Þjóðviljinn - 06.09.1980, Side 5
Rikisútvarpið:
Verður fjár-
máladeildin
flutt frá
Skúlagötunni
Þannig mætti fá húsnœði fyrir
fréttastofu útvarpsins
„Flytja mætti fjármáladeild
rfkisútvarpsins i húsnæði inn-
heimtudeildarog efla fjármála-
deildina þannig að hún verði
rekstrar- og áætlunardeild er
tryggi meiri hagkvæmni i rekstri
og fjárhagslegt aðhald. Við slika
breytingu skapaðist meira rými
er m.a. gæti þjónað fréttastofu
hljóövarps og hægt væri að
standa við fyrrnefnd vilyrði um
bætta starfsaðstöðu.”.
Þannig hljóðar kafli úr tillögu
sem Ölafur R, Einarsson varafor-
maður útvarpsráðs lagði fram I
ráðinu I gær, föstudag, og miðar
að þvi aö bæta aöstöðu frétta-
deildar útvarpsins þannig að
deildin geti að nýju hafið útsend-
ingu á fréttaskýringarþættinum
Viösjá, en hann hefur nú legið
niöri um nokkurt skeið.
1 tillögu sinni vekur ólafur m .a.
athygli á þeim möguleika að
flytja fjármáladeild rlkisútvarps-
ins, sem nú er staðsett að Skilla-
götu 4, I húsnæöi innheimtudeild-
arinnar að Laugavegi 177. A þann
hátt mætti eins og áður segir fá
húsnæði fyrir aöþrengt starfslið
fréttastofu útvarpsins. Tillaga
Olafs R. veröur tekin til umfjöll-
unar á fundi Útvarpsráðs n.k.
þriðjudag.
—þm
Skemmdarverkin í bæn
um átalin
Borgarstjórn Reykjavikur
samþykkti samhljóða svo-
fellda ályktun s.I. fimmtu-
dag.
„Borgarstjórn Reykja-
vlkur átelur harölega þau
skemmdarverk sem unnin
hafa verið á gróðri í görðum
borgarinnar að undanfömu.
Miklum fjármunum og
vinnu er varið til þess aö
fegra og prýöa borgina á ári
hverju. óþolandi er að
skemmdarvörgum skuli
haldast uppi að gera sllka
viðleitni aö engu á ör-
skammri stund. Borgar-
stjðrn hlýtur að gera þá
kröfu að löggæsla i borginni
sé svo öflug aö hún geti
spyrnt á móti slikri
skemmdarstarfsemi og
varið ibúahverfi fyrir ágangi
eins og þeim sem ibúar
„Grjótaþorps” hafa þurft aö
búa við sbr. ályktanir
þeirra.”
Klámhöggid skýrist
Þorsteinn Þorsteinsson biöur Einar S
Einarsson auömjúklega afsökunar
Vegna mikilla blaðaskrifa und-
anfarið um forsetaembætti Nor-
ræna skáksambandsins vil ég
undirritaður verða við ósk Einars
S. Einarssonar og biðja hann
afsökunar á öllum þeim um-
mælum, er ég hef látið frá mér
fara um hann á siöum dagblaö-
anna undanfarið. Auövitað var
það ekkert annað en klámhögg,
eins og Einar segir sjálfur I Dag-
blaðinu 3. sept. sl., að ég skyldi
beita mér fyrir þvf, að forseta-
tignin yrði af honum tekin. Einar
á að sjálfsögðu að sitja I emb-
ættinu svo lengi sem hann sjálfur
telur eðlilegt, sama hverjir sitja I
stjórn S.Í..
Astæöurnar fyrir þvi, að ég hef
snúist svona gegn honum undan-
farna mánuði eru auðvitað fárán-
legar. Ég var t.d. svo grunnhygg-
inn aö telja það yfirgang, þegar
Einar tók án fundarsamþykkis
kr. 150 þús. handa sjálfum sér af
hlaupareikningi Skáksambands
íslands og Taflfélags Reykja-
vikur hinn 5. júni sl., eða tæpri
viku eftir aö vondir menn felldu
hann á aöalfundi S.l. Einar var i
fjáröflunarnefnd IX. Reykja-
vikurskákmótsins 1980 og var þvi
mjög eðlilegt að hann tæki þessa
upphæð fyrir bókhald og önnur
störf. Auðvitað eru 150 þús. engin
upphæð fyrir alla þá vinnu, er
Einar hefur innt af hendi fyrir
skákhreyfinguna, og margur
hefur meira fengið fyrir minni
vinnu, t.d. var á sinum tima sam-
þykkt á fundi, að ég og annar
stjórnarmaður fengjum greiðslu
fyrir skákstjórn á Skákþingi Is-
lands. Það var algjör óþarfi fyrir
Einar aö ieita samþykkis meö-
nefndarmanna fyrir áðurnefndri
upphæö, enda heföi veriö hætt við,
aö þeir færu aö heimta peninga
fyrir sjálfboðavinnu á Reykja-
vikurmótinu. Helst er ég á þvi, aö
þetta hafi allt saman verið ein-
hver illur hugarburður i sjálfum
mér, enda er ég orðinn eitthvað
ruglaður af undarlegum sim-
hringingum undanfarið. Ef til vill
eru þær imyndun lika.
