Þjóðviljinn - 20.12.1975, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. desember 1975.
SKAMMTUR
AF SÖNGVOPNI
í þeirri mannkynssögu, sem íslensk börn \
for- og framhaldsskólum bera gæfu til að fá
að nema, er öðru fremur fjallað um afreks-
menn sögunnar, þá menn sem með mestum
glæsibrag hafa borið merki mannsandans
svokallaða.
Þeir sem hæst eru skrifaðir í fræðum þess-
um, eru oft sérfræðingar í herstjórnarlist,
menn sem með snilli sinni finna upp nýjar
leiðir til að drepa f leira fólk á styttri tíma, án
þess að vera sjálf ir drepnir af andskotum sín-
um.
Áberandi nöfn í sögunni eru Gengiskan,
Hannibal, Filipus Alexander, Sesar, Napóleon
og Nelson, svo nokkrir séu nefndir.
Islendingar hafa lítið gefið sig að her-
stjórnarlist (strategi), enda er það ekki fyrr
en á síðustu árum að raunveruleg þörf er á
sérfræðingum í þeirri listgrein, eða með til-
komu þéirra styrjalda sem við höf um þurft að
heyja við breska heimsveldið.
Þeir sem tvímæl.alaust hafa af mestri ein-
lægni helgað sig herstjórnarlistum og vísind-
um eru þeir pétrarnir Sigurðsson og Guðjóns-
son, en kenningar þeirra í þessum efnum eru
að mestu leyti byggðar á reynslu annarra í
bardagaaðferðum og þess vegna hætt við að
þær séu úreltar orðnar.
I Morgunblaðinu s.l. miðvikudag kveður sér
hins vegar hl jóðs nýr herstjórnarsérf ræðingur
með nýjar kenningar um það hvernig ganga
megi milli bols og höf uðs á höf uðf jendum vor-
um bretum, eða öllu heldur hrekja þá úr ís-
lenskri landhelgi. Sérfræðingurinn er Anna
Þórhallsdóttir, og kenningar hennar um það
hvernig sigra megi óvininn settar f ram í hnot-
skurn í fimm liðum. Kenningar önnu eru það
athyglisverðar að sjálfsagt þykir að birta
megininnihald þeirra orðrétt. Framarlega í
grein hennar er skilgreining á bretum al-
mennt:
„Sagt hefur verið að Bretar séu í heild ein
siðaðasta þjóð heimsins, að undanskildu sið-
leysi í landvinningum, sem einu sinni var," og
síðar: „Framámenn í þjóðmálum tvístíga og
spyrja sjálfa sig hvað gera skal. Sem kven-
maður í íslenzka ríkinu vildi ég mega segja
hug minn.
1. GANGIÐ EKKI ÚR ATLANDSHAFS-
BANDALAGINU.
2. Kallið ekki sendiherra Islands heim frá
London.
3. Setjið ekki viðskiptabann á Bretland.
4. Látið amerísku Keflavíkurf lugvallarstarf-
semina haldast óbreytta.
5. Fáið kvenfólk í lið með ykkur."
Og nú kemur hinn nýi herstjórnarfræðingur
íslendinga að því sem hún kallar „merg máls-
ins" og þá gefum við henni orðið:
„Þeir kvenmenn sem þora að taka að sér
landhelgisgæzlu með íslenskum sjó
mönnum þurfa að verka myndatöku
konur og geta ritað um það sem fyrir
augu ber. Það sakar ekki að þær séu söngkon-
ur. Söngurinn hef ur í sér hulinn kraft. Gott ráð
er að ein kona, að minnsta kosti sé höfð á
hverju varðskipi. Brezkir sjentlemenn skjóta
ekki á skip þar sem þeir vita að konur eru
innanborðs, enda ef þeir skerða eitt hár á
höfði þeirra munu stallsystur þeirra í öðrum
vestrænum löndum koma til hjálpar. Konur
hafa oft næmt auga fyrir óréttlæti. Þær sjá að
ekki má eyðileggja fiskimið okkar eða leggja
atvinnuveg okkar í rúst. Þær konur sem tala
ensku og geta úti á miðunum talað um fyrir
brezku sjómönnunum og hraðlygnum blaða-
mönnum, ættu að bjóða sig fram til starfsins,
séu þær áðurnefndum kostum búnar."
Og niðurlag greinarinnar er svohljóðandi:
„Ég bíð eftir því að vera ræst af réttum aðil-
unv."
