Þjóðviljinn - 20.09.1980, Blaðsíða 31
Helgin 20.— 21. september 1980 WÓÐVILJINN — SIÐA 31
Þorgeir Olafsson
um útvarp
og sjónvarp
Er hugsanlegt aö útvarpiö
geti linaö þjáningar sárþjáöra
eiginmanna i sunnudagsupp-
vaskinu og gert þaö aö hrein-
ustu unun? Erfitt er aö imynda
sér aö svariö sé jákvætt viö
þessari spurningu en svo er þaö
samt. Kl. 13.30 undanfarna
sunnudaga hefur nefnilega ver-
iö i útvarpinu þáttur sem heitir
„Spaugaö i Israel”. Þar les
Róbert Arnfinnsson, af sinni al-
kunnu snilld, gamansögur eftir
israelskan höfund, sem ég kann
þvi miöur ekki aö nefna. Þarna
er á feröinni úrvals útvarpsefni
á hárréttum tíma. Sama má
segja um annaö efni útvarpsins
á sunnudögum fram aö kvöld-
fréttum en eftir þær fer dag-
skráin aö veröa heldur þung-
lamaleg.
Hvaö liöur dagskrá útvarps-
ins i heild er mesta furöa hvaö
hún er göö, ef tekiö er miö af
þeirri aöstööu sem útvarpiö býr
viö.
En Rikisútvarpiö gerir fleira
en aö reka hljóövarp. Þaö ku
vist vera sjónvarp hér I gangi
líka. Sá þáttur starfseminnar
þykir mér litt merkilegur.
Amriskar hrollvekjur og of-
beldismyndir á næstum hverju
kvöldi og þess á milli breskir
framhaldsþættir. Þaö þykir mér
vont efni. Hins vegar gleöst ég
. mikiö ef á dagskránni er
fræöslu- eöa heimildaþáttur frá
BBC. llangflestum tilvikum eru
þeir til fyrirmyndar á allan hátt
(og islenska sjónvarpinu til eft-
irbreytni)
tslenskir umræöuþættir eru
nokkuö tföir 1 sjónvarpinu. Þeir
eru flestir þvi marki brenndir
aö vera fram úr hófi þurrir og
hafa oft á tiöum næsta litiö upp-
lýsingagildi. Timinn sem þeim
er ætlaöur er svo skammur aö
þátturinn er einatt búinn áöur
en þátttakendurnir eru komnir
aö kjarna umræönanna hverju
sinni. Þessa þætti má lifga upp á
meö þvi aö spyrja fólk úti á götu
álits, bregöa fleiri myndum á
skjáinn, og gefa þeim meiri
tima. Einn „umræöuþáttur”
veröur mér lengi minnisstæöur,
en þvi miöurekki aö neinu góöu.
Þessi þáttur hét aö þvi mig
minnir, „Verömyndun” og þátt-
takendur vorunokkrir jábræöur
úr bissnessnum sem rumdu úr
sér slikri vitleysu og áróöri aö
áhorfendur voru sem þrumu
lostnir. Þáttur sem þessi á ekk-
ert erindi i sjónvarpiö nema
þess sé vandlega getiö, aö hann
sé auglýsing frá samtökunum
Verslun og viöskipti, hann sé
sýndur i auglýsingatimanum og
viökomandi aöilar greiöi fyrir
hann sem hverja aöra auglýs-
ingu. Þá kröfu veröur aö gera aö
þátttakendur i umræöum af
þessu tagi séu fulltrúar mis-
munandi hagsmunahópa svo aö
mistök, eins og fyrrgreindur
þáttur, endurtaki sig ekki
Aö lokum langar mig aö koma
á framfæri þeirri tillögu til sjón-
varpsmanna aö þeir komi á fót
unglingaþætti. Dagskrá hans
yröi gerö af unglingum og þeir
bæru ábyrgö á efninu. Ungling-
ar i Vinnuskólanum i Kópavogi
geröu útvarpsþátt i sumar af
mikilli prýöi svo engin ástæöa
er til aö ætla, aö þau geti þá ekki
eins gert sjónvarpsþátt. Eins er
vist aö kennarar og aörir sem
vinna meö unglingum væru fús-
ir til aö leggja málinu liö.
Héldu
sig fyrir
hjón
„A alþingi var höggvinn maö-
ur sá Eyvindur hét, er hlaupiö
haföi úr ölfusi frá konu sinni
meö aöra konu undir Jökul vest-
ur, og héldu sig þar fyrir hjón,
viku siöan þaöan og fundust viö
helli á Mosfellsheiöi suöur og
liföu viö kvikfjárstuld. Konan
hét Margrét, henni drekkt i
öxará. Þau höföu veriö strýkt
um veturinn fyrir og látin þá
laus og aöskilin en tóku sig sam-
an, þá voraöi, og lögöust á ný á
fjöll um sumariö.”
