Þjóðviljinn - 29.06.1974, Page 17
Laugardagur 29. júni 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Sumarsýning
Listasafns
alþýðu
Listasafn Alþýöu hefur opnað
sumarsýningu að Laugavegi
31, 3. hæð, og verður hún opin kl.
14—18 alla daga nema sunnudaga
fram i ágústmánuð. Á sýningunni
eru málverk, vatnslitamyndir og
grafíkverk margra þekktra höf-
unda. Að undanförnu hefur safnið
haft sýningar á verkum sinum á
STjórn Rithöfundasambands
Islands hefur orðið við ósk Einars
Braga skálds um að sambandið
tilnefni 12 rithöfunda i nefnd, sem
falið verði að leggja mat á, hvort
kærumál og fjárkröfur VL-
manna séu árás á tjáningarfrelsi
manna eða ekki.
Eins og kunnugt er, þá er Einar
Bragi einn þeirra sem VL-menn
Athugasemd
1 grein um Akraborgina nýju i
blaðinu i gær var sagt að Guðjón
Vigfússon, fyrrum skipstjóri
Akraborgarinnar gömiu, treysti
sér ekki til að stjórna um borð i
Akraborginni nýju. Þetta er út i
hött, þar sem Guðjón hefur hætt
störfum vegna aldurs. Skipstjóri
Akraborgarinnar nýju verður
Þorvaldur Guðmundsson.
Blaðið biður velvirðingar á
þessum röngu vangaveltum. —sj
Leiðrétting
um
Hafblik h.f.
Vegna greinar, sem birtist i
Þjóðviljanum i dag um að frysti-
geymslur hraðfrystihússins Haf-
bliks h.f. væru fullar af niður-
greiddu kjöti, hefur fram-
kvæmdastjórinn, hr. Þórarinn St.
Sigurðsson, farið þess á leit að við
undirritaðir rannsökuðum hvað
hæft væri i þeirri fullyrðingu. Við
höfum skoðað frystigeymslur
hússins, og staðfestum að i þeim
er ekkert annað en freðfiskur.
Hinrik tvarsson,
hreppstjóri, Höfnum.
(sign)
Jósep Borgarsson,
oddviti, Höfnum.
(sign)
tsafirði og Siglufirði. Sýningin á
Siglufirði var opnuð rétt fyrir
páska, en tsaf jarðarsýningin hinn
1. mai sl. i sambandi við hátiða-
höld verkaiýðsfélaganna á staðn-
um.
Listasafnið mun bráðlega fá
aukið húsnæði fyrir starfsemi
sina i Reykjavik.
hafa ákært fyrir meiðyrði um
undirskriftasöfnun Varins lands
sem fræg er orðin af endemum.
Skoðana-
kúgun
mótmœlt
Enn berast mótmæli
viö réttarofsóknum VL-
manna. i gærbarst mót-
mælaskjal undirritaö af
11 nafnkunnum mönn-
um úr ýmsum starfs-
greinum í þjóðfélaginu:
Undirritaðir fordæma það
hugarfar gagnvart skoðana-
og málfrelsi, sem birtist i
fjöldastefnum forystumanna
„Varins lands” á hendur
gagnrýnendum sinum, þar
sem krafist er fangelsisdóma
og þungra fjársekta I stað
skoðanaskipta og málefna-
legrar rökræðu.Undirritaðir
telja slikt hugarfar og téðar
aðgerðir af þvi sprottnar til-
ræði við lýðræðið og alvarlega
ógnun við hin helgustu mann-
réttindi þess.
Jón Samsonarson, handrita-
fræðingur,
Gisli Gestsson, safnvörður,
Halldór J. Jónsson, safnvörð-
ur,
Sverrir Bergmann, læknir,
Jónas Kristjánsson, forstöðu-
maður stofnunar Árna
Magnússonar,
Tryggvi Gislason, skólameist-
ari, Akureyri,
Kristján Arnason, mennta-
skólakennari, Laugarvatni,
Hannes Pétursson, skáld,
Björn Bjarman, rithöfundur,
Sigurður Baldursson hrl.