Þessar kenningar um það hvernig hugsan-
legt sé að gersigra flota hennar hátignar á (s-
landsmiðum eru svo stórmerkar að það hlýtur
að vera skýlaus krafa alls þess sem lífsanda
dregur á fslandi að þær verði haf ðar að leiðar-
Ijösi í þorskastríðinu. Ekki er á því vafi að ís-
lenskar söngkonur geta með list sinni stökkt
heilum herfylkjum og flotadeildum á flótta,
og er ekki að vita hvort sá, sem einu sinni hef-
ur orðið fyrir þeirri reynslu að hlýða á slíka
hljómlist og er henni ekki vanur ber nokkurn
tímann sitt barr eftir slíkt áíall. Kæmi þá að
sjálfsögðu mjög til álita að banna íslenskum
sörigkonum aðsyngja í styrjöldum, líkt og gert
var með eiturgasið forðum. Sama er uppi á
téningnum hvað söngvopnið áhrærir. Hætt er
við að ógn og skelf ing gripi um sig í liði beggja
við íslenskanj.sópransöng, einkum ef leikið
væri undir á langspil, og er þá verr sungið en
heima þagað.
Þógæti íslenski flotinn ef til vill notfært sér
reynslu Odiseifs forðum og tekið eyrnatappa
í sína þjónustu (tvo fyrir hvern sjóliða, eða
m.ö.o. einn fyrir hvert eyra á hverjum
rrianni). Þá væri ekki úr vegi að njörfa Pétur
Sigurðsson við mastrið á Óðni, Þór eða Tý eins
og Odiseifur lét háseta sína gera við sig forð-
um þegar siglt var f ram hjá eyju hinna syngj-
andi sýrenna. Bráðnauðsynlegt er að einn
dómbær sérfræðingur í herstjórnarlist geti
orðið vitni að gereyðingarmætti íslenskrar
sönglistar, þegar réttu söngkonurnar eru í
fremstu víglínu.
I síðasta þorskastríði var söngvopninu að-
eins beitt einu sinni, en það var þegar bretar
mönnuðu fallbyssur sínar og Meybjörg Svein-
vant óperusöngkona var fengin til að beita
söngvopninu með þeim afleiðingum að floti
hennar hátignar leystist upp og lagði á flótta.
Eftir þennari atburð orti Meybjörg þessa
kunnu vísu:
Ég er mikið þarfaþing
þegar ég beiti röddu minni.
Fyrir breta syng og syng,
syng þá útúr landhelginni.
Flosi.
Frá aðalfundi Félags ísl. leikara:
Gísli Alfreðsson
kosinn f ormaður
Aðalfundur Félags isl. leikara
var haldinn þann 1. desember sl. i
Þjóðleikhiískjallaranum. Nær 80
Gisli Alfreös
félagsmenn voru mættir á fundin-
um, en félagar munu nd alls rösk-
lega 150. Félag isl. leikara er nú
eitt fjölmennasta bandalagsfé-
lagiö innan Bandalags isl. lista-
manna.
Jón Sigurbjörnsson hefur gegnt
störfum formanns meiri hluta
ársins, en hann tók við þvl starfi
af Klemenzi Jónssyni, sem lét af
störfum formanns um leið og
hann var ráðinn leiklistarstjóri
hjá Útvarpinu.
Það kom fram i skýrslu fram-
kvæmdastjóra, að þetta hefur
verið mjög annasamt ár hjá
stjórn félagsins. Haldnir voru
rösklega 40 stjórnarfundir á árinu
og álika margir fundir um samn-
inga- og kjaramál. Alls voru
Siguröur, Bessi,
haldnir þrir félagsfundir á árinu.
öllum samningum félagsins við
leikhús höfuðborgarinnar hefur
veriðsagt upp frá og með 1. janú-
ar nk. að telja. Ennfremur hefur
samningum við Sjónvarpið verið
sagt upp.
Tvö rit um félagsmálin voru
gefin út og send til félaganna á
árinu. Lengd þeirra er rösklega
50 vélritaðar siður og er í þeim
margskonar upplýsingar og fróð-
leikur um kjara- og samninga-
mál, er varðar félagana.
Fundur var haldinn hér á landi i
Norðurlandaleikararáðinu 29. og
30. ágúst sl. Tiu fulltrúar mættu á
fundinum frá leikarasamböndun-
Helgi Briet.
um á Norðurlöndum. A fundinum
var rætt um sameiginleg menn-
ingar- og kjaramál norrænna
leikara. Fundir þessir eru að
Framhald á 26. siðu
Nú fer hver aö veröa siöastur aö sjá jólaleikrit Leikbrúöulands aö
Frikirkjuvegi 11. Siöustu sýningar veröa nú um helgina i dag kl. 3 og 5
og á morgun kl. 3 og 5. Miðasalan á Frikirkjuvegi 11 er opin frá kl. 2 þá
daga, sem svningar eru, og svarað er I sima 15937 I eina klukkustund
fyrir hverja sýningu.
Þessi mynd er úr leikritinu, sem heitir „Jólasveinar einn og átta”.