Þjóðviljinn - 13.04.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 13.04.1980, Blaðsíða 5
Sunnudagur 13. aprll 1980 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 5 RECORDS AND RECORDINGS: Philip Jenkins með plötu janúarmánaðar 1 janúarhefti hljómplötutlma- ritsins Records and Recordings birtist gagnrýni um nýútgefna Bandalag kvenna í Reykjavik: Fellið niður tekjuskatt á lægstu tekjum Meöal ýmissa merkra ályktana, sem samþykktar voru á aðalfundi Bandalags kvenna I Reykjavik, sem haldinn var 24. og 25. febr. sl. var eftirfarandi álykt- un frá verölags- og verslunar- málanefnd fundarins: „1. Vegna hækkunar á almenn- um nauösynjum, sem bitnar haröast á tekjulægstu heimilun- um, leggur aöalfundurinn til aö tekjuskattur veröi felldur niöur á lægstu tekjum. 2. Aöalfundurinn vill vekja at- hygli á háu vörugjaldi og miklum tollum af heimilistækjum. Þeim tilmælum er beint til Alþingis, aö tollar af heimilistækjum veröi lækkaöir og vörugjald almennt fellt niöur. 3. Fundurinn beinir þeim til- mælum til hlutaöeigandi aö lok- unartimi banka og sparisjóöa veröi færöur I sitt fyrra horf. 4. Fundurinn telur æskilegt aö opnunartlmi verslana i Reykjavik sé sem frjálsastur. 5. Fundurinn beinir þvi til aöila vinnumarkaöarins, — samtaka vinnuveitenda og launþega — aö viö gerö kjarasamninga og ákvöröun um vinnutima, veröi tekiö miö af þörfum fjölskyldna ogheimila m.a. meö sveigjanleg- um vinnutima, þar sem þvi veröi viö komiö, og bættu skipulagi. 6. Aöalfundurinn fer þess á leit viö borgaryfirvöld, aö komiö veröi á samfelldum skólatima”. Eftirfarandi greinargerö fylgdi fyrstu ályktuninni: ,,A árinu 1979 hækkuöu laun um rúm 50%. Vísitala framfærslu- kostnaöar hækkaöi á árinu um rúm 60%. Þetta svarar til kaup- máttarskeröingar I kringum 6%. A þvi er rétt aö vekja athygli, aö gagnvart matvörum og öörum nauöþurftarvörum var kaup- máttarskeröingin á sl. ári miklu meiri þar sem þessar vörur hækkuöu mun meira I veröi en verölagsbreytingin i heild gefur til kynna. T.d. hækkaöi matvöru- visitalan um 77% á árinu. Hækkun á veröi landbúnaöarvara tekur þó ööru fram, þvi aö þær hækkuöu almennt I veröi um 110—160%. Þessi mikla verö- hækkun á búvörum umfram aör- ar vörur stafar fyrst og fremst af beinni og hlutfallslegri lækkun á niöurgreiöslum. Þarna á rikis- valdiö alla sök. Þessi geysimikla veröhækkun búvöruverös kemur sérstaklega hart niöur á lág- launafólki og barnmörgum fjöl - • skyldum. Af þeim sökum er hún óréttlátari en önnur veröhækk- un”. — mhg FERÐAHOPAR Eyjaflug vekur athygli feröahópa, á sérlega hag- kvæmum fargjöldum milíi lands og Eyja. Leitiö uppíýsinga i simurh 98-1534 eöa 1464. EYJAFLUG y/G hljómplötu Philip Jenkins. Gagnrýnandinn, Richard Stoker — þekkt tónskáld og ritstjóri timarits um nútlmatónlist — fer lofsamlegum oröum umpianóleik Jenkins, velur plötuna, sem hljómplötu janúarmánaöar I Bretlandi og telur aö meö leik sln- um hafi Philip Jenkins skipaö sér á bekk meö allrafremstu pianó- leikurum Breta. í gagnrýni Stokers segir ma: „Philip Jenkins lék þriöju pianósónötu Szymanowskis op. 36 inn á hljómplötu I Wigmore Hall i ágúst sl. Þetta tónverk er eitt hið erfiöasta viöfangs af öllum pianó- verkum o g hefur aldrei veriöleikiö inn á hljómplötu