Andri Isaksson, prófessor.
Nýr sáttmáli
gerður við
„banda-
menn ,!
Eins og fram hefur komið i
fréttum var til um ræðu i Ottawa
nýr Atlantshafssáttmáli, og lýsti
utanrikisráðherra Einar Agústs-
son þvi yfir að islenska rikis-
stjórnin væri samþykk honum,
enda kæmu ekki fram þar
neinar nýjar skuldbindingar
fyrir Islands hönd. Þegar
ráðherrann kom heim og
kynnti málið rikisstjórninni,
lét Magnús bóka mótmæli
við þessu, enda hafði sátt-
málinn aldrei verið ræddur á
rikisstjórnarfundi. Nú hefur ut-
anrikisráðherra látið sendimann
sinn Pétur Thorsteinsson undir-
rita þennan sáttmála i Briissel, og
sést hann á meðfylgjandi mynd i
„góðum” félagsskap við hlið full-
trúa grisku fasistastjórnarinnar.
öll meðferð þessa máls er vægast
sagt furðuleg af hálfu utanrikis-
ráðherra. Undirlægjuhátturinn er
eins og þegar Einar kynnti i
Washington „umræðugrundvöll-
inn” fræga: „Þetta höfum við i
rikisstjórninni samþykkt, en
verði þinn vilji hr. Kissinger.”
Fjórir
heiðurs-
doktorar
t dag verður lýst kjöri fjögurra
heiðursdoktora við Háskóla Is-
lands. Forseti heimspekideildar,
Sigurjón Björnsson prófessor,
lýsir doktorskjöri Gunnars Gunn-
arssonar, Peters Hallbergs og
Þórbergs Þórðarsonar. Forseti
raunvisinda- og verkfræðideildar,
Guðmundur Björnsson prófessor,
lýsir doktorskjöri Steingrims
Jónssonar fyrrv. rafmagnsstjóra.
Prófskirteini til kandidata
verða afhent við sömu athöfn, er
hefst i Háskólabiói kl. 14.
Bragðvisi
Framhald af 8. siðu.
ekki fullskýrð, og vitnar máli
skjólstæðings sins til ónýtingar i
varnarsamninginn þar sem þó er
ekki stafkrók að finna um útvarp
aukinheldur sjónvarp.
Og svo bitur manngarmurinn
höfuðið af skömminni með þvi að
gangast fyrir undirskriftasöfnun,
þar sem i raun er farið fram á, að
Island veröi um ófyrirsjáanlega
framtið annað tveggja rikja
heims, hitt er Suður-Vietnam,
sem leyfir Bandarikjaher að hella
sjónvarpsáróðri sinum yfir lands-
fólkið um opið kerfi.
Nei, auðvitað er kanasjónvarp-
iö aö allra sæmilegra manna
mati, sem Mogginn hefur ekki
náð að rugla, ævarandi blettur á
heiðri þjóöarinnar, og lágt munu
siðari tima menn meta æru þeirra
sem leggja sig i framkróka við að
dekkja hann og stækka, hvað sem
nú kann að reynast.
Rvik. 28.6. 1974
Leó Ingólfsson
Þórir
Framhald af bls. 19
um eintökum og til hvers þau
hafa verið notuð.
Herinn burt — tsland úr
NATO, þetta er númer eitt I dag.
Þessir vl-menn gera sér ekki
grein fyrir þvi að þeir eru undir
sterkari áróðri kaldastriðsafl-
anna en Bandarikin öll. Her-
laust island er sterkasta vopnið
i dag, og það veit ungt fólk. Ég
hef skömm á þvi unga fólki, sem
hefur skrifað undir „varið
land".
Ég vona að Alþýðubandalagið
vinni á i kosningunum og þar
með vinstri hreyfingin öll.
