Þjóðviljinn - 29.06.1974, Side 6
C StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júnl 1974.
UOÐVIUINN
MALGAGN SÓSIALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Ctgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
;Prentun: Blaöaprent h.f.
AVARP ÞJOÐVILJANS TIL ALLRA LAUNAMANNA
Þjóðviljinn snýr sér sérstaklega til
launamanna i dag, daginn fyrir kjördag:
Þið vitið að Alþýðubandalagsmenn eru i
forustu i fjölmörgum stærstu verkalýðsfé-
lögunum i landinu og í verkalýðssam-
böndunum. Það eru Alþýðubandalags-
menn sem hafa forustu i Verkamanna-
sambandi íslands, í Málm- og skipa-
smíðasambandi tslands, i Sambandi
byggingamanna og i Landssambandi
vörubifreiðastjóra. Alþýðubandalags-
menn eru i forustu i stærstu verkalýðsfé-
lögunum i Reykjavik: — Dagsbrún, Tré-
smiðafélagi Reykjavíkur, Félagi járniðn-
aðarmanna, Starfsstúlknafélaginu Sókn
svo fátt eitt sé nefnt. Alþýðubandalags-
menn eru einnig i forustu mikilvægustu
svæðasambandanna. í kjarasamningum
þegar harðast er deilt eru það jafnan Al-
þýðubandalagsmenn sem i góðu samstarfi
við aðra félaga í verkalýðssamtökunum,
hafa forustuna. Eðvarð Sigurðsson, sem
skipar 2. sæti G-listans i Reykjavik, er
einhver traustasti baráttumaður verka-
lýðshreyfingarinnar um áratugaskeið;
það þekkið þið, launamenn, af eigin raun.
Þið hafið til þessa kosið marga stjorn-
málafiokka i þingkosningum, þó að þið
hafið kosið Alþýðubandalagsmenn til for-
ustu i verkalýðsfélögum.
En þótt þið hafið áður, til dæmis i borg-
arstjórnarkosningunum í Reykjavik, kos-
ið aðra flokka gefst ykkur til þess tækifæri
á morgun, að kjósa með ykkar eigin hags-
munum. Sá launamaður, sem kýs Alþýðu-
bandalagið, er að kjósa sina eigin fulltrúa
og sina hagsmuni i öndvegi. Kjósi launa-
menn aðra flokka eiga þeir það á hættu, að
atkvæðin verði notuð gegn þeim. Enginn
launamaður, sem gerir sér grein fyrir
þessu samhengi, getur kosið annan flokk
en Alþýðubandalagið þvi að enginn launa-
maður vill i rauninni nota þau vopn, sem
hann á, gegn sjálfum sér. Það væri hann
að gera með þvi að kjósa til að mynda
Sjálfstæðisflokkinn eða Alþýðuflokkinn.
Enginn launamaður mun heldur nokkru
sinni ganga yfir i andstæðingahópinn I
verkföllum; það að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn og Alþýðuflokkinn er i rauninni alveg
samskonar aðgerð.
Þjóðviljinn hvetur ykkur til að gera
kjörseðilinn að vopni i kjarabaráttu ykk-
ar. Þó að afkoma ykkar sé góð i dag, má
það ekki gerast, að afturhaldsöflin nái
völdunum í skjóli deyfðar og áhugaleysis.
Það getur skipt um á einni nóttu og það er
of seint að átta sig á kosninganóttina.
Það, sem þið gerið I kjörklefanum, ræð-
ur úrslitum. Takið eftir þvi, að Alþýðu-
bandalagið er eini flokkurinn, sem fyrir
þessar kosningar hefur lýst þvi yfir sem
meginverkefni sinu, að varðveita kaup-
mátt launanna. Enginn annar flokkur hef-
ur lýst þessu yfir, en Framsóknarflokkur-
inn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa hins
vegar báðir lýst yfir að skerða verði sam-
band verðlags og launa. Takið eftir, að ef
þessir tveir flokkar skriða saman, eru
kjör ykkar i stórfelldri hættu. Reynslan af
samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins er ykkur i fersku minni með
iandflótta og atvinnuleysi, skertum kaup-
mætti, afnámi verðlagseftirlits og gengis-
lækkunum.
