Þjóðviljinn - 08.10.1978, Blaðsíða 9
Sunnudagur 8. október 1978 ÞJÓDVILJINN SIÐA 9
Somoza — fjölskylda hans hefur
„átt” Nicaragua I meira en fjörtlu
ár.
Fyrir nokkrum dögum lauk til-
raun til að steypa einhverjum ill-
ræmdasta einræðisherra
Rómönsku Ameriku, Somoza, en
fjölskylda hans hefur stjórnað
Nicaragua eins og privateign i
meira en 40 ár. 7500 manna þjóð-
varðlið Somoza hefur gengið
fram af mikillihörku og þrátt fyr-
ir stranga fréttaritskoðun hafa
frá þessu snauða landi borist frá-
sagnir af víðtækum fjöldaaftök-
um ekki aðeins á þeim sem tóku
þátt i uppreisninni,heldur virðast
þrælvopnaðir liðsmenn Somoza
einnig hafa beitt geðþóttamorð-
um óspart til að skelfa fólk i þeim
plássum sem uppreisnarmenn
höfðu um tima á valdi sinu.
Víðtæk andstaða
Fréttaskýrendum ber saman
um að andstaðan gegn Somoza i
Nicaragua sé afar viðtæk. Til-
raunin til að koma einræðisherr-
anum á kaldan klaka fól i sér bæði
allsherjarverkfall, sem um tima
tókst svovelað 70-80% fyrirtækja
voru lokuð, og svo vopnaða bar-
áttu. Hinar viðtæku aðgerðir
byggðu á þvi, að skapast höfðu
tengslá milli róttækrar þjóðfrels-
ishreyfingar Sandinista svo-
nefndra og borgaralegra afla —
allt var betra en Somoza, eða eins
og franska blaöið Le Monde
kemstað orði: Það var ekki einu
sinni hægt að finna i landinu bis-
nessmann sem ekki vildi að ein-
ræðisherrann færi frá.
Hlédrægni Carters
Við þessar aðstæður beindist
athygli manna eðlilega mjög að
bandariskum stjórnvöldum. Full-
trúar borgaralegrar stjórnarand-
stöðu i landinu reyndu eftir bestu
getu að fá Carter forseta til að
þvinga Somoza til að segja af sér
og beittu fyrir sig Samtökum
Amerikurikja til að knýja fram
þá kröfu. Bandariska vikublaðið j
Newsweek hefur það eftir einum
hinna „hófsömu” borgara, að
„Bandarikin hafa haldið Somoza |
við völd. Eina leiðin til að Banda-
rikjamenn kvitti fyrir þá synd er
að þeir stuðli að ihlutun af þessu
tagi. Annars kemur til mikils
blóðbaðs”. Þetta var sagt meðan
bardagar milli stjórnarliða og
stjórnarandstæöinga voru nýlega
hafnir. En Bandarikjastjórn hef-
ur forðast eftir föngum aö taka
skýra afstöðu i málinu, þótt hún
hafi látið i ljósi loðin ummæli um
að hún vildi miðla málum, um-
mæli sem ekki hafa hið minnsta
dregið úr ábyrgð Bandarikjanna
á þvi sem gerst hefur.
Um þetta segir Le Monde þann
23. september: Þaö verður að
benda á það, að Bandarikin gerðu
ekkert til að stöðva slátrunina
meðan enn var timi til og enda
þótt að sjá mætti fyrir framferði
Þjóðvarðliðanna. Fáein hikandi
hvatningarorð um röð og reglu og
varfærin og siðbúin samþykkt
Samtaka Amerikurikja mun ekki
stöðva fjöldamorð á fólki af hálfu
böðla forseta þeirra. Einræðis-
herrann hefði verið mjög ber-
skjaldaður fyrir þvi, að með öllu
hefði verið tekiö fyrir bandariska
aðstoö, fyrir stöðvun á vopna-
sendingum og ótviræðri fordæm-
ingu á blóösuguaðferðum stjórn-
valda. Meö þvi að neita að taka
ákvöröun hefur Carter forseti
spillt fyrir þvi að menn geti tekið
trúanlega afstöðu þá til mann-
réttinda sem hann hefur oft lýst
yfir”.
Þeir höfðu grætt
mikið
Le Monde veltir fyrir sér ástæö-
um fyrir þögn Carters og kemst
a/ eríendum veitvangi
Ljós slokkna aftur 1
Nicaragua
Uppreisnin hófst með þvi að skæruliðum tókst að fá allmarga pólitiska
fanga úr haldi seint i ágúst.
