Þjóðviljinn - 29.06.1974, Síða 3
Laugardagur 29. júni 1974. WÓDVILJINN — SÍÐA 3
Þrátt fyrir ópólitískt eðli sitt varð Bí að
Veita VL-ingum
smá ofanígjöf
^ Stjórn Blaðamannafélags íslands rœddi málaferlin
„Stjórn félagsins bendir á, að
islensk löggjöf um meiðyrði þarf
nauðsynlega endurskoðunar við,
enda þótt ætið hljóti að vera
óglögg mörk milli þess, sem einn
telur tjáningarfrelsi og annar
ærumeiðingar. Við þetta má svo
bæta, að menn, sem beita sér fyr-
ir pólitiskum aðgerðum á borð við
undirskriftasöfnun Varins lands,
hljóta að mega vera við þvi búnir,
eins og aðstæður eru I Islensku
þjóðfélagi I dag, að aðgerðir
þeirra sæti harðri gagnrýni, þar
sem hér er um að ræða deilumál,
er skiptir þjóðinni i tvo andstæða
hópa.”
Þessa ofanigjöf gaf stjórn
Blaðamannafélagsins hinum hör-
undssáru VL-mönnum á fundi
sinum á miðvikudaginn, en þar
var gerð samþykkt I tilefni af
tnálaferlunum gegn fjórum
blaðamönnum Þjóðviljans.
Hinir ákærðu blaðamenn vöktu
athygli stéttarfélags sins á mála-
vöxtum i bréfi snemma i vikunni,
an i þvi bréfi sagði m.a. svo:
„Það er skoðun undirritaðra,
að málshöfðun VL-manna beinist
i reynd að almennu prent- og
tjáningarfrelsi i landinu og um
leið gegn útgáfurétti pólitiskra
málgagna. Við teljum að islenskir
blaðamenn — sem að stórum
hluta eru starfsmenn pólitiskra
málgagna — hljóti þvi að láta sig
málshöfðunina á hendur okkur
sinhverju varða, enda er hér um
að ræða aðgerðir til atvinnurógs
sem óhjákvæmilega fellur á alla
starfsstétt blaðamanna á tslandi.
Með bréfi þessu vildum við
vekja athygli Blaðamannafélags-
ins á þessum einstæðu málaferl-
um — umfangsmesta meiðyrða-
máli sem höfðað hefur verið — og
biðjum félagið að ihuga stöðu sina
gagnvart slikri árás á prentfrelsi
og starfsskilyrði blaðamanna”.
Stjórn Blaðamannafélagsins
lagði áherslu á það i samþykkt
sinni, að félagið væri „ópólitiskt
stéttarfélag, sem tekur ekki af-
stöðu til pólitískra deilna”. Gæti
félagið ekki „axlað þá lagalegu
ábyrgð, sem félagsmenn þess
kunna að baka sér með skrifum
sinum”.
Var greint frá þvi i samþykkt-
inni, að stjórn félagsins hefði
aldrei „haft afskipti af meiðyrða-
málum sem höfðuð hafa verið
gegn félagsmönnum Bí og telur
ekki ástæðu til að breyta þeirri
grundvallarreglu”.
Þá var vakin athygli á þvi að
VL-menn hafa ekki leitað til siða-
reglunefndar félagsins, eins og
öllum þeim er frjálst sem telja sér
misboðið, heldur tóku þánn kost
að rjúka beint I dómstólana sem
þeir hafa „að sjálfsögðu fullan
rétt til”.
Formaður Blaðamannafélags-
ins, Eiður Guðnason, tjáði Þjóð-
viljanum, að stjórn félagsins
hefði ákveðið að taka mál Þjóð-
viljamanna aftur á dagskrá, þeg-
ar dómur hefði verið kveðinn upp
i undirrétti.
hj—
Þór Vigfússon
Kosningabíll
kratanna hvarf
— en kona ein lánaði Alþýðuflokknum bil
sinn fyrir kosningar — en billinn hvarf
Sérkennilegt mál er nú upp ris-
ið milli konu einnar og Alþýðu-
flokksins.
Fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar lánaði konan Alþýðuflokkn-
um bil sinn. Bilinn munu ein-
hverjir starfsmenn kosninga-
skrifstofu hafa fengið til afnota.
Eftir kosningar kom billinn ekki
fram — hann var horfinn.
Konan vildi fá bil sinn bættan.
Kosningastjóri Alþýðuflokksins,
Baldur Guðmundsson, vildi ekki
kannast við að Alþýðuflokkurinn
hefð notað bilinn.
Konan bað þá lögfræðing sinn
að annast málið.
Þegar svo var komið, var lög-
reglunni falið að finna bilinn. Eft-
Stúdentaráð
fordœmir
VL- kœrur
A fundi sinum 27. júni gerði
stjórn SHÍ svofellda ályktun:
Stjórn SHt fordæmir harðlega
þær árásir á tjáningarfrelsi og
frjálsa skoðanamyndun, sem 12
forystumenn undirskriftasöfnun-
ar „varins lands” hafa nú uppi á
hendur nokkrum einstaklingum,
sem hafa leyft sér að hafa gagn-
stæðar skoðanir við þá á hernámi
tslands.
Meðal þeirra sem vl-menn hafa
stefnt eru núverandi og fyrrver-
andi ritstjórar Stúdentablaðsins.
Það kemur stúdentum ekki á
óvart, að i hópi stefnenda er að
finna háskólakennara, sem hafa
áður sýnt hagsmunum stúdenta
sérstaka óvild og hafa unnið gegn
starfsemi SHI, meðþaðm.a. fyrir
augum, að reyna að kippa grund-
vellinum undan útgáfu Stúdenta-
blaðsins.
Með þessum aðgerðum sinum
eru þessir menn, að æskja þess að
stúdentar og aðrir starfsmenn
háskólans taki til sinna ráða til að
koma i veg fyrir að slíkir menn
fái að móta það álit sem háskól-
inn nýtur út á við.
ir þvi sem Þjóðviljinn hefur frétt,
fannst bíllinn næsta illa út leikinn.
Var hann mikið skemmdur og
hafði verið ekið mikið.
Konan neitaði að taka við biln-
um i þannig ástandi, enda billinn
talinn ónýtur.
Gylfa Þ. Gislasyni var skrifað
bréf þann 12. júni sl. vegna þessa,
og var farið fram á bætur vegna
bilskemmdanna. 13. júni skrifaði
hins vegar kosningastjórinn,
Baldur Guðmundsson,konunni, og
kvaðst ekki hafa haft „vörslu
bilsins” — en það merkir að hann
kveðst ekki hafa haft lyklana
undir höndum. Enginn á kosn-
ingaskrifstofu Alþýðuflokksins
kannast við að hafa ekið bilnum,
þótt vitanlega hljóti einhver að
hafa tekið við bifreiðinni hjá kon-
unni.
Eftir þvi sem Þjóðviljinn hefur
næst komist, sást til ferða ein-
hverra tveggja manna á bil þess-
um austur á Egilsstöðum — siðar
fann lögreglan flakið i Reykjavik.
Mál hefur nú verið höfðað gegn
Alþýðuflokknum vegna þessa
undarlega bilþjófnaðar. — GG
Lygar
Gunnars
Thor
Meðal þess, sem Gunnar Thor-
oddsen, doktor i ærumeiðingum,
lét út úr sér á útifundi Sjálfstæðis-
flokksins á Lækjartorgi á
fimmtudaginn, var, að Magnúsi
Kjartanssyni hafi tekist „fyrir
nær 200 miljónir króna, að tengja
saman rafmagnsleysið i tveimur
héruðum fyrir norðan”, eins og
doktor i ærumeiðingum orðaði
það svo smekklega, en með þessu
átti hann við Skagafjarðarlinuna
svonefndu.
