Þjóðviljinn - 17.12.1978, Side 10
1« StÐA — ÞJWVH.JWÍW 8miwrt«f»r 17. iewmfcer WW
Þýsk skoðanakönnun um jólin:
Helmingur
vill hafa jól
Skoðanakönnun sem ný-
lega fór fram í Vestur-
Þýskalandi bendir til þess
að jól haidi vel velli í vit-
und manna. Hér verður
sagt frá nokkrum niður-
stöðum þessarar könnun-
ar. Tölurnar sem upp eru
gefnar eru prósentutölur,
en innan sviga eru sam-
svarandi tölur eins og þær.:
voru í könnun sem gerð var
árið 1974.
bama
oftar
þér? svöruBu menn á þessa leiö:
Sérstök fjölskylduhátið 68 (66)
Tfmi til umhugsunar 47 (43)
Fæöingarhátið Krists, kirkju-
hátfð 45 (42)
Friöarhvöt 42 (38)
Tækifæri til að gefa og fá gjafir 38
(31)
Tæktferi ttl aft vera góður við
aðra menn 31 (24)
Timi minninga 29 (31)
Kærkomið fri 21 (23)
Timi þegar mér flnnst ég sérstak-
lega einmana 7 (8)
Um helmingur Þjóðverja
kvaðst syngja jólalög á jólum.
58% töldu aö menn væru vinsam-
legri hver i annars garð á jólum
en endranær. Rúmlega helming-
ur barna vill hafa jól oftar en einu
sinni á ári. Þegar spurt var um
eftirminnileg atvik frá jólum, þá
nefndu flestir (57%) þaö, að ein-
hver hefði glaðst sérstaklega yfir
gjöf sem viökomandi hafði þeim
gefiö, 51 nefndi „að allir voru i
. góðu skapi”, 40% jólamatinn og
26% jólaguðsþjónustuna.
Spurt var einnig að þvi, hvað
það væri sem menn vildu sist
verða af á jólum. Þetta nefndu
menn helst:
Jólatréð 68 (63)
Barnahlátur 50 (46)
Jólalögin 40 (41)
Jólasteikina 38 (36)
Ljósadýrðina i bænum 38 (24)
Kirkjugöngu 34 (34)
Góðan dreitil vins 31 (32)
Klukknahljóm 31 (29)
Jólabakkelsið 31 (26)
Gjafirnar 30 (29)
Sjónvarpið 14 (17)
Úr fórum
fyrri alda
Ot er komin hjá Heigafelli
bókin Gr fórum fyrri aidar.
Þýddar sögur. Kristján Alberts-
son hefur valið sögurnar og ritað
formála.
Bókin hefur að geyma frægar
smásögur, þýddar af snillingum
tungunnar á nitjándu öld. A
bókarkápu segir svo m.a.: „Ein
höfuðprýði blaða og timarita á
öldinni sem leiö voru þýddar
smásögur. Þar lögðu margir
helstu rithöfundar og ljóðskáld
þjóðarinnar hönd að verki einsog
sjáj má af efnisyfirliti þessa
safns: Gröndal, séra Matthias,
Þorsteinn Erlingsson, Hannes
Hafstein, Þorgils gjallandi. Menn
settu sér hátt mark og leituðust
við pð kynna ýmislegt hiö
fremsta i smásagnagerö aldar-
innar: Því er hér aö finna sögur
eftir Tolstoy, Turgenjef, Poe,
Kielland, Nóbelsverðlaunaskáld-
iö Paul Heyse o.s.frv. Þessar sög-
ur eru þýddar á einu blómaskeiði
tungunnar og bera það með sér.
Málfarið er vandað en einkum
óþvingað og eðlilegt, einsog þá
þótti best og þannig kemur það
fyrir enn.”
Madariaga
látinn
LOCARNO, Sviss, (Reuter) —
Spænski rithöfundurinn Salvador
de Madariaga lést 14. þ.m. niutiu
og tveggja ára að aldri. Hann lést
aö heimili sinu i Sviss, en þar
hefur hann búið siöustu árin.
Tvitugur aö aldri fór hann til
Lundúna þar sem hann kenndi
spænskar bókmenntir við Oxford-
háskóla. Arið 1931 geröist hann
sendiherra lands sins i Washing-
ton, og gengdi fleiri störfum fyrir
fööurland sitt, þar til Francisco
Franco komst til valda.
Hann hefur siðan búiö i útlegð
þar til hann kom til Spanar fyrir
tveimur árum aö Franco látnum.
Spurningunni: hvaö eru jólin
Sérstök hljómgæði
FIDELITY/ SAMSTÆÐAN
FIDELITY STEREO SAMSTÆÐAN
Sérstök hljómgæöi, hagstætt verö.
Innifaliö í veröum: Útvarp meö
FM-L-M-S bylgjum, plötu-
spilari, magnari, segul-
band og 2 hátalarar.
Gerö MC5
gerö MC 6 meö dolby'kerfi
gerö 4-40
gerö 5-50 meö dolby kerfi
Pantið myndalista í síma 22600
SJÓNTOL
Vesturgötu 11 Reykjavík sími 22600
ÍSLENSKAR
ÚRVALSGREINAR III
Þriöja bindi safnritsins sem Bjarni
Vilhjálmsson þjóðskjalavörður og
dr. Finnbogi Guðmundsson
landsbókavörður hafa búið til
prentunar. Fyrri tvö bindi úrvals-
greinanna hafa notið mikilla vin-
sælda — og ekki er þetta bindi
síðra.
ANDVARI 1978
Aðalgrein hans er ævisöguþáttur
Hermanns Jónassonar fyrrum
forsætisráðherra, en að auki flytur
tímaritið fjölbreytt efni. Ritstjóri
er dr. Fjnnbogi Guðmundsson
landsbókavörður.
ALMANAK
Hins íslenzka þjóðvinafélags
með ÁRBÓK ÍSLANDS
Almanakið er eitthvert fróðlegasta
heimildarit sem út er gefió á ís-
lensku. Ritstjóri dr. Finnbogi
Guðmundsson, en Þorsteinn Sæ-
mundsson stjarnfræðingur ann-
aðist útreikninga. Höfundur ár-
bókarinnar er Ólafur Hansson
prófessor.
ÚDcVari
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLÁGSINS
Skálholtsstíg 7 - Reykjavík - Sími: 13652