Þjóðviljinn - 20.12.1975, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.12.1975, Blaðsíða 1
Laugardagur 20. desember 1975 — 40. árg. 290. tbl. UTIFUNDUR I DAG Útifundur fulltrúanefndar ung- pólitisku samtakanna um land- helgismáiið er kl. 15 i dag á Lækj- artorgi. Ræðumenn: Ármann Ægir Magnússon (ÆnSFV), Guðmund- ur Bjarnason (FUJ), Sveinn Grétar Jónsson (ÆnAB) og Ari Trausti Guðmundsson (Eik(ML). Kröfurnar eru: Gegn rányrkju á tslandsmiðum, tafarlaus stjórnmálaslit við breta, og endurskoðun á NATO-aðildinni. Söfnun stuðningsyfirlýsinga við þessar kröfur stendur yfir til 10. janúar nk. Guðmundur J. Guðmundsson um miljarðaálögur ríkisstjórnarinnar Nokkurn veginn eins þungt högg og hugsast gat á stefnu verkalýðs- hreyfingar- innar Þeir segjast vilja baráttu gegn verðbólgu og fagna yfirlýsingum verkalýðs- samtakanna um það efni. En á sama tíma og þeir halda ræður um þessi mál kyngja þeir miljarða álög- um á þjóðina. — Þetta sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka- mannasambands fslands, er Þjóðviljinn ræddi við hann i gær i tilefni nýsamþykktra stórfelldra Framhald á bls. 26. Þjóðviljinn 28 síður Skugginn frá 1961 — sjá viðtal við Sigurð Blöndal á 10. siðu ískyggileg þróun segir formaður Fóstrufélagsins — sjá viðtal á 9. siðu Fréttir á siðum 3,5,6 og 25 Fppbyggingu miðar vel t dag er eitt ár liðið frá þvi að snjóflóð féllu á Neskaupsstað. Uppbyggingin þar hefur gengið framar vonum manna, hafnar- gerðinni er þvi sem næst lokið, vonir standa til að bræðslan verði tilbúin að taka á móti loðnu um mánaðamótin janúar- febrúar, og uppbygging annarra fyrirtækja, sem eyðilögðust i snjóflóðinu, er i fullum gangi. Enn vantar þó töluvert á að allt hafi verið bætt sem eyði- lagðist i einu vetvangi fyrir ári. Og aldrei verða þau ellefu mannslif sem týndust bætt með nokkru móti. Þjóðviljinn birtir i dag viðtöl og myndir frá Neskaupsstað og endurreisninni þar. Fjárlög veröa afgreidd í dag Þingefni í dag á síðum 13, 14, 15, 16 Nýju álögurnar orðnar að lögum og 25 i nótt lauk þriðju umræðu fjár- laga á alþingi og var ætlunin, að atkvæðagreiðsla um breytingar- tiiiögur og endanleg afgreiðsla fjárlaganna færi fram á fundi al- þingis, sem boðaður hefur verið kl. 9 fyrir hádegi í dag, laugar- dag, og lýkur þar með fundum al- þingis fyrir jól. Siðustu fundir i báðum deildum alþingis voru haldnir i gær. Þá og á fundum i fyrrakvöld voru fjöl- mörg ný lög samþykkt. Þar á meðal eru nú allar tillögur stjórn- arliðsins um auknar álögur á al- menning, sem skýrt hefur verið frá hér i Þjóðviljanum undan- farna daga og nema miljörðum orðnar að lögum. Vörgjaldið hefur verið fram- lengt, útsvörin hækkuð um nálægt 10%, 500 miljónir tæpar lagðar á það fólk, sem kaupa þarf lyf og læknisaðstoð, söluskatturinn hækkaður um 2 prósentustig i stað viðlagagjaldsins, sem nú fellur niður. Þá voru einnig sam- þykkt lög um heimild rikisstjórn- arinnar til erlendrar lántöku, að upphæð 6.655 miljónir króna, og er nánar greint frá þvi annars staðar i blaðinu. Frumvarpið um breytta verkaskiptingu milli rikis og sveitarfélaga var einnig sam- þykkt sem lög, en það felur m.a. i sér, að rikið hættir þátttöku i rekstri dagvistunarheimila og byggingu dvalarheimila fyrir aldraða. Fleiri ný lög voru sam- þykkt, en varða flest minnu. Frá þeim er greint á siðu 25. Við atkvæðagreiðslur um þau mál, sem getið er um hér að framan, greiddu þingmenn stjórnarflokkanna nær undan- tekningalaust atkvæði með frum- vörpum rikisstjórnarinnar, en stjórnarandstæðingar á móti. Framhald á bls. 26. I dag er aðal- skiladagur í DAG er aðalskiladagur Happ- drættis Þjóðviljans um land allt. Afgreiðsla Þjóðviljans að Skóla- vörðustig 19, skrifstofur Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik. Kópa- vogi, Hafnarfirði, Akranesi, Siglufirði og Akureyri eru opnar frá kl. 9 til klukkan 19 um kvöld- ið. Á skrifstofunum er tekið á móti skilum og gefnar upplýs- ingar um happdrættið. Léttið störfin og gerið skil strax i dag. dagar þar til dregið verður í Happdrætti Þjóöviljans

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.