Framboð Fylkingarinnar og
KSML eru i sjálfu sér jákvæð til
að kynna fólki þær visindalegu
rannsóknir sem þessi samtök
hafa gert á islensku þjóðfélagi i
ljós'i marxiskrar fræðikenning-
ar.
Alþýðubandalagið er aftur á
móti eini borgaralegi stjórn-
málaflokkurinn, sem getur
staðið á móti Ihaldsöflunum i
landinu. Það er engin forsmán
sem róttækt ungt fólk gcrir sin-
um skoðunum með þvi að
styðja þann flokk, heldur þvert
á móti, þvi Alþýöubandalagið er
eina borgaralega stjórnmála-
aflið, sem við höfum til að efla
framgang sóslalismans á ts-
landi.
Lýðræðisöflin
Framhald af 14. siðu.
mikil og mun lengi i minnum
höfð.
Hitt er þó þýðingarmest, að fólk
átti sig á þvi, að oddviti borgara
stéttarinnar, sem hafa gefið sér
nafnið lýðræðisöflin, hafa lýð-
ræðið aðeins sem grimu til að
dylja sig bakvið. Þeir hafa nú um
sinn misst þessa grimu niður og
blasir nú þeirra rétta ásjóna við
landsmönnum.
Haukur Brynjólfsson
Sauðárkróki
Tölvugögn
Framhald af bls. 1
Unnar var næstur á mæl-
endaskrá frambjóðenda á eft-
ir Þór, og var þvi ekki svo auð-
velt fyrir hann að láta sem
hann hefði ekki heyrt spurn-
ingarnar. Hafði hann þá að-
ferö að vikja strax að gjald-
skránni og afgreiddi hana
stuttaralega, að gjaldskráin
yrði nú mjög væg!
Tók hann siöan að ræða
pólitikina vitt og breitt án þess
að sýna lit á frekari svörum.
Þurfti margsinnis að minna
hann utan úr sal á hina ósvör-
uðu spurningu, uns hann sagði
að lokum að svar sitt væri
NEI, og bjó sig til þess að
Ijúka ræðu sinni með andagt-
ugu ávarpi til Eyjabúa. Hon-
um var ekki sleppt viö þetta,
og varð það til þess að hann
missteig sig illilega og féll sið-
an kylliflatur um sannleikann.
Handleggur fyrir
vinnandi menn
Orðrétt sagði Unnar þetta:
„Svör min við spurningu
Þórs Vigfússonar geta falist i
einu orði: Nei. (Frammigrip:
Nei, hvað?).
Góðir Eyjamenn! (Aftur
kallað fram i: Heyröiröu ekki
spurninguna?).
Jú—jú, Það var aöeins ein
spurning sem þetta svar ætti
ekki við — hvar eru tölvugögn-
in geymd — og ég get alveg
fullvissað Þór Vigfússon um
það. Hann þarf ekki að hafa á-
hyggjur af þvi, frumgögnin
voru öll afhent forsætisráö-
herra og forseta Sameinaös
þings — voru geymd i læstri
járnkistu sem var smiðuö i
þessu skyni.
Tölvugögnin eru geymd, og
ég hygg, og mig undrar, að
kennari við menntaskóla, Þór
Vigfússon, skuli gera leik að
þvi að ala á tortryggni út af
notkun tölvu.
Það er ámóta eins og aö
menn fyrir allmörgum árum
hefðu reynt að fylla mcnn tor-
tryggni út af þvi, að menn not-
uðu reiknivél I stað þess aö
reikna út með höndunum eða I
huganum.
Tölva er einfaldlega verk-
færi, og það var — menn
geta Imyndaö sér, hvort það
hefði ekki verið haldleggur
fyrir vinnandi menn, sem aö
þessu stóðu, að fara að færa
inn 55 þúsund nöfn hand-
skrifuð inn á kjörskrá.
Þetta finnst mér aö Þór Vig-
fússon... (mál Unnars var
yfirgnæft af hlátrasköllum og
klappi, og rak hann þá I vörð-
urnar. Þegar Unnar mátti aft-
ur mæla, sagði hann:)
Töivuvinnslan var gerð til
að mæta kröfum Þjóðviljans
um það að taka af öll tvimæli
um það, að þarna væru engin
brögð I tafli.
