Þjóðviljinn - 29.06.1974, Side 13
Laugardagur 29. júni 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Nýsköpun i frystihúsum
á vegum vinstri stjórnar
Meira en helming lokið
-43% vegna hollustuhátta
Áætlunin um endur-
bætur á frystihúsum
landsmanna hefur verið
eitt af meginverkefnum
Framkvæmdastofnun-
arinnar síðan hún tók til
starfa. Ríkisstjórnin
lagði verkefnið i upp-
hafi fyrir, og nú að
verkinu loknu mun hún
staðfesta áætlunina sem
verður stefnumarkandi
um uppbyggingu frysti-
iðnaðarins fram til 1976.
Vinnu við áætiunina var
það langt komið á síðast
liðnu ári, að fram-
kvæmdir við frystihús á
því ári voru felldar inn i
ramma áætlunarinnar.
Formlega séð eru end-
urbætur í frystihúsum
frá árinu 1971 teknar inn
í áætlunartölurnar í
heild, svo að betra yfir-
lit fáist yfir stöðu hús-
anna. Við sl. áramót var
búið að framkvæma
53% áætlunarinnar mið-
að við kostnað, en 22%
eiga að falla á yfir-
standandi ári.
Með framkvæmdum sam-
kvæmt hraðfrystihúsaáætlun-
inni er gert mjög stúrt átak i
endurnýjun og uppbyggingu
frystiiðnaðarins. Miðað við
verðlag hvers árs, og þá siðari
þrjú árin á verðlagi fyrstu
mánaða 1974, nemur áætlunin
5.085 millj. kr., en sé hún öll
færð til þessa verðlags á fyrri
hluta 1974, nemur hún 6.031
milj. kr. Leitast hefur verið
við að ná sem jöfnustum árs-
áföngum, en hæstir eru þeir
1973 ,með 21,6% Og 1974 með
22,2% af heild. Alls falla fram-
kvæmdir 96 frystihúsa undir
áætlunina.
Aætlunin gerir nákvæma
grein fyrir skiptingu fram-
kvæmda og fjármögnunar eft-
ir helstu viðhorfum, sem þýð-
ingu hafa, svo sem eftir lands-
hlutum, tegundum fram-
kvæmda, tilefnum þeirra|
helstu fjármögnunaraðilum
o.fl. Mestar eru framkvæmdir
I Reykjanesumdæmi, 26,6% af
hcild hjá 27 frystihúsum, en
þar næst 17,8% á Austurlandi
hjá 14 frystihúsum. Byggingar
og umhverfisframkvæmdir
nema 68% framkvæmda, en
vélar og tæki 32%.Talið er, að
um 43% framkvæmda séu
vegna hollustuhátta, en 57%
vegna stækkunar, hagræðing-
ar, vélvæðingar o.fl.
Reiknað er með almennum
reglum eða venjum um lán-
veitingar Fiskveiðasjóðs og
annarra aðila. Þannig kemur
fram, að fiskveiðasjóður muni
lána 2.031 milj. kr. eða tæp
40% af áætlunarfjárhæðinni,
en véla og tækjalán verði 851
m. kr. eða 16,7%. Aukaleg
lánsfjárþörf, sem i hverju til-
viki kemur til álita að leysa úr
með lánum byggðasjóðs og at-
vinnuleysistryggingasjóðs, er
talin 487 m. kr. eða 9,6% af
heild. Eigin fjármögnun
frystihúsa eða af óvissum
uppruna verður þá um þriðj-
ungur, 1.716 m. kr. eða 33,7%.
Endanlegar ákvarðanir um
útlánafjárhæðir stofnlána-
sjóðanna eru þó ekki teknar
fyrr en um hvert ár sérstak-
lega og með hliðsjón af rikj-
andi ástandi i efnahagsmálum
og á fjármagnsmarkaði. Er
ætlunin, að gerð verði árleg
úttekt á þvi, hvernig áætlun-
inni miðar.
Að lokum skal rakið, hvaö
áætlunin gerir ráð fyrir mikl-
um framkvæmdum i hverjum
landshluta.
1 Reykjanesumdæmi eru 27
frystihús i áætluninni og fram-
leiddu þau um 22% af lands-
framleiöslu frystihúsa árið
1972. Þau fá i sinn hlut um 27%
framkvæmdanna eða um 60
miljónir á hvert hús.
Reykjavik: 8 frystihús með
um 10% framleiðslunnar árið
1972. Fá samtals um 9% af
framkvæmdunum eða um 70
miljónir króna hvert.
A Vesturlandi eru 10 frysti-
hús innan rammaáætlunar-
innar. Þau höfðu um 11%
framleiðslunnar 1972. Hlut-
deild þeirra af heildar fram-
kvæmdum verður um 11% eða
um 65 miljónir á hús.