(Hestsannáll 1678)
Bragðlaukurinn
Skyrfiskur
Skyrfiskur (uppskrift fyrir 6)
3 ýsu- eöa þorskflök (Betra aö
hafa ýsuna stóra)
2 meöalstórir laukar
salt
1 stór skyrdós
1 oliusósudós, millistærö
karrý
Roöflettiö og hreinsiö flökin.
Skeriö i bita og leggiö i eldfast
mót. Laukurinn brytjaöur og
settur yfir fiskinn, salti stráö yf-
ir.
Skyr, oliusósa, og karrý er
hrært saman og smakkaö til má
vera frekar sterkt. Sósan smurö
yfir fiskinn, lok yfir, sett i ofn
viö 200 gr. hita þar til fiskurinn
er oröinn soöinn.
Gott meö hrisgrjónum eöa
kartöflum og grænu saláti.
Grænt salat.
2 salathöfuö eöa hálfur Isberg.
agúrkur, paprika.
Salatiö hreinsaö og rifiö niöur i
salatskál meö höndunum (Ekki
skera þaö)
Paprika skorin niöur og
gúrkurnar meö ostaskera.
Marinade: Olia, edik, púöur-
sykur, steinselja, hvitlaukur.
Hellt yfir geymt á köldum staö,
þar til það er boriö fram.
DÍLLINN
Eins og stórútgerðar-
maðurinn í Grindavík
sagði: Hér áður var fullt
af þorski í Grindavík en
engir kommónistar. Nú
er fullt af kommónistum
en enginn þorskur.
Margt kom bandarlsku ungmennunum spánskt fyrir sjónir á islandi en
ekkert þó eins og böllin. F .v. Steve, Cara og Tom.
Vfflt böll
„Þessi böll eru miklu villtari
en viö eigum aö venjast heima.
Þegar ég fer út, segi ég mömmu
hvert ég er aö fara og hvenær ég
kem aftur, en hérna segir
maöurbara blessogfer”. Þessi
orö eru höfö eftir 17 ára gamalli
bandarlskri stúlku, Cöru Brom-
ley frá New York, I ágætu viö-
tali Vestfirska fréttablaösins
viö þrjá amerlska skiptinema
sem dvaliö hafa á isafirði i
sumar.
Hinir eru Steve Mytyk frá
Kaliforniu og Tom Langerud frá
Iowa. Cara hefur unniö I neta-
gerö I sumar, Tom I blikksmiöju
og Steve I byggingarvinnu en öll
búa þau á einkaheimilum. Um
fyrstu kynni sin af tslandi sagöi
Cara:
„Þaö var ógurlegt sjokk fyrir
mig aö koma hingað fyrst. Viö
héldum hópinn fyrstu vikuna og
þegar viö vorum aö labba Uti á
götu sneri fólk sér viö I bllunum
til aö horfa á okkur. Viö vorum
dauöskelkuö. Fyrsta kvöldiö
var mér og Steve boðiö I biltúr.
Við keyröum sama vegaspott-
OG
ann fram og til baka átta eöa m'u
sinnum og vissum ekkert
hvaöan á okkur stóö veöriö. En
núna vitum viö aö þetta var vel
meint og viö vorum bara á rUnt-
inum.”
Steve sagöi:
„tsland var allt ööruvisi en ég
haföi Imyndaö mér. Hér voru
t.d. hvorki Isbimir eöa eski-
móar. Ég haföi séö myndir
héöan af eldsumbrotum en það
var næstum allt og sumt.”
Og Tom :
„Islensku unglingarnir eru
þroskaölri en þeir amerisku.
Foreldrarnir gefa þeim meira
frelsi en þeir fá lika meiri
ábyrgö og taka henni af meiri
alvöru. Þeir vinna llka miklu
meira. Heima byrjum viö ekki
aö vinna fyrr en 15 ára gömul og
sum ekki fyrr en 18 ára.”
— Hvaö um Islensku ungling-
ana?
— Craigy!, segir Steve.og þau
hlæja öll dátt. Þau eru frjálsari
hérna og þaö er auövelt aö tala
viö þau, sérstaklega þegar þau
hafa fengið sér dálltiö neöan i
þvl. Annars eru þau dálltiö
feimin viö aö tala ensku.
— Hvaö er ykkur minnis-
stæöast frá Islandi?
— Böllin, segja þau einum
rómi.
Oll bera þessi amerisku ung-
menni gestgjöfum sinum ákaf-
lega vel söguna og eru ákveöin
aö koma aftur.
