Þjóðviljinn - 04.03.1979, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. mars 1979
Eina jólatréð I heiminum sem er búió til úr
leggjum, en drekinn sem þaö stendur á er úr
hvalbeini.
Finnbogi kann skil og nöfn á öllum gömlu verbúöunum I Bolungarvik. Þær eru nú flestar horfnar.en hér er ein af þeim fáu sem eftir'erj;
heitir Lækjarbúö.
■
er orðinn
í lágreistu sérkennilegu
steinhúsi við Aðalstræti í
Bolungarvík býr Finnbogi
gamli Bernódusson. Hann
er sagnaþulur í fornum stfl
og hef ur hluti þeirra sagna
sem hann hefur skráð
komið út í bókinni Sögur og
sagnir úr Bolungarvík sem
Lúðvik Kristjánsson sagn-
fræðingur gekk frá tiI,
prentunar á sínum tíma.
En Finnbogi býr yfir
miklum fjársjóðum sem
aldrei hafa bir á prenti.
Það eru sögur sem hann á í
fjölmörgum stílakompum
og svo hefur hann haldið
dagbækur frá unga aldri
og eru þær nú komnar til
varðveislu í Landsbóka-
safnið f Reykjavfk.
Skemmtilegast af öllu er
þó að tala við þennan stóra
og mikilúðlega mann. Frá-
sagnarlistin er honum í
blóð borin og kryddar hann
„Eg
150
ára
gamall
gjarnan mál sitt með
ísmeygilegri gamansemi.
Er okkur ber að húsi hans
sjáum við inn um gluggann
hvar hann situr álútur við
skriftir. Við bönkum upp
og hann býður okkur inn.
Svo gott sem
Bolvikingur
— Hvernig ertu til heilsunnar,
Finnbogi? Þú ert oröinn býsna
gamall?
— Blessaöur vertu! Ég er
oröinn 150 ára gamall.
Nú glottir Finnbogi meö blik i
augum. Svo segir hann:
— Ég verö 87 ára gamall i
sumar, fæddur 26. júli 1892.
— Hefurðu veriö alla þina tíö
hérna i Bolungarvik?
— Nei, ég er fæddur i Þernuvik
i Mjóafirði en kom hingaö 4 ára
gamall. Ég er oröinn svo gott sem
Bolvíkingur.
— Þú hefur lengst af veriö á
sjónum. Attiröu bát sjálfur?
— Nei, ég vildi ekki festa mig
viö bát svo aö ég gæti alltaf gripiö
I þaö sem fyrir hendi var. Auk
þess aö vera á sjó i 50 ár fékkst ég
bæöi viö smiöar og vegalagningu
og annaö sem til féll.
Eina jólatréð úr
eintómum leggjum
Ég sé aö þú hefur skoriö út og
smiöaö margs konar myndir og
figúrur.
— Já, ég geri þetta til gamans
til aö drepa timann meöan hann
er aö drepa mig.
— Þú notar margs konar efni
til aö móta úr?
— Já, já, þessi mynd er t.d. úr
krit, þarna eru nokkrar úr kork,
sumar úr leirnum úr Drimlu og
enn aörar úr Mogganum og þarna
er eina jólatréð 1 heiminum sem
búiö er til úr eintómum leggjum.
Drekinn sem þaö stendur á er úr
hvalbeini.
— Hvernig líst þér á listaverk
nútimans?
— Mér list ekkert á þessar
figúrur, sem enga merkingu hafa,
og kvæöin, sem þeir eru aö drulla
út úr sér og ekkert vit er i. Þeir
hafa gert sér leik aö þvi aö rakka
niöur hinn eiginlega ljóöaskáld-
skap.
— Hefur þú sjálfur ort?
— Þaö er svo smátt i sniöum aö
þaö tekur þvi ekki aö minnast á
þaö.
Dagbækurnar eru
árbækur úr Bolungarv.
— Nú hefur veriö gefin út bók