Þjóðviljinn - 20.12.1975, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 20.12.1975, Blaðsíða 17
Laugardagur 20. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Logi Kristjánsson, bœjarstjóri Refsa framkvæmdasemi og góðri þjónustu bæjarfélaga Frumvarp og ný lög rikis- stjórnarinnar um tólfta útsvars- prósentið, sem sveitarstjórnum er falið að innheimta, og renna á til þess að mæta auknum kostnaði við sjúkratryggingar, hafa vakið mikla og almenna reiði sveitar- stjórna. Logi Kristjánsson, bæjarstjóri i Neskaupsstað, og stjórnarmaður i Sambandi islenskra sveitarfé- laga, viðhafði eftirfarandi orð um þessi nýju viðhorf i gær: „Þetta er eins og hnefahögg i andlitið á þeim sveitarstjórnar- mönnum sem að undanförnu hafa átt I viðræðum við rikisstjórnina um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Eins og fram hefur komið í ályktunum okkar hér á Neskaupsstaðog annarra, gengur þetta þvert á þá stefnu sem Sam- band Isl. sveitarfélaga hefur mót- að.Þvi að það hefur eins og fram r > Ut í hött að auka verkefni sveitarfélaga án þess að tryggja raunhœfa tekjuöflun á móti hefur komið verið krafa sveitar- félaganna að rikið yfirtaki sjúkratryggingarnar eins og aðr- ar greinar almannatrygginga. Þegar rikið tók yfir almanna- tryggingar að mestu árið 1972 stóð það til að sjúkratryggingarn- ar yrðu einnig á könnu rikisins er fram liðu stundir. Þetta sjónar- mið tóku sveitarstjórnarmenn Verslunarfólk athugiö Réttur dagsins Hakkað buff með lauk og hvítum kartöflum. Verð kr. 440.— Svínasteik með rauðkáli og grænmeti og frönskum kartöflum. Verð kr. 740. Fjölbreyttur matseðill. — Glæsilegur brauðseðil). Sendum heim Húseignin Engihlíð 9 til sölu Kauptilboð óskast i húseignina Engihlið 9, Reykjavik, ásamt tilheyrandi leigulóð. Lágmarkssöluverð samkvæmt lögum nr. 27 1968, er ákveðið af seljanda kr. 16.000.000.— Húsið verður til sýnis væntanlegum kaup- endum mánudaginn 22. og þriðjudaginn 23. desember nk., frá kl. 1—3 e.h. báða dagana og verða tilboðseyðublöð afhent á staðnum. Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11:00 f.h. þriðjudaginn 6. janúar 1976. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 heilshugar undir, enda stuðlaði það að hreinni verkaskiptingu. Það þarf margt að endurskoða varðandi verkaskiptingu rikis og sveitarfélaga, en það er vanda- samt verk, sem ekki má hrapa að, og ófært að gera fljótræðis- breytingar, sem bitna mjög mis- jafnlega á sveitarfélögunum, og án þess að taka á nokkurn hátt til- littil sjónarmiða og athugasemda stjórnar Sambands isl. sveitarfé- laga. Einblínt á lækkun fjárlaga. Útsvarshækkunin og fyrirætl- anir stjórnvalda um að hætta að taka þátt i byggingarkostnaði elliheimila sýnir að kastað er fyrir borð öllum markmiðum varðandi það félagslega átak, sem viða er eftir á þessu sviði. Allt er lagt i sölurnar til þess að lækka niðurstöðutölur fjárlaga- frumvarpsins og uppbyggingar- stefnan látin fyrir róða. I sjálfu sér er ekkert við það að athuga að sveitarfélögin taki að sér að sinna rekstri dagheimila og annist viðhald skólamann- virkja, svo eitthvað sé tekið, en þá þarf að koma á móti þeirri verk- efnaaukningu raunhæf tekjuöflun sveitarfélaganna, og nákvæma athugun á þvi hvernig þessar breytingar koma níður á hinum ýmsu stærðarflokkum sveitarfé- laga. Hvorugt er fyrir hendi. Bráöræöi stjórnarinnar kemurójafntniður Ákvarðanir stjórnvalda koma harðast niður á smæstu sveitarfé- lögunum, og er þetta enn eitt dæmið um hvernig komið er fyrir byggðastefnunni. Sveitarfélögunum verður nú uppalagt að annast viðhald skóla- mannvirkja og það snertir þau vitaskuld öll en kemur verst við þau smæstu, sem verða að annast viðhald á heimavistum vegna grunnskóla. Til þess að gera sér grein fyrir þvi hve mikilsverður styrkurinn til dagheimila er fyrir rekstur þeirra, er vert að geta þess, að menntamálaráðherra gerði sjálf- ur ráð fyrir