Þjóðviljinn - 29.06.1974, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júni 1974.
Við skoðum framboðslistana
KONUR 17,4%
FRAMBJÓÐENDA
Af 556 frambjóðendum
til alþingiskosninganna á
sunnudaginn kemur eru
konur samtals 97 eða 17,4%^
sem er þrátt fyrir allt held-
ur hagstæðara hlutfa^l en í
bæja- og sveitarstjornar-
kosningunum, — þá voru
þær 16,5% frambjóðenda.
Hinsvegar er hætt við að
hlutfall kvenna á þingi
verði samt enn lægra en í
bæja- og sveitarstjórnun-
um, því f lestar eru konurn-
ar í algerlega vonlausum.
sætum á framboðslistun-
um til þings. 7,2% bæja- og
sveitastjórnaf ulltrúa nú
eru konur.
Hlutfall kvenna á framboðslist-
unum er talsvert misjafnt eftir
kjördæmum og einnig eftir flokk-
um. Flestar konur eru i framboði
i Reykjavik, 40 af 170 frambjóð-
endum á 8 listum eða 23.5%.
Lægst er hlutfallið i Austurlands-
kjördæmi. Þar eru aðeins 5 konur
af 50 frambjóðendum eða 10%. 1
Reykjaneskjördæmi eru konur
11,1% frambjóðenda, þe. 7 af 63; i
Vesturlandskjördæmi 22%, 11 af
50, á Vestfjörðum 12%, 6 af 50, i
Norðurlandskjördæmi vestra
20%, 10 af 50, á Norðurlandi
eystra 14,3%, 9 af 63 og á
Suðurlandi 15%, 9 af 60 frambjóð-
endum.
Flestar hjá
Alþýðubandalaginu
Eins og fyrri daginn er það Al-
þýðubandalagið sem flestar hefyir
konurnar meðal frambjóðenda
eða 24 af 98, sem er 24%. Það er
auðvitað alltof litið þótt skárra sé
en hjá hinum flokkunum og
þarmeð, er ekki verið að kasta
rýrð á karlframbjóðendurna.
Þótt Alþýðubandalagið komi
þannig vel út i samanburðinum
verður samt að gagnrýna fram-
boð þess á Austurlandi að þessu
ORÐ
Hvenær ,,ungir og
fallegir" karlar?
— Nú krefst ég þess, sagöi
Siljabálreið þegar hún hringdi
eftir að hafa fengið Þjóðvilj-
ann um daginn, — að næst
þegar þið birtið mynd af ung-
um karlmanni eða mönnum
standi i textanum: „þessa
ungu og fallegu karla (eða
pilta) hittum við... osfrv.”
í þessum myndatexta kem-
ur það ekkert málinu við,
hvernig stúlkurnar lita út og
það getur hvortsemer hver
sem er séð sjálfur. Hvers-
vegna fengum við ekki að
heyra, að þær væru áhuga-
samar eða duglegar t.d. þarna
hjá Togaraafgreiðslunni?
Þetta er alveg rétt hjá Silju
og hreint makalaust að mas.
Þjóðviljinn skuli stundum ó-
sjálfrátt gefa stúlkum svona
einkunnir, hvað sem um er að
ræða, — hvort sem þær skara
framúr i iþróttum, sleikja sól-
skinið á götuhorni eða ljúka
háskólaprófi. Ég veit ekki
hvort þetta er einhver misskil-
inn kavaléraháttur — það eigi
að slá ungum konum gull-
hamra fyrir útlit þeirra — eða
bara hugsunarlaus ávani.
Allavega hef ég svo oft ergt
mig yfir þessu lika, að einu-
sinni var búið að gera sam-
komulag um, að þegar svona-
lagað sæist i blaðinu yrði sett
eitthvað samsvarandi undir
næstu mynd af karlmönnum
án tillits til tilefnis myndbirt-
ingarinnar. Þessvegna fékk
lika sýslunefnd Arnessýslu
einkunnina: Þessir fögru og
föngulegu menn skipa...
Biddu, Silja. Bráðum koma
„ungir og fallegir karlmenn”
t.d. frambjóðendu eða þh..
Gaman á togarabryggju
Þessar ungu og falleRu stúlkur hiltuin vift niftri & togarabrjggju þar
»era þatr vorn aft þvo Tesiafskfiruifrifr togaramim Engey. Þafr hcita
I»6ra Stetánsdcíttir t.h. og Sigriftur Jóliaimsdóttir og sögftust a:tla aft
vinna hjá Togaraafgrríðsiunni i sumar, sögftust reyndar haia unnift þar
einuig i fyrrasumar. iLjósm. S.dór).
Pabbi gaf — einn?
