Þjóðviljinn - 06.09.1980, Side 12

Þjóðviljinn - 06.09.1980, Side 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.-7. sept. 1980 Verkamenn vifi Lenln-skipasmibastövarnar I Gdansk. Pólska sumarið Stórtlðindi. Þab er erfitt aö spá i fram- kvæmd samkomulags þess sem pólska stjórnin geröi vib verk- fallsmenn i strandhérubum landsins um slbustu helgi. Hitt er vlst ab þab sem gerbist er merkilegra en nær öll tlbindi sem hafa borist frá Evrópu austanverbri slban Krúsjof hélt fræga ræbu á flokksþingi 1956: hún steypti Stalln af stalli. Samkomulagib felur I sér stærsta afslátt sem hingab til hefur sést I flokksræbisrlkjum Austur-Evrópu frá tilkalli rikj- andi kommúnistaflokks til valdaeinokunar. Viburkenning á rétti verkamanna til ab stofna ný verkalýbsfélög er mebal ánn- ars viöurkenning á þvl, aö for- múlan „verkamannarlki”, sé1 langt frá veruleika, þegjandi samþykki viö þvl, aö I eftirbylt- ingarþjóöfélögum á borb viö Pólland hafi þróun valdkerfisins I veigamiklum greinum fjar- lægst þarfir alþýöu manna. Þetta vissu þeir sem vildu: en nú fyrst hefur fengist á þessu viöurkenning I verki þegar pólsk stjómvöld neyöast til aö ræöa viö öflug verkamanna- samtök ekki aöeins um kaup og húsnæöiskjör, heldur og um sér- verslanir, ritskoöun og pólitlska fanga. Hvers vegna Pólland? Af hverju varö þetta mögulegt I Póllandi? Hvers vegna þar en ekki einhversstaöar annars- staöar? Til þess liggja ýmsar orsakir. Fyrst er aö leggja nokkra áherslu á þaö, aö einmitt i Pól- landi hafa áhrif rikisflokksins aldrei veriö jafn algjör og I grannrlkjunum. Kaþólska kirkjan fer þar meb raunveru- legtvaldyfir hugum fólksins, og þótt rlkisvaldiö hafi sett um- svifum hennar ýmsar skoröur hefur því aldrei tekist aö segja henni fyrir verkum. Kirkjan hefur i vaxandi mæli komiö viö sögu þjóöfélagsmála — og nú i verkföllunum kom I fram hiö sérkennilega hlutverk hennar, aö styöja i senn viö bakiö á ýmsum kröfum verkfallsmanna og um leiö halda aftur af þeim tU aö foröast þær sprengingar sem kirkjan óttast jafn mikiö og kommúnistaflokkurinn. I annan staö hvarf menningarllf aldrei undir forsjá kommúnistaflokks- ins I sama mæli og I Sovétrlkjun- um til dæmis — má vera þetta hafi veriö þviaö þakka, aö ekki einu sinni flokksforystan kæröi sig um aö vera meö nefib i hvers manns koppi eins og þeir I Moskvu og Berlln. í þriöja lagi rækta smábændur mestallt pólskt land, þar er ekki sam- yrkjubúskapur eöa rikisbú- skapur nema I liUum mæli: þessir bændur eru aö llkindum aö veröa þrýstihópar sem veröur aö taka tillit til viö lausn efnahagsvandræöa Pólverja. (Matvælaskorturinn I landinu á sér forsendu I því aö smábýlin eru afkastalitil — bændur svara ásökunum I þá veru meö því aö segja aö rlkiö geri þeim erfitt fyrir og selji þeim ekki naub- synlegar vélár). I framhaldi af þvi sem nú var sagt skapaöist I Póllandi allgott samstarf milli menntamanna I andófshugleiöingum og verka- manna I gegnum KOR, Sjálfs- . varnarnefndir samfélagsins. tlttektir KOR-manna á pólsku samfélagi hafa oröiö aö rök- semdavopni í höndum verka- manna eins og fram hefur komiö I nýafstöönum verkföll- um. Andófsöfl í Tékkóslóvakíu hafa veriö miklu verr sett I þessum efnum. Þeir hjá Flokknum. Menn skulu heldur ekki gleyma því, aö kröfur pólskra verkamanna eiga sér rök i sósialiskum stefnumiöum, sem yfirvaldiö gerir sjálft tilkall (meö hæpnum rétti) til aö kenna sig viö. Eitthvað af þeim hefur veriö bundiö I lög og stjórnar- skrá. Verkfallsmenn geta, ef til vill, haldiö þvl á lofti, aö ef fariö sé aö kröfugerö þeirra, sem miöar ekki sist af þvl aö auka vald þeirra og áhrif I fram- leiðslunni, þá komist Pólland miklu nær þvl en áöur aö heita sóslallskt rlki. Atök eins og þau sem upp komu i Gdansk og viðar endurspegla ýmsar merkilegar