(Spurt utan úr sal: Hvað
skrifuðu margir undir i Vest-
mannaeyjum?). Ég man þaö
nú ekki... (Unnar verður afar
lágmæltur).
(Frammigrip: Hvaö segir
tölvan?)
Góðir Eyjabúar! Ég ætla að
láta þetta verða min lokaorð”.
Fjárkúgun
Framhald af 13. siðu.
ir kosningarnar, ef vinstri kjós-
endur tryggja ekki að forustan
þar fái nægilegt aðhald. Hægri
sinnuð forusta framsóknar mun
ekki skirrast við að ganga til
stjórnarsamvinnu við ihaldið, á
hvaða grundvelli sem er, ef sú að-
staða kemur upp að kosningum
loknum.
Dulur eru nú einu sinni gæddar
þeirri náttúru að geta blaktað
jafnttil beggja hliða eftir vindátt.
Kópavogsbúi
Darios
Framhald af bls. 9.
með neitt grin þegar um það er að
ræða að verja röð or reglu Og
besta röð og regla er, eins og hann
var vanur að segja hershöfðing-
inn þarna, er falleg, þráðbrein
röð af hvitum krossum i kirkju-
garðinum .
Hvað nú? Eru þeir enn að
skjóta. Æjá, þetta er skelfilegt
blóðbað. En hvað svo? Sagði ég
ekki við Allende: Gáðu nú að þér,
Allende, nú er þetta fariö að
ganga of langt . Já, það er satt,
ég varaði hann við, og um leið tók
ég honum gröf. Enginn hefur
haldið öðru fram: án okkar að-
stoðar hefði herinn setið kyrr á
sinum rassi.
Pabbi
Framhald af bls. 20.
ingahorfur nokkra stund,
brosti siðan sinu bliðasta til
myndavélarinnar og hélt sina
leið niður Laugaveginn.
En brosið virðist hafa horfið
snögglega morguninn eftir
þegar hún sá ummæli sin á
prenti. Hringdi stúlkan til Vel-
vakanda Moggans, sem sá sér
leik á borði, boðaði hana á sinn
fund til myndatöku, þar sem
hún setti upp vanþóknunar-
svip til að tjá i máli og mynd-
um andúð sina á svivirðileg-
um rangtúlkunum minum.
Hafi vináttuspjall i viðtals-
formi orðið til að spilla ágætri
vináttu minni við Ástu Briem
þykir mér það leitt. En ég get
ekki látið lygaþvætting eins
og þann, sem birtur er um mig
i Morgunblaðinu, standa án
þess að hreyfa hönd né fót til
varnar. Er skemmst frá þvi að
segja, að i samtali minu við
Astu kom allt það fram, sem
ég skýrði frá i blaðinu, ekkert
meira og ekkert minna. Þykir
mér leitt, ef greinin hefur
komið illa við Ástu eða hennar
fjölskyldu, en við þvi er ekkert
að gera.
Gunnar Steinn
Hlekkjað land
Framhald af bls. 3.
rugli þeim ekki saman við Sjálf-
stæðisflokkinn. Þar sem þessi
táknrænu merki, sem Sjálfstæöis-
flokkurinn er að dreifa, sýna Is-
land umgirt gildri keðju, ætti
hann að beita sér fyrir þvi að
kalla samtökin HLEKKJAÐ
LAND.
Tvo verkamenn
vantar til starfa i Sementsverksmiðju rik-
isins á Akranesi.
Sementsverksmiðjur rikisins.
Móðir mín
GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hrisnesi, Barðaströnd,
Hverfisgötu 70A,
lést i Landspitalanum sunnudaginn 23. júni s.l. Jarðsett
verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. júli, kl. 3. e.h.
Fyrir hönd vandamanna,
Þuriöur S. Vigfúsdóttir.
Nefnd metur
kærumál YL