Vestfirðir: 14 hús með um
16% framleiðslunnar munu
njóta um 14% framkvæmd-
anna, 60 miljónir á hús.
Norðurland vestra: 6 frysti-
hús, 3% framleiðslunnar, fá
6% framkvæmdanna eða um
63 miljónir hvert.
Norðurland eystra: 9 frysti-
hús innan áætlunarinnar sem
höfðu alls 10% framleiðslunn-
ar. Þau munu njóta um 8%
framkvæmdanna eða um 53
miljónir hvert hús.
A Austurlanditekur áætlun-
in til 14 frystihúsa sem höfðu
um 12% framkvæmdanna eða
um 77 miljónir á hús.
A Suðurlandi eru 8 frystihús
með um 16% framleiðslunnar.
Þau njóta um 8% fram-
kvæmdanna og fá um 57
miljónir hvert hús, samkvæmt
áætluninni.
hj—
MnHMwwnMiiwmwiH
m m m « w n u mi R «
niwniwninnwM
Albert Einarsson:
Seljendur ákœra
Þau pólitlsku málaferli sem nú
eru í uppsiglingu eru þær mestu
pólitlsku ofsóknir sem islensk al-
þýða hefur orðið vitni að. Hér er
ekki um það aö ræða að það séu
nokkrir einstakir blaðamenn og
baráttumenn fyrir brottflutningi
herstöðvanna frá Islandi, sem eru
ákærðir, heldur er verið að ákæra
þúsundir Islendinga, sem heils-
hugar taka undir það sem sagt
hefur verið á siðum Þjóðviljans
og annarsstaðar varðandi „Varið
land” og undirgefni aöstandenda
„Varins lands” við bandariska
heimsvaldastefnu.
Hinir islensku „varnarliðs-
menn”, aðstandendur „Varins
Lands”, eru i raun og veru mála-
liðar bandarisku heimsvalda-
stefnunnar, hvort sem launin eru
andleg hugarfróun I þvi,að hafa
yfir sér hangandi arðránskerfi
auövaldsins varið af ekta
ameriskum hermönnum eöa
kerfisbundinn efnahagslegur
gróöi af auövaldsþjóðfélaginu is-
lenska? — en það er jú yfirlýst
stefna drottnara hernámsliösins,
bandarisku stjórnarinnar, að
vinna að eflingu þess efnahags-
kerfis (og stjórnmálakerfis) sem
tiökast á vesturhveli jarðar, þ.e.
aröránskerfi auðvaldsins.
Margir eru eRaust undrandi yf-
ir þeirri dirfsku „varðliöanna”
aðstandenda „Varins Lands” að
þora að leggja út i stórkostleg
málaferli út af, I raun og veru,
sauðmeinlausum orðum, og væri
nær að ætla að prófessorar og
aðrir tignarmenn kysu heldur að
svara ummælum og „ásökunum”
I sömu mynt, þ.e. með oröum á
opinberum vettvangi. En svo er
ekki og ástæðan enganveginn sú
að þetta séu pennalatir menn eða
óframfærnir, heldur sú að aftur-
haldinu á Islandi hefur vaxið svo
fiskur um hrygg á undanförnum
árum að það þorir aö leggja út I
harða baráttu og þá að sjálfsögðu
i skjóli þess réttarkerfis sem það
sjálft hefur komið á laggirnar til
verndar hinum borgaralegu rétt-
indum auðvaldsþjóðfélagsins. ts-
lensk alþýða kysi aldrei yfir sig
löggjafarþing til að ákveöa lög
sem beinast gegn hagsmunum
hennar nema þvi aðeins að henni
sé haldiö fáfróðri um lög þau sem
gerð eru, en þaö er einmitt háttur
ihaldsins, að halda alþýöunni fá-
fróöri um réttindi sin eða öllu
heldur réttindaleysi sitt gagnvart
borgurum auðvaldsþjóöfélagsins
sem ganga jafnvel svo langt aö
troða á þeim litlu réttindum sem
alþýðan þó hefur.
Styrking afturhaldsins kemur i
kjölfarið á æ sljórri meðvitund al-
þýðunnar um pólitiska baráttu og
geta allir svokallaðir vinstri
menn sér um kennt að svo er
komiö og þýðir ekki að elta ólar
við neinn einn aðila um það hver
hafi brugðist heldur læra af þvi
sem gert var vitlaust eða ekki
gert og efla baráttuna gegn aft-
urhaldinu og valdakerfi þess. Hin
pólitiska stefna afturhaldsins
veröur ekki brotin á bak aftur
með ræðum úr ræöustól þings eða
ráögjafasamkundu né heldur með
„samstilltu átaki” pólitiskra
framámanna einvörðungu. Til
þess þarf virka baráttu fjöldans,
þvi I samstilltu átaki hans liggur
það vald sem dugað getur til
árangurs.