að þeirri niðurstöðu, að sígild
kommúnistahræðsla valdi hann
og ráðgjafar hans hafi að sönnu
að, að andstaðan gegn Somoza er
viðtæk, en svo laustengd, að inn-
an tiðar hefðu Sandinistar ráðið
ferðinni, og þeir hafi alltof sterk-
ar taugar til Kúbu Af sömu ætt
eru vangaveltur blaðsins um að
dóminókenningin fræga sé enn að
vef jast fyrir Carter — hann hugsi
sem svo, að ef Bandarikin láti
forseta Nicaragua falla, þá
mundi það hafa hinar alvarleg-
ustu afleiðingarí grannrikjunum,
Honduras, Guatemala og Salva-
dor. En hvað sem liður þessum
eða öðrum vangaveltum, segir Le
Monde getur ekkert losað Banda-
rikin undan ábyrgð á þeim skelfi-
legu tiðindum sem gerst hafa í
Nicaragua — „Abyrgðin er þeim
mun meiri, sem þau sjálf hafa
skapað það ástand sem rikti i
landinu. Það hefði ekki verið
ihlutun um innanrikismál að
breyta þvi ástandi heldur væri
slik viðleitni i mesta lagi leiðrétt-
ing á alvarlegum sögulegum mis-
rétti, sem þjóð Nicaragua hefúr
greitt fyrir alltof dýru verði og
fjöldi bandariskra fyrirtækja hef-
ur grætt alltof mikið á.”
Peningar og vopn
Það er ekki nema von að Le
Monde taki svo til orða. Það eru
Bandarikin sem hafa kostaö,
þjálfað og útbúið það lið, sem nú
hefur nýlokið fjöldamorðum i
Nicaragua. A timabilinu 1950-76
hafa Bandarikin þjálfað alls 5160
hermenn frá Nicaragua, en i
hernum eru rúmlega sjö þúsundir
manna alls. A árunum 1970-75
voru 303 liðsforingjar og aðrir yf-
irmenn þjálfaðir i sérskólum
bandariska hersins i Panama, og
námið fyrst og fremst fólgið i
aðferðum til að bæla niður
skæruhernað jafnt I borg sem
sveit. Einnig núna er óþekktur
fjöldi nemenda frá Nicaragua
skráður i skóla þennan.
1 beina hernaðaraðstoð hef-
ur Nicaragua fengið á þrjátiu
árum um 40 miljónir dollara sem
er veruleg upphæð fyrir svo litið
land. Vopn hersins eru mestan
part bandarisk. Fyrir tveim ár-
um samþykkti bandariska þingiö
reyndar að stöðva gjafastraum-
inn til lögregluliðs einræðisherra
Rómönsku Ameriku. Engu að sið-
ur fékk Nicaragua á fjárhagsár-
unum 1976 og 1977 niu miljónir
dala i aðstoð. Svo er nefnilega
mál með vexti aö þjóðvarðliðið er
allt i senn — lögregla og her. I
fyrra reyndi Somoza að gleðja
Carter með þvi að afnema herlög
sem höfðu verið i gildi i mörg ár.
Þá fékk hann hálfa þriðju miljón
dollara i hernaðaraðstoð, en var
synjaðum efnahagsaðstoð. I mai
siðastliðnum fékk hann svo 12
miljónir dollarai efnahagsaðstoð,
en hernaðaraðstoðin (sama upp-
hæö og i fyrra) var „fryst” þar til
slðar.
Hlaupið undir bagga
Somoza situr áfram — og
Bandarikin bera ábyrgð á þvi,
eins og þau hafa boriö ábyrgð á
blóöugum valdaferli Somozaætt-
arinnar i meira en fjörtiu ár.
Margar borgir og bæir eru i rúst-
um, efnahagslifið einnig — þeir
sem fjármagni ráða hafa ekki
mikla trú á þeirri framtið sem
Somoza ræður, eins og sjá má af
þvi, að á undanförnum þrem
mánuöum hefur f járflótti úr land-
inu numið 40 miljónum dollara.
Það eina sem hressir einræðis-
herrann nú eru fregnir um að Al-
þjóöagjaldeyrissjóöurinn, sem
Bandarikin ráða miklu um, ætli
að hlaupa undir bagga og styðja
áformum SOmiljóndollara lán til
Nicaragua, á fé þetta aö hressa
upp á efnahaginn.
Vopnup uppreisn
Atburðirnir í Nicaragua biða
ýtarlegri úttektar. Þeir vekja og
upp spurningar um þann vanda
sem nú er mestur á vegi andstæð-
inga fasiskra og hálffasiskra
stjórna i Rómönsku Amerfku.
Stjórnir þessar hafa það mikinn
og nýtískulegan vopnabúnað, að
það sýnast harla litlar likur á að
vopnuð uppreisn heppnist —
nema þá að slik uppreisn njóti
viðtæks stuðnings utanfrá. Og
hver á að veita slikan stuðning i
heimshluta, þar sem hinn banda-
riski risi er vanur að sjá komm-
únistasamsæri i svotil hverri
andófshreyfingu og beita efna-
hagslegum og hernaðarlegum
mætti sinum eftir þvi?
Það dugði ekki að ungir menn i
Nicaragua öxluðu riffil fjölskyld-
unnar og gengu þúsundum saman
til liðs við uppreisnarmenn, sem
eitthvað meiri reynslu höfðu.
Meðan flugvélar Somoza, sér-
staklega útbúnartil að berjast við
skæruliða, gátu timum seunan
hringsólað yfir frelsuöum bæjum
og dembt yfir þá kúlnaregni og
eldflaugum. Vigstaða er hrika-
lega ójöfn. Og um leið er Nicara-
gua eitt þeirra landa, þar sem
frelsisvinum eru bönnuð önnur
ráð en að gripa til vopna.
AB.