Þjóðviljinn - 20.09.1980, Blaðsíða 7
Helgin 20 — 21. september'1980 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 7
Lært a6 binda bækur aö Löngumýri.
Að Löngumýrí í október:
Námskeid fyrir aldraða
NámskeiO fyrir fólk sem komið
er á eftirlaun eða á þau i vændum
verður haldiö að Löngumýri i
Skagafirði i október á vegum
þjóökirkjunnar. Er þar gefinn
kostur á verklegu og bóklegu
námi að eigin vali og kennt meö
fyrirlestrum, sýnikennslu og
þátttöku i leshringum og verk-
námi.
Miðað er við að kenna sitthvað
sem kann aö koma aö gagni á
þessu timabili ævinnar og meöal
kennslugreina er likamsrækt og
létt matargerð, leðurvinna og
bókband. Fyrirlestrar verða um
tryggingamál aldraðra, um bók-
menntir bibliufræði og sögu. Um
ræðurhópar fjalla m.a. um
hversu bregöast megi við ellinni
og njóta hennar sem best. Mikil
áhersla verður á útivist og hvild
verður næg, enda allar náms-
greinar valfrjálsar.
Nokkur slik námskeið hafa
verið haldin að undanförnu á
vegum kirkjunnar, sem jafn-
framthefur á undanförnum árum
starfrækt orlofsdvalir fyrir
aldraða að Löngumýri i sam-
vinnu viö Reykjavikurborg,
Akureyrabæ og fleiri sveitar-
félög. Hafa námskeiðin verið vel
sótt og virðist augljóst af reynsl-
unni sem þegar er fengin, að
mikil þörf sé fyrir slikt starf til
þess að elliárin verði ánægju-
legri.
Skólastjórinn á Löngumýri,
Margrét Jónsdóttir, veitir þessu
námskeiði forstöðu og stendur
það 6. - 20. október.
Allar upplýsingar eru veittar á
Löngumýri, simi 95-6116 og á
Biskupstofu I Reykjavik, simi
29377.
/ /slandsheimsókn:
Strokkvartett
Kaupmannahafnar
Strokkvartett Kaupmanna-
hafnar — Kíbenhavns
Strygekvartet — heldur tónleika I
Reykjavik og á Isafirði i næstu
viku.
Strokkvartett þessi var stofn-
aður 1957 af fiöluleikurunum
Giskov og Lydolph, Bruun lág-
fiöluleikara og Christiansen selló-
leikara. Strokkvartettinn hefur
haldið fjölda tónleika bæði heima
og heiman, bæði austan hafs og
vestan leikið á margri listahát-
íðinni i Evrópu, og inn á fjölda-
margar hljómplötur.
Fyrir tæpum tveimur árum, i
október 1978, léku listamennirnir
SHA Austurlandi:
Reynt að
spyrna sam-
an hagsmuni
íslendinga
og hersins
íierstöðvaandstæðingar á
Austurlandi hafa gert eftir-
farandi ályktun:
„Fundur Samtaka her-
stöðvaandstæðinga á
Austurlandi, haldinn á Egils-
stöðum 14. sept. 1980, varar
eindregið við þeim hug-
myndum stjórnvalda að láta
bandariska herinn bjarga
Flugleiðum og þar með flug-
málum Islendinga. Hér er á
ferðinni enn ein tilraun til að
spyrða saman hagsmuni Is-
lands og Bandarikjahers og
gera tslendinga ennþá háð-
ari dvöl hersins hér á landi.
A þaö skal bent aö Aust-
firðingar og aörir ibúar
landsbyggðarinnar eru mjög
háðir flugsamgöngum, og
það varðar þá miklu aö þær
samgöngur séu ekki undir
hemum komnar né öðrum
erlendum aöilum.”
i Norræna húsinu I tilefni af 10 ára
afmæli þess, strokkvartett eftir
Vagn Holmboe, sem tileinkaður
var Norræna húsinu og var það
frumflutningur, auk þess sem
þeirfluttu verk eftir m.a. Þorkel
Sigurbjörnsson.
Aö þessu sinni heldur Strok-
kvartett Kaupmannahafnar
þrenna tónleika, hina fyrstu i
Norræna húsinu, mánudaginn
22. október kl. 20:30, þar sem
leikin verða verk eftir Mozart,
Gade og Beethoven . Þvinæst
fara listamennirnir til tsafjarðar
og leika þar i tsafjarðarkirkju
miðvikudaginn 24, september kl.