þverstæöur. Þannig telég óllklegt (án þessaöégviti þaö meö vissu) aö I pólskum lögum eöa stjórnárskrá sé nokkuð sem banni verkföll. Llk- lega er þeim vanda blátt áfram sleppt i' anda þeirrar gömlu for- Árni Bergmann múlu aö „verkamenn gera ekki verkfall hjá sjálfum sér”. Málin hafa svo verið ,4eyst” meö þvi aö setja ríkið, fram- leiösluna og verkaýösfélögin undir sömu valdhafa: það er það kerfi sem nú er aö hrynja. Menn skulu einnig hafa þaö I huga, aö þaö er hæpin einföldun aö stilla verkamönnum og flokksmönnum upp sem skýrt afmörkuöum andstæöum hópum. Ekki eru allir flokks- menn dæmiger.öir apparatsjlki. Allmargir þeirra eru sjálfir verkamenn. Vangaveltur um umbóta- og ihaldsarma i flokks- forystunni eru aö sönnu nokkuö loftkenndar, en hitt er vist, að ekki heföu verkfallsmenn náö þeim árangri sem raun varö,' ef aö valdastólavermendur heföu aílir veriö' á sama máli um þaö hvernigbregöastskyldi viö. Hér er um aö ræöa mál sem erfitt er aö höndla en á sér I stuttu máli rætur I þvl, aö valdamaöur I kommúnistarlki er teygður á milli freistinga hins hrokafuUa valdboös, sem ekki hlustar á neina gagnrýni, og svo vissrar nauösynjar (einkum i tvisýnu) aö réttlæta sig meö einhverju sem llkist sósialisma. Ljúkum þessu máli á þvi aö visa til þess, aö nú I ágúst var skipt um for- mann 1 hinu opinbera verka- lýðssambandi Póllands, sá sem viö tók, Romuald Jankowski, hefur tekiö undir gagnrýni verkfallsmanna á pólsk verka- lýbssamtök og lýst yfir stuön- ingi viö aukna sjálfsstjórn og valddreifingu i þjóðfélaginu. Hvað verður? Þá erum viö llka komin aö meiriháttar spurningu: hvaö veröur? Arangur verkfalls- manna leysir ekki mikil efna- hagsvandræöi Pólverja, greiöir ekki gifurlegar skuldir viö út- lönd. Nema síöur væri. Hefö- bundin kjarabarátta, skyld þeirri sem háö er á Vesturlönd- um, getur og leitt til vissrar sundrungar mebal verkamanna sjálfra, eins og andófsmaöurinn Jacek Kuron hefur bent á: hinir ýmsu hópar og starfsgreinar eru mjög misjafnlega i stakk búnar til þess aö notfæra sér verkfallsrétt meö árangri. En hitt er vlst aö pólskt sam- félag hefur mikla þörf fyrir valddreifingu og opnari umræöu, og möguleikar á slikri þróun vaxaaömiklum mun meö þeim áfanga sem verkfalls- menn náöu. Aukin völd verka- manna yfir nánasta umhverfi sinu, aukin áhrif þeirra á fram- leiösluferliö allt, aukin réttindi þeirra: allt eru þetta hlutir sem geta bætt möguleika samfélags- ins til aö leiðrétta sjálft sig aö miklum mun. En þaö eru ein- mitt sllkir möguleikar sem rýrna hratt eftir þvi sem vald- einokun ákveöins forystuhóps stendur lengur, eftir þvi sem skrifræöiö rotnar innan frá I jábræöralagi og dugleysi. ítalskir kommúnistar. Allmikiö hefur I fréttum veriö skrifaö um viöbrögö erlendis viö tlöindunum I Póllandi. Hér veröur aöeins vakin athygli á viöbrögöum italskra kommún- ista. Flokkur þeirra og verka- lýössamband, sem þeir ráöa meö sóslalistum, CGIL, hafa lýst yfir eindregnum stuöningi viö verkfallsmenn. Pajetta „utanrlkisráöherra” flokksins hefur sagt:,, Ef viö ekki tökum undir viö pólska verkamenn væri það hiö sama og aö hunsa fátækt fólk og afskipt á Vestur- löndum.... Reynsla okkar og sú kreppa sem nú rikir hafa kennt okkur, aö lýöræöi og þjóölegt sjálfstæöi eru nauösyníegar for- sendur fyrir þvl aö hægt sé aö verja rétt verkalýösins”. Pajetta jafnt sem verkalýös- foringjar kommúnista (Militello, Lama og fleiri) hafa lagt áherslu á þaö, aö það sé fáranlegt aö berjast gegn til- raunum til aö takmarka verk- fallsrétt á Vesturlöndum ef aö kommúnistar berjist ekki fyrir verkfallsrétti I þeim löndum sem kenna sig viö sósialisma um álfuna austanverða. ítalir hafa sent ýmis skeyti þeim sem gera allt aörar kröfur um rétt- indi verkafólks á Vesturlöndum en I Austur-Evrópu, einkum þá frönskum