Þjóðviljinn - 08.10.1978, Síða 7

Þjóðviljinn - 08.10.1978, Síða 7
 Skipulag — Þú telur sem sé aö atvinnu- greinarnar hafi stoð hver af annari? — Það er reglan en hitt er undantekning að ein atvinnugrein grafi undan annari. Það er oft talað um samkeppni atvinnu- greina um vinnuafl og ekki þarf hún að öllu leyti að vera af hinu vonda. Að hinu þarf þó að gæta að undirstöðuatvinnuvegirnir búi við sambærilegar aðstæður, bæði um fjármagnskjör og fyrirgreiðslu stofnsjóða, afurðalán og annað af þvi tagi, en einnig aðstöðu til að búa sómasamlega að sinu starfs- fólki. Við þurfum og á þvi að halda að þessar atvinnugreinar, sjávarútvegur, landbúnaður og iðnaður styðji hver aðra, vaxi nánast sem tré upp af sömu rót og tryggi æskilega fjölbreytni sem mikil þörf er á úti um allt land. f okkar svokölluðu byggða- stefnu vantar ekki sist það» að hlúa að lifvænlegum iðnaði úti i landshlutunum, en þar þarf að koma til svæðisbundin verka- skipting sem komi i veg fyrir aö hver troði skóinn niður af öðrum og ,,hlaupi i það sama” eins og alloft hefur viljað brenna við á undanförnum árum. Nauðsynleg forsenda iðnvæðingar i anda skynsamlegrar byggðastefnu er örugg dreifing orku á sambæri- legu verði um allt land. Þvi hefur mjög verið haldið á lofti að iðnaðurinn þurfi að taka við auknum mannafla umfram aðrar atvinnugreinar á næstu árum, og eflaust er það rétt að vissu marki. Þó held ég að lita þurfi á iðnaðinn i fullri breidd i þvi samhengi og undanskilja ekki úrvinnslu sjávaráfurða sem kálla mun á fleiri hendur en nú er, ef rétt er á málum haldið. Við verðum að sjá til þess að sá iðnaður sem hér verður hlúð að á næstunni, ma. með opinberum aðgerðum, geti tryggt þeim sem við hann vinna viðunandi kjör, einnig við hliðina á blómstrandi sjávarútvegi. Orkan — Af mörgum hefur verið bent á orkufrekan iðnað sem liklega auðsuppsprettu fyrir Islendinga á næstu áratugum. Hvað er að segja um það? — Ég vil ekki útiloka orkufrek- an iðnað og þar með slika hag- nýtingu innlendra orkulinda i ein- hverjum mæli, en það verður að vera með skýrum fyrirvara um, að við höfum hliðstæð tök á þeim atvinnurekstri og á hefðbundnum atvinnuvegum landsmanna. Auðvitað hljótum við að draga að þekkingu erlendis frá i sambandi við þá þróun, ekki siður en i öðrum atvinnugreinum. Við eigum eftir að hagnýta orkulindir okkar i mun rikari mæli en nú er til stuðnings hinum hefðbundnu atvinnugreinumog iðnaði sem byggir á innlendum hráefnum. Það er orkufrekur iðn- aður af sliku tagi sem ég tel að hljóti að hafa forgang, jafnframt þvi sem við vinnum að þvi að verða sjálfum okkur nóg um orkugjafa. Það vegur nú að heita má.salt, sú orka sem flutt er til landsins i formi oliu og orkan sem fæst hér innanlands úr fallvötnum og jarð- hita, og er þá miðað við hráorku. Það er stórt verkefni að ná þvi marki að þjóðin verði sjálfri sér nóg á þessu sviði, einnig um elds- neyti, og slikt er þvi miður ekki enn i sjónmáli. Oti við sjónhring- inn sjþst þó möguleikar serr breytt gætu þessu dæmí, hvort sein um er að ræða metanol (tréspiritus) sem framieitt væri með raforku eða vetni sem unnið væri i krafti jarðvarma. Innlendir visinda- menn hafa að unanförnu vakið rækilega athygli á hugsanlegri þróun i þessa átt og ég tel að okkur beri að fylgjast þar vel með, svo mikið sem verið getur i húfi fyrir okkur i framtiðinni i þessum efnum. I heimi þar sem orka er að verða æ dýrari og knappari auðlind er gott að vera tslendingur, en við þurfum þá_ einnig að gæta þess að bjóða hana ekki fala hugsunarlitið þótt veifað sé erlendum gjaldmiðli og lofað gulli og grænum skogum i samfé- lagi fjölþjóðahringa. —h iM,' 'i'i.'vi’O vi.', . SuniiHdagur 8. