Þjóðviljinn - 20.12.1975, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. desember 1975.
Eddukórinn:
islenzk þjóðlög
kr. 1.500.
Fjögur islenik píanóverk:
Rögnvaldur Sigurjónsson
kr. 840.
Félagsmenn fá 20% afslátt
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJODS
OG ÞJOÐVINAFELAGSINS
Skálholtsstíg 7 — Símar: 13652 og 10282.
URVALSVERK
Andvari
menningarrit
hundraðasta ár
kr. 1.140.
Ritgerðir
Grims Thomsens
i þýðingu
Andrésar
Björnssonar.
Kr. 3.480.
Hfaiw Pótsson
ALASKAFÓR
JÓNS ÓLAFSSONAR
Alaskaför
Jóns Ólafssonar
var íslenzkt
ævintýri i Vestur-
heimi. Kr. 3.000.
Menntaskólabókin
fróðleg og giæsileg
kr. 5.880, til
áskrifenda kr. 4.410.
Bréf til Stephans G. I—III
merkar heimildir, I kr. 1.800,
II, kr. 1.800, III kr. 2.640.
Almanak
með Arbók
íslands
kr. 1.140.
Ritsafn Pálma Hannessonar
! i nýrri útgáfu, tvö bindi
kr. 5.880.
Alf ræði
Menningar-
sjóðs:
Hagfræði
kr. 1.440.
i brúnu bandi
kr. 1.800.
PASSÍ USÁLMAR Myndskreyttar
viðhafnar-
útgáf ur:
Sálmar séra
Hallgríms
kr. 2.880.
Frásögn sagna-
meistarans
kr. 3.600.
Áður komu út:
Bókmenntir
íslandssaga
Skáldatal
Stjörnufræði
ÍSIEND1NGA
SAGA SKhsqnar
40% aukning
erlendra lána
Heildarskuldir isl. erlend-
is aukast um 40% frá árslokum
1974 til næsta árs skv. lánaáætlun
þeirri sem samþykkt var sem lög
Lögbannskrafan var
tekin til greina
1 gær var tekin til greina lög-
bannskrafa þeirra Svövu
Markúsdóttur og Beinteins Ás-
geirssonar, sem þau settu fram
á bókina „Rauði svifnökkvinn”
eftir Valdisi óskarsdóttir og
Ólaf Hauk Slmonarson, vegna
myndar af gerðarbeiðendum,
dansandi innanum ýmsa hluti i
bókinni.
Var, eins og áður segir, lög-
bannskrafan tekin til greina og
bann sett á frekari dreifingu
bókarinnar, en það sem komið
er i verslanir er leyfilegt að
selja.
Gerðarbeiðendum var gert að
setja tryggingtf að upphæð 1,5
milj. króna sem þau gerðu með
tékka, en slik greiðsla var ekki
tekin til greina og verða þau
annaðhvort að leggja trygging-
una fram i bankabók eða pen-
ingum. Var þeim gefinn frestur
fram á næsta þriðjudag til þess.
Geri þau það ekki fyrir þann
tima fellur lögbannið úr gildi.
—S.dór
Borgarstjóri
skammar ráð-
herra sína
Borgarstjórinn I Reykjavik,
Birgir ísleifur Gunnarsson, réðst
hart að ráðherrum flokks sins og
fyrrverandi borgarstjórum I
Reykjavlk, þeim Gunnari Thor-
oddsen og Geir Haligrimssyni, i
ræðu á borgarstjórnarfundi i
fyrrakvöld, er hann ræddi frum-
vörp rikisstjórnar, sem nú liggja
fyrir alþingi, þar sem fjallað er
um verkaskiptingu rlkis og bæja
og um breytingar á söluskatti.
Borgarstjóri sagði, að breyt-
ingar á söluskattslögunum þýddu
það, að borgarsjóður fengi i tekju-
auka 179 miljónir króna en þyrfti
að taka við verkefnum úr hendi
Þrjár
bækur
skara
framúr
Björn Th. Björnsson.
Svo virðist sem þrjár bækur
á jólabókamarkaðnum ætli að
skera sig nokkuð úr hvaða sölu
snertir að því bóksalar sem
Þjóðviljinn hefur haft sam-
band við segja. Þó ber að taka
það fram, að mestu söludag-
arnir eru enn eftir, það er
næsti mánudagur og Þorláks-
messudagur.
En þessar þrjár bækur sem
best virðast seljast eru:
Haustskip, Björns Th. Björns-
sonar, I túninu heima, eftir
Halldór Laxness og æviminn-
ingar Stefáns Islandi —S.dór.
rikissjóðs að upphæð 209,3 miljón-
ir króna.eða með öðrum orðum:
breytingin þýðir 30 miljón króna
bein fjárútlát fyrir Reykjavlkur-
borg.
Síðan sagði borgarstjóri:
„Af þvi, sem ég nú hef nefnt er
ljóst, að samþykki frumvarpanna
eins og þau nú liggja fyrir alþingi,
mun hafa neikvæðar afleiðingar
fyrir fjárhag borgarsjóðs.” „Ég
vil þvl eindregið hvetja rikis-
stjórnina og alþingismenn alla að
gæta þess við afgreiðslu þessara
frumvarpa á alþingi, að hags-
munir sveitarfélaganna verði
ekki skertir með samþykki
þeirra.”