Þetta eru klára lygar eins og
flest það, sem Sjálfstæðismenn
hafa haldið fram i þessari kosn-
ingabaráttu.
Þessi lina hefur nú flutt um það
bil 1 miljón kWst. og á sama tima
hefur keyrsla diselstöðva til raf-
magnsframleiðslu nær stöðvast á
svæðinu, en keyrsla þeirra þann
tima, sem samtengilinan nefur
Aumingjar
„Aðstandendur Varins lands’*
eiga nú æru sina að verja fyrir
ósvifnum árásum og persónuniði
eins og þeir nefna það.
Ekki treysta þeir sér til þess
sjálfir, og illa virðist Morgun-
blaðið duga til þeirra hluta.
Dómstólarnir skulu vega og meta
hvert orð sem um þá er sagt og á
prent komið til peninga og fang-
elsisára. Minni karla getur vart i
islenskri sögu. Þeir þora ekki i
umræður um sin háleitu pólitisku
markmið, og þegar fólk á annarri
skoðun segir meiningu sina á is
lensku alþýðumáli þá hiaupa þeir
aumingjarnir i felur á bak við
lagakróka. Ég skora á menn að
senda þessum vesalingum nokkur
vel valin orð á prenti svo þeir geti
fram eftir ævinni dundað við að
stefna fólki og krefjast fjársekta
og fangelsisvistar.
Færi vel á að þeir kæmu ekki
nálægt öðrum störfum það sem
eftir er ævinnar.
örn Friðriksson, járnsmiður
Álftamýri 50, Rvik.
verið i gagni, rúmar fimm vikur,
hefði kostað á sjöundu miljón
króna umfram það sem nú er.
Það er vitað, að lagning þessar-
ar linu mun þegar borga sig á
þessu ári, og um ókomin ár mun
hún spara Norðlendingum hundr-
uð miljóna, sem bæjarlækja- og
naflasjónarmið Sjálfstæðis-
flokksins hefur kostað þessa þjóð
i allt of mörg ár.
Lygar prófessora og doktora
breyta hér engu um. — úþ
Hlekkjað kmd
„Hlekkjað land” væri nær
sanni að kalla undirskrifasamtök
þau sem kölluðu sig „Varið
land”, enda er þá ekki eins mikil
hætta að menn rugli þeim saman
við Sjáifstæðisflokkinn, sagði Þór
Vigfússon i framboðsræðu á Sel-
fossi á þriðjudagskvöldið. Var
þessum orðum sérstaklega beint
að Unnari Stefánssyni, krata og
vl-manni, en annars staðar i blað-
inu eru rakin orðaskipti þeirra.
Þór sagði i ræðu sinni:
Þar sem á framboðsfundum
hér i kjördæminu gefst það sjald-
gæfa og vandfengna tækifæri að
ræða opinberlega við einn þeirra
„hugprúðu dáta” sem i vetur
stóðu að undirskrifasöfnun meðal
þjóðarinnar til stuðnings kröfu
um áframhaldandi hersetu i land-
inu, nefnilega Unnar Stefánsson,
annan frambjóðanda Alþýðu-
flokksins, langar mig að beina til
hans nokkrum spurningum.
Reyndar hélt ég að hann mundi
gera þessa undirskriftasöfnun að
nokkru umræðuefni á framboðs-
fundunum, en fram til þessa hef-
ur hann ekki gert það, og það þótt
2svar hafi verið aðeins ýtt við
honum. (Unnar gripur fram I: Ég
skal hlusta!). Kemur þar vafa-
laust til hans meðfædda hæ-
verska.
