Þjóðviljinn - 20.09.1980, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 20.09.1980, Blaðsíða 21
7*j<í'n^í9,íií , i N'KMM' * • f- >í*•? Helgin 20.— 21. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 „Unglingunum er visað á sjoppur og torg til að hittast og ræða sln mál”. Ljósm:-gel Skemmtanaiðnaðurinn hefur tekið að sér uppeldishlutverk skóla og heimila. Ljósm:-gel ,,Eins og málin standa Idag blasir við unglingnum menningarlegt öngþveiti”. Ljósm:-gel Unglingarnir eru mörgum gullnáma. Ljósm:-gel UT ANG ARÐSHÓPUR ELDISFRÆÐINGUR RÆÐA SAMAN UM MÁLEFNI UNGLINGA verk skólans sé tviþætt og hvorugur þáttanna komi yfirlýstu markmiði nokkurn skapaðan hlut við. Annars vegar þjónar hann kröfum samfélagsins um sér- menntaðan starfskraft. Það er ekkert launungarmál að skóla- lögin frá 1946 voru fyrst og fremst afleiðing af umfangsmikium fjár- festingum I atvinnutækjum eftir seinni heimsstyrjöldina og þeim sérmenntunarkröfum sem af þeim leiddi. Geymslustaður fyrir gagnslitla þjóðfélags- þegna. Hins vegar er skóianum ætlað að vera geymslustaður fyrir gagnslitla þjóðfélagsþegna. Lengd skólans svo og námsefni er I beinu samhengi við kröfur og þarfir vinnumarkaðarins. Yfirleitt dala unglingarnir þegar i unglingaskólann er komiö hvað námsárangur snertir og það foreldrum til mikillar skapraun- ar. Skýringin er einfaldlega sil að skólinn kemur alls ekki til móts viö raunþarfir unglingsins. Það er reynt að halda honum að námi með ýmsum brögðum eins og samkeppnismóral og fögrum lof- orðum um arðbæra stöðu að námi loknu. Staðreyndin er sú að slik tilbúin markmið eru engan veginn fullnægjandi og tilgangs- leysið elur af sér áhugaleysi. Ég efast ekki um að innan skólanna er fullt af áhugasömu fólki sem gerir sér vandamálið ljóst. Það er ef til vill sjálfur starfstimi skólans sem er allt of stifur. Lágstéttarbörn standa verr að vigi SAM: Ekki er heldur hægt að lita fram hjá þvi að á Islandi er stéttasamfélag. t samræmi við það eru börn og unglingar misjafnlega undir það búin að glima við þau vandamál sem við koma skólastarfinu. Eftir niu ára grunnskóla hættir stór hópur unglinga námi og leitar út á vinnumarkaöinn. Þetta er yfirleitt sá hópur nemanda sem verst hefur staðiö sig I skólastarf- inu og einnig sá hópur sem á foreldra sem tilheyra iágstéttum landsins. Skólinn hefur aldrei reyntaðstarfaisamræmivið það að menn séu misjafnlega settir i byrjun. Samkeppnisandinn ýtir undir þaö að hinir veikari dragast fljótlega aftur úr og úr þessum hópi eru margir af fastagestum Hallærisplansins að bæta sér upp það sem skólanum hefur yfirsést. Siðan er fjölskyldan oft kölluð til ábyrgðar. Ekki pláss fyrir unglinga SAM: En fjölskyldan hefur oft ekki möguleika á að hjálpa unglingnum til að leita svara við þeim spurningum sem á hann leita. Þessu veldur meðal annars að þar er afar algengt að bæði foreldri vinna úti langan vinnu- dag fjarri heimilum. Gjarnan er það svo að öll fjölskyldan hittist aðeins viö kvöldverðarborðið þreytt eftir langan dag og illa undir það búin að taka upp og ræöa þau vandamál sem á hana herja. Foreldrarnir vilja gjarnan hvila sig fyrir framan sjónvarpið og unglingunum er visað út. Þau fara út til félaganna til að fullnægja félagsþörf sinni. Að sjálfsögöu er það ekki aðeins vegna lausra fjölskyldutengsla að unglingurinn leitar út fyrir fjölskylduna heldur er þetta eöli- legur hluti af þroskaferli unglingsins en hér ætti samfélag- ið vissulega aö gegna þvi hlut- verki sem foreldrar og heimili eru oft ekki fær um að leysa. Unglingunum er visað á sjoppur og torg til að hittast og ræða sln mál. Sveinn Allan Morthens uppeldis- fræðingur. Ljósm:-gel Unglingar ekki þrýstihópur IG: Og svo getur maður leitt hugann að þvi hvers vegna sam- félagið sinnir málefnum unglinga svo litiö sem raun ber vitni. Hér virðist einna