdóttur, sem sagfti
starfiö hafa gengift vel, en þaft
vantaði samt fólk I vinnu, nóg
væri aft gera. Skorum vift þvi
á sjálfboðaliða aft gefa sig
fram við skrifstofuna á Grett-
isgötu 3og taka þátt i starfinu.
Þá eru þeir sem hafa tök á
þvi að leggja til bfla beðnir um
að hafa samband við skrif-
stofuna hið allra fyrsta. Enn-
fremur vildi Jóna jninna á, að
gengið hefði drjúgum á kosn-
ingasjóðinn, sem væri ansi
magur fyrir bragðið. Sérhvert
framlag, hver sem upphæðin
er, kemur að fullum notum og
mun þegið með þökkum
' ö iiirV . ■/:■:■:.' /V. . > i ilíí . (fti- . , ■.
A skrifstofu G-listans fyrir utankjörstaftaatkvæfti I Reykjavik; frá
vinstri: Einar Torfason, Halldór Pétursson og Árni Steinsson.