Þeim pólitisku málaferlum sem
nú eru I uppsiglingu verður að
svara með höröum átökum fólks
úr öllum flokkum og samtökum.
Fólks sem þorir að standa
frammi fyrir raunveruleikanum
og endurtaka það sem þeir „á-
kærðu” hafa sagt og skrifað og
verða þar með „samsekt” um að
hafa kallað undirskriftalista
„Varins lands” „Votergeit-vix-
il”, aðstandendur „Varins
lands” „hernámssinna” o.s.frv.
t þeirri baráttu sem framundan
FJÁRKÚGUN
í KÓPAVOGI
A ágætum baráttufundi G-list-
ans I Laugardalshöll, upplýsti
einn ræðumanna á hvaða for-
sendum núverandi meirihluti
bæjarstjórnar Kópavogs væri
myndaður:
Þegar til umræðu kom að
myndaður yrði vinstri meirihluti
þar, tilkynnti öflugur verktaki, að
hann mundi umsvifalaust inn-
heimta skuldir sinar hjá bæjar-
sjóði Kópavogs (30 milj. kr.), ef
framsókn hlypist á brott úr i-
haldsflatsænginni.
Með öðrum orðum: Núverandi
bæjarstjórnarmeirihluti i Kópa-
vogi er grundvallaður á fjárkúg-
un, sem hingað til hefur þótt held-
ur ljótt athæfi á Islandi. Skylt er
að geta þess, að annar fulltrúi I-
listans (fulltrúi Samtakanna)
Albert Einarsson
er I sambandi við pólitisku mála-
ferli „Varins lands” þarf að
koma til breið samfylking allra
herstöðvaandstæðinga og allra
þeirra sem slá vilja hring um þau
lýðréttindi sem þó alþýðan i land-
inu hefur fengið með baráttu sinni
gegn um árin.
Krefjumst þess að á-
kærurnar verði dregnar
til baka — tölvugögnin
afhent — herstöðvarnar
lagðar niður.
Reykjavik 25. júni 1974
Albert Einarsson
neitaði að eiga aðild að þessu
samstarfi, þótt framsóknarfor-
ustan léti hafa sig I það.
Þetta dæmi sýnir glöggt við
hverju má búast af framsókn eft-
Framhald 17. siðu.
Dæmum ihaldið
dautt og ómerkt
Heykrókur og Lögkrókur
hittust i ketbúð, og varð Ket-
krókur vitni að eftirfarandi
samtali.
I.ögkrókur: Sæll og blessað-
ur, Heykrókur góður.
Heykrókur: Sjálfur geturðu
verið sæll.
Lögkrókur: Hvað segir þú
um stefnivarga?
Heykrókur: Allt, sem ég hef
að segja, varðar við lög og
verður dæmt dautt og ómerkt.
Sjálfur verö ég sektaður, tukt-
húsaður og skyldaður að
framfæra stefnivargana. Ég
hef annað að gera við mfha
peninga en eyða þeim i sektir
og margt þarfara við timann
að gera en hima uppi i tukt-
húsi, og nóg er ómegðin, mað-
ur, kona og 12 börn. Segðu
mér, af þvi að þú ert nú
menntamaður, nei, lögkrókur,
meina ég, geturðu ekki ráð-
lagt mér eitthvaö gegn yfir-
vofandi fjárútlátum og tukt-
húsi og vaxandi ómegð?
Lögkrókur: Eg veit ekki,
hvort þýðir að ráðleggja þér
nokkuð, þvi að þú ert svo óráð-
þægur og misvitur. Þú lifir á
vinnu þinni einni saman, en
kýst ihaldið i trausti þess, að
kommarnir i Dagsbrún forði
þér frá afleiðingunum. Þú ert
eins og sauðkind, sem kýs úlf-
inn til að gæta sin. Þú skriður
fyrir valdinu, eins og fólk i
þinni stöðu hefur gert frá
ómuna tið. Þú áttar þig ekki á
þvi, að i kjörklefanum hefurðu
vald, meira að segja dóms-
vald. Hvernig væri, að þú
hættir nú að skriða fyrir vald-
inu, en beittir þinu eigin valdi
og kysir með sjálfum þér, en
ekki gegn sjálfum þér? Þar
meö dæmir þú Ihaldiö dautt og
ómerkt, einangrar það og
sviptir það öllum fjárráðum.
Heykrókur: Ja, þú segir
nokkuð. Þetta hefði ég átt að
athuga fyrr.