20:30. Þá flytja þeir verk eftir
Mozart, Holmboe, Beethoven og
Schubert. Þriðju og siöustu tón-
leikarnir veröa hjá Kammer-
músikklúbbnum sunnudaginn 28.
september kl. 20:30 og veröa þar
flutt verk eftir Haydn, Carl
Nielsen og Beethoven. Þeir tón-
leikar verða i Bustaðakirkju.
Þingflokkur Sjálf-
stæðismanna:
Vítir Alþýdu-
bandalagið
Þingflokkur Sjálfstæðismanna
kom saman i gær og ályktaði að
hann telji „einsýnt að stjórnvöld
geri itrustu tilraunir til þess að
tryggja flugsamgöngur yfir
Noröur-Atlantshafið og lýsir sig
reiðubúinn til samstarfs i þeim
efnum, enda sé ekki stefnt i rikis-
rekstur flugs og gagnlausar fjár-
skuldbindingar skattreiðenda.”
Alþýðubandalagið fær kaldar
kveðjur frá þingflokki Ihaldsins
með svofelldum orðum i ályktun-
inni: „Þingflokkurinn vitir vinnu-
brögö fulltrúa Alþýðubandalags-
ins og telur að þau hafi valdið
Flugleiðum h.f. miklu tjóni, stefnt
i hættu atvinnu fjölda fólks, sem
að flugmálum vinnur, og skaöað
þjóðarhagsmuni.”.
Engin greinargerð fylgii
ályktuninni né rökstuöningu
fyrir ofangreindum sloðunum.
—ekh
Skatta- og tryggingamál einstœðra foreldra:
Áhrif skattkerfís-
breytingar könnuð
Skipuö nefnd til þess að gera tillögur um úrbætur
Fjármálaráðherra hefur skipað
nefnd til þess að kanna sérstak-
lega álagningu skatta á einstæö
foreldri. t þessum hópi skatt-
greiðenda eru mörg dæmi um
mjög verulega hækkun skatta og
er talið nauðsynlegt að gerö verði
sérstök úttekt á skattamálum
þessa hóps, að þvl er segir i frétt
frá fjármálaráðuneytinu.
I nefndinni eiga sæti Þorkell
Helgason, dósent, Jóhanna
Kristjónsdóttir, blaöamaður, Jón
Guðmundsson, viðskipta-
fræðingur, Dóra S. Bjarnason,
félagsfræðingur, og Kristján
Guöjónsson, deildarstjóri. Tvö
þau fyrstnefndu eru tilnefnd af
Félagi einstæðra foreldra, en Jón
Guðmundsson hefur verið
sipaður formaður nefndarinnar.
I fréttinni segir að fyrirfram
hafi veriö ljóst að mikil breyting
yröi á álagningu tekjuskatts á
einstæð foreldri, sem ekki njóta
þess lengur að fá persónuafslátt
hjóna, en fá i þess stað stór-
auknar barnabætur i hlutfalli viö
barnafjölda. Skattkerfisbreyt-
ingin felur það i sér, að sumir ein-
stæðir foreldrar hækka en aörir
lækka i sköttum. 1 heild lækkar
álagning tekjuskatts á einstæð
foreldri, þegar tillit er tekið til
hækkaðra barnabóta. Einstæö
foreldri eru talin vera um 6.700
og vafalaust er mjög misjafnt
hversu mikil þörf er á skatta-
Ivilnunum þeim til handa eða
annarri aðstoð af hálfu opinbera
að þvi er segir i ráöuneytisfrétt-
Framhald á bls. 27
Pétur
Guðjónsson
áferðalagií
NEW YORK
í New York gefur aö líta alla heimsbyggðina í
hnotskurn. Þar eru öll þjóöerni, öll trúarbrögð, öll
form húsageröarlistar, öll þjóöerni matargerðar, allt
vöruúrval heimsins, mestur fjöldi skýjakljúfa, er
gefur borginni þann stórkostleik, er fyrirfinnst
aöeins í New York. Heimsókn á topp Empire
State-byggingarinnar, R.C.A.-byggingarinnar eöa
World Trade Center, 110 haeðir,
opinberar hvaö bezt þennan
einstæða stórkostleik.
World Trade Center, meö
heilu verzlunarhverfi neöanjarð-
ar, er syðst á Manhattan-eyjunni,
langri og mjórri, liggjandi frá
noröri til suöurs, en hjarta New
York-borgar er á henni. Hiö
fræga Wall Street, sem er líka
samnafn fyrir stærsta fjármagns-
markað heimsins, er hér. Hér
rísa risabankarnir í eigin skýjakljúfum, og hér er
stærsta kauphöll heimsins, New York Stock
Exchange. Þar gefur aö líta, hvernig jafnvel
smæsti fjármagnseigandi getur oröiö eigandi og
þátttakandi í stórfyrirtækjum Bandaríkjanna.