Kona, sem fylgdist með
fréttum af heimsókn ólafs
Noregskóngs sagðist hafa tek-
ið eftir, að hann hefði vist bara
átt eitt foreldri, föður sinn,
annars var yfirleitt ekki getið.
T.d. hefði verið sagt frá að
þegar hann var 3ja ára hefði
„pabbi hans” gefið honum
skiði. — Ætli það hafi nú ekki
verið foreldrarnir báðir, nema
þetta sé svona allt öðruvisi hjá
kóngafólkinu, sagði konan.
Þá sagði hún upp
Hve langt telja vinnukaup-
endur sig eiginlega geta geng-
ið i mismunun eftir kynjum?
Þóra Guðmundsdóttir, sem
unnið hefur á Farfuglaheimil-
inu, kom og sagði sinar farir
ekki sléttar. Hún hefur unnið
þar siðan i fyrra og borið
ábyrgð á og séð um rekstur
gistihússins. I fyrra voru þær
tvær, sem önnuðust starfið,
fengu hvor 12.500 krónur á
mánuði i kaup ásamt litilli i-
búð og 15% af gistinóttum yfir
veturinn, en þær eru fremur
fáar, segir hún.
Að undanförnu hefur hún
verið ein með starfið, en i þvi
felast m.a. hreingerningar,
bókhald, ábyrgð á fjármunum
oþh. Vinnutiminn er alla
morgna og á skrifstofu siðdeg-
is kl. 5—7 en auk þess hefur
hún verið bundin til kl. 11 á
hverju kvöldi, þ.e.a.s. hefur
orðið að vera við i ibúð sinni I
litlu húsi við hliðina á gisti-
heimilinu ef einhver kæmi og
svara þar síma. Fridagar
eru engir, ekki einusinni á
sunnudögum og helgarálag
ekkert á xaup. En launin hafa
núna að undanförnu verið 40
þúsund krónur á mánuði auk
húsnæðis, sem er 3 litil her-
' bergi og eldhús.
Þóra tók stúdentspróf i vor
og var tiltölulega ánægð með
þessi kjör þangað til hún upp-
götvaði, að piltur, jafngamall
henni með sömu menntun,
sem nú starfar þarna lika 5
daga i viku kl. 1—5 og tvö
kvöld kl. 8-lOjfær 80 þúsund
krónur á mánuði. Hann fer að
visu stundum i ferðalög um
helgar sem leiðsögumaður, en
það er sjálfboðaliðsstarf, sem
hann getur allteins fengið aðra
i.
— Ég álit okkur jafnfær og
störfin sambærileg nema
minn vinnutimi er lengri,
sagði Þóra. Hann hefur auð-
vitað ekki húsnæði, en það
kemur ekki til mála, að hægt
sé að meta það á 40 þúsund á
mánuði. Mér finnst svona ó-
réttlæti óþolandi.
Þóra er nú búin að segja upp
vinnunni, en vildi segja þessa
sögu hér öðrum konum til
varnaðar. Það eru ekki sist lit-
il fyrirtæki, sem svina á kon-
um að þessu leyti...
16 tíma eða 160?
Sigriðurleit hér inn rétt eftir
að samið var við læknana um
vaktavinnu þeirra.
— Hafið þið athugað, spurði
hún, að það tekur verkakonu
160 tima að vinna fyrir þvi
sama og læknarnir fá fyrir 16
tima?
Og þá er plássið ekki meira i
dag. Margt biður birtingar i
belgnum, en hættið samt fyrir
alla muni ekki að skrifa og
hringja. Hittumst sigurreif
eftir kosningar!
—vh
leyti ásamt framboði Fram-
sóknar i sama kjördæmi, Alþýðu-
flokksins á Reykjanesi og Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi, en á
þessum fjórum framboðslistum
eru alls engar konur. Af saman-
lagt 8 mönnum á listum Lýð-
ræðisflokkanna þriggja eru held-
ur engar konur.
Kommúnistasamtökin Marx-
leninistarnir eru með 5 konur af
24 i framboði i Reykjavik og af
samanlagt 34 frambjóðendum
Fylkingarinnar i Reykjavik og á
Reykjanesi eru 6 konur.
Hlutfallstala kvenna af fram-
bjóðendum aðalflokkanna fjög-
urra auk Alþýðubandalagsins,
sem áður er getið, er annars
þessi:
Af frambjóðendum Alþýðu-
flokksins eru konur 17,3% eða 17
af 98.
Hjá Framsókn eru konur 14.3%
frambjóðenda, 14 af 98.
15,3% frambjóðenda Sjálf-
stæðisflokksins eru konur, 15 af
98.
Og á listum Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna eru kon-
ur 16.3% frambjóðenda, 16 af 98.
En í hvaða sætum?