Haustsólin freistar: Sá sem litur glaöur um öxl er Björn G. Jónsson
en réttsælis frá honum eru Finnur Árnason, Jón Erlingur Jónasson,
Höröur Hauksson og Maria Guöfinnsdóttir (Ljósm. -gel)
Má ég
Á fimmtudag skein sól I
Reykjavik. I Austurstræti gekk
fólk fram og til baka á stálgráu
malbiki og vildi ekki fara heim
til sin. 1 brekkunni fyrir neöan
Menntaskólann var veriö aö
tollera busa meö þeim kynlega
æsingi sem gripur alltaf um sig
viö svoddan atfarir. Vegfar-
endur kipptu sér samt ekkert
upp viö þetta og viröuleg kona i
minkapels sást brosa út i annaö
munnvikiö. Hún var tolleruö á
þessum sama staö áriö 1948. Eg
ók fram hjá Hljómskála-
garöinum og sá glytta i loöiö
brjóst á fullorðnum manni sem
haföi fariö úr skyrtunni i haust-
sólinni. Fyrir framan Lögberg á
háskólalóöinni var ungt fólk úti
á bletti meö bækur og kaffibolla.
Mikiööfundaöi ég þaö. „Heilt og
sælt veri fólkiö”, sagöi ég. „Má
ég trufla?”
Já, ekkert var sjálfsagöara.
Þetta var prútt fólk og frjáls-
mannlegtf fasi. Og drakk kaffiö
sitt og var aö glima viö dæmin
sin. Fjtírir piltar — ein stúlka.
Þeir eru Finnur Arnason, Jón
Erlingur Jtínasson, Höröur
Hauksson og Björn G. Jónsson,
hún Maria Guöfinnsdóttir. Oll
eru þau nýbyrjuö i „verk og
raun” en þaöútleggst Verkfræöi
og raunvísindadeild Háskóla Is-
lands.
— Hvaö læriö þiö þar?
— Fjögur okkar eru I llffræöi
en Höröur er i eðlisfræöi.
trufla?
— Og hvernig llkar ykkur?
—■ Þetta er mikil vinna. Allt
er keyrt á fullu strax.
— Þurfiö þiö aö mæta i alla
tima?
— Nei, ekki aö nafninu til en
kennararnir eru fljótir aö koma
okkur I skilning um aö reynslan
sýniaöþeirsem mæti ekki 100%
falli yfirleitt. Viö þurfum aö
sækja 28—30 tima á viku.
— Er þetta skemmtileg
deild?
— Félagslifiö er frekar dauft,
aöallega vegna vinnuálags. Þaö
er miklu fjörugra i húmanisku
greinunum. Þar þurfa nem-
endur kannski ekki aö sækja
nema 15 tima á viku og geta
setiö langtlmum saman á kaffi-
stofum og „filósóferaö”.
— Falla margir?
— Þeir segja aö þeir sem ná
prófum séu yfirleitt aö taka þau
i annaö skipti.
— En af hverju liffræöi?
— I þá grein fara þe.ir sem
vilja komast inn I visinda-
heiminn en eru samt sem áöur
meö „húmanfska tendensa”.
Já, þar höfum viö þaö.
Annars viöurkennir þetta
ágæta og brosmilda fólk aö þaö
sé fyrst og fremst úti á bletti
meö sktílabækurnar og kaffi-
bollana til aö slugsa svolltiö.
Veröi þvl aö góöu. Á fimmtu-
dag skein sól i Reykjavlk.
—GFr
Smælki
Eitt sinn var Eyjólfur
Ijóstollur, alkunnur flæk-
ingur, á gangi um götur
höfuðstaðarins og ræddi
við vin sinn Magnús
Stephensen landshöfð-
ingja. Þorvaldur pólití
var maður siðavandur,
sem honum bar, víkur sér
að Ljóstolli og segir
stranglega: „Þú þúar
landshöfðingjann,
Eyjólfur!" — Eyjólfur
svaraði: „Ojá, Ég þúa
guð og góða menn, en
þéra andskotann og yð-
ur."
Vont getur verið að fá spark I....
Myndin er tekin á Laugardals-
velli um daginn er v-þýska liðið
Köln burstaði Skagamenn.
Þessi leikmaður Kölnarliðsins
heitir Engels (nei, ekki sá...)
Úr koffortinu
hans afa
Koffortiö hans afa er
óþrjótandi lind. Sennilega hefur
afi eignast þetta kort af leikkon-
unni frægu Grétu Garbo áöur en
hann kynntist ömmu og liklega
á þeim árum þegar ungir menn
elska platónskri ást þvi á bak-
hliðinni stendur: „ö Grjeta,
min einlæg vina”. Ekki trúi ég
þvi aö afi hafi nokkurn tima orö-
iö á vegi Grétu Garbo. Nei, þaö
er af og frá. -Jafnvel þó aö hann
hafi verið á togara. Nei.