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 italskur lögreglumaöur með birgðir af fölskum kasettum. Belgia; plötufalsarar hafa hent hluta af framleiðsiu sinni á öskuhauga á flótta. Sjóræningjar er gera út á tónlist Ekki alls fyrir löngu braust lög- regla inn i hús eitt i útjaðri itölsku borgarinnar Bergamo. Þar komu þeir að húseigandanum, Franco Galimberti, og fimmtán sam- starfsmönnum hans, sem voru önnum kafnir við að spila tónlist inn á ódýrar segulbandspólur. Þarna fundust miklar birgðir af svonefndri sjóræningjatóniist. Margskonar tæknilegar fram- farir i prentverki og hljóm- flutningsbúnaði hafa ýtt undir starfsemi af þessari tegund. Að- ferðirnar eru fremur einfaldar. Teknar eru ljósmyndir af kápu Pjetur & Úlfarnir „PLATAÐIR” Hó! Eddi, halló, þader O Pjetur og Ulfarnir ,,plataðir” Ný hljómplata er komin á markaðinn, mjóskifan „Pjetur og (Jlfarnir plataðir” og hefur aö geyma fjögur lög i flutningi þeirra Kristjáns V. Sigurmunds- sonar, Kjartans C. Ólafssonar (blaðamaður tekurenga ábyrgö á b-imurn). A plötuumslaginu segir að Pjetur og Úlfarnir hafi verið plataðir I Hljóðrita i júni 1978. Upptökumenn: Tony Cook og Garðar Hahsen. öll réttindi eru áskilin og útgefandi er Festi, Grindavik. Hér er örlítið sýnishorn af textagerð þeirra félaga: Neysluþjóðfélagsins þegnar þenja kviö og sperra stél vilja að allur heimur heyri hvað þeir prumpa listavel... Pjetur og Úlfarnir munu Vera fyrrverandi og núverandi nemendur MH, en eru allir við tónlistarnám og telja sig alvar- lega tónlistarmenn. Einn þeirra, Pétur Jónasson, er nýfarinn til Mexico I gitarnám. segulbandskasettu og nýjar kápur fjölfaldaðar eftir negativi. Tónlistin er spiluð af gæðaspólu yfir á ódýra spólu frá Hong Kong og siðan seld sem fyrsta flokks vara væri með göfugum firma- nöfnum á kasettunni. Það er nokkru flóknara aö falsa plötur, platan sem verið er aö stela er tekin upp á tónband, siðan þarf nokkra kunnáttu i efnafræði og meðferð rafeindatækja til að búa til nýtt mót sem plötur eru steypt- ar eftir. Plötuumslagið er falsað með svipuðum hætti og kápan á kasettunni sem fyrr segir. Tóngæðin eru mjög misjöfn á þessum sjóræningjaútgáfum af margskonar tónlist, en atvinnu- menn segja, að þjófarnir fari nú langt með að framleiða jafngóðar plötur og virt plötufirmu. Hagnaður af þessum sérkenni- lega ránskap er gifurlegur . Að visu verða sjóræningjarnir að bjóða vöru sina I verslanir á lægra verði en aðrir. En þeir borga enga skatta, þeir þurfa sáralitinn og ódýran útbúnað, og að sjálfsögðu borga þeir ekki grænan eyri höfundum tónlistar, texta né heldur flytjendum. Talið er að útgáfur af þessu tagi séu seldaná ári hverju i Vestur- Þýskalandi einu fyrir sem svarar 8,5 miljörðum króna. Mikið af varningnum verður til erlendis; til dæmis fannst ekki alls fyrir löngu leynileg verksmiðja I Belgiu sem hafði smyglað inn I Þýskaland tugum þúsunda af plötum. Oft kemur varningurinn frá ítaliu og er útbúinn með ágæt- um skilrikjum sem fullkomlega eðlilegur italskur iðnvarningur. 1 Bandarikjunum og viðar er taliö að á ári hverju sé sjóræningjatónlist seld fyrir sem svarar 34 miljörðum króna; I þvi landi er allt stórt i sniöum og þar hefur blóð runniö eftir slóðum tveggja hópa tónlistarþjófa sem tókst ekki að skipta með sér áhrifasvæöum. A ttaliu er talið að 60% af öllum spólum sem i gangi eru séu falsaðar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.