En svo eru það sætin. Það er
nefnilega ekki nóg að hafa konur
einhversstaðar til skrauts á list-
unum ef þær eru þar i vita von-
lausum sætum, og svo er þvi mið-
ur um flestar. Burtséð frá úrslit-
um siðustu kosninga og óljósum
vonum og útreikningum skoðum
við hér^ hve margar konur eru
fyrir ofan miðju á framboðslist-
unum og hve margar i þrem efstu
sætum úti á landi og sex efstu i
Reykjavik.
1 Reykjavik er þetta þannig, að
alls eru 19 konur fyrir ofan miðju
á sjö fullskipuðum framboðslist-
um og 6 konur i sex efstu sætum
listanna. Milli flokkanna skiptist
talan þannig, að á G-lista Alþýðu-
bandalagsins eru 4 konur ofar
miðju, þaraf 3 i einhverju af 6
efstu sætunum. Hinir listarnir eru
með eina konu i sex af efstu sæt-
unum, nema Framsókn með
enga. En ofar miðju eru 4 á A-
lista, 3 á B-lista, 3 á D-lista, 2 á F-
lista, 2 á K-lista og 1 á R-lista
Fylkingarinnar.
Oti á landi er enn lægra hlutfall
kvenna i efri sætum listanna. 1
Reykjaneskjördæmi eru 3 konur
ofar miðju á 6 framboðslistum,
þaraf ein i 3. sæti hjá Framsókn. 1
Vesturlandi eru 3 ofar miðju á
5 listum, ein i 3. sæti hjá Alþýðu-
bandalaginu. A Vestfjörðum eru 4
konur á efri hluta listanna, þaraf
2 i 3. sæti, hjá Sjálfstæðisflokkn-
um og Samtökunum. 1 Norður-
landskjördæmi vestra eru 5 konur
ofar miðju, þaraf 3 i 3. sæti á B, D
og G-lista. A Norðurlandi eystra
eru 4 konur ofar miðju á lista,
þaraf 3 á lista Alþýðubandalags-
ins, ein er i 2. sæti, á G-listanum. 1
Austurlandskjördæmi er aðeins
ein kona ofar miðju á lista, engin i
3. sæti eða ofar og á Suðurlandi
eru 4 konur fyrir ofan miðju á list-
unum, en engin i neinu af þrem
efstu sætunum.
Alls skipa 10 konur 3. sæti á
lista. Aðeins ein hefur komist of-
ar, það er Soffia Guðmundsdóttir,
sem er i 2. sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Engin kona er i
efsta sæti lista hjá neinum flokki.
—vh
/
Laugardagur 29. júni 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Klæðnaður „skrifstofustúlkunn-
ar” minnir mest á vændiskonu.
Ef einhver skilur af hverju þessi
mynd er sett i verkalýðsblað
þætti mér vænt um að fá skýringu
á þvi, mér hefur helst komið i hug
að hér sé formaðurinn að minna
á, að hann hefur innleitt lokun
alla laugardaga I verslunum svo
að skrifstofufólk o.fl. verða að
hlaupa i spreng til þess að geta
gert hclgarinnkaup.
Ritstjórinn viröist hafa tekið ást-
fóstri við þá stétt kvenna, sem
sýnd er á þessari mynd.
Enn við sama heygarðshornið;
fari kvenfólk i einkaritarastörf,
þá er það iagst undir yfirmanninn
um ieið.
Roskinn istrubelgur og blómstr-
andi kvenmaður, jú hér heitir hún
þvottakona, en hugarfarið það
sama.
Hér er greinilega verið að láta að
þvi Iiggja að einkaritarar haldi
við forstjórann til þess að fá betri
laun.
Þessi er nú alveg gasaiega snið-
ug, sérstaklega fyrir konur sem
hafa lent i erfiðum fæðingum, að
minnast þess, þegar þær sjá
þessa mynd.
Þessi var textalaus; ætli hug-
myndafiugið hafi verið þrotið?
Hvaöa kona vill
láta smána sig í
eigin stéttarblaði?
Lítiö á myndirnar sem formaður VR og
frambjóöandi íhaldsins telur sæma að birta
í hátíðablaði félagsins
Þegar ég var barn var verka-
lýðsbarátta og verkalýðsfélög óað
skiljanleg i huga minum. Þegar
ég svo fór i verkalýðsfélag sjálf
þá bjóst ég við að það félag berð-
ist fyrir rétti hinna lægstlaunuðu
til þess að þeir yrðu ekki niður-
lægðir og smánaðir af hinum sem
meira bera úr býtum af þessa
heims gæðum.