Látið ekki ræna árangri áratuga starfs
verkalýðshreyfingarinnar.
Látið ykkar hagsmuni ráða þegar þið
greiðið atkvæði i kjörklefanum.
Hægri sveiflan í verki:
Morgunblaðið heimtar Olgu
Guðrúnu á geðveikrahæli
I Morgunblaðinu 20. júní
s.l. birtist greinarkorn/
sem óhjákvæmilega hlýtur
að vekja athygli, jafnvel
þótt f lestir séu löngu hættir
að kippa sér upp við þau
sóðaskrif, sem eru reglan i
málflutningi þessa mál-
gagns þeirra, sem ekki
borga skattana sína. Pistill
þessi er undirritaður af
einhverjum Karli Sig-
mundssyni og er þar hvatt
til þess að Olga Guðrún
Árnadóttir, sem gat sér
gottorð fyrir skemmtilega
nýbreytni í efnisvali í
barnatímum útvarpsins/sé
meðhöndluð sem geðsjúk-
lingur, en sú er einmitt ein
af aðferðunum, sem ein-
ræðissinnaðir durgar nota
til að þagga piður í góðu
fólki, sem fer í taugarnar á
þeim.
Pistillinn er allur skrifaður i
dæmigerðum götustrákatón; þar
er talað um ..blaðrið I þessari
stelpu” og siðan stendur skrifað:
„Er fólk almennt hissa á, að leyft
skuli vera að fara með svona vit-
leysisbull eins og hún hristi þarna
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Alþýðubandalagið I Kópavogi efnir til ferðar i Skaftafell dag-
ana 6. og 7. júli.
Farið verður frá Þinghóli laugardaginn 6. júli klukkan 8 ár-
degis og komið heim sunnudaginn 7. júli um klukkan 23:00. —
Þátttakendur hafi með sér tjöld.
Nánar auglýst siðar. Upplýsingar i sima 41746,— Fjölmennum
I feröina.
Bókhaldsaðstoð
meó tékkafærslum
rFBÚNAÐARBANKINN
Vfl/ REYKJAVÍK
út úr sér i útvarpið okkar. Þessi
stúlka þarf greinilega á læknis-
hjálp að halda, þar sem hún getur
fengiö róandi lyf viö ofstopa sin-
um.” (Leturbr. min, dþ.)
Með öðrum orðum sagt,
Olga skal lokuð inni
á Kleppi.
Þótt alþjóð viti að visu hvers-
konar persónuleikar ritstjórar
Moggans eru, þykir ef til vill ein-
hverjum að hér taki steininn úr.
Mogginn hefur hvað eftir annað
þóst hneykslast á þvi, að menn,
sem gagnrýnt hafa þjóðfélags-
kerfi Sovétrikjanna á hliðstæðan
hátt og Olga Guðrún það islenska,
væru lokaðir inni á geðveikrahæl-
um og dælt i þá eiturlyfjum „við
ofstopanum”. Hér hvetur Mogg-
inn hinsvegar eindregið til þess
að aðferðum þeim, sem hann
þykist fordæma i Sovét, sé beitt til
þess að útiloka frjálsa gagnrýni á
tslandi. Þetta sannar ásamt með
ótalmörgu öðru, að hatursmenn
lýðræðis og mannréttinda eru
allsstaðar hver öðrum likir, þótt
þeir heiti ýmsum nöfnum eftir
löndum og álfum, til dæmis þeir
sem kalla sig kommúnista i Sovét
og sjálfstæðismenn á íslandi.
Það vekur óhjákvæmilega at-
hygli að pistill eins og þessi skuli
birtast i Mogganum einmitt i
sama mund og hafnar eru viðtæk-
ar réttarofsóknir á hendur is-
lenskum hernámsandstæðingum
undiryfirskyni sérstaklega teygj-
anlegrar meiðyrðalöggjafar.