En það er ekki einvörðungu
þetta, sem tveir fyrrverandi
borgarstjórar angra þann núver-
andi með. Þeir hafa ekki gert ráð
fyrir allt að 100 miljón króna fjár-
veitingum úr rlkissjóði til eigna-
skipta við Reykjavikurborg þeir
frá alþingi I gær. Þessar tölur
koma fram i nefndaráliti Ragn-
ars Arnalds um lánsfjáræaætlun-
ina.
Aætlunin gerir ráð fyrir að á ár-
inu 1976 verði tekin erlend lán að
upphæð 6.655 milj. kr. Þar af fari
4.301 milj. kr. i Kröfluvirkjun og
henni tengd verkefni, 2.045 milj.
kr. i framkvæmdasjóð til fjárfest-
ingalánasjóða, 150 milj. kr. i
sveitaraívæðingu og 132milj. kr. i
Rafmagnsveitur rikisins.
Lánsfjáráætlunin var sam-
þykkt samhljóða i efri deild i gær-
dag.
í árslok 1974 námu löng erlend
lán samtals 57,6 miljörðum kr. á
núverandi gengi. Á þessu ári hef-
ur nettóskuldaaukningin orðið
13,1 miljarður og að ári er ráð-
gerð aukning um 10,1 miljarð.
Þetta þýðir 40% aukningu er-
lendra lána.
Geir, fyrrverandi borgarstjóri.
gera ráð fyrir 22,7 miljón króna
lægra framlagi til sjúkrahús-
bygginga, en borgarstjóri gerði
ráð fyrir að fá samkvæmt drög-
um að fjárhagsáætlun fyrir árið
1976, og loks ætla þessir fyrir-
rennarar hans I embætti að
skenkja honum 234 miljónum
króna minna tii skólabygginga i
höfuðborginni, en þeir höfðu lofað
honum oghann lét gera ráð fyrir i
drögum að fjárhagsáætlun fyrir
borgina næsta ár!
Um þetta sagði borgarstjóri:
„Fáist ekki á þessu verulegar
lagfæringar við afgreiðslu fjárlagt
er þannig alveg ljóst, að borgar-
stjórn verður að skera verulega
niður skólabyggingar I Reykjavlk
á næsta ári frá þvl, sem áætlað
hafði verið!” —úþ
Flug um hátíðamar
Þotur og skrúfuþotur Flugfé-
lags íslands og Loftleiða hafa
undanfarna daga verið þétt settn-
ar og á það við bæði um innan-
lands- og millilandaleiðir. Slöustu
ferðir til landsins fyrir jól frá við-
komustöðum verða sem hér seg-
ir:
Frá Glasgow 22. desember, frá
Osló,Kaupmannahöfn,London og
Luxemborg 23. desember, frá
Chicago og New York að morgni
24. desember. Þoturnar frá
Chicago og New York halda á-
fram til Luxemborgar eftir stutta
viðdvöl I Keflavlk og eru það sið-
ustu ferðir til útlanda fyrir jól. A
jóladag verður sem fyrr segir
ekkert flug á vegum félaganna,
en siðdegis 26. desember koma
tvær Loftleiðaþotur frá Luxem-
borg og halda áfram vestur um
haf til New York og Chicago.
Loftleiðaþotur fljúga slðan milli
Luxemborgar. Keflavlkur, New
York og Chicago.
Hinn 27. desember fljúga þotur
Flugfélags Islands til Glasgow,
London og Kaupmannahafnar, 28.
desember til Osló og Kaup-
mannahafnar, 29. desember til
Glasgow og Kaupmannahafnar
og 30. desember til London og
Kaupmannahafnar. Þotur Flug-
félags Islands fljúga ekki til út-
landa á gamlársdag og nýársdag,
en frá og með 2. janúar hefst á-
ætlunarflug þeirra að nýju.
Sérstök jólaáætlun var sett upp
fyrir innanlandsflugið og gildlr
hún frá 17.—24. desember.^
Samkvæmt þessari áætlun verða
flognar rúmlega 30 aukaferðir til
viðkomustaða Flugfélags íslands
vlðsvegar á landinu. Þann 17.
desember hófust aukaferðirnar
jafnhliða áætlunarfluginu, en
mesta annríkið mun verða frá
föstudeginum 19. desember til
þriðjudags 23. desember, Þor-
láksmessu.
Á aðfangadag verður flogið til
eftirtalinna staða: Akureyrar,
Vestmannaeyja, Isafjarðar, Pat-
reksfjarðar, Húsavikur, Egils-
staða og Sauðárkróks. Þess skal
getið, að á aðfangadag veröur
flugferðum til Egilsstaöa og
Sauðárkróks flýtt frá venjulegri
áætlun. Síðasta brottför frá
Reykjavik fyrir jól verður kl.
15:00. A jóladag verður ekkert
flogið innanlands, en 26. desem-
ber, annan dag jóla verður svo
flogið samkvæmt áætlun. A ný-
ársdag verður ekkert flogið
innanlands, en frá og með 2. janú-
ar samkvæmt áætlun. Einnig
munu verða flognar aukaferðir til
nokkurra staða.
Frá Kynningardeild Flugleiða
h.f.
Reykjavikurflugvelli.