Svo barst mér blað, það er há-
tiðarblað i tilefni af 15 ára afmæli
félagsins. 1 þessu blaði birtust
„skrýtlumyndir”,,ég var i fyrst-
unni ekki viss um hvort ég héldi
heldur á „Playboy” ellegar
„Hudibras”, eða verkalýðs-
blaðinu minu.
t félaginu eru nefnilega kaup-
taxtar allt niður i 32.998,00 á mán-
uði. Haldið þið að nokkur karl-
maður sé ráðinn uppá slikt? Nei
takk,enginn lætur bjóða sér þau
þær verða enn að gera sér þetta
að góðu. t Verslunarmannafélagi
Reykjavikur er kvenfólk i meiri-
hluta, þetta er eitt allra stærsta
verkalýðsfélagið með yfir 5000
meðlimi. Nú búast vist flestir við
þvi að forsvarsmenn félagsins
myndu ekki nota 15 ára afmæli fé-
lagsins til þess að smána og
niðurlægja þær konur sem greiða
kaupið þeirra að hluta með fé-
lagsgjöldum sinum, en nú vil ég
láta alþjóð dæma um það og birta
hér myndir þær sem i blaðinu eru.
Þetta blað er kostað af félags-
mönnum með 2% framlagi sem
tekið er af ársgjaldinu. Vill nokk-
ur kona borga svona óþverra-
myndir i sinu eigin verkalýðs-
blaði? Ekki trúi ég þvi að ó-
reyndu, þið sýnið það á sunnu-
daginn. Kristin Jónsdóttir.
SPJALL
Á GÖTUNNI
Ætli ihaldið nái ekki hreinum meirihluta i kosn-
ingunum á sunnudaginn, sagði ungur maður sem
Þjóðviljamenn stöðvuðu á götii í gærdag — og hann
hló um leið: Það held ég verði nú ástand i landinu,
eða mórallinn, maður lifandi!
En ekki voru allir á þvi, að leyfa gálgahúmornum
að taka öll völd.
Gunnar Finnsson
Gunnar Finnsson,
útgefandi:
Hvort ihaldið nái meirihluta?
Nei, þeir vinna kannski eitthvað á
— jafnvel að þeir fái fjögur eða
fimm þingsæti til viðbótar, þvi að
kratarnir kjósa þá. íhaldið gleyp-
ir kratana likast til endanlega
núna.
Hvernig verður stjórnin —
framsókn ásamt ihaldi?
Nei, fjandakornið. Það er al-
deilis óeðlilegt að tveir stærstu
flokkarnir stjórni saman, en það
er vont að spá, maður vonar bara
að það verði áfram vinstri stjórn
og til að svo megi veröa, þá styð
ég Alþýðubandalagið.
Björn Sigurösson
Björn Sigurösson,
stýrimaður:
Ég held það hljóti að verða
stjórnarskipti, þar sem þingið
splundraðist. Sjálfsagt verður
ihaldið i stjórn, en ég get ekki enn
gert mér grein fyrir, hver styður
það.
Jóhannes Lúðviksson
Jóhannes Lúðvíksson:
Ihaldið fær 32 þingmenn og
stjírnar hér um aldur og ævi frá
næsta sunnudegi.
Reyndar mun ég ekki leggja lóð
á vogarskálina, þannig að mitt
atkvæði falli á ihaldið, ‘ ég er
nefnilega ekki á kjörskrá hér á
landi. Og það er svo sannarlega
gott til þess að hugsa, að ég skuli
eiga heimili i útlöndum, þvi eftir
valdatöku ihaldsins, verð ég fljót-
ur að forða mér úr landi.
— Hver er þá þin óskastjórn?
— Fyrst verður bylting — og
byltingin fæðir af sér mina óska-
stjórn.
Jón Karl Einarsson
Jón Karl Einarsson,
tónlistarnemi:
Ég er nú litill spámaður, en er
þó alls ekki á þvi að það verði
miklar breytingar á þessari rikis-
stjórn eftir kosningarnar. Það er
að visu hugsanlegt, að Sjálf-
stæðisflokkurinn bæti eitthvað við
sig.
— Verður mynduð stjórn ihalds
og framsóknar?
— Ég vona ekki.
Birgir Heigason
Birgir Helgason,
verslunarstjóri:
— Sjálfstæðisflokkurinn vinnur
mikinn sigur núna.
— Fær hann kannski hreinan
meirihluta?
— Nei, varla, en sigurinn verð-
ur mikill samt.
— Vegna krataatkvæða, sem
flokkurinn fær?
— Já — þó er ég ekki viss um að
kratarnir kjósi okkur upp til
hópa. Ég reikna hins vegar með
að framsóknarmenn hópist yfir til
Sjálfstæðisflokksins núna.
— Og hvað með þær væntanlegu
leifar af framsókn, styðja þær
ihaldið til valda?
— Já, það væri mjög æskileg
rikisstjórn, stjórn okkar og fram-
sóknar.