helst koma tvennt til. Annars vegar er gagnsleysi unglingsins hvað vinnumarkað- inn snertir og hins vegar að þeir sem sitja á gullinu eru pólitikusar sem láta skammtimahagnýt- ingarsjónarmið ráða ferðinni. Eins og allir vita eru bæði borg og riki á hvinandi kúpunni og þvi i ósköpunum ætti þá að veita fjár- magn I hóp sem að engu leyti stuölar að hagvextinum. Alla vega ekki á kjörtimabilinu en það virðist vera sú timaeining sem pólitikusar hugsa i og þar sem unglingarnir eru viðs fjarri at- vinnulifinu, þá hafa þeir litla möguleika að láta i sér heyra á þvi máli sem stjórnmálamenn- irnir skilja. Með öðrum orðum unglingar ásamt börnum og gamalmennum, eru ekki þrýsti- hópar i samfélaginu og verða þvi fyrstir undir niðurskurðarhnif- inn, þegar fjármálavaldið er I sparnaöarhugleiðingum. Þaö kom berlega i ljós i byrjun ársins 1979, þegar til stóð að leggja niður bæði útideild og starfsemi i Tóna- bæ og var þó félagslega sinnaður meirihluti I borgarstjórn. SAM: Það er sorglegt að yfirvöld með sinum skammtimahugsjón- um gera sér ekki grein fyrir þvi að með starfi sinu stuðla þau óbeint að þvi að hluti þessara unglinga lendir inni á dýrum stofnunum seinna meir, m.a. vegna þess aö þeim var ekki hjálpaöog sköpuð sú aöstaða sem þeir sannarlega þurfa á þessu mótunarskeiði sinu. Það er ekk- ert launungarmál að stór hópur unglinga lendir I vandræöum, af- brotum og jafnvel eiturlyfja- neyslu. — Slik fyrirbæri eru ákveðnir kúltúrgeirar innan ungi- ingahópsins. Þvi ber yfirvöldum skylda til að gera upp hug sinn i þessu máli. Haldi málið áfram að þróast á þá leið sem nú horfir er þaö dýrára fyrir skattgreiöendur að luta skammtimasjónarmiðum stjórn- valda, en taka langtima sjónar- mið upp. IG: Þaö er I raun og veru gott og blessað að byrja á einhverri umræðu um vandamál unglinga, en okkur virðist sem forsendur séu allrangar i allri umræðunni. Skilgreining vandamálsins Aðalvandamálið er i raun hvernig vandamálið er skilgreint. Þungamiöjan er skemmdarverk i miðbænum og ölvun ungmenna á almannafæri. Þar er vandamálið komið og orsökin er samkvæmt æskulýðsfrömuð aöstöðuleysi unglinga. Sjálf borgarstjórn Reykjavikur lætur hafa sig út i að samþykkja samhljóða ályktun þar sem fordæmdir eru skemmdarvargar sem gera að engu þá kostnaðarsömu viðleitni að prýöa borgina og gerir jafn framt kröfu um aukna löggæslu til að sporna við þessu. Alyktun þessi er fullkomlega rökrett, ef um væri að ræða skemmdarverk, sem einangrað vandamál, en hún er fáránlegt innlegg i umræöuna um sjálft ,,unglingavandamálið”. Allka ambögu gætir hjá þeim sem tönglast á að hér sé um árvissan atburö að ræða, skólar að byrja og veður gott. Það er beinlinis ýj- aðað þvi að „unglingavandamál- ið” hverfi úr sögunni þegar næt- urkuliö skellur á. Guð hjálpi mið- bænum, ef islenskt veður færi batnandi. 1 alvöru talað, þá er nöturlegt til þess að hugsa að stórfelld spjöll þurfi til að vekja at hygli á þvi ófremdarástandi sem rikir I málefnum unglinga og enn nöturlegra er það þegar menn neita að horfast i augu við stað- reyndirnar og afsaka ástandið með þvi að aðeins sé um fáeina ólátaseggi að ræða. óbreytt þróun við óbreyttar aðstæður Hið skammarlega ástand i félagslegri aðstöðu unglinga verður ekki réttlætt á þann máta. Það er kominn timi til aö tekið verði á þessum málum af ein- hverju viti þvi að mikið er i húfi. Þróunin heldur áfram og vandamálin eiga eftir að aukast áfram ár frá ári ef aöstæður veröa óbreyttar. Það er til fullt af góðu fólki sem hefur bæöi áhuga og þekkingu til að takast á við vandann. Eina sem á vantar er stuðningur yfirvalda og skilning- ur og greiöfærari leiðir i gegnum skrifstofubáknið og endilega þarf aö hafa unglingana meö i ráðum. Þeir ættu að vera manna best meðvitaðir um þarfir sinar eða hvað?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.