Federal Hall er í Wall Street meö minjagripum frá
embættistöku George Washington, fyrsta forseta
Bandaríkjanna. Trinity Church, ein elzta kirkja í
New York, er viö enda Wall Street.
China Town er nokkuö til austurs, kínverskt
hverfi í miöri New York með austurlandamat og
austurlenzkt vöruúrval. Nokkuð til noröurs er Wash-
ington Square, aöaltorg í Greenwich Village, sem er
listamannahverfi New York. Þúsundir skapandi
listamanna eiga hér heimkynni, og hér eru haldnar
stórar og litríkar útisýningar. Stórkostleg listasöfn
eru í New York. Frægast er Metropolitan Museum of
Art á 5. breiögötu í Central Park. Önnur listasöfn,
Frick Collection, Guggenheim, og Museum of
Modern Art eru meö stööugar farandsýningar.
Madison-breiögatan ofan viö 60. götu býöur upp á
fjölda lítilla sölusýninga (galleries). Central Park,
Miögarður, er stór trjágaröur á miöri Manhattan-
eyju. Hann gefur að deginum í góöu veöri tækifæri til
skógargöngu t miöri stórborginni. í honum er
dýragarður. Rétt frá suö-vesturhorni Miðgarðs
er Lincoln Center meö Metropolitan-óperunni,
leikhúsi og tónlistarhöll. Þar eru fluttar óperur og
haldnir hljómleikar og þar fara fram sýningar á
leikritum og listdansi samtímis.
Nú skal haldiö á 5. breiðgötu miöja og skoöuö
St. Patricks-dómkirkjan, gotneskt listaverk í
hæsta gæöaflokki. Viö hlið hennar er hiö fræga
vöruhús Sack’s 5th Avenue. En andspænis henni er
Rockefeller Center, samsafn stórbygginga byggöra
um 1930, neðanjaröar verzlunarhverfi og skrifstof-
ur Flugleiða. Þetta eru áhugaveröir stoppistaöir á
leiö okkar til aðalbyggingar Sameinuöu þjóöanna,
eins af fyrstu stórverkum hús-
ageröarlistar úr málmi og gleri.
Kynnisferöir eru farnar um aö-
setriö og upplýsingar gafnar um
starfsemi SÞ.
Ekkert jafnast á viö ameríska
steik, þaö vita þeir, sem kynnzt
hafa. Pen and Pencil og The Palm
eru frægir steikarstaðir. í hádeg-
ismat er skemmtilegt aö fara á
Sexurnar, 666, 5. breiögötu,
Rainbow Room í RCA-byggingunni
og Windows of the World í World Trade Center
(laugard. sunnud. og á kvöldin), allir staðirnir á
efstu hæö skýjakljúfa meö ógleymanlegu útsýni yfir
borgina. Einnig í Tavern on the Green, (Crystal room)
í Central Park. Snöggur lúxushamborgari á J.P.
Clark á 3. breiögötu. Á sunnudögum iöar allt af lífi
í verzlunargötunni Grant Street í gyöingahverfinu
á Lower Eastside. Þar má gera reyfarakaup.
Vöruhús eru Macy, Gimbles, og Alexanders. Hærri
gæöaflokkar eru í Bloomingdales, B. Altman,
Sacks 5th Avenue.
Til hvíldar frá stórborginni eru bátsferöir til
Liberty Island þar sem Frelsisstyttan er eöa
hringferö meö bát um Manhattan-eyjuna. Einnig
ganga fljótaskip upp Hudson-fljótiö. Viö þaö
stendur West Point Military Academy, sem er
frægasti herfræðiháskóli Bandaríkjanna. Fraeg nöfn
nemenda: Mac Arthur, Patton, Eisenhower. í minja-
safninu er veldissproti Görings. Á austurbakka
árinnar í Hyde Park eru heimili Roosevelts og
Vanderbilts, sem eru áhugaverð söfn í dag.
Ef fara á aöeins stutta ferö í friö og kyrrö þarf
ekki út fyrir Manhattan-eyju aö fara, því í Fort Tryon
Park er The Cloisters, einstætt safn franskrar og
spánskrar miöaldalistar. Þarna er safni uppruna-
legra herbergja meö upprunalegum listaverkum
komiö fyrir í byggingum sem minna á miðalda-
klaustur.
í sambandi viö New York-ferð væri tilvalin 3ja
daga ferö til Washington, einnar fegurstu og
sérstæöustu borgar heimsins.
Ef þúhygguráferötil
NEWYORK
geturöu klippt þessa
iitglýsingu útog hafthana
meö.þaö gæti komið sér vel.
FLUGLEIDIR