Hann hefur að visu rætt „varn-
armálin” nokkuð, hann hefur
skorað á okkur að hlýða ákalli
Ólafs konungs og hefur reyndar
löngum haft nokkrar áhyggjur af
Norðmönnum, þegar rætt hefur
verið um hersetu i þessu landi. Til
dæmis sagði hann það á fundi i
Reykjavik i vetur, að við mættum
ekki gera frændum okkar, Norð-
mönnum, það að reka hérðan her-
inn, svo að hann yrði ekki að setj-
ast að i Noregi.
En það ætla ég ekki að ræða.
Ég sný mér að undirskrifta-
söfnuninni. Þar sem Unnar hefur
ekki fundið hjá sér hvöt til að
ræða hana, vil ég gefa honum til-
efnið.
Vissulega hefur hver sem er
rétt til að skrifa undir hvað sem
er. En ég spyr Unnar:
Er það satt, sem sumir hafa
verið að halda fram, að undir-
skriftalistarnir hafi verið settir i
tölvuvinnslu þann mánuð sem
leið frá þvi að söfnun lauk þar til
listarnir voru afhentir á alþingi?
(Unnar svarar af bragði: Nei).
Onnur spurning: Ef svo var, til
hvers var það gert?
Þriðja spurningin hlýtur reynd-
ar að skipta okkur meðframbjóð-
endur Unnars nokkru máli, sem
og alla þá sem eiga við hann orða-
stað á opinberum vettvangi. Að
henni þarf pinulitinn formála.
18. janúar sl. skrifaði Einar
Bragi skáld blaðagrein sem i var
þetta, með leyfi fundarstjóra:
„Upp er risinn hópur hug-
prúðra dáta sem grátbiðja þjóð-
ina að hefja minningarár 11 alda
búsetu i landinu á þvi að undirrita
beiðni um erlenda hersetu á ís-
landi”.
Fyrir þessi orð stefnir Unnar
Einari Braga og krefst 600 þúsund
króna. Dýr mundir Unnar allur.
Nú gerði ég áðan um það bil
sjötta part af þessum stefndu um-
mælum að minum orðum. Á ég þá
von á 100 þúsund króna kröfu?
(Unnar kallar: Nei).
Hvernig er eiginlega gjaldskrá-
in ykkar, Unnar?
Mig langar til þess að ljúka
þessum orðum með tillögu til
Unnars.
Undirskriftasamtök hans kalla
sig „Varið land”. Nú er Sjálf-
stæðisflokkurinn að dreifa meðal
landsmanna merkjum sem tákna
eiga vilja berenda til að hafa hér
hervarnir, enda standa á miðun-
um orðin „Varið land”. Þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn er nú búinn
að taka upp þessi einkunnarorð
Alþýðuflokksmannsins Unnars
Stefánssonar, vil ég stinga þvi að
honum, að hann beiti sér fyrir þvi
að breyta nafninu á undirskrifta^-
samtökum sinum, svo'~atLjmenn
Framhaid á bls. 13
Hvað þýðir vl-
merkt kjörskrá?
Nú hefur það gerst, að einn
þeirra 13 vixlara sem hrundu
undirskriftasöfnun VI af stað i
vetur, Unnar Stefánsson, hefur
játað það opinberlega að tölvu-
gögnin hafi verið hagnýtt i þágu
kosninganna og til séu kjörskrár
þar sem vl-merki hefur verið sett
við hvern undirskrifanda.
Þetta er einmitt það sem Þjóð-
viljinn hefur margsinnis og itrek-
að haldið fram.
Vl-merkt kjörskrá I höndum
Sjálfstæðisflokksins (eða krata)
þýðir það, að flokkurinn getur lát-
ið kosningasamala sina hafa
samband við alla undirskrifendur
og brýnt þá á þvi, að þeir hafi
með undirskrift sinni játast undir
stefnu flokksins. Ætlar þú að
svikja nú, segir kosningasmalinn
við frónarlambið.
A sama hátt er hin merkta kjör-
skrá nýtt til þess að senda út bréf
og dreifimiða, t.d. limmiðana
sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf út
um daginn, og yfirkjörstjórn hef-
ur nú bannað.