þvi að óbreyttu, að 187 miljónum króna yrði varið í þvi skyni á næsta ári. I rauninni er þessi rekstrarstyrkur aðeins mið- aður við þau dagheimili sem rek- in eru idag. Þörfin er miklu meiri þvi ráðgert er að um 27 dagheim- ili taki til starfa á næstu fjórum árum. 1 stað þess að skera niður þarf þvi aðmargfalda styrkinn og það lendir á sveitarfélögunum. Ákvörðunin um að hætta að taka þátt i byggingarkostnaði elliheimila kemur ákaflega mis- jafnt niður. Viða er mikið félags- Nú geta allir eignast Glæsilegt kassettu útvarpstæki frá Radionette. KURER Cassette tækin eru með langbylgiu. miðbylgju og FM bylgju. Sjálfvirk upptaka. Innbyggður hljóðnemi. Teljari. Tækin eru langdræg og fyrir rafhlöður og 220 volt. Verð frá kr. 47.925.— Útborgun kr. 10.000.— síðan 5.0Ö0.— á mánuði. EjNAR FARESTVEIT & CO. HF. BergstaSastræti 10 A Sími 16995. legt átak óunnið á þessu sviði i byggðum landsins. Margt óljóstenn í tilhögunum um breytta verka- skipan er ráð fyrir þvi gert að sveitarfélögin taki meiri þátt i kostnaði við rekstur bókasafna. Til þess kemur 20 miljóna fram- lag úr Jöfnúnarsjóði sveitarfé- laga, og samkvæmt höfðatölu- reglunni fáum við hér i Neskaup- stað 140 þúsund kr. i okkar hlut. A sama tima er menntamálaráð- herra að leggja til að sveitafélög leggi fram 1300 kr. á ibúa i stað 1000 kr. áður til bókasafna, sem þýðir 501 þúsund kr. hækkun fyrir okkur, þannig að okkar framlag vegna bókasafna er fjórfaldað. Nú, varðandi aðra liði þarf ekki að hafa mörg orð. Fræðsluskrif- stofum landshlutasamtakanna hefur enn ekki verið markaður neinn ákveðinn tekjustofn, en ráðgert var að riki og sveitarfélög bæru kostnaðinn sameiginlega. Allt er þvi óljóst um þetta atriði enn, þótt skrifstofur séu teknar til starfa i a.m.k. þremur landshlut- um. Það er þvi augljóst að spurn- ingin um verkaskiptingu rikis og sveitarfélaga hefði þurft miklu nánari skoðunar við. Framkvæmdasemi og góðri þjónustu refsað Tillögur stjórnarinnar um verkefnaskiptingu koma i. heild þolanlega út fyrir stærri sveit- arfélögin, að óbreyttum úthlutun- arreglum Jöfnunarsjóðs sveitafé- laga. En tökum dæmi af minni sveitafélögum: Að óbreyttu kerfi hefðum við á Neskaupstað fengið 5,2 miljónir i aukningu frá rikinu, en fáum úr Jöfnunarsjóði að ó- breyttum reglum 3,4 miljóna króna aukningu. Okkar elli- heimilismál eru ekki sérlega fjár- frek eins og stendur, en Borgar- nes, sem stendur i elliheimilis- framkvæmdum, hefði að óbreyttu fengið 7,2 miljónir en fær liklega ekki nema 2,7 miljónir. Húsavik fær nokkurn veginn það sama og fengist hefði að óbreyttu eða 4,5 miljónir króna, en það byggist á þvi að bæjarfélagið þar stendur ekki i ströngu með elliheimili. Ólafsvik fær 2,3 miljónir en hefði að óbreyttu fengið fjórar. Asa-, Holta- og Landhreppur, með 700 ibúa, stendur i byggingu elliheimilis, og hefði að óbreyttu fengið 5,3 miljónir króna en fær 1,4. Þetta er ákaflega alvarlegt mál. Það er verið að refsa þeim sem lagt hafa i félagslegar fram- kvæmdir, flestar bráðnauðsýn- legar, og þeim sem hafa lagt sig fram um að veita góða þjónustu. Á Neskaupstað höfum við t.d. fullnægt þvi sem næst þörfinni fyrir pláss á dagheimilum, lik- lega eini staðurinn á landinu, og nú er okkur refsað með þvi að svipta okkur styrk til reksturs þessara nauðsynlegu stofnana, sem eru forsenda þess að hægt sé að nýta allt það vinnuafl, sem hér er fyrir hendi. Meðferðarheimilið Kleifarvegi 15 óskar að ráða uppeldisfulltrúa til starfa frá 1. jan nk. Æskileg menntun: Kennara- próf, stúdentspróf eða sambærileg mennt- un, ásamt starfsreynslu. Unnið er á vöktum. Laun skv. 5. launaflokki borgar- starfsmanna (14. launaflokkur rikis- starfsmanna). Upplýsingar veittar i sima 82615 á skrifstofutima. _ ttt * ívSÍtóxsnBÚWfe ©prnillp > -nxv. Döntku lelrvöpurnar I úpvall Magnús E. Baldvínsson Laugavegi 8 — Sími 22804.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.