Þjóðviljinn - 29.06.1974, Qupperneq 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júni 1974.
Laugardagur 29. júni
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Kristin ólafsdóttir les
ævintýrið „Koffortið fljúg-
andi” eftir H.C. Andersen i
þýðingu Steingrims Thor-
steinssonar. Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög á milli liða.
óskalög sjúklingakl. 10.25;
Borghildur Thors kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.30 Létt tónlist. Þekktir
listamenn flytja.
14.00 Vikan sem var. Páll
Heiðar Jónsson sér um þátt
með ýmsu efni.
15.00 Miðdegistónleikar. Fil-
harmóniusveitin i Vin leikur
Sinfóniu nr. 1 i D-dúr eftir
Schubert; Istvan Kertesz
stj.
15.30 A ferðinni. Okumaður:
Arni Þór Eymundsson.
(Fréttir kl. 16.00.)
16.15 Veðurfregnir. Horft um
öxl og fram á við. Gisli
Helgason fjallar um út-
varpsdagskrána siðustu
viku og hinnar komandi.
17.00 íslandsmótið i knatt-
spyrnu; fyrsta deild.Jón As-
geirsson lýsir frá Akranesi
siðari hálfleik af leik 1A og
KR.
17.45 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Heilbrigð sál
I hraustum likama” eftir
Þóri S. Guðbergsson.Annar
þáttur. Leikstjóri: Gisli Al-
freðsson. Persónur og leik-
endur: Fréttamaður.... Árni
Gunnarsson; Frúin... Mar-
grét Guðmundsdóttir;
Dimmraddaður maður...
Guðmundur Magnússon;
Ungfrú.... Giuðrún Þórðar-
dóttir; Unglingsstrákur....
Arni Blandon; Ung stúlka...
Lilja Þorvaldsdóttir; Ungur
'naður.... Július Brjánsson;
^Þröstur.... Randver Þor-
láksson; Spekingurinn... Jón
Júliusson; Svandis... Anna
Kristin Arngrimsdóttir;
Skólastjórinn... Ævar R.
Kvaran; Helgi... Hákon
Waage; Sveinn... Flosi
Ólafsson; Þorkell.... Bessi
Bjarnason; Þulur.... Jón
Múli Árnason.
18.15 Söngvar I léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Júgóslavneskt kvöld,
Stefán Bergmann mennta-
skólakennari spjallar um
land og þjóð, flutt tónlist frá
Júgóslaviu og lesin júgó-
slavnesk smásaga.
21.00 „Hversdagsleikur”,
sögukafli eftir ómar Hall-
dórsson.Höfundur les.
21.15 Illjómpiöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög,
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Alþýðubandalagsmenn? sem
verðið fjarri kjörstað á kjördag
Þjóðviljinn vill minna allt
stuðningsfólk Alþýðubanda-
lagsins á að nú er siðasta vik-
an fyrir kosningar, og árið-
andi er að þeir, sem af ein-
hverjum ástæðum verða fjarri
kjörstað á kjördag, Iáti ekki
undir höfuð leggjast að greiða
atkvæði á utankjörfundaskrif-
stofu. A þá reykviska stuðn-
ingsmenn Alþýðubandalags-
ins, sem verða úr borginni um
helgina, er skorað að kjósa án
tafar, og verður utankjör-
staðaskrifstofa Alþýðubanda-
lagsins (Grettisgötu 3, simi 2-
81-24) þeim innan handar með
bila og aðra aðstoð, ef óskað er
eftir. Einnig er skorað á fólk
að láta vita um þá, sem verða
fjarverandi á kjördag, svo og
fólk utan af landi, sem statt er
i Reykjavik.
Utankjörfundaskrifstofan
fyrir Reykjavík er I Hafnar-
búðum, simi 2-77-19.
jiivsmir) b%.
Indversk undraveröld.
Mikið úrval af sérkennilegum, handunnum
munum til tækifærisgjafa, m a. Bali-styttur,
veggteppi, gólf-öskubakkar, vegg- og horn-
hillur, rúmteppi og púðaver, bahk- og ind-
versk bómullarefni, Thai- og hrásilki, lampa-
fætur, gólfvasar, slæður, töskur, trommur,
tekk-gafflar og -skeiðar i öllum stæröum,
skálar, öskubakkar, kertastjakar, borðbjöll-
ur, vasar, könnur og margt fleira nýtt.
