Þjóðviljinn - 20.12.1975, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. desember 1975.
ÁRNI BERGMANN
SKRIFAR
QQDDtl IÍ)(°)Lt
Rússneskt hamsleysi
Maxim Gorki: Kynlegir kvist-
ir. Þættir úr dagbók minni.
Kjartan ólafsson þvddi úr
rússnesku. Mál og menning
1975.
Maxim Gorki flæktist viöa um
Rússland og átti trúnað ótal
manna. Ekki sist þeirra sem
stóðu utan við hversdagslega
meðalhegðun, höfðu ekki látið
nauðlifsbaráttunnar smækka sig,
hella úr sér sálinni. Þetta fólk —
fylliraftar, betlarar, hórur, sjá-
endur, miljónamæringar, fyrr-
verandi menntamenn, morðingj-
ar, varð Gorki mikill efniviður i
stærri og smærri sögur, það fyllir
ævisöguverk hans. Og það eru
minnisgreinar um þetta fólk sem
eru uppistaðan i þáttasafni þvi
sem Kjartan Ólafsson hefur þýtt.
Dostoévski og Gorki lögðu sig
öðrum höfundum meir eftir hin-
um hrikalegu öfgum rússnesks
mannlifs. Munurinn er hinsvegar
sá, að Dostoéfski er a.m.k. á
stundum sleginn siðferðilegum
ótta við öfgar þessar. Gorki hefur
siður fyrirvara á að hrifast með.
Hann lýsir svo samtali sinu við
kynduga fréttakonu við blað úti á
landi sem gerir tilkall til að vera
holdtekja Mariu Magdalenu og
Eilifrar Visku. „Stig af stigi hvarf
allt hversdagslegt i fari þessarar
manneskju, varð ósýnilegt. Og ég
minnist þess glöggt með hvilikum
fögnuði, stolti og undrun ég sá,
hvernig eldur hugsana um illsku
lifsins, um andstæður holds og
anda, reis og braust fram undan
grárri ytri skurn, hve sannfær-
andi og örugg hljómuðu forn orð,
leitandi hinnar fullkomnu visku,
hins óhagganlega sannleika”.
Það var þessi stolti fögnuður sem
best dugði Gorki sem höfundi: i
hans krafti festi hann i skilnings-
riku minni sæg tilbrigða við þann
privatsannleika, sem hver og
einn reynir að koma sér upp. Eins
þótt þessi privatsannleikur sé
jafn fáránlegur og þessi hér:
„Likami manna er byggður
sem vikur eða svampur, eða
brauð. Hann er æðóttur, skiljið
þið? Og i öllum æðum hans renn-
ur blóð. Blóð er vökvi, þar fljóta
miljónir agna, ósýnilegar mann-
legu auga, en þessar agnir eru lif-
andi, lfkt og mýflugur, aðeins
minni en mýflugur... En i þessum
ögnum leika sér djöflar”.
Hér veröur ekki um það fjallað,
hvort skynsamlegra hefði veriö
að ráðast i eitthvað annað eftir
Gorki. Um þýðingu Kjartans
Ólafssonar er það að segja, að
hún ber þvi vitni að þýðarinn vilji
vanda sig sem best og beita riku-
legum orðaforða. og oft tekst hon-
um að skapa seiðsterkt andrúms-
loft. Vandinn er hinsvegar sá, að i
nákvæmnisviðleitni sinni verður
hann of háður frumtextanum, og
verður þetta á kostnað skýrleika
og aðgengileika. Málblærinn
verður of annarlegur. Einkum á
þetta við um ýmislegt i beinni
ræðu. Það skal viðurkennt að tal
persónanna er slitrótt og margt
þar um hálfkveðnar visur og
merkingu orðanna er kannski
ekki komin fram fyrr en þau eru
borin fram upphátt. Auðvelt er
viðfangsefnið ekki. Þvi miður hefi
ég ekki frumtextann við höndina.
en mig grunar af ýmsum likum
að misskilningur á texta fari á
kreik öðru hvoru. Litið dæmi.
Talað er um Bakú og sagt „einnig
borg, andskotinn sliti hana i
þunna þvengi”. Orðin „einnig
borg” eru liklega orðrétt þýðing,
en það sem átt er við er „Það var
þá borg” eða eitthvað i þesshátt-
ar tón. A.B
Maxim Gorki
RÁÐSTEFNUR
FUNDIR NÁMSKEIÐ
íburtu frá bæjarstreitu
Hin vinsælu EDDU HÓTEL verða
opin frá miðjum júní til
loka ágústmánaðar.
Hótelin bjóða góða aðstöðu
til hvers konar einkasamkvæma,
funda- og ráðstefnuhalds í
þægilegu umhverfi.
Vinsamlega pantið með góðum
fyrirvara.
Allar frekari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu okkar að
Reykjanesbraut 6, sími 11540.
rournsT
i____________
FERÐASKRIFSTOFA
RtKISINS
MANSONGUR
Nýkomin er út ljóðabók
„Mansöngur” eftir Hannes
Þórðarson, er var kennari við
Austurbæ jarskóla nn- i
Reykjavik i mörg ár.
Svo sem nafn bókarinnar gef-
ur til kynna, eru flest ljóð henn-
ar og visur ortar til kvenna. öll
bera kvæði þessi þvi vitni, að
höfundur ann fegurð lifsins,
hvort heldur hún birtist honum i
mynd konu eða fagurri náttúru
Islands.
Þeir sem unna hefðbundnu
ljóðformi, lesa ljóðin i þessari
bók sér til ánægju og gleði. Gott
dæmi um kvæði bókarinnar er
ljóðið:
Dóttir dalsins
Sogandi brim og boðar
bera þér lifsins óð,
kröfu, að komir þegar,
kona, á fjöldans slóð.
Dalinn þú ávallt dáir,
dreypir hans veigum á.
Mótar hann vit þitt, vilja,
vænleik og ástarþrá.
Ástin er ijúfa iindin
leitandi fram um grund,
brosandi rós á bala
bjartri við morgunstund,
fossandi fjallalækur
freyðandi yfir stein,
angandi blöð á birki,
bylgjandi akurrein.
Hannes Þórðarson.
Báran við sandinn suðar,
svifur aö vitum mér
seltu og svarðar ilmur,
svo er ég einn hjá þér.
Astinni engin gleymir,
ástin er blóm á teig.
Astin er daggar dropinn,
draumanna tærust veig.
Sigrún Geirsdóttir.
P”
w
, HUSEIGENDUR,
þ HÚSBYGGJENDUR
I # Hverskonar rafverktakaþjónusta.
Nýlagnir
# Viðgerðir á gömlum lögnum — setjum
upp lekarofavörn i eldri hús.
RAFAFL
Vinnufélag
■rafiðnaðar-
manna
Barmahlíö 4
s fsa
Dyrasimauppsctning.
Kynnið ykkur afsláttarkjör Rafafls svf.-
sérstakur simatimi milli kl. 1-3 daglega.