Þessi dæmi eru aðeins tvö af
mörgum um fasistaúlfinn, sem
þessa dagana gægist á sifellt
ófyrirleitnari hátt undan lýöræð-
issauðargæru ihaldsins. Þessi
„hægri sveifla” er ekkert eins-
dæmi fyrir tsland, kreppuástand-
ið, sem nú virðist vofa yfir auð-
valdsheiminum,er þegar farið að
framkalla svipuð viðbrögð hjá i-
haldsöflum og „þöglum meiri-
hlutum” viða um lönd og á
krepputimunum fyrir sfðari
heimsstyrjöld, þegar afleiðingar
slikrar hægri sveiflu urðu valda-
taka nasista og fasista i mörgum
löndum álfunnar ásamt með
heimsstyrjöld og hryllilegustu ill-
virkjum, sem sagan kann frá að
greina.
Aö sjálfsögðu þarf enginn að
láta sér detta i hug að islenska i-
haldið bregðist i þessum kring-
umstæðum öðruvisi við en hlið-
stæö öfl annarsstaðar i heimin-
um. „Hugum mannanna svipar
saman i Súdan og Grímsnesinu”,
eins og hirðskáld Reykjavikuri-
haldsins kvað. t þvi sambandi er
lika hollt að hafa i huga að á árun-
um fyrir siöari heimsstyrjöld var
þorri hægri sinnaðra ungra
manna i Reykjavik og viðar ým-
ist nasistar eða á næstu grösum
við þá, „ungir menn með hreinar
hugsanir”, eins og málgögn Sjálf-
stæðisflokksins orðuðu það. Eng-
inn skyldi vera svo barnaiegur aö
ætla að þessir menn, sem nú
skipa eldri kynslóð ihaldsins og
fésýslustéttarinnar, hafi skipt um
lifsviðhorf við að tapa einni
heimsstyrjöld, og aö sjálfsögðu
hafa þeir alið yngri menn ihaids-
flokksins upp i sinum anda.
Þess má að endingu geta að
umræddur pistill um Olgu
Guðrúnu birtist i Veivakanda,
þætti sem frægur er af endemum.
Almannarómur hermir að þætti
þessum sé ritstýrt af Magnúsi
nokkrum Þórðarsyni, sem situr i
útvarpsráði og ætla má að hafi
þar það hlutverk af hálfu hús-
bænda sinna i Nató að koma eftir
mætti i veg fyrir að vinstri sinnað
fólk hafi aðgang að þeim fjöl-
miðli. Vitað er að Magnús þessi
Natóháski er óþreytandi við að
reka hniflana i fólk, sem starfar
viö útvarpið og að hans íhaldsskiln-
ingi er vinstri sinnað, og eftirtekt-
Olga Guðrún
þ.e.a.s.. blaðVið 1 .þessan stelp?i7
henni Olgu Guðrúnu Árnadóttur,
sem rekin var frá barnatimanum i
vetur sem leið.
Er fólk almennt hissa á, að leyft
skuli vera að fara með svona
vitleysisbull eins og hún hristi
þarna út úr sér i útvarpið okkar.
Þessi stúlka þarf greinilega á
læknishjálp að halda.'þar sem
hún getur fengið róandi lyf við
ofstopa sinum.
Alla vega væri æskilogt, að við.
sem hlustum á útvarp og sjón-
varp, þvrftum ekki að heyra frá
henni fyrr en hún hefur mannazt
eitthvað og róazt á taugum.
Segi menn svo aö Mogginn sé ekki
opinn fyrir fyrirmyndum frá Sov-
ét!
arvert er að Velvakandi hefur
sérstaklega verið helgaður sorp-
kasti i einmitt það fólk.
Atriði eins og þessi er hollt að
hafa i huga þegar gengið verður
til kosninga á sunnudaginn kem-
ur. Haldi kjósendur ekki vöku
sinni og svari fasistiskum tiltækj-
um ihaldsins á viðeigandi hátt,
gæti vel svo farið að þessar kosn-
ingar yrðu þær siðustu lýðræðis-
legu á Islandi.
dþ