Einnig hlýtur það að vera arg-
asti hugarburöur að halda það, að
Einar hafi komið nálægt þvi aö
fella niður yfirdrátt á hlaupa-
reikningi S.í. Þaö voru áreiðan-
lega mannleg mistök, sem ollu
þvi, enda kippti bankastjórinn
málinu snarlega i liðinn, þegar
gjaldkeri S.í. hafði samband við
hann. Þaö er furðulegt, að ég
skyldi halda, að Einar, sem er
aðalbókari bankans, hafi eitthvað
komiö nálægt niðurfellingu þess-
ari, enda er Einar þekktur fyrir
allt annað en aö fara inn á verk-
svið annarra. Þaö var örugglega
hrein tilviljun, að slikt skyldi ger-
ast strax eftir aðalfund S.t.
Ýmislegt annaö hefur og villt
mér sýn i bókhaldi S.I., og held
ég, að óþarft sé að telja þau atriði
öll upp. Þegar er nóg komið mér
til ævarandi skammar.
Aö lokum skal þess getiö, að
sjái Einar sér ekki fært aö taka
þessa auðmjúklegu afsökunar-
beiðni til greina, er vart um
annað að ræða fyrir Einar S.
Einarsson en leita á náöir gyðju
réttvisinnar með okkar ágætu
meiðyrðalöggjöf upp á vasann og
stefna mér fyrir allt, er ég hef
meiðandi um hann sagt, þvi að
eigi verða fleiri blaðaskrif af
minni hálfu i máli þessu.
Reykjavik, 4. sept. 1980.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Helgin 6.-7. sept. 1980 ÞJÓÐVÍLJINN — SÍÐA 5
Austurriskur arkitektúr i Ásmundarsal
Arkitektafélag tslands opnaði i
gær sýningu á austurriskum arki-
tektúr frá timabilinu 1860 og fram
um 1930. Upphaflega er sýningin
unnin undir umsjón arkitektanna
Karls Mang og Evu Mang-
Frimmel á vegum utanrikis-
ráðuneytisins í Vinarborg. A
veggjum Asmundarsalar hanga
eitthundrað drög og uppdrættir og
sýningin verður opin fram á
sunnudaginn 14. september, milli
16 og 22.
Höfundar verkanna á sýning-
unni eru oft taldir til Vinarskól-
ans svonefnda, þeir áttu allir
stóran þátt f mótun skipulags-
áætlana um Vinarborg eftir að
borgin hafði sprengt af sér
ramma borgarmúra og nýjar viö-
áttur opnuðust drátthögum arki-
tektum. Menn voru sem óöast aö
losa sig úr viðjum klassismans,
fella burt skreytingar og fikra sig
i átt til nútimans.
Þungamiöja sýningarinnar eru
verk eftir Otto Wagner en hann
var höfuðpaur Vinarskólans og
gróf farveg fyrir sporgöngumenn
og nemendur á borö við
Schönthal, Kaym, Olbrich, Hoff-
mann og Plechnik. Sérstöðu á
sýningunni hafa frumdrög Adolfs
Loos. Ferill hans var einkum frá
þvi um 1904 og fram yfir seinna
strið, en hann er ekki siöur
merkilegur fyrir þaö, sem hann
sagði en verk sin. Eftir seinni
heimsstyrjöldina breytast við
fangsefnin, tekið er að byggja
fjölbýlishús á vegum sveitar-
félaga og fleira i þeim dúr og auk
þess vaknar áhuginn á innrétting-
unni sem slikri. Meðal arkitekta á
þriðja áratugnum má meðal ann-
arra nefna Frank, Strand, Theiss,
Holzmeister, og Haerdtl.
Formaður sýningamefndar er
Gunnar S. Ólafsson og stendur
sýningin sem fyrr sagði fram til
14. þessa mánaöar.