Þjóðviljinn - 20.12.1975, Qupperneq 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. desember 1975.
ári
Ragnar
Sigurðsson,
hafnarstjóri,
og fram-
kvæmdastjóri
samstarfs-
nefndar um
uppbygginguna
Frá athafnasvæöi Sildarvinnslunnar á Neskaupstaö.
Hafnargerðinni
lokið fyrir jól
// Haf narf ramkvæmdun-
um hér á Neskaupstað er
því sem næst lokið. Það
hafa verið grafnir út um
200 þúsund rúmmetrar af
efni hér í botni fjarðarins/
allt á þurru eins og kunn-
ugt er. Eftir er að rjúfa
garðinn sem byggður var
til þess að gera þurrkvína.
Það klárast væntanlega al-
veg fyrir jólin."
Þetta sagöi Ragnar Sigurösson,
hafnarstjóri, er Þjóðviljinn ræddi
við hann i gær.
„Uppgröfturinn hefur allur far-
ið i undirstöður og uppfyllingu
fyrir sildarbræðsluna og fyrir-
hugaða oliustöð oliufélaganna.
Esso, BP, og Shell hafa samein-
ast um að koma upp einni birgða-
stöð hér i firðinum. Svartoliu-
geymirinn er kominn upp og búiö
að fylla á hann i fyrsta sinn. Þá
hefur veriö fluttur þangað geymir
sem Oliuverslunin á og svo koma
hin félögin væntanlega á eftir
með timanum.”
,,A nýja hafnarsvæöinu hefur
verið rekið niður stálþil, sem gef-
ur rúmlega 100 metra langan við-
legukant.
Stóru fiskiskipin fá þarna legu-
pláss i vetur auk þess sem kant-
urinn verður notaöur til annarra
athafna. Siöar verður svo steypt
þekja á bryggjuna. Sildarbræðsl-
an tekur nú upp bryggjuna, sem
áður var notuð sem viðlegupláss
fyrir fiskiskipin og þar verður
löndun og útskipun á loðnu. Tog-
ararnir munu væntanlega landa
áfram á gamla staðnum.
Þær hafnarframkvæmdir sem
hér hafa verið gerðar i sumar og
vetur eru aðeins upphafið, þvi
þetta er byrjunin á framtiöarhöfn
norðfirðinga.
Við hafnargerðina hafa fyrst og
fremst verið notaðar stórvirkar
vélar og tæki. Allir vörubifreiða-
stjórar bæjarins hafa verið i
þessu verki, allar þungavinnuvél-
ar i bænum, auk tveggja afkasta-
mikilla moksturstækja að sunn-
an.
Ragnar Sigurðsson er einnig
framkvæmdastjóri uppbygg-
ingarnefndarinnar, sem skipuð
var eftir snjóflóðin. Hana skipa
fjórir tilnefndir af bæjarstjórn:
Logi Kristjánsson, bæjarstjóri,
formaður, Reynir Zoega, Jóhann
K. Sigurðsson og Haukur ólafs-
son. Frá Sildarvinnslunni ólafur
Gunnarsson og Jóhannes Stefáns-
son, frá Steypustöðinni Gylfi
Gunnarsson, frá Bifreiðaþjónust-
unni Eiríkur Asmundsson og frá
verkalýðsfélaginu Sigfinnur
Karlsson.
Þjóðviljinn spurði Ragnar einn-
ig að mati hans á uppbyggingar-
starfinu.
— Þetta ár hefur fyrst og
fremst verið notað tii endurreisn-
ar. Tekist hefur að bæta verulega
Ragnar Sigurösson
fyrir það sem skemmdist, þótt
aldrei verði mannslifin bætt.
Um höfnina og sildarvinnsluna
fjölyrði ég ekki, en stærstu fyrir-
tækin önnur, Steypusalan og Bif-
reiðaþjónustan, hafa einnig stað-
ið við sitt. Bifreiðaþjónustan hélt
áfram starfsemi sinni i bráða-
birgöahúsnæði snemma á árinu,
og er nú að leggja grunn að nýju
húsi.. Steypustöðin hefur endur-
nýjað tækjakost sinn og gat i
sumar annað allri steypuþörf i
bænum.
— Ég tel að uppbyggingin hafi
gengið vel og vil gjarnan koma á
framfæri þakklæti til allra sem
hafa stutt okkur. Tiðarfarið hefur
Uppbygg-
ingin hefur
gengiö
vonum
framar
verið mjög gott það sem af er
vetri með fáeinum undantekning-
um og engin verk hafa tafist
vegna veðurs frá þvi að heim-
skautaveðrinu slotaði i endaðan
janúar i fyrravetur.
— Það fór betur en á horföist
með atvinnuna. Eftir snjóflóðin
óttuðust menn atvinnuleysi fram-
aröllu öðru. Niðursuðan og frysti
húsið fóru þó fljótlega i gang á ný
og mikil vinna skapaðist við
hreinsunina. Allt uppbyggingar-
starfið hefur skapað mikla at-
vinnu og þvi hefur aldrei komið til
atvinnuskorts þennan tima.
Frekar má segja að töluverð
þensla hafi verið um tima á
vinnumarkaðnum og eftirspurnin
eftir vinnuafli meiri en framboð-
ið. Og svo hefur verðbólgan gert
okkur erfiðara fyrir þannig að
kostnaður við uppbygginguna
hefur farið fram úr áætlunum.
Svartoliutankurinn á uppfyllingunni er þegar kominn I gagniö og þarna mun sameiginleg ollustöö ollu- Jarövegur sem ekiö hefur veriö úr höfninni, hefur veriö notaöur i
félaganna risa. uppfyllingu fyrir slldarvinnsluna og I vegi.