kommúnistum og verkalýðsforingjum. CGIL haföi frumkvæöi um aö öll þrjú Itölsku verkalýössamböndin (CGIL, CISL hiö kaþólska og UIL, sósialista- og sósialdemó- kratasambandiö) sendu sendi- nefnd til Póllands til aö sýna stuðning viö verkamenn þar I landi. Ekki mun þessi afstaða auka vinskap ítalska kommúnista- flokksins og hins sovéska. En hún mun um leið hafa sitt aö segja, þegar sovéskir ráöamenn velta því fyrir sér hvort þeir eigi aö láta megna óánægju sina meö þróun mála 1 Póllandi koma fram I einhverskonar refsiaögeröum eöa Ihlutun. Afstaöa Italskra kommúnista er staöfesting á þvl aö þeir vilja fylgja eftir hugmyndum slnum um hina „þriöju leið” (þ.e. aöra en rlkiskommúnisminn og krat- isminn fara) og „nýja“alþjóöa- hyggju. Umhugsunarefni. Atburöirnir I Póllandi geta haft mikil áhrif I grannlöndun- um, þótt slöar verði. Þeir munu oghvetja menn I Vestur-Evrópu til umhugsunar. Danska blaöiö Information segir i leiöara nú I vikunni: „1 sambandi við kreppuástand á Vesturlöndum vekur þaö og til umhugsunar, aö þaö var I Austur-Evrópulandi sem sigur vannst i árangursrlk- ustu baráttu verkamanna sem háö hefur verið slöan kreppan hófst. Og aö hann vannst meö þvi aö leggja höfuðáherslur á pólitískar kröfur um stefnu- breytingar í þróun samfélags- ins. -áb. #sunnudags ptistill erlendar bækur Georg Agricola: Zölf Bucher vom Berg-und Huttenwesen. Deutscher Taschenbuch Verlag 1977. Bók þessi kom I fyrstu út á latlnu 1556. Hún var þýdd á þýsku af Carl Schiffner ofl. Tréskuröar- myndir og upphafsstafir frumút- gáfunnar voru endurprentaöir og gefin út fyrst I þessu formi 1928 af Georg-Agricola Gesellschaft, endurútgefin 1961 og nú gefin út af dtv. Bók þessi er meðal fyrstu tæknibóka nýju-aldar. Höfundur- inn var borgmeistari I Chemnitz, vivebat 1494—1555. Hann ritað bókin á latinu, alþjóöamáli læröra manna þeirra tima og er þetta fyrsta skipulega ritsmlöin um námugröft og jarnsmiöar. Ritinu er skipt i 12 bækur. Þessi endurútgáfa er trúverðug eftir- mynd útgáfunnar frá 1928, 273 tréskuröarmyndir eru prentaöar I texta auk upphafsstafa. Wilhelm Treue skrifar inngang aö dtv útgáfunni. Was ist Mystik? Paul Mommaers. Insel Verlag 1979. Höfundurinn las heimspeki i Frakklandi og guöfræöi I Löven i Edinborg. Hann er doktor frá Sorbonne og starfar nú sem prófessor viö háskólann I Ant- werpen. Höfundurinn leitast við aö skýra hvaö mystik sé, hann aö- greinir hugtakiö og reynslu mystikera og hvaö þaö sé sem þeir kalli mystiska reynslu. Fyrstu þrlr kaflarnir fjalla um þessa þætti. 1 slöari hluta bók- arinnar tekur höfundur til um- ræöu reynslu vissra mystlkera og ræöir I smáatriöum um viö- brögö þeirra viö þeim áhrifum sem þeir veröa fyrir. Höfundur- inn bindur sig viö reynslu krist- inna mystíkera. Þaö er erfitt aö skrifa um efni sem þessi, til þess þarf mikla þekkingu og djúpan skilning á viöfangsefninu, sem fáum er gefinn og einkum þarf skýrleika sé hann ekki fyrir hendi er hætt viö aö efnið fletjist út i upp- tuggu, sem engin takmörk hef- ur. Yfirskilvitleg reynsla er erf- iö I tjáningu. Bók þessi er stutt en skýr og ætti aö vera góöur inngangur aö þessum efnum. Mikiö af þvl efni sem nú á dög- um gengur undir nafninu mystlk, á lltiö skilt viö inntak hugtaksins, oft eru þessi efni út- þynning þess, sem stundum er kallaö indversk speki, hug- leiösla eöa þvi fáránlega nafni „innhverf Ihugun”. Þesskonar „mystlk” er markaösvara boö- in föl af farandsölum I ýmsum gervum. Nú úir og grúir af gúrúum, jógum 'og hinum og öörum umferöamönnum sem lokka til sln einfeldinga á hæpn- um forsendum. Þesskonar mys- tik er tlskufyrirbæri, útsölu- varningur innantóms blaöurs um ekki nokkurn skapaöan hlut, agalaus heilaspuni og draumórarugl. UJ^JFERÐAR

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.