Þjóðviljinn - 13.04.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.04.1980, Blaðsíða 3
Sunnudagur 13. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Niels-Henning: ótrillegur bassaleikarisem er á leiö til tslands. Niels-Henning með tónleika í Háskólabíói Danski jazzbassaleikar- inn Niels-Henning örsted Pedersen, sem er öllum ís- lenskum tónlistarunnend- um að góðu kunnur fyrir snilli sína, mun halda tón- leika ásamt brasilísku söngkonunni og píanistan- um Tania Maria, nk. laugardag 19. apríl á veg- um JAZZVAKNINGAR. Niels-Henning hefur þrivegis áöur heimsótt Island og i öll skiptin hefur hann sannab svo um munar ab hann er einstæöur tón- listarmaöur. Hann handleikur bassann einsog ekkert væri auö- veldara og töfrar fram seiö- magnaöa tóna úr þessu erfiöa hljóöfæri. Söngkonan Tania Maria hefur undanfarin 3 ár heillaö ibúa norbur-Evrópu meö söng sinum og planóleik, ýmist ásamt brasllisku trlói sinu, eöa meö evrópskum jazzleikurum. Samstarf þeirra Tania Maria og NHOP hefur staöiö yfir f nokkurn tima. Þau héldu hljómleika viös vegar um noröur- slóöir Evrópu I fyrra og gáfu út eina hljómplötu sem hefur hlotiö mikiö lof gagnrýnenda og leik- manna. Hvarvetna var þeim vel fagnaö á tónleikaferöalagi sinu og eru þau nú aö leggja upp I nýja reisu um noröurálfu og er tsland einmitt einn áfangastaöurinn I þeirri ferö. Þaö er Jazzvakning er stendur aö hljómleikahaldi þessu, en félagiö er einsog kunnugt er áhugamannafélag sem rekiö er af fórnfúsu og þrotlausu sjálfboöa- liöastarfi áhugasamra jazzunn- enda. Tónleikarnir veröa haldnir I Háskólabiói nk. laugardag og hefjast kl. 16.00 sidegis. Forsala aögöngumiöa hefur gengiö mjög vel og eru miöar nær þvi á þrotum nú, þó enn sé vika i tónleikana. Tvimælalaust má telja tónleika þessa til meiriháttar tónlistar- viöburöa. r ! Franska sendiráðið tilkynnir öllum námsmönnum sem hyggja á nám viö franska háskóla skólaárið 1980—81, i öllum öðrum greinum en frönsku fyrir útlendinga, að siðari próf I frönsku fer fram fimmtudaginn 17. april. Viðkomandi eru beðnir að snúa sér hið allra fyrsta varðandi upplýsingar eða inn- ritun til franska sendiráðsins Túngötu 22. i---------------------------------— gæðingurinn sem allstaöar vekur athygli BMW sameinar kosti sportbíls og þægindi einkabíls, kraftmikill, öruggur, stöðugur í akstri, bjartur og rúmgóður, með þægilegum sætum. Það þekkja allir aksturseiginleika þessa vandaða bíls, en þeir halda flestir að hann sé mun dýrari en hann er. BMW er meira en samkeppnisfær í verði, auk þess sem þú eignast betri bíl en verðið segir til um. BMW - ÁNÆGJA í AKSTRI AKUREYRARUMBOÐ: Bílaverkst. Bjumhéðins Gíslasonar. Sími: 96-22499 KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633 FÍFU ELDHÚS Eldhúsið meö fulningahurðum er sígilt og vandað, enda keypt af þeim sem vilja vandað og skemmtilegt eldhús. Frágangur er allur eins og best verður á kosið, sterkar lamir, aðeins úrvals efni er notað. Þér getið valið um lit á innréttingu og plast á borðplötu. Allir skápahlutar eru framleiddir með innfeldum tengi- búnaði, sem gerir það að verkum að mjog auðvelt er að tengja þá saman og hengja upp á vegg. Tækninýjung sem auðveldar samsetningu og festing verður öruggari. Fffa hefur bryddað upp á mörgum nýjungum, má þar m.a. nefna útdregna grindarskápinn, sem er mjög vinsæll í dag og flestir taka ■ eldhús sín. Fífa býður upp á eldhus í öllum verðflokkum og fyrir þá sem vilja fá góð eldhús fyrir mjög lítið verð, hefur Fífa framleitt eldhus sem stendur fyllilega fyrir sínu, látlaust og hagkvæm lausn fyrir alla þá sem vitja ekki leggja mikinn kostnað í eldhúsið, en vantar eldhúsinnréttingu. í þessu eldhúsi er sama efni, lamir og aðrir þeir hlutir sem notaðir eru í aðrar innréttingar Fífu, en spamaður- inn iiggur í hagkvæmari staðlaðri framleiðslu, sem kemur þeim til góða sem versla við Fífu. Látið okkur teikna eldhúsin og gefa verðtilboð, þér að kostnaðarlausu. Húsgagnavinnusfofa.Smíöjuvegi 44 Köpavogi Sfmi 71100

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.