Þjóðviljinn - 22.06.1980, Page 20
20 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur ,22. júnl 1980
HITAVEITA^
AKUREYRAR
•
Staða framkvæmdastjóra Hitaveitu Akur-
eyrar er laus til umsóknar.
Umsóknir sendist undirrituðum sem veitir
allar nánari upplýsingar um starfið ásamt
Ingólfi Árnasyni, formanni hitaveitu-
stjórnar.
Starfið veitist frá 1. september eða eftir
samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 15. júli n.k.
Bæjarstjórinn á Akureyri
Heígi M. Bergs
Laus staða
Staða deildarstjóra hreinlætis- og bún-
aðardeildar hjá Framleiðslueftirliti
sjávarafurða er laus til umsóknar.
Háskólamenntun æskileg.
Launakjör skv. launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknin ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir
18. júli n.k.
Sjávarútvegsráðuneytið,
19. júní 1980.
Kerfisfræðingur
Óskum eftir að ráða starfsmann til ný-
stofnaðrar Kerfisdeildar Sambandsins.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekk-
ingu og reynslu i skipulagningu og forritun
tölvukerfa.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir
4. júli n.k., Umsóknareyðublöð liggja
frammi hjá Starfsmannahaldi.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
STARFSMANNAHALD
ÉU PÓST- OG
j SiMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
LOFTSKEYTAMANN/SÍMRITARA til
starfa á ÍSAFIRÐI.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá
starfsmannadeild, Reykjavik,og um-
dæmisstjóra, ísafirði.
Félagi Frans,
Eftir þá þjáningu, sem ég
óviljandi hef bakað þér, finnst
mér þú eiga það skilið að vita
hver ég er. Nafn mitt er Jórunn
Sigurðardóttir, ég er þýskmennt-
aður leikari og sú hin sama
„vesalings stúlkukind ” sem var
„sett í þetta”, að þýða yfir á
islensku það,sem Wolf Biermann
mæltiaf munni fram,á tónleikum
hans i Háskólabiói þann 12. 6.
1980. Hér með vil ég koma á
framfæri minu innilegasta
þakklæti fyrir samhug og
skilning, sem þú sýndir mér
i greinarkorni þinu á þjóð-
hátiðardaginn. Jafnvel þó að
mér finnist synd að þú skulir vera
að eyða kröftum þinum og rit-
snilld á opinberum vettvangi i
slika tilfinningavellu. Ég var og
er alveg nógu gömul til þess að
bera ábyrgð gerða minna og vita
hvað ég er að gera. bar eiga þeir
listahátiðarstjórar enga sök,
hvorki þeir né nokkrir aðrir
ginntu mig eða gullbuðu til þessa
verks. En ég skil lika þina afstöðu
mæta vel, það er alveg óþolandi
að láta einhvern tyggja ofan i sig
eitthvað, sem maður þegar veit.
En hugsaðu til hinna, jafnvel þó
að þeir hafi verið i minnihluta,
sem hefðu ekki fengið notið neins
eða sáralitils af þvi sem fram
fór, ef þiö sem kunnið ykkar
þýsku upp á tiu hefðuð ekki látið
þetta ganga yfirykkur. Hefði það
ekki verið svolitið óréttlátt bæði
viö þá og málefnið? Og mikil
ósköp, gagnrýni þin er á margan
hátt réttmæt, þó ég telji mig hafa
staðist sveinsprófið umrætt kvöld
og sé þeirrar skoðunar að vorkun-
Sælir
eruð þér
sem nú
grátið
þvi þér
munuð
hlæja
semi muni allra kennda sist
hjálpa mér til meistara á þessu
sviði sem og öðrum.
Að lokum, minn kæri Frans, ég
held að ástæðan fyrir þvi að
brjóst þitt neitaði aö fyllast
byltingarkenndum fögnuði hafi
hvorki verið hinar „ófullkomnu
ytri aðstæður” né nærvera min.
Heldur miklu frekar hin svikna
vænting þin um fullkomna sýn-
ingu listamannsins Wolfs Bier-
manns, sem vekti baráttugleði
þina úr dvala. Ég vona satt að
segja að ég hafi á röngu að
standa, þvi að styrkur Wolfs Bier-
manns liggur m.a. i þvi að
takmark hans er ekki að vera
með fullkomna, hnökralausa sýn-
ingu né heldur litur hann á sjálfan
sig fyrst og fremst sem lista-
mann. Hann er — og það veist þú
lika vel — ástriðufullur kommún-
isti, sem berst á sinn hátt við
drekann i sinu eigin landi. Við
skulum hefja baráttuna við
drekann i okkar landi og ekki
vera að sýnast með tittlingaskit.
Um leið og ég læt þessum orða-
skiptum lokið af minni hálfu
langar mig til að senda þér eitt af
nýjustu ljóðum Biermanns.sem
enn hefur ekki birst á prenti.
Tief bewegt sein ist was schönes
besser ist sich selbst bewegen.
Also lass dich hier von mir nicht
an den Liederschnuller legen.
Revolution3re Stimmung
lutschen bin ich Uberdrtlssig.
Kampfbetonte Lieder sind
in echten Kámpfen UberflUssig.
W.B.
Með bestu kveðju,
Jórunn.
/wONA
ÞÚSUNDUM!
Góð reynsla þeirra fjölmörgu sem auglýsa reglulega í
þjónustuauglýsingum Vísis er til vitnis um ágæti þeirra
og áhrifamátt.
Lisftmi IVcvd
i&g+Z &e!Ce^vú fyíp' &
1 ' mmiA
& öV' igæsk nn£f
Ef þú býður þjónustu af einhverju tagi er smáauglýsing
í Vísi sterkasti vettvangurinn til viðskipta, þar eru þær
lesnar af tugþúsundum og þjóna þúsundum.
®86611
smáauglýsingar