I Vesturlöndum áður. A þessari eftirminnilegu upptöcu er flutningur Jenkins i einu oröi frabær. A eftir þessum mikilvæga flutningi kemur hóf- samleg túlkun Jenkins á Valses nobles et sentimentales eftir Ravel, þar sem hann leggur áhersu á klassiska eðlisþætti verksins. Síöasta verkiö á plöt- unni er þriöja sónata Prokofievs, sem mér finnst fegurst verka hans. Hreinasta unun er aö hlusta á þennan meistaralega flutning Jenkins. Þessi plata skipar hon- um á bekk með okkar allra- fremstu pianóleikurum, svo sem John Ogden, Wilde og Milne.” Philip Jenkins var um árabil pianókennari viö Tónlistarkólann á Akureyri, en stariar nú sem Philip Jenkins. prófessor i pianóleik viö Royal Academy of Music i London. I vetrarleyfi frá störfum þar hefur hann kennt pianóleik viö Tón- listarskólann á Akureyri. Philip Jenkins hefur nú sem fyrr tekiö virkan þátt i tón- leikahaldi, og mun nú á næstunni flytja allar sónötur Beethovens fyrir fiölu og pianó ásamt Guö- nýju Guömundsdóttur fiöluleik- ara, bæöi i Reykjavik og á Akur- eyri. Ferðir um Island á ensku Komin er út söluskrá Feröa- skrifstofu rikisins vegna feröa- laga um Island sumariö 1980. Söluskrá þessi er gefin út á ensku og dreift I 7000 eintökum til feröa- skrifstofa i 17 löndum. Hafa veriö teknar upp ýmsar nýjungar i til- högun feröa/ en Feröaskrifstofa rikisins er stærsti aöili hérlendis er skipuleggur ferðir um landiö. Töluverð aukning hefur veriö i feröum skrifstofunnar undanfar- in ár og hafa íslendingar i vax- andi mæli tekið þátt I þeim. Eins og undanfarin ár mun Feröa- skrifstofa rikisins bjóöa lands- mönnum upp á ýmsa feröamögu- leika ásamt erlendum feröa- mönnum. 1 söluskránni er m.a. aö finna stuttar feröir til allra landshluta svo og lengri feröir I kringum landiö. I öllum feröunum er gist á hótelum, leiösögn I flestum og veröi stillt I hóf. Innlent lán Rikissjóðs íslands ____________1980 l.fl.____________ VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Fjármálaráðherra hefur f. h. ríkissjóðs ákveðið að bjóða út til sölu innanlands verðtryggð spariskírteini að fjárhæð allt að 3000 milljónir kr. Kjör skírteinanna eru í aðalatriðumþessi: Skírteinin eru lengst til 20 ára, bundin fyrstu 5 árin. Þau bera vexti frá 15. þ. m., meðalvextir eru 3,5% á ári. Verðtrygging miðast við breytingar á lánskjaravísitölu, sem tekur gildi 1. maí 1980. Skírteinin eru framtalsskyld, en um skattskyldu eða skattfrelsi skírteina fer eftir ákvæðum tekju- og eignarskattslaga eins og þau eru á hverjum tíma. Nú eru gjaldfallnar vaxtatekjur, þ. m. t. verðbætur,bæði taldar til tekna og jafnframt að fullu frádráttarbærar frá tekjum manna og þar með skattfrjálsar, enda séu tekjur þessar ekki tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, sbr. lög nr. 40/1978 og nr. 7/1980. Skírteinin eru gefin út í fjórum stærðum, 10, 50, 100 og 500 þúsund krónum, og skulu þau skráð á nafn. Sala hefst 15. þ. m. og eru sölustaðir hjá bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum um land allt, svo og nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík. Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja frammi hjá þessum aðilum. Apríl 1980 SEÐLABANKI ISLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.