Einnig reykelsi og reykelsisker. Mikið úrval
af mussum.
Jasmin
Laugavegi 133 (við Hlemmtorg).
Andrea Jónsdóttir:
Vil ekki trúa
því að
íhaldið vinni á
Ég ætla engu að spá um kosningaúrslitin, en ég vil ekki trúa þvl
fyrr en ég sé það, að ihaldið vinni eins mikið á i komandi kosningum
og margir vilja trúa.
Meinið er hinsvegar, að fólk hefur það likast til of gott 1 bili, og
beitir sér þvi ekki nóg, þótt það sé I eðli slnu róttækt.
Indriði Jónsson:
Eina vonin er að
Alþýðu-
bandalagið
vinni stórsigur
Ég tei það mjög tvisýnt hvað verður ofan á i stefnu Framsóknar
eftir þessar kosningar. Ef kosningaúrslitin verða hægri sveifia, þá
er það fulivist að Framsóknarflokkurinn þorir ekki annað en ganga
I eina sæng með ihaldinu. Ég geri samt fastiega ráð fyrir þvi, að Al-
þýðubandalagið vinni mikið á i kosningunum á sunnudaginn, og það
er eina von vinstri manna i landinu að sá sigur verði sem allra
stærstur.
Blaðamenn Þjóðviljans voru staddir á kosningadansleik Alþýðubanda-
lagsins i Sigtúni siðasta fimmtudagskvöld. Þar var húsfyllir og góð
stemmning yfir mannskapnum. Hljómsveitin Pelíkan lék fyrir dansi og var
sú fótamennt iðkuð af miklu kappi. Á milli komu þeir Sigurður Rúnar Jóns-
son og félagar fram með sitt frábæra „alþýðupopp” og hlutu að launum
mjög góðar undirtektir og veglegt klapp i lokin. Við notuðum tækifærið til
að spyrja nokkra þeirra ungu kjósenda, sem þarna voru samankomnir um
stjórnmálaskoðanir þeirra og kosningahorfur.
Jón Þór Jóhannesson:
Andstæðingar
VL-ofsókna
geta ekki
kosið íhaldið
Það fólk sem hefur viðurstyggð á málshöfðunum Hreggviðs og
Co., á hendur andstæðingum sinum, kýs ekki ihaldiö. Alþýðubanda-
lagið hefur sennilega sjaldan fengið sterkara kosningavopn. Ég hef
trú á að f jöldinn allur af þeim, sem skrifuðu undir Votergeitvixilinn,
hafi nú snúist gegn aðstandendum hans og hyggst jafnvel snúa baki
við Sjálfstæöisflokknum vegna meiðyrðamálsins, sem á sér fáar
hliðstæður i sögu lýðræðisþjóðfélaga.
— 1 hverju liggur helst veikleiki vinstri stjórnarinnar?
— Höfuðmál stjórnarsáttmálans náðu ekki framkvæmd; herinn
og landhelgismáliö eru enn á dagskrá.
— Hvað gerist á sunnudaginn?
— Það er náttúrulega erfitt að segja með vissu um hvað gerist.
Hræddur er ég þó um að ihaldið komist aö. En mér virðist þróunin i
Islenskum stjórnmálum þó ekki vera vinstri hreyfingunni i óhag.
A1þý^UÍiaídalagið eykur fylgi sitt jafnt og þétt á meðan vinstri
flokkar, sem daðra við ihaldið dag og nótt, eru aö þurrkast út. Kosn-
ingarnar á sunnudaginn verða eindregin krafa þjóðarinnar um öfl-
ugan hægri og vinstri flokk, en afnám milliflokkanna.
Ég sá I leiðara Þjóðviljans um daginn hvatningu til verkafólks
þess efnis, að það yrði e.t.v. of seint að átta sig á ástandinu eftir 30.
júni, launþegar mættu ekki bregðast á kjördag. Mér finnst þetta
röng stefna stjórnmálaflokkanna, að miða allt við kjördag, það er
aldrei of seint að átta sig, og þótt Alþýðubandalagið lendi i minni-
hluta á Alþingi er ég sannfærður um að flokkurinn mun eflast meira
en nokkru sinni fyrr.