Þjóðviljinn - 09.07.1978, Qupperneq 24
DJOÐVIUINN
Sunnudagur 9. júli 1978
A&alsfmi bjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mðnudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tlma er hxgt aö ná I blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, Otbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
L 81333
Einnig skal bent á heima-
slma starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-
skrá.
Viötal viö
r m
Olaf Jónsson
fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins
í Húsnœöis-
múlastjórn
Lán tíl kaupa
eldri íbúöa
frestast
Skömmu fyrir borgar-
stjórnarkosningar sendi
félagsmálaráðherra
Gunnar Thoroddsen frá
sér fréttatilkynningu þar
sem hann beindi þeim til-
mælum fil stjórnar Hús-
næðismálastofnunar ríkis-
ins að lán fil kaupa á eldra
húsnæði hækkaði úr einni
miljón króna sem hámark í
1,8 miljón kr. Síðan hefur
ekkert gerst í málinu,
nema æ fleiri hafa keypt
enn
lán: til kaupa á notuöum ibúöum
eftir þvi sem f jármagn hefur ver-
ið fyrir hendi. Húsnæöismála-
stjórn er umráöaaðili Bygg-
ingasjóðs rikisins, sem er sterk-
asti fasteignalánasjóður þjóðar-
innar, og þar hafa menn verið
sammála um að loforð og skuld-
bindingar sjóðsins verði alltaf aö
vera raunhæfar. Það hefur all
lengi verið i lögum heimild til að
hækka G-lánin til kaupa á eldri
ibúðum, þannig að þau væru
helmingur af láni til nýbygginga.
Þvi þurfti enga orðsendingu frá
Gunnari Thoroddsen til að hækka
G-lánin. En til þess að hækka G-
eldri íbúðir og gælt við að
fá 1,8 miljón króna lán upp
í kaupin. Þetta fólk, sem
treysti á loforð Gunnars
þarf nú að velta skulda-
byrðinni á undan sér.
Þjóðviljinn spurðist fyrir um
máliö hjá fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins i húsnæðismálastjórn,
Ólafi Jónssyni. Ólafur sagöi:
Húsnæðismálastjórn hefur
ekki enn afgreitt formlega þessa
orðsendingu Gunnars Thorodd-
sen, enda fundu fulltrúarnir að
aðeins var um kosningamál að
ræða hjá félagsmálaráðherra.
Undanfarið hefur Húsnæðismála-
stjórn stööugt veriö að hækka
— Gunnar
Thoroddsen
áhugalaus
um húsnœðis-
mál
— Bygging
verkamanna-
bústaða að
leggjast niður
lánin sem skyldi hefur ekki verið
til fjármagn I Byggingasjóöi
rikisins.
Þess má einnig geta að Hús-
næðismálastofnunin samþykkti á
sl. vetri aö koma á viðræðum við
fulltrúa frá Reykjavikurborg og
Sambandi isl. sveitarfélaga um
leiðir til að taka upp nýjan lána-
flokk með samvinnu viö sveitar-
félögin til endurbyggingar gömlu
bæjarhverfanna. Þá höfum við I
huga að nýta þau verðmæti er i
hverfunum liggja þ.á.m. skóla og
aörar opinberar stofnanir betur.
Það er augljós sú hagkvæmni
sem i þvi felst að hverfa frá þeirri
þróun að fólk yfirgefi gömlu
hverfin og svefnbæir myndist
Tókíó dýrasta borgin
Bandarisk könnun bendir til
þess aö Toklo sé dýrasta borg
heimsins aö dvelja I.
Könnun þessi er miðuð við
verölag i dollurum og setur dval-
arkostnað I New York i 100 stig.
Tokio hefur þá visitöluna 156.6,
önnur japönsk borg, Osaka er
með 145.1 stig, þriöja er ZUrich í
Sviss meö 139.8 stig, þá kemur
önnur svissnesk borg, Genf, meö
139.1 stig. Stokkhólmur hefur
venjulega verið dýrasta borg
Evrópu,en er nú hin fimmta meö
121 stig.
Osló er með 120 stig, Kaup-
mannahöfn með 115.6 Paris er
með 110. Af borgum sem eru
ódýrari en New York má nefna
London meö 92.4, stig, Róm meö
87.2 og Moskvu meö 82.2.Buenos
Aires eródýrust þeirra stórborga
sem könnunin nær til með 54.4
stig.
Nýta veröur betur eldri bæjarhverfi, en draga úr útþenslu svefnbsja
,.
,;v.. 1 :**&*■ --- í. VI "5;"? i: í
« « « « a J
umhverfis Reykjavik og stærri
bæi er siðan kalla á samgönguæð-
ar og opinberar stofnanir. Þessi
samþykkt húsnæöismálastjérnar
hefur fengiö daufar undirtek'.ir og
litið orðið úr viðræðum og hefur
það valdið mér vonbrigðum,
sagði Ólafur Jónsson.
En var fráfarandi félagsmála-
ráöherra Gunnar Thoroddsen
eins áhugasamur um húsnæöis-
mál og kosningaboöskapur hans
ber með sér?
— Nei, þetta var sýndar-
mennska rétt fyrir kosningar.
Astæða er til að minnast á annan
þátt, sem gjörsamlega hefur ver-
ið vanræktur i ráðherratið Gunn-
ars Thoroddsen, en það er bygg-
ing verkamannabústaða. Svo á að
heita að lög um þessi efni hafi
verið i endurskoðun, reyndar allt
sl. kjörtimabil. Sú endurskoðun
hefur ekkert þokast áfram og
virðist Gunnar Thoroddsen gjör-
samlega áhugalaus um það efni.
Þrátt fyrir itrekuö loforö og yfir-
lýsingar m.a. gagnvart verka-
lýöshreyfingunni við samninga-
gerð, er nú svo komið að bygging
verkamannabústaða er gjörsam-
lega að Ieggjast niður. Aöeins þrir
kaupstaöir hófu slikar byggingar
á sl. ári. Gunnar Thoroddsen hef-
ur verið gjörsamlega áhugalaus
um málefni þeirra sem þurfa þak
yfir höfuðið. Það sýnir ástandiö
varðandi verkamannabústaðina
og sýndarmennska hans varðandi
G-lánin.
—óre
ERTÞÚ
VATNSBERI?
Eöa notar þú ferska vatnið í krananum heima?
Hvers vegna ]jykkni?
Floridana appelsínuþykknið losar þig við
allan óþarfa vatnsburð og sparar þér
geymslupláss.
Þú blandar þvífersku vatninu í
þykknið þegar þér hentar. Útkoman úr 1/4
lítra af þykkni verður 1 lítri af ódýrari,
hreinum og svalandi C-vítamínríkum
appelsínusafa.
Floridana appelsínuþykknið er G-vara
sem tryggir fersk bragðgœði og varðveislu
C-vítamínsins mánuðum saman.
ENGUM SYKRI, JLIT EÐA ROTVARNAR-
EFNUM ER BÆ'TT í FLORIDANA.
MJÓLKURSAMSALAN í REYKJA VÍK
Þú gerir létt og hagkvæm iimkaup til langs
tíma með FLORIDANA þykkni!